Morgunblaðið - 17.03.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLADIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
Aftaka í Rómaborg
ÍTÖLSK yfírvöld fordæmdu í gær morð á Mohammed Hussein Nagdi, írönskum stjómarandstæðingi, í
Rómaborg. Tveir vopnaðir menn sátu fyrir bifreið Nagdi er hann ók til vinnu sinnar og flýðu á mótorhjóli
er þeir höfðu látið skothríð dynja á Nagdi. íranska sendiráðið í Róm neitaði að hafa átt þátt í aftökunni
en Nagdi var fyrrum sendiherra írana á Ítalíu. Undanfarin 11 ár hafði hann hins vegar veitt skrifstofu
stærsta stjómarandstöðuflokks írans á Ítalíu forstöðu. Myndin var tekin á morðstaðnum og er Nagdi á
innfelldu myndinni.
Sprengingin í World Trade Center
Tveggja leitað
enn í New York
New York. Reuter.
LOGREGLAN í New York fékk í gær ábendingu um aðild tveggja
manna að sprengingunni í World Trade Center 26. febrúar. Maður-
inn, ónafngreindur Egypskur leigubílstjóri, sagði mennina tvo vera í
tengslum við þau múslimasamtök sem lögregla telur ábyrg fyrir
sprengingunni.
Matargjafir
franskra
Síðasta fórnarlambið var dregið
út úr rústunum á mánudag en talið
er víst að sjö hafi týnt lífi og yfir
þúsund slasast. Vangaveltur hafa
verið um að einn tilræðismannanna
hafi sjálfur fallið í sprengingunni en
lögregla hefur ekki staðfest það.
Dagblaðið Daily News hafði áður
tilgreint einn hinna föllnu sem
egypskan leigubílstjóra og staðfesti
lögregla það en sagði hann þó ekki
hafa átt þátt í tilræðinu.
Báðir hinna grunuðu em taldir
vera í tengslum við egypsk múslima-
samtök sem fylgja sheik Abdel-
Rahman, öfgasinnuðum klerk sem
farið hefur fram á afsögn egypskra
stjómvalda. Bandarískir fylgismenn
Abdel-Rahmans búa flestir í útlegð
í New Jersey, nágrannaríki New
York. Þeir hafa staðfastlega neitað
ásökunum lögreglu um aðild að
sprengingunni.
sjómanna
Franskir sjómenn frá Bretaníu-
skaga gáfu hjálparstofnunum í Par-
ís sex tonn af sardínum, túnfiski
og öðru sjávarfangi í gær. Gjöf
þessi var hluti af mótmælum sjó-
mannanna gegn innflutningi ódýrs
fisks til Evrópubandalagsins. Talið
er að matargjöfin muni auka samúð
fransks almennings með málstað
sjómannanna. Heimildarmenn í
Brussel telja mjög ólíklegt að EB
verði við kröfum franskra sjómanna
um innflutningsbann á físki frá
löndum utan bandalagsins.
Kínverskur
Norman Lamont leggur fram fjárlagafrumvarp bresku stjórnarinnar ræðismaður
Óbeinir skattar hækkaðir
til að fylla í fjárlagagatið
London. Reuter.
BRESKA ríkisstjómin ætlar að hækka skatta á vindlingum, áfengi
og eldsneyti samkvæmt fjárlagafrumvarpi því sem Norman Lamont
fjármálaráðherra Iagði fram í breska þinginu í gær. Það kom fram
hjá ráðherranum að hagvöxtur yrði heldur meiri en áætlað hefði
verið og bæri það vott um að Bretar væru að komast upp úr efna-
hagslægðinni. Hins vegar er áætlaður fjárlagahalli næsta fjárlaga-
árs meiri en búist var við.
Lamont sagði að rauði þráðurinn
í fjárlagafrumvarpinu væri að
tryggja að batamerkin sem sést
hafa í efnhagslífínu yrðu annað og
meira en tálsýn. Spáði ráðherrann
1,25% hagvexti á þessu ári sem
væri merki um að tveggja ára efna-
hagslægð væri að ljúka. Fjárlaga-
hallinn fram í apríl 1994 yrði hins
vegar 50 milljarðar punda eða 8%
af þjóðarframleiðslu. Taldi Lamont
að ekki yrði'forsvaranlegt að fylla
í það gat til lengri tíma með lántök-
um. Því kynnti hann aðgerðir til
að minnka íjárlagahallann jafnt og
þétt á næstu árum.
Áfengi og vindlingar hækka
Skattur á bjór og léttvín verður
hækkaður um 5%. Gjöld á vindlinga
hækka um 6,5% og bensínskattur
um 10%. Skattleysismörk verða
ekki hækkuð í takt við verðbólgu.
Skattahækkanimar eiga að færa
ríkissjóði 6,5 milljarða punda árin
1994-1995. Frá og með apríl 1994
verður lagður 8% virðisaukaskattur
á eldsneyti og orku til heimilisbrúks
en þessi vara hefur verið undanþeg-
in slíkum skatti. Ári síðar á að
hækka skattprósentuna í 17,5%.
Auka á framlag launþega í félags-
lega tryggingarsjóði um 1%.
