Morgunblaðið - 17.02.1993, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
.»AUSI vuuT^
IIAUSI
© 6220301
J30ÁRA
FASTEIpNA
MIÐSTOÐIN
SKIPHOLTI 50B
I Bergstaðastræti - einb ■ 7469
< Vorum að fá í sölu gott 250 fm einbýlishús auk bílskúrs
o á þessum vinsæla stað. Vel viðhaldið og fallegt hús.
lu Laust fljótlega.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Hagamelur
5247
- frábær staðsetning
Nýkomin í einkasölu stórglæsileg 135 fm sérhæð ásamt
bílskúr í góðu steyptu húsi á þessum eftirsótta stað.
Stórar stofur. Góð herbergi. Allt sér. Ákveðin sala.
Silfurteigur
2594.
Vorum að fá í sölu glæsilega 111 fm 3ja herb. kjíb. á
þessum frábæra stað. Parket. Allt sér. Verð 7,3 millj.
Sléttahraun - Hf. - 4ra + bílsk. Nýkomin
sérl. falleg ca 105 fm endaíb. á 2. hæð í góðu fjölb.
Parket. Suðursv. Áhv. ca 4,2 millj. húsbr. Ákv. sala.
Espigerði — 4ra. Nýkomin sérl. björt og falleg 95
fm íb. á 2. hæð (efstu) í góðu fjölb. Parket. Suðursv.
Sérþvherb. útsýni.
Stelkshólar - 2ja. Nýkomin falleg ca 60 fm íb. á
2. hæð í litlu fjölb. Áhv. hagst. langtlán ca 2,5 millj.
Verð 5,5 millj.
Alftanes — einb. Glæsilegt, nýl. einlyft (steinhús)
einb. m. bílsk., samt. ca 190 fm. 3 svefnherb., arinn
o.fl. Útsýni. Áhv. hagst. langtlán ca 7,2 millj.
Ofanleiti - 3ja. Mjög falleg 90 fm íb. í góðu fjölb.
á 1. hæð m. sérgarði. Sérinng. Allt sér. Bílskýli.
Verð 8,9 millj.
Háaleitishverfi. Falleg 105 fm íb. á 2. hæð í góðu
fjölb. Suðvestursv. Útsýni. Verð 7,9 millj.
Skógarás - 3ja. Glæsil. ca 90 fm íb. á 2. hæð í
litlufjölb. Sérþvherb. Parket. Hagst. lán. Verð 8,1 millj.
Gerðhamrar - sérh. Nýkomin glæsil. efri sérhæð
ásamt bílsk. á þessum góða útsýnisstað samt. ca 200
fm. Upphitað bílaplan. Fullb. eign í sérfl.
Nánari upplýsingar veitir:
HRAUNHAMARhf
FASTEIGNASALA
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.
Sími 54511.
011 Kfl 01 07fl LÁRUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
L I lv/v"£IO/U KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu m.a. annarra eigna:
Rétt við Árbæjarskóla
nýtt og glæsil. raðh. á tveimur hæðum með 6-7 herb. íb. um 170 fm
samt. Innr. kj. um 85 fm með frábærri fjölskylduaðst. Heitur pottur.
Gufubað. Góður bílsk. Góð lán fylgja.
Nýtt glæsilegt einbýlishús
við Þingás með 6 herb. rúmg. íb. á tveimur hæðum auk bílsk. með
verkstæðisrými alls 226 fm nettó. Húsið er íbhæft, ekki fulíg. Mikil
og góð lán fylgja.
Ný úrvalsíbúð við Reykás
4ra-5 herb. á 2. hæð 118 fm. 3 rúmg. svefnherb. Góður sjónvarps-
skáli. Sérþvottah. Tvennar svalir. Allar innr. og tæki af bestu gerð.
Gamla góða húsnæðislánið 2,5 millj.
Á vinsælum stað í Mosfellsbæ
nýtt og glæsil. parh. á einni hæð með góðum bílsk. og sólskála samt.
169,5 fm. Allar innr. og tæki af bestu gerð. Mjög góða lán fylgja.
Skipti mögul. á nýl. 4ra-5 herb. íb. í borginni eða nágr.
