Morgunblaðið - 17.02.1993, Síða 44
Framtíðar-
öryggi
í fjármálum
KAUPÞING HF
Löggi/l verdbrífafyrinæti
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SIÓVÁ^^ALMENNAR
MORGVNBLAÐW, ADALSTRÆTI 0, 101 REYKJAVÍK
SlMI 091100, SÍMBRÉF 091181, PÓSTHÓLF 15S5 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Sniðtalningar umferðardeildar Reykjavíkurborgar
Mimii uinferd þrátt
fyrir fólksfjölgfun
UMFERÐ í Reykjavík var minni á árinu 1992 en 1991,
þrátt fyrir að íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði tals-
vert á milli ára. Þetta kemur fram í niðurstöðum svokall-
aðra sniðtalninga umferðardeildar borgarinnar.
Greiddi
vöru með
leikmun
FALSAÐUR 5000 króna seðill,
sem virðist vera leikmunur úr
Þjóðleikhúsinu, var notaður til
að greiða vörur í verslun í
Kringlunni í gær. Þegar af-
greiðslukona uppgötvaði að seð-
illinn var falsaður var viðskipta-
vinurinn á bak og burt.
Finnur Amar, leikmunavörður í
Þjóðleikhúsinu, sagði að honum
þætti ótrúlegt að nokkur gæti villst
á seðlum leikhússins og venjulegum
peningaseðlum. „Seðlamir, sem við
höfum notað á sviði, eru ekki í sömu
stærð og venjulegir 5000 króna
seðlar. Þá em þeir úr venjulegum
vélritunarpappír, þeir em í einum
bláum lit, en ekki nokkmm litatón-
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Blekkjandi leikmunur
MANNI tókst að blekkja af-
greiðslukonu í verslun með ljós-
riti af 5.000 krónu seðli í gær. Á
myndinni sést ljósritið undir
venjulegum seðli.
um og Þjóðleikhúsmerkið er prentað
á þá.“
Finnur sagði að seðlarnir væm
ekki notaðir í neinni uppfærslu leik-
hússins nú og væm geymdir í læst-
um skáp, svo hann kynni enga skýr-
ingu á því hvers vegna einn hefði
komist í umferð.
Umferðardeildin notar þá aðferð
við umferðarmælingar að telja
fjölda bílferða milli borgarhluta,
fremur en að mæla fjölda ekinna
kílómetra eins og Vegagerðin mið-
ar við á þjóðvegum. Taldir em bíl-
ar, sem aka yfir ákveðnar línur eða
„snið“, sem menn hugsa sér að
liggi þvert yfir borgina á fjórum
stöðum. Sniðtalningar voru teknar
upp 1974 og hefur umferðin auk-
izt nokkuð jafnt og þétt síðan.
Margir á ferðinni
Á árinu 1991 mældust alls
446.196 bílferðir í Reykjavík á
hveijum sólarhring að meðaltali.
Árið 1992 vom hins vegar taldar
444.462 bílferðir á sólarhring. Til
samanburðar má geta þess að fyr-
ir 10 árum, árið 1982, voru taldar
291.180 bílferðir á sólarhring um
„sniðin" fjögur. Eitt þeirra liggur
vestan Lækjargötu, Fríkirkjuvegar
og Sóleyjargötu, annað vestan
Kringlumýrarbrautar, það þriðja
um Fossvogsdal og Elliðaárdal og
það fjórða frá ósum Elliðaár upp
Elliðaárdalinn.
Eyjafjarðarsveit
Lést eftir
fall fram
af klettum
FjÖRUTÍU og eins árs gara-
all maður lést í fyrrakvöld
eftir að hafa fallið fram af
háum klettum. Maðurinn hét
Stefán Páll Steinþórsson og
var bóndi á Ytri-Varðgjá í
Eyjafjarðarsveit. Hann læt-
ur eftir sig eiginkonu og tvö
börn.
Mannsins var saknað undir kvöld
í gær, en hann hafði farið út til að
huga að hrossum og girðingum á
landareign sinni. Leitað var eftir
aðstoð Hjálparsveitar skáta á Akur-
eyri og Flugbjörgunarsveitarinnar
á Akureyri. Fannst maðurinn látinn
um kl. 22 í fyrrakvöld vestan til í
Vaðlaheiðinni, nokkm norðan við
bæinn Ytri-Varðgjá. Hafði hann
hrapað fram af klettum sem þar
em, en þeir em allt að 50 metra
háir.
