Morgunblaðið - 17.03.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ny
SVANINUM þótti að lokum nóg komið og sneri heim á leið að nýju.
Út í heim
HANN gerði tilraun til að vera sjálfstæður svanurinn á myndinni í gær-
morgun, yfirgaf tjömina og stefnan lá beint á stjórnarráðshúsið. Þar
stóð hann lengi vel og velti fyrir sér hvort hann ætti að voga sér upp
tröppumar, en dyraverðir þar á bæ hringdu á liðsauka lögreglunnar er
fuglinn nálgaðist. Svanurinn var ekki á því að gefast upp og vappaði
lengi vel á bílastæði ráðherranna, þar sem lögregluþjónn gætti þess að
hann færi sér ekki að voða í umferðinni. Að lokum barst liðsauki og
hugðust lögreglumennimir varpa yfír svaninn neti og flytja hann til síns
heima. En nei, svanurinn sjálfstæði sá við því og komst undan. Honum
hefur þó sennilega fundist komið nóg því stefnan lá aftur niður á tjöm.
Heim
Morgunblaðið/Signrður Jónsson
Á ferð og flugi
FYRIR framan stjórnarráðið barst lögreglunni liðsauki og hugðust lögreglumennirnir varpa neti
yfir svaninn.
VEÐUR
V
Heirnild: Veðurstofa ístands
(Byggt á veðurapá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 17. MARS
YFIRUT: Um 300 km austur af Langanesi er 965 mb lægð á hreyfingu
austur, en frá henni liggur minnkandi lægðardrag yfir norðanvert landið.
SPÁ: Suðvestan eða vestan stinningskaldi um sunnanvert landið með
snjó- eða slydduéljum suðvestanlands. Austanlands verður öllu hægari
vestlæg átt og bjart veður að mestu en norðaustan stinningskaldi eða
allhvasst á Vestfjöröum með snjókomu eða éljagangi, einkum norðan-
til. Norðantands verður breytileg átt og úrkomulítið framan af degi en
gengur líklega í vaxandi norðan- eða norövestanátt með éljum þegar
líður á daginn. Veður fer heldur kólnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: NV-átt með éljum NA-lands í fyrstu en annars
vaxandi SA-átt og fer að snjóa, fyrst SV-lands. Frost víðast á bilinu 1 til 6 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: SV-átt, él S-lands og vestan en léttir til í öðr-
um landshlutum. Áfram kalt.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og snjókoma SV-til. en síðan
vaxandi NV-átt með éljagangi N-lands en léttir þá til syðra. Frost 3-8 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o & & Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og ijaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fpður er 2 vindstig..
r r r * / * ♦ * * • í * 10° Hitastig
r r r r r * r r * r * * * * * V V V V Súid J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrír Slydduél Él = Þoka ^
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 (gær)
Flestir aðalvegir á landinu eru nú greiðfærir en nokkur hálka er á
heiðum. Þungfært er á Mosfellsheiði og Fróðárheiði er ófær. Fært er
vestur í Reykhólasveit. Á Vestfjörðum eru heiðar ófærar nema Stein-
grímsfjarðarheiði. Á Norður-, Norðaustur- og Austurlandi eru vegir víð-
ast færir. Mývatns- og Möðrudalsöræfi eru fær jeppum og stórum bílum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að í$l. tíma
Akureyri
Reykjavlk
hltl veftur
1 skýjað
2 slydda
Bergen 5
Helslnki +4
Kaupmannahöfn 7
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
skýjaö
rigning
rigning
+12 snjökoma
vantar
10 hálfskýjað
7 rigning
'vantar
Algarve
Amsterdam
Barcelont
Berlín
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madrtd
Maiaga
Mallorca
Montreai
NewYork
Orlando
Paris
Madeira
Röm
Vín
Washington
Winnlpeg
18 skýjsð
10 þokumóða
léttskýjað
16 skýjað
+3 rigning
8 þoka
15 hálfskýjað
7 rigning og súld
10 rigningogsúld
12 skýjað
14 alskýjað
15 léttskýjað
15 léttskýjað
18 hálfskýjað
18 hálfskýjað
+7 snjókoma
+1 léttskýjað
12 alskýjað
19 skýjað
17 skýjað
14 skýjað
15 skýjað
+1 skýjað
+17 8kafrenningur
Fulltrúar Iðnþróunarsjóðs og Búnað-
arbankans um gagnrýni Mees & Hope
Ómaklegar að-
dróttanir byggð-
ar á misskiiningi
„VIÐ teljum þetta ómaklegar aðdróttanir í okkar garð því við teljum
okkur hafa lagt okkur í líma við að eiga gott samstarf við þá og taka
tillit til þeirra hagsmuna," segir Snorri Pétursson þjá Iðnþróunarsjóði
um þær ásakanir á hendur íslenskum fjármálastofnunum og réttarfari
sem hollenski bankinn Mees & Hope hefur sett fram vegna gjaldþrota-
skipta Islenska stálfélagsins. Jakob Armannsson í Búnaðarbankanum
segir upphrópanir hollenska bankans vera á misskilningi byggðar.