Hveragerði - einbýli - eignaskipti
Á góðu verði við Borgarheiði einbh. ein hæð um 120 fm. 4 rúmg.
svefnherb. Bílsk. með geymslu. Ræktuð lóð. Eignaskipti mögul.
Daglega leita til okkar
fjársterkir kaupendur með margskonar óskir um fasteignaviðskipti.
Sérstakl. óskast góðar 3ja, 4ra og 5 herb. íb. Æskil. að bílsk. fylgi eða
bilskúfsr. Margskonar eignaskipti.
• • •
Einbýlishús, raðhús og parh.
sérhæðir o.fl. til sölu
í hagkvæmum skiptum.
Opið á laugardaginn.
ALMENNA
FASTf IGMASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Páll P. Pálsson
Jón Nordal
Atli Heimir Sveinsson
Myrkir músikdagar
________Tónlist_____________
Ragnar Björnsson
Síðasta skottísnum lauk sl.
sunnudagskvöld með glæsileg-
um, en maraþontónleikum í
Listasafni íslands. Nafnið Skott-
ís, á þessum skosk-íslensku tón-
leikum undanfarnar vikur, er svo
vel heppnað að maður hlýtur að
óska höfundi, eða höfundum, til
hamingu. Manni dettur í hug,
hvort ekki gæti hér verið um
eina útflutningsgreinina að
ræða, á sviði hugverka, þ.e. að
finna tónlistarhátíðum erlendum
skemmtileg heiti. Fyrsta verk
kvöldsins var Septemberson-
netta eftir Pál P. Pálsson. Þáttur-
inn er hugsaður sem einn hlutinn
í einskonar árstíðum og víst
mátti heyra andblæ haustsins í
verkinu, sem unnið er á klassísk-
um nótum, með pólifóníuna í
fararbroddi og í a-þ-a formi þar
sem óbóið leiddi mann milli þessa
hluta verksins. Vel skrifað og
mjög vel flutt af skoskum tónlist-
armönnum sem kalla sig Parag-
on Ensemble of Skotland. Þessi
hópur er mjög vel samæfður og
sýndi áberandi góðan leik í öllum
þeim tónverkum kvöldsins, sem
hann tók þátt í.
Myndir á þili, eftir Jón Nor-
dal, er mjög fallegt verk. Jón
sýnir hér nýjar hliðar á sér,
meiri framúrstefnu en maður
hefur heyrt hjá honum áður,
hugmyndirnar meitlaðar inn í
hver aðra. í síðustu myndinni
brá hann sér í gervi dægurlaga-
höfundarins og án þess að missa
nokkurn tíma tökin á öguðum
stíl sínum. Myndirnar heita
Brostin augu vatnanna, Þegar
íshjartað slær, Skrifað í sandinn
og Allt með sykri og ijóma. Þess-
ar myndir vill maður fá aftur að
sjá og heyra. Bryndís Halla og
Snorri Birgisson fluttu myndirn-
ar. Píanóið á alltaf svolítið erfitt
uppdráttar í sal listasafnsins, en
sellóið naut sín. Bryndís hefur
auðheyrilega kafað ofaní mynd-
irnar, skilaði enda innihaldinu
sérlega fallega og af óaðfinnan-
legu öryggi. Quintet eftir Edw-
ard McGuire, er byggður á
tveggja tóna hugmynd, hleðst
upp, breiðir úr sér og endar á
svipuðum nótum og verkið hófst
á. Einhvern veginn var verkið,
þrátt fyrir þetta, eða kannski
vegna of fárra hugmynda, of
langdregið og á mörkum þess
að halda manni vakandi.
Atli Heimir Sveinsson átti síð-
asta verkið fyrir hlé, Grand duo
concertante, fyrir flautu, klari-
nett og tónband. Atli hefur orðið
ótrúlegt vald yfir efninu sem
hann tekur í sínar þarfir. Svo
mikla þekkingu hefur hann á
möguleikum blásturshljóðfær-
anna að hann getur leyft sér ein-
földustu hugmyndir, og þó virð-
ist hugmyndaflugi hans lítil tak-
mörk sett. Fantasiestúcke, Der.
