Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.02.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993 Forseti lagadeildar á málþingi Orators um stríðsglæpi Réttarríkinu ber að rannsaka rökstuddan gnrn um stríðsglæpi STRÍÐSGLÆPIR voru val laganema á viðfangsefni á fjöl- mennu málþingi Orators sem haldið var í Norræna húsinu 16. febrúar síðastliðinn. Framsöguerindi fluttu þeir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, heimspekingur, Guðmundur Eiríksson, þjóðréttarfræðingur og Eiríkur Tómasson, hæstaréttarlög- maður. Gunnar G. Schram, forseti lagadeildar, kvaddi sér hljóðs eftir framsöguerindin og sagði, að sem réttarríki bæri íslandi að virða alþjóðaskuldbindingar sínar og hefja rannsókn komi fram rökstuddar ásakanir um stríðsglæpi. Bæði Eiríkur og Gunnar töldu fulla ástæðu til að taka upp frekari ákvæði um stríðsglæpi inn í íslensk lög. Ágúst Ingþórsson fagnaði því að laganemar skyldu velja þetta við- fangsefni, þar sem umræðan í þjóð- félaginu undanfarið sýndi glöggt hvað íslendingar vissu lítið um þessi mál. Hann. ræddi um skilgreiningu á hugtakinu „stríðsglæpur" og kom inn á almenn viðhorf, að talað væri um að „stríð geysi“ líkt og náttúru- hamfarir og spurði hvort hægt væri að fella siðferðilegan dóm yfir Heklu, jafnvel þó hún myndi leggja allt Suðurland í auðn. Ágúst ræddi síðan um ríkjandi tvöfeldni í siðferðilegu mati. Sið- menning okkar stefndi að því að gera stríð mannúðlegt, en stríð héldi áfram að vera stríð, þó mannúð- legri aðferðum væri beitt. Hann sagðist að lokum ekki geta gefið endanlegt svar, þar sem hver at- burður ætti sér ákveðna forsögu, umhverfi og aðstæður sem alltaf þyrfti að taka tillit til. Alþjóðlegur refsidómstóll Guðmundur Eiríksson ræddi um sögulegan aðdraganda lagasetning- Morgunbiaöið/Porkeli Þingið sett JÓNAS Þór Guðmundsson, for- maður Orators, setur málþingið. ar á þessu sviði og breytt viðhorf á skilgreiningu á stríðsglæpum, þar sem nú væri aukinn áhugi á mann- réttindum. Hann sagði að alþjóða- laganefnd Sameinuðu þjóðanna hefði lagt fram tillögur um að stofn- setja alþjóðlegan refsidómstól, sem myndi starfa samkvæmt milliríkja- samningi. Guðmundur sagðist eiga von á að nefndin myndi skila full- mótuðum tillögum í haust. Aðal- kosturinn við slíkan dómstól væri að ekki yrði hægt að gagnrýna rétt- arheimildir hans. Eiríkur Tómasson sagðist vera eindreginn stuðnings- maður slíks dómsstóls og stofnsetn- ing hans væri eitt af forgangsverk- efnum á alþjóðavettvangi. Vantar ákvæði um stríðsglæpi í íslensk lög Eiríkur sagði að í íslenskum lög- væri ekki að finna sérstök ákvæði um stríðsglæpi né skyld afbrot, einungis stuðst við almenn ákvæði sem taka til brota á borð við manndráp,- líkamsmeiðingar, nauðgun og fleira. Eiríkur sagði tímabært að taka upp lagareglur um stríðsgjæpi og þjóðarmorð í íslensk lög. Áður en rannsókn hæfíst í málum af þessu tagi yrðu grunsemdir um brot að vera rökstuddar. Hann lagði áherslu á að enginn væri sekur fyrr en sekt hans hafí verið sönnuð. Eiríkur fagnaði því að efnt væri til umræðu um stríðsglæpi, en mikilvægt væri að sú umræða væri málefnaleg og laus við það ofstæki, sem því miður hefði einkennt hana að undanfömu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Kirkjuleg sveifla FRÁ tónleikunum í Bústaðakirkju á sunnudag. Frá vinstri Sigrún Hjálmtýsdóttir, James Olsen og Rut Reginalds. Kirkjuleg’ sveifla verður endurtekin Fæni komust að en vildu á sunnudag* FÆRRI komust að en vildu á kirkjulega sveiflu í Bústaða- kirkju síðastliðið sunnudagskvöld og því hefur verið ákveð- ið að endurtaka hljómleikana í kvöld klukkan 20:30. Á dagsskrá er blús, negrasálmar og léttklassisk lög. Á sunnudag seldust aðgöngumið- ar upp á skömmum tíma og þurftu margir frá að hverfa, Því hefur verið ákveðið að tónleikamir verði endurteknir í kvöld, miðvikudag 17. febrúar, en aðgöngumiðasala hefst í dag klukkan 14. Flytjendur era hinir sömu og á sunnudag: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Rut Reginalds, Ema Gunnarsdóttir, James Olsen, Magnús Kjartansson og hljómsveit auk heimamanna í kirkjunni, sem eru Guðni Þ. Guð- mundsson ásamt kirkjukór og bamakór og séra Pálma Matthías- syni. Málþing Stúdentaráðs undir yfirskriftinni Kjarkur gegn kreppu Kjarkur gegn kreppu FRÁ STÚDENT ’93, málþingi Stúdentaráðs HÍ. Þar