Morgunblaðið - 17.03.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
11
Tríó Reykjavíkur ásamt Alta Heimi Sveinssyni.
Tríó Reykjavíkur
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Tríó Reykjavíkur hélt tónleika
í Hafnarborg Hafnfirðinga sl.
sunnudag. Á efnisskránni voru
verk eftir Beethoven, Mend-
elssohn og frumflutt verk eftir
Atla Heimi Sveinsson. Tónleik-
amir hófust á fyrsta tríóinu, op.
1, nr. 1, eftir Beethoven. Þetta
tríó, ásamt tveimur öðrum, er
fyrsta útgefna tónverk meistar-
ans en margt hefur verið ritað
um þessi snilldarverk. Tríó
Reykjavíkur flutti verkið í heild
mjög vel og mátti nú merkja það
samspil, sem aðeins verður til
með langri samvinnu. Þetta kom
mjög vel fram í fyrsta þættinum
en þó með mestum glæsibrag í
hæga þættinum, sem var meist-
aralega vel útfærður. Scherzo-
kaflinn var háskálega hraður og
skemmtilega leikið með glettnina
í lokaþættinum.
Frumflutt var tríó í fjórum
þáttum eftir Atla Heimi Sveins-
son. Fyrstu þrír þættimir eru
fremur stuttir en markvissir í
gerð og á köflum er unnið með
lítið tónefni, sem birtist oftast í
stuttum en vel mótuðum tón-
hendingum. Lokaþátturinn er
viðamestur og eins og fyrri kafl-
arnir, mjög ljós, hvað snertir
framsetningu tónhugmynda,
skemmtilegur áheymar og var í
heild mjög vel fluttur.
Tónleikunum lauk með tríói í
c-moll, op. 66, eftir Mendelssohn.
Það sem einkennir þau kammer-
verk eftir Mendelssohn, þar sem
hann notar píanóið, er hversu
mjög hann leikur með það um-
fram önnur meðleikandi hljóð-
færi. Þetta kom greinilega fram
í þessu tríói og var leikur Hall-
dórs Haraldssonar í heild mjög
góður. Guðný Guðmundsdóttir
átti þarna og góðan leik og var
samleikur hennar og Gunnars
Kvarans í hæga þættinum, þar
sem strengirnir eins og tala sam-
an, einstaklega fallegur.
Eins og fyrr segir, er sam-
virkni félaganna í Tríói Reykja-
víkur að ná því marki, sem er
aðal góðrar kammertónlistar og
voru þessir tónleikar í heild sér-
lega góðir.
Tilbrigði við myndir
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Ulf Gudmundsen: September
Blues. Jelling Bogtrykkeris For-
lag 1992.
Listhópurinn Cobra sem Svavar
Guðnason starfaði með er víða kunn-
ur. Stefna þeirra var eins konar af-
strakt-expressjónismi. Málarinn
Knud Nielsen hafði málað í sama
anda áður en Cobra varð til. Hann
sýndi með Cobra, en þróaðist í aðrar
áttir í list sinni. En síðar tók hann
aftur að fást við afstrakt-expressjón-
isma.
Enski listsagnfræðingurinn Peter
Shield sem ritað hefur mikið um
Cobra segir: „Knud Nielsen er ekki
verri fyrir það að hann kom seinna.
Seinna er ekki of seint. Hvað hann
sjálfan varðar kom hann nákvæm-
lega á réttum tírna."
í nýlegri bók um Knud Nielsen,
September Blues, með inngangi og
ljóðum eftir Ulf Gudmundsen, má sjá
uppskeru þess að málarinn hélt til
strandar og lét heillast af hafí og
sandi, veðrum og vindum, fuglum
og skýjum. Knud Nielsen er djas-
sunnandi svo að það þótti hæfa að
líkja myndum hans við Blues.
Milli myndlistar og skáldskapar
hafa löngum ríkt gagnkvæm tengsl.
Ulf Gudmundsen er meðal þeirra
skálda sem sýnt hafa myndlist
áhuga, hann hefur skrifað bækur og
greinar um marga myndlistarmenn
(m.a. Alfreð Flóka, en Flóki mynd-
skreytti líka ljóð eftir Gudmundsen).
í ljóðunum um Knud Nielsen reynir
Gudmundsen að fanga úð málarans,
ljóð hans eru tilbrigði við myndimar
og spegla kynni listamannanna
tveggja.
Ulf Gudmundsen hefur oft hlustað
á blues heima hjá Knud Nielsen í
Vindelev Kro í nágrenni Jelling, en
þar réka Nielsen og kona hans krá
sem einnig er sýningarsalur. Nielsen
hefur ekki látið hjá líða að fræða
Gudmundsen um taóisma og zen-
búddisma, mikilvægi þess að hér og
nú gerast hlutimir.
Breið pensilför Nielsens kalla fram
ævintýri hugarflugsins. Gudmunds-
en yrkir fáorð ljóð. Ein af hinum lit-
ríku og einkennilegu fígúrum sands-
ins er túlkuð þannig:
Rauður litur
Mmins og hafs
Zen-munkur
þokast hægt
yfir sandinn
með blues
í labbtækinu sínu
Iðnsögusafnið mikla
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Haukur Már Haraldsson, Ög-
mundur Helgason: Hugvit þarf
við hagleikssmíðar. Safn til iðn-
sögu Islendinga, VI. bindi. Hið
íslenzka bókmenntafélag 1992,
446 bls.
Iðnsaga íslendinga sígur jafnt
og þétt áfram undir ritstjóm Jóns
Böðvarssonar og em bindin nú
orðin sex, en bækurnar sjö, því
að eitt bindið er í tveimur bókum
og lítur út fyrir að svo verði um
fleiri. Geysimikill fróðleikur er hér
saman kominn, sem nýtast mun
mörgum og er vissulega betur
geymdur en gleymdur.