Dichter spricht, Kinderszenen,
Tráumerei, allt minnir þetta á
Schumann, annað tengt verkinu
minnir ekki á það fræga tón-
skáld, nema skáldskapurinn
sjálfur og sem betur fer getum
við ekki sundurgreint hann, og
ef við gætum, hver væri þá
skáldið? Ef Atla sýnist getur
hann og leyft sér að vera framúr-
stefnulegri en nokkurt annað ís-
lenskt tónskáld, þótt miklu yngri
sé, þeim styrk virðist hann hafa
náð. Atli segir sjálfur í efnisskrá
að „illa upplýstir gagnrýnendur
munu ekki finna neina úrvinnslu
hugmynda“. Innilega vona ég að
Atli falli aldrei í þá gryfju að
skrifa fyrir gagnrýnendur. Kol-
beinn Bjarnason og Guðni Franz-
son léku verkið með öllum kúnst-
arinnar reglum og var hér um
eftirminnilegan frumflutning að
ræða. Shall we dance? eftir Ela-
ine Agnew minnti óneitanlega á
heimaslóðir hennar, írland og
Skotland. The Road to Ardtalla
eftir James MacMillan í ágætum
flutningi félaga úr Caput-hópn-
um, venjulegt nútímaverk,
hvorki gott né illt en vel stjórnað
af David Davies, styrkjafnvægi
milli hljóðfæranna var þó ekki í
besta lagi. Svo var einnig í síð-
asta verkinu á efnisskránni, Le
bal Masqué, eftir Fr. Poulenc,
sjö eða átta þættir, sem nokkuð
minntu á Carmina Burana, flutt
af hópunum báðum sameigin-
lega. Og söngtextana sá John
A. Speight um og gerði það í
stíl og með stæl, sem honum var
treystandi til. Full ástæða er til
að óska aðstandendum til ham-
ingju með Myrka músíkdaga,
sem farnir eru að teygja sig út
yfír landamærin. Þar með lauk
tæplega þriggja tíma löngum
Skottís.
Sýnishorn úr söluskrá:
• Fiskbúð í austurbæ Rvíkur. Góð tæki og áhöld.
• Söluturn og myndbandaleiga v/Langholtsveg.
• Mjög góður og vel staðsettur söluturn í Breiðholti.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í járniðnaði.
• Bóka- og ritfangaverslun í verslunarkjarna í Kópav.
• Heildverslun með innfl. og dreifingu á hreinlætisv.
• Pylsuvagn, staðsettur í miðbæ Rvíkur.
• Lítil kjörbúð í eigin húsnæði í miðbæ Rvíkur.
• Söluturn í eigin húsnæði í vesturbæ Kópavogs.
• Blóma- og gjafavöruverslun í Kringlunni.
• Söluturn og myndbandaleiga við Faxafen í Rvík.
• Hótel á Norðurlandi. Nýl. húsnæði, miklir mögul.
• Bílapartasala í Kópavogi. Góð tæki og áhöld.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN
Ráðfjöf ■ tiókhald ■ Skatlaaðxtoð ■. Kaup oj> sala fyrirtœkja
Síðumúh 31 ■ 108 Reykjavík ■ Sími 6ti 92 99 ■ h'ax 6H 19 45
Kristinn II Runnursson, viðskiptafrœðinRur
Eddukvæði
og leiklist
Félag íslenskra fræða boðar til
fundar í kvöld, miðvikudag,
klukkan 20.30, í Skólabæ við
Suðurgötu. Þar mun Dr. Ter-
ence A. Gunnell flylja erindi um
leiklist og eddukvæði, m.a. í
ljósi spássíumerkinga í eddu-
handritum, sem eiga sér hlið-
stæðu í evrópskum miðalda-
handritum Ieikrita.
I fréttatilkynningu segir: Merk-
ingarnar gefa til kynna hver sé
mælandinn hverju sinni og má
ætla að þær séu e.k. sviðsleiðbein-
ingar til flytjenda kvæðanna.
Terry er kennari við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð og hefur nýlega
varið dokorsritgerð um leiklist
Skandinava að fornu við háskól-
ann í Leeds á Englandi. Hann tal-
ar á íslensku.
Að lokinni dagskrá gefst mönn-
um kostur á léttum veitingum.
Fundurinn er öllum opinn.