Lamont sagði að sökum umhverf-
issjónarmiða og ijárlagahallans
mætti búast við því á næstu ámm
að eldsneyti hækkaði umfram verð-
bólgu. Verðbólga er nú 1,7% í Bret-
landi. Taldi ráðherrann að hún færi
ekki yfir 4% á næsta fjárlagaári.
Reuter
Fj árlagataskan
BRETAR eru fastheldnir á fornar hefðir. Ein slík venja er sú að
þegar fjármálaráðherrann kemur í þingið ár hvert til að flytja fjár-
lagaræðu sína hefur hann meðferðis tösku þessa sem er orðin heldur
lasburða.
biður um hæli
Li Chen, aðalræðismaður
í Pétursborg, og eiginkona
Fan
Kína
hans hafa beðið um hæli sem póli
tískir flóttamenn í Svíþjóð. Hjónin,
sem eru á sextugsaldri, komu til
Stokkhólms með feiju á mánudag.
Að sögn sænskra yfirvalda er um-
sókn þeirra í athugun.
Hreindýra-
veiðar
bannaðar
Grænlenska landstjómin hefur
ákveðið að ekki megi veiða hreindýr
í vor vegna lélegs ástands stofns-
ins. Þessi ákvörðun er alvarlegt
áfall fyrir hundruð fjölskyldna sem
hafa hluta lífsviðurværis síns af
veiðunum.
Yill herða
kröfumar
Klaus Töpfer, umhverfísráðherra
Þýskalands, sagðist í gær hlynntur
hertum öryggiskröfum í þýskum
efnaverksmiðjum. Mörg óhöpp hafa
orðið í efnaiðnaðinum að undan-
fömu, nú síðast á mánudag er tvær
sprengingar urðu hjá Hoechst í
Frankfurt. Talsmenn þýska efna-
iðnaðarins hafna hins vegar auknu
opinbem eftirliti og segja greinina
einfæra um að setja fullnægjandi
reglur um öryggi.
Amato forsætisráðherra segir hættu á algjöru stjórnleysi á Ítalíu
Boðar „friðsamlega byltinguu
nái umbætur fram að ganga
Lundúnum. The Daily Telegraph.
GUILLA.NO Amato, forsætisráðherra Ítalíu, segir að ítalir verði að
gera grundvallarbreytingar á kosningakerfi sínu, ella sé hætta á
algjöru stjórnleysi i landinu. Hann kveðst vona að stjóm sín haldi
velli í að minnsta kosti ár til viðbótar svo hún geti staðið fyrir „frið-
samlegri byltingu" í stjómkerfinu.
„Við gætum komið á nauðsyn-
legum umbótum á kosningakerfinu
fyrir næsta vor og síðan haft þing-
kosningar um leið og kosið verður
til Evrópuþingsins," sagði Amato
þegar hann ávarpaði námsmenn í
London School of Economics á
mánudag. Hann bætti við að al-
gjört stjómleysi tæki við á Ítalíu
ef umbætumar næðu ekki fram að
ganga, ef stjómin félli og efnt yrði
til kosninga samkvæmt núverandi
kerfi. Efnahagsástandið myndi
versna til muna og upplausn yrði
í þjóðfélaginu.
„Ef okkur tekst að koma á um-
bótum verður friðsamleg bylting á
Ítalíu," sagði forsætisráðherrann
og bætti við að umbætumar myndu
leiða til „gagngerrar endumýjunar
á stétt stjómmálamanna". Hann
spáði því að „gömlu mennimir og
flokkamir myndu víkja fyrir nýjum
mönnum og flokkum" og að Kristi-
legir demókratar, sem hafa verið í
stjóm á Ítalíu frá heimsstyijöldinni
síðari, myndu missa öll þingsæti
sín.
Amato sagði að Bettino Craxi,
fyrrverandi leiðtogi flokks hans,
Sósíalistaflokksins, „ætti að hætta
í stjómmálunum" en það sama
ætti ekki við um alla forystumenn
sóslalista.
Alls hafa um 600 ítalskir stjóm-
málamenn verið handteknir og
ákærðir fyrir spillingu. Rannsóknin
hefur staðið í ár og náð til 30 borga.
Ljóst þykir að mútugreiðslur hafa
gagnsýrt allt stjómmála- og fjár-
májakerfið.
Áætlað er að ólöglegar greiðslur
til stjómmálaflokkanna á síðasta
áratug hafi numið jafnvirði hart-
nær 500 milljarða króna á ári.
Rabin flýtir
sér heim
Yitzhak Rabin sem nú er í opin-
berri heimsókn í Bandaríkjunum
hefur ákveðið að flýta heimför sinni
vegna óróans á hemumdu svæðun-
um. Fer hann heim á morgun af
þessum sökum. ísraelskir hermenn
felldu einn Palestínumanna og
særðu sjötíu í gær í mestu átökum
í þijá mánuði á hernumdu svæðun-
um.
Dregið úr
þvingunum
Norsk stjórnvöld tilkynntu í gær
að aflétt hefði verið að hluta við-
skiptaþvingunum gagnvart Suður-
Afríku. Nú er Norðmönnum heimilt
að fjárfesta þar í landi og versla
við Suður-Afríkumenn en áfram
verður bannað að selja olíu og vopn
þangað.