Vera má að einhveijum bók-
menntamönnum þyki fremur lítið
koma til rits um söðlasmíði, vagna-
og bifreiðasmíði, ryðbætur og rétt-
ingar, bólstrun, bílamálun,
glerslípun og speglagerð, svo og
um menntunar- og félagsmál
þeirra sem þessa iðju stunda. Þeim
hinum sömu kann þá að finnast
það vel við hæfi að einn af jólabó-
kaleikmönnum Morgunblaðsins,
eins og einn bókmenntafræðingur
orðaði það af fagmannlegri hóg-
værð sinni á dögunum, skrifí um-
sögn um rit sem þetta. Ég skal
svo sem viðurkenna að ég bjóst
ekki við mikilli skemmtan þegar
ég fékk þessa bók til umsagnar.
En öðru vísi fór. Greinargóðar frá-
sagnir af sögu og þróun iðngreina,
vöxtur þeirra og hnignun ásamt
lýsingu handverksins með öllum
þeim orðaforða sem þar er að fínna
er í raun hinn skemmtilegasti lest-
ur fyrir þá sem á annað borð kunna
að meta fræðandi efni. Lesturinn
hcifði a.m.k. þau áhrif á mig að
ég ákvað að eignast fyrri bækum-
ar til að lesa á komandi vetrar-
kvöldum.
Ögmundur Helgason cand.
mag. ritar fyrsta hluta bókar, um
60 bls. Fjallar hann um söðla-
smíði, hvers kyns reiðtygja- og
aktygjasmíði. Fyrir utan sögu og
Ein af myndum Knud Nielsens í
September Blues.
Önnur mynd kallar fram eftir-
farandi þanka
þróun greinarinnar er frábærlega
nákvæm lýsing á vinnubrögðum
við iðnina, handbrögðum öllum og
áhöldum, einkum hnakkasmíði
eins og hún var stunduð fram yfír
þessa öld. Þessi frásögn hefði ekki
síður sómt sér vel í riti um þjóð-
hætti eða þjóðmenningu. Þarna
er að fínna mikinn fjölda orða sem
nú eru fallin eða að falla í
gleymsku. Ritgerð Ögmundar er
ágætlega vönduð og vel skrifuð
eins og vænta mátti. Helst saknar
maður þess að ekki skuli gerð
meiri grein fyrir þeim mismunandi
gerðum reiðtygja sem söðlasmiðir
hafa smíðað á síðustu áratugum.
Haukur Már Haraldsson iðn-
skólakennari ritar annað efni í
bókinni. Fyrst er prýðilegur þáttur
um vagnasmíði (41 bls.) Er saga
þeirrar iðngreinar rakin uns hún
leið undir lok við tilkomu bílaald-
ar. Tímabært var að rita þennan
þátt því að líklegt er að áður en
langt um líður verði erfítt að safna
saman þeirri vitneskju sem hér er
saman dregin. Skemmtilegar eru
ýmsar frásagnir af notkun hest-
vagna í ferðalögum.
Lengsta umfjöllun bókarinnar
er um bifreiðasmíði, einkum um
yfírbyggingar bfla. Er afar fróð-
legt að rifja upp hvernig sú iðn-
grein þróaðist og þá ekki síður að
skoða þær mörgu gömlu myndir
sem fylgja. Dapurlegt er hins veg-
ar hvernig iðngreininni hnignaði
einmitt þegar hún hafði náð góð-
um þroska. Hefur það vafalaust
verið þjóðhagslegt slys hvemig
Haukur Már Ögmundur
Haraldsson Helgason
þau mál fóru. Sitthvað fleira er
um bifreiðar í stuttum köflum og
ítarlega er gerð grein fyrir mennt-
unarmálum og félagsmálum bif-
reiðasmiða.
Þá kemur einkar forvitnileg frá-
sögn af sögu glergerðar, glergerð,
glerslípun, speglagerð og mörgu
þar að lútandi. Kannski má það
helst að finna að þar sem þessi
kafli íjallar engan veginn um sam-
göngutæki eins og hinir kaflarnir
hefði hann átt betur heima í öðru
samhengi.
Síðasti bókarkaflinn nefnist
Þættir úr sögu Félags bifreiða-
smiða. Þar er sagan rakin í heild
sinni frá upphafí. Talsvert af efni
þessa kafla var komið áður í bók-
inni, svo að endurtekningar gætir.
í bókarlok era miklar skrár og
vandaðar. Tilvísanaskrá er fyrir
einstaka efnisþætti. Myndaskrá er
þar og svo og nafnaskrá. Geysi-
mikill fjöldi mynda, ljósmynda,
teiknaðra mynda og skýringar-
mynda. Talsvert margar frásagnir
era í innfelldum römmum á dekkri
granni.
Texti er prýðilega vandaður og
prentvillur fann ég afar fáar.
*
m
m
*
<&
»
M
«
«
»
*
«
»
m
»
m
s
m
m
st
«
m
m
m
ðrruim
VERO RÐEINS
FRÁ KR.
784.000
Einn best útbúni bíllinn
Litblær
Návist
Hugleiðsluró
Og í viðbót
ein spuming:
Hver er
veruleikinn
í raun?
Danir hafa lengi kunnað að
meta list fantasíunnar, hinar djarf-
legu tilfínningar sem staðfesta að
lífíð er ekki bara í gráu.
m
m
a’
m
m
»
m
m
m
s
m
•
m
I sínum flokki.
Framhjóladrifinn og öflugur.
Leitið nánari upplýsinga
og fáið að reynsluaka
þessum skemmtilega bíl.
pnny
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13.* SfMI: 68 12 00 • BEINN SlMI: 3 12 36