Snorri sagðist líta alvariegum
augum þær lítt dulbúnu hótanir sem
hollenski bankinn hafí sett fram.
Hann teldi þær engan veginn rétt-
mætar og sagðist vonast til að þær
væru byggðar á misskilningi.
Jakob sagðist líta svo á að í bréfí
bankans til skiptastjóra sé bankinn
að hóta því að hann ætli að vara
erlenda íjárfesta við íslandi fremur
en hann vilji draga úr lánstrausti
Islendinga erlendis. Hann sagði erf-
itt að átta sig á hvað bankinn væri
að fara. Hann hefði farið illa út úr
gjaldþroti Stálfélagsins og vildi nú
kenna öðrum um. Benti Jakob á að
þegar hollenski bankinn ákvað að
veita verksmiðjunni lán árið 1991
hefði hann ekki haft um það neitt
samráð við íslenska fjármögnunar-
aðila.
Verðlaust brotajárn
Jakob sagði að skv. upplýsingum
hans hefði matið á brotajámi verk-
smiðjunnar fyrir gjaldþrotið verið
mjög lauslegt og byggst á bókum
Stálfélagsins, sem var að mestu í
eigu sænska fyrirtækisins Ipasco
Steel. Jakob sagði einnig álitamál
hvort í brotajáminu fælust nokkur
verðmæti 'og benti á að Búnaðar-
bankinn og Iðnþróunarsjóður hefðu
samið við Harald Þór Ólason í Furu
hf. um að hann fengi hlut þeirra í
brotajámshaugnum (18 þús. tonn)
án þess að nokkur greiðsla kæmi
fyrir þar sem brotajámið hefði verið
álitið verðlaust. „Ég held að það sé
samdóma álit þeirra sem hafa komið
nálægt brotajámsvinnslu hérlendis
að verðmæti svona brotajáms er
ekkert fyrr en byrjað er að vinna úr
því,“ sagði hann.
Snorri sagði einnig að um lítil
verðmæti væri að ræða í umræddu
brotajámi. Hann sagði að þegar í
ljós kom við uppboðið á jáminu 5.
mars að það væri aðeins metið sex
þúsund tonn hefði það komið honum
á óvart því talið hefði verið að brota-
jámið sem safnast hafði fyrir gjald-
þrot verksmiðjunnar hefði verið ná-
lægt 20 þúsund tonnum skv. mati
eigendanna sjálfra. í því ljósi væri
undmn hollenska bankans, sem átti
veð í haugnum, skiljanleg en það
hefðu verið fyrrum starfsmenn Stál-
félagsins sem hefðu metið jámið.
Sagðist Snorri ekki vera sammála
bankanum Mees & Hope um að bú-
stjóri þrotabúsins hefði átt þar nokk-
um hlut að máli.
------» ♦ ♦
lðáraáglæ-
nýrri bifreið
15 ARA unglingur var handtekinn
í gærmorgun þar sem hann ók
glænýum Lancer um Vesturbæ-
inn. Hann á bílinn sjálfur og hefur
nokkrum sinnum áður komið við
sögu lögreglu, m.a. fyrir að aka
um próflaus. Mál hans verða af-
hent barnaverndaryfirvöldum, að
sögn Iögreglu.
Þegar lögreglumenn sáu piltinn
aka og hugðust stöðva aksturinn til
,að athuga hvort hann hefði ökurétt-
indi, jók hann hraðann og reyndi að
komast undan. Eftir nokkra eftirför
stöðvaði hann bílinn á Hjarðarhaga.
Að sögn lögreglu sýndi pilturinn
mikinn mótþróa og var færður í
handjámum til yfírheyrslu á lög-
reglustöð. Bíllinn var færður með
kranabíl í geymslu. Á lögreglustöð-
inni kom í ljós að pilturinn var 15
ára gamall síðan í haust en þó skráð-
ur eigandi bílsins sem er Mitsubishi
Lancer og var fluttur nýr inn til
landsins í febrúar. Þetta er í annað
skipti sem hann er tekinn próflaus á
bfl. Þær upplýsingar fengust hjá lög-
reglu að vegna ferils piltsins, sem
einnig hefur komið m.a. við sögu
vegna auðgunarbrota, verði mál hans
afhent bamavemdaryfírvöldum.
Eftir yfírheyrslur var pilturinn lát-
inn laus en bflinn afhendir lögregla
ekki öðrum en þeim sem hafa rétt-
indi til að aka honum.