Morgunblaðið - 17.03.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
7
Framkvæmdir hefjast á næsta ári við nýtt 1.500 manna hverfi
5 þúsund ársstörf við
byggingu Kirkjutúns
Kirkjutúnssvæðið
bORGabtún
FRAMKVÆMDIR á svo-
nefndu Kirkjutúni, þar sem
nú er geymslusvæði Eimskips
hf., munu hefjast á næsta ári
en skipulagsvinna hefst á
næstu dögum. A Kirkjutúni
rís 400 til 500 íbúða byggð
fyrir 1.200-1.500 íbúa á næstu
fjórum til sex árum. Aætlað
er að framkvæmdunum fylgi
4-5 þúsund ársstörf, en kostn-
aður við framkvæmdirnar er
talinn nema 3-4 milljörðum
kr.
Að framkvæmdunum standa
verktakafyrirtækin ístak og Álftar-
ós ásamt Eimskip og félagsskapn-
um Þak yfír höfuðið. Skrifað var
undir samstarfssamning þessara
aðila í gær. Þeir hafa átt viðræður
við samtök lífeyrissjóða og Hús-
næðisstofnun ríkisins um fjármögn-
un framkvæmdanna, t.a.m. með
lánsrétti félaga í samtökunum i
húsnæðiskerfínu.
Örnefnið Kirkjumýri
Eimskipafélagið gerði í fyrra
samning við Reykjavíkurborg um
að breyta nýtingu lóðarinnar í fram-
haldi af samþykkt að nýju aðal-
skipulagi Reykjavíkurborgar. Nafn-
ið Kirkjutún er dregið af ömefninu
Kirkjumýri sem var á sinni tíð
skammt vestan við Laugarneskirkju
en byggingareiturinn er í Túnunum.
Á blaðamannafundi í gær þar
sem fyrirhugaðar framkvæmdir
voru kynntar kom fram að þetta er
í fyrsta sinn á íslandi sem svo
margir byggingaraðilar og kaup-
endur skipuleggja svo stórt svæði
sameiginlega. Nýjustu byggingar-
tækni verður beitt og er vonast til
að það leiði til aukinnar hagræðing-
ar sem m.a. leiði tii hagstæðs verðs
á húsnæði. Uppbygging svæðisins
mun taka 4-6 ár og skapa 4-5.000
ársstörf í byggingariðnaði og mörg
störf í tengdum þjónustugreinum.
50-60% íbúða til félagsmanna
Innan vébanda Þaks yfír höfuðið
eru Öryrkjabandalag íslands,
Sjálfsbjörg, Landssamtökin Þroska-
hjálp, Samtök aldraðra, Bandalag
íslenskra sérskólanema, Stúdenta-
ráð, Leigjendasamtökin og Búseti.
Innan samtakanna eru 30-40 þús-
und félagar. Ibúðimar em að hluta
til fýrir félagsmenn, en verða auk
þess seldar á almennum markaði.
Þórður Magnússon ijármálastjóri
hjá Eimskip hf. sagði að ætla mætti
að 50-60% íbúðanna yrðu í eigu
félagsmanna og hafa þegar borist
óskir um kaup á 400 íbúðum, eink-
um frá einstaklingum innan sam-
takanna.
Leigjendasamtökin vilja
80-100 íbúðir
Magnús H. Magnússon, formað-
ur Samtaka aldraðra, sagði að sam-
tökin hefðu komist að samkomulagi
við Búseta um byggingu hlutdeild-
aríbúða sem féllu undir félagslega
húsnæðiskerfíð. Þannig væri fé-
lagsmönnum, sem á annan hátt
ættu erfítt með að fjármagna íbúð-
arkaup, gert kleift að eignast hluta
Hassmál „tálbeitunnar“ í kókaínmálinu flutt í Héraðsdómi
Aðstoð í kókaínmálmu
leiði til skilorðsdóms
MÁL GEGN tveimur mönnum sem ákærðir eru fyrir innflutn-
ing á þremur kg af hassi og dreifingu á hluta þess hér á landi
í febrúar 1990 var flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Menn-
irnir hafa játað það sem þeim er gefið að sök og er dóms að
vænta fljótlega. Annar mannanna er sá sem gegndi hlutverki
uppljóstrara lögreglunnar, „tálbeitu“, í kókaínmálinu svo-
nefnda. Veijandi hans, Páll Arnór Pálsson hrl., sagði við réttar-
höldin í gær að sú aðstoð ásamt öðru réttlætti það að maður-
inn ætti einungis að fá skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir
aðild sína að málinu.
Hassið falið í togurum
Maðurinn hafði keypt þrjú kg
af hassi í Amsterdam í byijun árs
1990 og fengið kunningja sinn til
að flytja það til landsins á skipi en
honum snerist hugur og kom pakk-
anum í geymslu í Bremerhaven.
Þá fékk maðurinn annan til að fara
utan og sá faldi hluta þess í tveim-
ur togurum sem voru á leið til
landsins. Sá var svo handtekinn
þegar hann sótti efnið um borð í
annan togarann hér á landi en áður
var búið að selja mikinn hluta efn-
anna. Einnig voru mennirnir tveir
ákærðir fyrir viðskipti með nokkuð
af amfetamíni, meðal annars sín í
milli.
Þar sem mennirnir hafa játað
sinn hlut er um svokallaða' játning-
ardóma að ræða, samkvæmt heim-
ild í nýjum lögum um meðferð opin-
berra mála. Málflutningur snýst því
aðeins um refsingu. Egill Stephen-
sen saksóknari krafðist þess að
mennimir yrðu dæmdir til refsing-
ar.