Frigg seld og
Katrín keypt
Vestmannaeyjum.
VINNSLUSTÖÐIN í Vest-
mannaeyjum hefur selt
Frigg VE til Eldhamars í
Grindavík og keypt Katrínu
VE af Gísla Sigmarssyni og
fjölskyldu.
Frigg er seld með 350
þorskígilda kvóta en skipið
verður afhent nýjum eigendum
í júní í sumar. Katrínu fylgir
400 þorskígilda kvóti og tekur
Vinnslustöðin strax við rekstri
bátsins. Katrín mun halda til
veiða í_ næstu viku og hefur
Helgi Ágústsson verið ráðinn
skipstjóri.
Ulfar Steindórsson, fjár-
málastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar, sagði að með þessu væri
að sinni lokið breytingum á
flota Vinnslustöðvarinnar.
Grímur
Morgunblaðið/Rax
í loðnu-
beði
LOÐNUVEIÐIN
hefur verið mikil
undanfarna
daga. Mest veið-
ist skammt út af
Selvogi. Rúm-
lega 400 þúsund
tonn af loðnu
höfðu borist á
land í gær.
Hólmaborgin SU
11 var væntan-
leg til lands með
1.100 tonn. Á
myndinni að of-
an hvílir Runólf-
ur Ómar Jóns-
son, háseti á
Hólmaborginni,
lúin bein í loðnu-
beði í fullri lest
skipsins, á
heimstími til
Eskifjarðar.
Sjá nánar á
bls. 19.
Stjórnarformaður Byggðastofnunar eftir fund með Bolvíkingnm í gær
Ekki á færi Byggðastofn-
unar að leysa vandann
KARVEL Pálmason, starfandi stjórnarformaður Byggða-
stofnunar, og Bjarki Bragason, yfirmaður fyrirtælqasviðs
Byggðastofnunar, áttu í gærmorgun fund með bæjarráðs-
mönnum Bolungarvíkur og Ólafi Kristjánssyni, bæjarstjóra
í Bolungarvík, þar sem Vestfirðingarnir kynntu erindi
bæjarsljórnar Bolungarvíkur til Byggðastofnunar. Karvel
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann teldi það
ekki vera fjárhagslega á færi Byggðastofnunar að leysa
þann vanda sem við Bolvíkingum blasi. Hann telur að
dæmið sé svo stórt, að stjórnvöld hljóti að þurfa að taka
á því.
„Þeir komu til fundar við okkur
og gerðu grein fyrir þeim hugmynd-
um, sem þeir eru með í sigtinu,
ásamt aðstoðarmönnum sínum og
sérfræðingum," sagði Karvel. „Við
tókum auðvitað við þessu og rædd-
um síðan málin á ágætis fundi.“
Karvel sagði jafnframt að þetta
erindi Bolvíkinga yrði nú skoðað af
sérfræðingum Byggðastofnunar og
væntanlega tekið fyrir á næsta
stjórnarfundi stofnunarinnar, sem
áformaður er 2. mars næstkom-
andi. „Ég á ekki von á því, nema
eitthvað sérstakt komi upp á, að
boðað verði fyrr til stjórnarfundar,"
sagði Karvel.
Mál stjórnvalda
Karvel kvaðst hafa skýrt fulltrú-
um Bolvíkinga frá þeirri skoðun
sinni að ekki sé á færi Byggðastofn-
unar að ráða við þetta dæmi. Dæm-
ið væri svo stórt að það væri mál
stjórnvalda að taka á því. „Kannski
er þetta fyrsta dæmið af mörgum
slíkum, sem gætu verið á leiðinni.
Ég sé ekki að einn sjóður geti með
einum eða neinum hætti leyst úr
því — allra síst Byggðastofnun, þar
sem framlög til hennar eru nánast
skorin við nögl í fjárlögum," sagði
Karvel Pálmason.
Hitta ráðherra í dag
Bæjarstjórinn og bæjarráðs-
mennirnir hitta í dag forsvarsmenn
Landsbankans og ráðherrana Davíð
Oddsson, Friðrik Sophusson og Jó-
hönnu Sigurðardóttur.
Sjá einnig fréttir á miðopnu