var fjallað um mennta-, umhverfis-, og atvinnumál á íslandi. Á myndinni eru f.v. Skúli Helgason, Jón Sigurðsson, iðnaðaráðherra, Hörður Ásmundsson frá Marel hf., Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða og Örn G. Jónsson. Tækifærin í hátækniiðnaði BREYTA þarf forsendum I útreikningi hagvaxtar og leggja áherslu á það að minnka mengun og vinna betur úr hráefni. Einnig er nauðsynlegt að hætta dekri við bóknám og hefja verknám til virðingar að nýju. Þessar skoðanir komu m.a. fram á Stúdent ’93, málþingi Stúdentaráðs HÍ, sem var hald- ið undir slagorðinu „Kjarkur gegn kreppu“, var fjallað um umhverfis-, mennta-, og atvinnumál. 50 ára miiminsf Þormóos- slyssins HELGISTUND verður í Bíldudalskirkju í kvöld, miðvikudaginn 17. febr- úar kl. 20 og í Dómkirlg- unni fimmtudagskvöldið 18. febrúar kl. 21 af því tilefni að þá eru liðin fimmtíu ár frá Þormóðs- slysinu." Hinn 18. febrúar 1943 fórst strandferðaskipið Þormóður í Garðssjó og með honum 27 manns, þar af 21 maður frá Bíldudal. Þetta era einhverjar mestu slysfarir sem sögur fara af á íslandi og fullyrða má að engin byggð á íslandi hafí verið svo þungt lostin sem Bílddæl- ingar vora þá. Mikið vatn hefur síðan til sjávar runnið en óhætt er að fullyrða að þetta hörmulega slys hafí markað mjög ævi þeirra sem urðu fyrir missi þá og um margt sett mót sitt á Bílddælinga sérstaklega. Á helgistundinni í Bíldudals- kirkju flytur Pétur Björnsson, sonur eins mannsins sem fórst, hugvekju. Sr. Karl Matthíasson flytur bæn og ritningarorð. Að Iokinni helgistundinni er kirkju- gestum boðið til kaffíveitinga í safnaðarheimilinu. Helgistundin í Dómkirkjunni er á vegum Arnfirðingafélags- ins í Reykjavík. (Fréttatilkynning) Bóknám og verkmenntun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þing- maður Kvennalista, var einn af ræðumönnum í umræðunni um menntamál. Hún lagði áherslu á að skólakerfíð yrði að kenna þrennt, þ.e. umönnun, ábyrgð og fæmi. Kenna þyrfti umönnun svo að fólk gæti annast sjálft sig og fjölskyldu sína, ábyrgð svo fólk hefði hæfni til að búa í samfélagi með öðrum og loks fæmi til þess að afla lífsviðurværis. Ingibjörg Sólrún lagði áherslu í umfjöllun sinni um framhaldsskóla- kerfíð á að nauðsynlegt væri að efla virðingu fyrir handverki. Að sögn hennar hefur verknámi verið misboð- ið og ein af orsökunum er sú að hugvísindafólk hefur of mikið mótað menntakerfíð. Ingibjörg Sólrún sagði að stjómendur atvinnulífsins yrðu einnig að gera sér grein fyrir því að starfsmenntun væri nauðsynleg. Guðmundur Birgisson, háskóla- ráðsfulltrúi, kom af stað töluverðri umræðu, þegar hann tók undir orð Ingibjargar Sólrúnnar um að nauð- synlegt væri að efla virðingu fyrir verknámi, með því að leggja til að öll námslok á framhaldsskólastigi enduðu með stúdentsprófi. Guð- mundur benti á að öll námslok yrðu að vera merkileg. Hann sagði að algengt væri að heyra að nemar væru í framhaldsskóla til að fá stúd- entspróf en ekki til að hljóta mennt- un. Grænar hagtölur Elsa Guðmundsdóttir, hagfræð- ingur, sagði að breyta yrði ríkjandi hagvaxtarstefnu. Þessi stefna byggðist á því að auðlindir jarðar væru óþtjótandi og menn þyrftu þess vegna ekki að bera ábyrgð á gerðum sínum. Hún sagði að breyta yrði forsendum hagvaxtar- stefnunnar. Það yrði að taka upp langtíma stefnumótun sem uppfyllti þarfir manna í dag án þess að ganga á auðlindir. Elsa lagði áherslu á að framleiðsla og neysla þyrfti ekki að stöðvast en vemdun yrði að vera forgangsatriði. Hún benti á að betri hráefnisnotkun hefði í för með sér spamað og fyrirbyggjandi meng- unaraðgerðir væru atvinnuskapandi. Sem dæmi nefndi Elsa að krafan um umhverfisvænar vörur skapaði nýjan markað sem stuðlaði að fíölbreytni í atvinnulífi. Tækifæri í hátækniiðnaði Hörður Ámason hjá Marel hf. sagði að nauðsynlegt væri að gera langtímaáætlanir til 3-5 ára þegar vinna ætti að þróunarstarfsemi í hátækniiðnaði. En sá_ iðnaður ætti mikla möguleika á íslandi. Hann lagði áherslu á að til að stunda hag- nýtar rannsóknir þyrfti sterka mark- aðstengingu. Að sögn Harðar er sú stefna að taka upp rannsóknartengt framhaldsnám hjá Háskóla íslands stuðningur við íslenskan iðnað. ís- lensk fýrirtæki eiga ekki að keppa við stórfyrirtæki heldur er lykilorðið í hátækniiðnaði sérhæfíng.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.