Páll Arnór Pálsson krafðist þess
að skjólstæðingur sinn yrði dæmdur
til vægustu refsingar sem lög leyfa
og hún yrði skilorðsbundin að öllu
leyti og hegningarauki þar sem
maðurinn hefði þegar verið dæmdur
fyrir brot sem framið var eftir að
þetta fíkniefnamál kom upp. Lög-
maðurinn rökstuddi kröfu um skil-
orðsbindingu m.a. með því að mað-
urinn hefði játað brot sín án undan-
dráttar, hann hefði bætt sitt ráð
og látið af fíkniefnaneyslu, auk
þess sem hann hefði ótilkvaddur
aðstoðað réttvísina með því að upp-
lýsa „kókaínmálið“ svokallaða í
sumar. Eftir það hafi óvægin fjöl-
miðlaumfjöllun um mál mannsins
valdið miklu tjóni í lífí hans og
bæri að skoða þá umfjöllun sem
þunga refsingu og enn eina ástæðu
til skilorðsbindingar. Auk þess
væru rúm þrjú ár liðin frá því að
brotið væri framið og fordæmi
væru fyrir því í dómum Hæstarétt-
ar að skilorðsbinda mætti refsingu
ef svo stendur á þótt það hefði
annars ekki verið gert eftir atvikum
málsins. Lögmaðurinn kvaðst
ímynda sér að, kæmi ekki annað
til, hefði brot þetta verið talið varða
u.þ.b. sjö mánaða fangelsisvist en
með hliðsjón af þessum aðstæðum
öllum beri að skilorðsbinda refsing-
una.
Aðstoðaði vegna þrábeiðni
Sigurður A. Þóroddsson hdl. er
veijandi manns sem aðstoðaði við
innflutning efnisins og krafðist
vægustu refsingar sem lög leyfa
og að hún verði skilorðsbundin að
fullu. Hann mótmælti sakargiftum
um að skjólstæðingur sinn hefði
sammælst við meðákærða um inn-
flutninginn. Skjólstæðingur sinn
hefði ekki vitað um fyrirætlanir
mannsins fyrr en kaupin voru um
garð gengin og fyrrgreind innflutn-
ingstilraun sjómannsins var að
engu orðin. Þá hefði skjólstæðingur
sinn, sem þá var atvinnulaus og
févana, tekið að sér verkið vegna
þrýstings og þrábeiðni mannsins.
Einnig taldi hann að taka bæri til-
lit til þess að skjólstæðingur sinn
hefði aðeins átt að fá í sinn hlut
30-40% af hagnaði og að hann
hafði litla sem, enga peninga mót-
tekið frá meðákærða. Hann hafí
játað afbrot sín án undandráttar
og þannig stuðlað að því að málið
upplýstist. Maðurinn hafí ekki
hreina sakaskrá en 11 ár séu liðin
síðan hann var dæmdur fyrir inn-
flutning fíkniefna. Þá verði tekið
tillit til þess að þijú ár eru liðin
síðan þessi brot voru framin og
dráttur á meðferð þess hafi valdið
manninum skaða.
Samstarfsaðilar
F.v.: Þórður Magnússon fjármálastjóri Eimskips, Reynir Ingibergs-
son fonnaður Búseta, Magnús H. Magnússon formaður Samtaka aldr-
aðra, Örn Kærnested framkvæmdastjóri Álftaróss, og Jónas Frí-
mannsson verkfræðingur hjá Istaki.
í íbúðum. Jón frá Pálmholti, for-
maður leigjendasamtakanna, sagði
að samtökin ættu sér þá von að
húsnæðisyfírvöld eignuðust 80-100
íbúðir í þessu nýja kerfi, sem yrðu
leigðar út, og með því létt á því
ófremdarástandi ríkt hefði á leigu-
markaðnum hér á landi.
Útivistarsvæði
Svæðið sem hér um ræðir af-
markast af Borgartúni, Kringlu-
mýrarbraut, Sigtúni og Nóatúni.
Byggingarsvæðið verður á um 40
þúsund fermetra en skipulagssvæð-
ið er 70-80 þúsund fermetrar. Gert
er ráð fyrir að íbúar á Kirkjutúns-
svæðinu verði á bilinu 1.200-1.500,
eða eins og í meðalstóru kauptúni.
Þar sem nú er íþróttasvæði Ár-
manns verður útivistarsvæði fyrir
Kirkjutún og aðliggjandi hverfí og
greið gönguleið verður úr hverfínu
í Laugardal.
Sigurður Sveinsson hefur í mörg ár verið ein
skærasta handboltastjarna okkar íslendinga.
Hann vantaði fólksbíl fyrir sig og fjölskylduna
og valdi fimm dyra Renault Clio.
"Renault Clio er ótrúlega rúmgóður miðað
við stærð. Hann er sparneytinn, kraftmikill
og lipur fjölskyldubíll á einstaklega
hagstæðu verði" segir Siggi.
Verö íra hr. 869.CC0
Formula I
WILUAMS -RENAULT
HEIMSMEISTARI 1992
RENAULT
■fer á kostum
RENAULT
Gullna
HJ'JI
1992
1993
Bflaumboðið hf
lif)j.NCAÖ D l'
Cfío
ERT PU STÆRRI
EN SIGGISVEINS???
..ef ekki, þá er Clio nógu stór fyrir þig
Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633
Söludeildin er opin alla virka daga kl. 08-18 og laugardaga kl. 13-17.