Morgunblaðið - 17.02.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
5
Risnu- og' ferðakostnaður rík-
isins um 1,7 milljarðar 1991
Risnu- og ferðakostnaður ríkisins* 1991 og 1992
í þús. króna * A hluti RISNUKOSTNAÐUR F E R Ð < AKOSTN AÐUR
1990 1991 Breyting 1990 1991 Breyting
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti 10.208 15.421 51,1% 114.361 165.302 44,5%
Menntamálaráöuneyti 20.269 29.969 47,9% 141.287 160.899 13,9%
Utanríkisráðuneyti 21.127 36.797 74,2% 114.248 120.416 5,4%
Samgönguráðuneyti 9.782 10.760 10,0% 129.817 112.471 -13,4%
Dóms- og Kirkjumálaráððuneyti 5.700 10.059 76,5% 104.054 103.306 -0,7%
Æðsta stjórn ríkisins 22.002 18.323 -16,7% 63.282 69.288 9,5%
Iðnaðarráðuneyti 8.184 7.444 -9,0% 70.548 68.190 -3,3%
Sjávarútvegsráðuneyti 6.763 7.967 17,8% 68.997 61.752 -10,5%
Landbúnaðarráðuneyti 3.949 6.879 74,2% 52.513 53.756 2,4%
Fjármálaráðuneyti 7.752 9.117 17,6% 29.561 35.687 20,7%
Félagsmálaráðuneyti 5.186 3.731 -28,1% 33.080 33.474 1,2%
Umhverfisráðuneyti 2.262 4.571 102,1% .9.083 31.059 241,9%
Viðskiptaráðuneyti 2.852 3.496 22,6% 11.207 14.810 32,1%
Forsætisráðuneyti 8.746 10.479 19,8% 11.643 11.983 2,9%
Hagstofa íslands 340 1.058 211,2% 3.138 4.103 30,8%
Fjárlaga- og hagsýslustofnun 57 - - 2.256 - -
Samtals: 135.179 176.071 959.075 1.046.496
RISNUKOSTNAÐUR og
ferðakostnaður ríkisins [A-
og B-hluta ríkisreiknings]
innanlands og erlendis var
1.675.510 þúsund krónur á
árinu 1991 samkvæmt ríkis-
reikningi ársins sem lagður
hefur verið fram. Á árinu
1990 var þessi kostnaður
1.482.933 þús. kr. og hafði
aukist um 13% á milli ára.
Að raungildi nemur aukn-
ingin 4,6%.
Risnukostnaður ráðuneyta og
stofnana sem heyra til A-hluta
ríkissjóðs nam tæplega 176 millj-
ónum króna og hafði hækkað um
30 milljónir frá árinu á undan.
Risnukostnaður B-hluta ríkisfyrir-
tækja og sjóða í ríkiseign nam 32
milljónum og hafði hækkað um
tæpar 6 milljónir frá árinu 1990.
Ferðakostnaður ráðuneyta og
stofnana erlendis sem tilheyra
A-hluta nam tæplega 629 milljón-
um kr. og tæplega 418 milljónum
innanlands. Ferðakostnaður B-
hluta fyrirtækja og sjóða nam 289
milljónum innanlands og tæplega
132 milljónum erlendis á árinu.
Risna æðstu stjórnar lækkar
Sé eingöngu litið á ferða- og
risnukostnað ríkissjóðs og stofn-
ana í A-hluta kemur í ljós að risnu-
kostnaður var hæstur í utanríkis-
ráðuneyti, eða um 36,6 milljónir
króna.
í menntamálaráðuneyti var
risnukostnaður tæplega 30 millj.
kr., þar af tæplega 12 millj. kr. á
aðalskrifstofu ráðuneytisins og 5,6
millj. hjá Háskóla íslands.
Hjá æðstu stjórn ríkisins nam
um risnukostnaður 18 millj. kr.,
þar af voru tæplega 11 millj. kr.
hjá Alþingi og rúmlega þrjár millj.
vegna opinberra heimsókna.
Risnukostnaður æðstu stjórnar
ríkisins lækkaði í krónum talið frá
árinu 1990 um fjórar millj. Risnu-
kostnaður minnkaði einnig frá ár-
inu á undan í félagsmálaráðuneyti
og iðnaðarráðuneyti en jókst hlut-
fallslega mest í umhverfisráðu-
neyti, dómsmálaráðuneyti, land-
búnaðarráðuneyti, og hjá Hag-
stofu íslands.
Ferðakostnaður innanlands
lækkaði umtalsvert í nokkrum
ráðuneytum og hjá æðstu stjórn
ríkisins, m.a. í utanríkisráðuneyti,
forsætisráðuneyri, sj ávarútvegs-
ráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, fé-
lagsmálaráðuneyti og í samgöngu-
ráðuneyti. Mest hækkaði ferða-
kostnaður innanlands hins vegar
í heilbrigðisráðuneyti og umhverf-
isráðuneyti. Ferðakostnaður er-
lendis jókst einnig mest í tveimur
síðast nefndu ráðuneytunum [sjá
töflu]. Nauðsynlegt er að benda á
að á árinu 1991 voru sex stofnan-
ir fluttar undir stjórn umhverfis-
ráðuneytis frá menntamála-, land-
búnaðar-, félagsmála- og sam-
gönguráðuneytunum.
Nær upp-
selt á Kris
HINN heimskunni söngvari og
leikari Kris Kristoffersson er
væntanlegur hingað til iands
í vikulokin. Hann heidur
tvenna tónleika á Hótel íslandi
á föstudags- og laugardags-
kvöld. Mikil aðsókn er að tón-
leikunum og er að verða upp-
selt á báða tónleikana, að sögn
Ólafs Laufdals veitingamanns.
„Það er langt síðan svona
stemmning hefur verið fyrir er-
lendum skemmtikrafti hér í hús-
inu enda er þetta einn þekktasti
söngvari og lagasmiður sem
komið hefur til Islands," sagði
Ólafur.
Útvarpsstöðin Bylgjan mun
senda tónleikana út beint.
Skildu bíl-
inn eftir á
flóttanum
BROTIST var inn í verslun í
Skútuvogi í fyrrinótt. Styggð kom
að þjófunum og flýttu þeir sér svo
mjög í burtu að þeir skildu bifreið
sína eftir, svo eftirleikur varð lög-
reglu auðveldur.
Vaktmaður í hverfinu sá til.
þjófanna og kallaði á lögreglu.
Þjófarnir urðu varir við að fylgst
var með þeim, köstuðu frá sér
poka með þýfi og flúðu.
Þegar lögreglan kom á staðinn
var bifreið þjófanna fyrir utan
verslunina og vél hennar enn
ylvolg. Lögreglunni veittist auð-
velt að hafa uppi á eiganda henn-
ar og upplýsa málið.
Valið stendur um
þrjár mismunandi
tegundir af
Merrild kaffi:
103-Millibrennt
304-Dökkbrennt
104-Mjög dökkbrennt
Merrild
£
v<D
c/>
'ctf
Aag/
setut