Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 35 FYRSTA HJÁLP SNÚUM VÖRN í SÓKN OG FORÐUM BÖRNUM OKKAR • FRÁ SLYSUM Rauði kxoss Islands gengst fyrir tveggja kvölda námskeiði um algengustu slys á bömum, hvemig bregðast á við slysum og hvemig koma má í veg fyrir þau. Námskeiðið fer fram að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík dagana 22. og 24. febrúar n.k. kl. 20 - 23. Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu RKÍ í síma 91-626722 fyrir kl. 17 föstudaginn 19. febrúar. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUDA KROSS ÍSLANDS Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91 - 626722 UTSALA fimmtudag til laugardags SÆVAR KARL & SYNIR Kringlunni, sími 689988 KVIKMYNDIR Rómantísk blóðsuga Blóðsugur hafa fram að þessu ekki þótt sérlega kynþokkafull- ar og átt lítið skylt við rómantík, en í nýjustu mynd Francis Ford Coppola hefur Drakúla greifi fengið á sig nýja mynd. Coppola hefur séð í greif- anum sérstakan persónuleika sem öðrum hefur verið hulinn. „Greifínn er að sjálfsögðu blóðsuga og óvætt- ur, en fyrst og fremst er hann aum- ur og vansæll, síleitandi eftir ást og friði,“ segir Coppola. í Drakúlamynd Coppola er bitið af miklum „elegans" og ástríðum. Hefur nú brotist úr hálfgert Drakúla- æði í Bandaríkjunum, sem felst í Drakúla-tískufatnaði, Drakúlakokk- teil og svo framvegis. Greifinn í þess- ari nýjustu blóðsugumynd er leikinn af Gary Oldman, en það er enginn annar en Anthony Hopkins, mannæt- an í kvikmyndinni Lömbin þagna, sem leikur dr. van Helsing, þann er leggur greifann í einelti. Myndin verður frumsýnd í Stjömubíói í næstu viku. Francis Ford Coppola sér í greif- anum per- sónuleika sem hefur verið hul- inn öðrum. Gary Oldman í hlutverki Drakúla greifa. Anthony Hopkins leikur dr. van Helsing, sem reynir að koma blóðsugunni fyrir kattarnef. LEIKSTJÓRN Grænlenskir leikarar á námskeiði Grænlensku leikararnir Agga Olsen og Rink Egede eru hér á landi í námi hjá Brynju Benedikts- dóttur leikstjóra og hafa dvalið með henni á Húsavík undanfarnar vikur til að fylgjast með og læra leikstjóm. Grænlenska heimastjórnin og Norræna menningarmiðstöðin í Nuuk styrkja för þeirra til íslands og bæjarstjórn Húsavíkur og leikfé- lagið sjá um uppihald þeirra hér. í Nuuk, höfuðstað Grænlendinga, eru um 15 þúsund íbúar og þar er eina atvinnuleikhúsið í landinu og heitir það Silamiut, en við það vinna Agga og Rink auk þess sem þau vinna við grænlenska sjónvarpið. Gestimir, ásamt Brynju, heim- sóttur skólana á Húsavík og kynntu þar menningu Inúita með fornum trommudansi, grímudansi og fyrir- lestrum. Morgunblaðið/Silli Grænlensku leikararnir Agga Olsen og Rink Egeda ásamt Brynju Benediktsdóttur leikstjóra. HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN % Laufásvegi 2 - sími 17800 ^ Beisli, taumur og múll J Kennari: Arndís Jóhannsdóttir. 23. feb. - 9. mars, þriðjudaga kl. 19.30-22.30. -J- Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga Æ - fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800. Síðustu dagar útsölunnar Enn meiri verðlækkun Q benetíon Nýjar vörur í næstu viku K r i n g I u n n i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.