Morgunblaðið - 17.02.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRUAR 1993
7
Morgunblaðið/Alfons
Brug’gtækin
Guðlaugnr Wíum lögreglumaður
við tækin, sem lagt var hald á.
Bruggari
gripimivið
iðju sína
LÖGREGLAN í Ólafsvík lagði
hald á bruggtæki og 80-90 lítra
af gambra í húsi á Heilissandi á
iaugardag. Einnig fannst um 1
lítri af eimuðu áfengi.
Bruggarinn var handtekinn í miðri
suðu og færður í fangageymslur lög-
reglunnar á meðan málið var rann-
sakað frekar. Við yfirheyrslur viður-
kenndi hann verknaðinn. Honum var
sleppt, enda málið talið að fullu upp-
lýst. Við handtöku mannsins lagði
lögreglan hald á tvær 160 lítra tunn-
ur, sem gambrinn fannst í, ásamt
síum og ýmsum öðrum búnaði tengd-
um starfseminni.
--------^-------------------------------------------------------
Gjaldeyrisforðinn í Seðlabankanum hefur sjaldan verið jafn mikill
Gjaldeyrissjóðurinnjókst
um 5,4 milljarða í fyrra
í JANÚARLOK var gjaldeyrisforði landsins raeð mesta
móti en þá nam gjaldeyrisvarasjóður Seðlabankans alls
28,2 milljörðum króna. Hafði gjaldeyrisvarasjóðurinn þá
aukist um 5,4 milljarða króna á 12 mánaða tímabili. Að
sögn Eiríks Guðnasonar aðstoðarseðlabankastjóra er hin
góða staða á sjóðnum einkum tilkomin vegna mikilla lang-
tímalána á vegum ríkissjóðs en sjóðurinn er gjaldeyriseign
Seðlabankans að frátöldum skammtímaskuldum.
í hagtölum mánaðarins fyrir
janúar er að finna yfirlit um þróun
gjaldeyrisforðans frá árinu 1980.
Þar sést að staðan á gjaldeyrisva-
rasjóðnum hefur batnað verulega
á sl. 10 árum. Þannig dugði gjald-
eyrisforðinn aðeins fyrir um
tveggja mánaða meðalinnflutningi
árið 1983 en nú áratug síðar dug-
ir forðinn fyrir innflutningi í fimm
og hálfan mánuð. Síðasta sumar
náði sjóðurinn hámarki en þá
dugði inneign í honum fyrir fímm
og hálfs mánaðar innflutningi til
landsins.
í máli Eiríks Guðnasonar kom
fram að miklar útgreiðslur hafí
verið úr gjaldeyrisvarasjóðnum í
janúar eða 2,8 milljarðar króna.
„Þessar miklu greiðslur skýrast
að langmestu leyti af því að mikið
var um afborganir af lánum í þess-
um mánuði og því ekki ástæða til
að hafa áhyggjur af þessu út-
streymi," segir Eiríkur.
Erlend lán
Staðan á gjaldeyrisvarasjóðnum
endurspeglar ekki nettóskulda-
stöðu þjóðarbúsins erlendis en hún
nam rúmlega 170 milljörðum
Gjaldeyrislorðí og endingar-
tími tii almenns innflutnings
Endingartími m.v.
1 meðalinnflutning
30- siðustu12mán.
25
20
15
10
5
ITH
v
HGjaldeyrisforði i lok
tímabils á árslokagengi
1992 i milljörðum króna
■L.U..L.LL
- 6
mán.
80
85 90 92
Heimití: HAGTÖLUR MÁNAÐAFHNS
króna í árslok 1991. Eiríkur segir
að ef ekki kæmu til langtíma er-
lend lán myndi viðskiptahallinn
sem er á viðskiptunum við útlönd
rýra mjög stöðu sjóðsins.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Bráðabirgðaviðgerð
Unnið að viðgerð á klæðninu móttökudisks Ríkisútvarpsins við Efsta-
leiti.
Bráðabirgðaviðgerð
á móttökuskermi
BRÁÐABIRGÐAVIÐGERÐ fer nú fram á klæðningu mót-
tökudisks Ríkisútvarpsins í Efstaleiti sem nokkrar skemmd-
ir urðu á í óveðrinu á föstudaginn.
Diskurinn er í eigu Pósts og
síma og sagði Hrefna Ingólfsdótt-
ir upplýsingafulltrúi að engar
skemmdir hefðu orðið á móttöku-
búnaði eða disknum sjálfum. Hún
sagði að klæðning hefði gefíð sig
á hluta disksins og væri því opið
inn í hitahólf hans þannig að ekki
væri hægt að bræða snjó af diskn-
um í mikilli snjókomu. Beðið er
eftir tilboði framleiðanda klæðn-
ingarinnar í Bandaríkjunum en
bráðabirgðaviðgerð lýkur í vik-
unni. Hrefna áleit að tjónið væri
ekki umtalsvert.
miðað við efnahagshorfur!
LADA • LADA • LADA • LADA
SAFIR
Frá 418.000,- kr.
104.500,- kr. út
og 10.051,- kr.
í 36 mánuði
SKUTBILL
Frá 498.000,- kr.
124.500,- kr. út
og 11.974,- kr.
í 36 mánuði
SAMARA
Frá 523.000,- kr.
131.000,- kr. út
og 12.568,- kr.
í 36 mánuði
SPORT
Frá 798.000,-
200.000,- kr. út
og 19.172,- kr.
í 36 mánuði
í. Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumögulerka.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreilmingi á mánaðargreiðslum.
AFAR liAIMI.IH R KOSTIIR!
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLfl. 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36