Morgunblaðið - 17.03.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
17
Heræfingarnar
Reuter
Skriðdrekar og brynvarður bíll á leið yfir Han-ána sunnan Seoul. Heræfingar Bandaríkjamanna og
S-Kóreumanna hófust sl. þriðjudag og eiga þær að standa í tíu daga.
N-Kóreiimenn hótandi
Genf. Reuter.
RÁÐAMENN í Norður-Kóreu hafa hótað svara fyrir sig ef Banda-
ríkjamenn auka þrýstinginn á þá vegna þeirrar ákvörðunar að
segja sig úr alþjóðasamstarfi um að hefta útbreiðslu kjarnavopna.
Ri Tcheul, sendiherra Norður-Kóreu hjá stofnunum Sameinuðu
þjóðanna í Genf, segir að spennan í samskiptum Norður- og Suð-
ur-Kóreu hafi aukist vegna sameiginlegra heræfinga Bandaríkj-
anna og S-Kóreu, sem staðið hafa í viku. „Ef við svörum þeim
þá þýðir það stríð og slíkt stríð hlyti að vera algert stríð,“ sagði
hann.
Þýsk þjóðarsátt
eykur vonir um
vaxtalækkun
ÞJÓÐARSÁTTINNI, sem náðist milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu, aðila vinnumarkaðarins og forsætisráðherra sambandsland-
anna sextán í Þýskalandi á laugardag hefur víðast hvar verið
fagnað ekki sist þar sem hún er talin geta stuðlað að vaxtalækk-
un. „Þetta er einn mikilvægasti og ég myndi einnig vilja segja
hamingjuríkasti dagur stjórnmálaferils míns,“ sagði Theo Waigel
fjármálaráðherra þegar samkomulagið lá fyrir. Hann hafði líka
ástæðu til að fagna. Sameining þýsku ríkjanna hefur reynst mun
kostnaðarsamari en áætlað var og hefur ríkisstjórnin sætt harðri
gagnrýni jafnt fyrir að sjá kostnaðinn ekki fyrir sem og að grípa
ekki til aðgerða þegar Ijóst var hvert stefndi.
Raunar hefur stjórn Helmuts
Kohls kanslara ekki tekist að
koma neinu verulega mikilvægu
máli í gegn frá því að kosið var
síðast árið 1990. Ekki það að til-
efnin hafi skort. Ólöglegum inn-
flytjendum hefur fjölgað gifurlega
á síðustu árum en samt hefur
ekki tekist að setja lög til að hemja
þá þróun. Þá hafa fjölmörg
hneykslismál, tengd stjórnmála-
mönnum orðið til að veikja enn
trú almennings á að þeir séu í
raun að gera landinu eitthvert
gagn. Síðast en ekki síst hafa
mistökin við fjármögnun samein-
ingarinnar grafið verulega undan
trúverðugleika stjórnarinnar.
Leiði
Ef eitthvað eitt hugtak hefur
einkennt umræðu i Þýskalandi
undanfarna mánuði þá er það
hugtakið Politikverdrossenheit
eða stjórnmálaleiði. Almenningur
virðist smám saman vera að missa
jafnt áhuga sem trú á stjórnmála-
mönnum. Skoðanakannanir benda
til að 30-40% kjósenda hafi ekki
áhuga á að kjósa í næstu þing-
kosningum. Þegar kosið var í
sambandslandinu Hessen fyrr í
mánuðinum var kosningaþátttaka
einungis 71,3% sem er minnsta
kosningaþátttaka frá því eftir
stríð. I kosningunum hlaut flokk-
ur hægriöfgasinna, Repúblikana-
flokkurinn, 8,3% atkvæða. Jafn-
aðarmannaflokkurinn tapaði hins
vegar 8,4%.
Raddirnar sem spá því að eftir
næstu kosningar taki við „stór
samsteypustjórn" Kristilegra
demókrata og Jafnaðarmanna-
flokksins verða æ áleitnari. Þeir
eru hins vegar líka margir sem
óttast að slík stjórn ætti jafnvel
enn erfiðara með að taka af skar-
ið en núverandi stjórn þó svo að
hún hefði verulegan þingmeiri-
hluta. Þjóðveijar búa nú ekki bara
við efnahagskreppu heldur er
þýskt lýðræði einnig í sinni dýpstu
kreppu frá stofnun Sambandslýð-
veldisins árið 1949.
Margir vona því að þjóðarsáttin
um síðustu helgi sé tákn þess að
stjórnmálamenn séu að vakna úr
dáinu og hyggist takast á við
vandamálin.
í þjóðarsáttinni felst m.a. að
sérstakur 7,5% aukatekjuskattur
verður Iagður á frá og með 1995
en hann á að afla ríkinu 28 millj-
arða marka í tekjur. Stjórnin féll
frá áformum sínum um að draga
úr atvinnuleysisbótum og öðrum
velferðargreiðslum en ætlar í
staðinn að spara níu milljarða með
hertu skattaeftirliti og eftirliti
með misnotkun á bótagreiðslum.
Áætluðum húsbyggingum 5 aust-
urhluta Þýskalands verður fjölgað
um helming og Treuhand-stofn-
unin, sem sér um að einkavæða
fyrrum austur-þýsk ríkisfyrir-
tæki, fær auknar heimildir til lán-
töku. Tveimur milljörðum marka
til viðbótar verður varið í að skapa
ný atvinnutækifæri á þessu ári.
Þá,má nefna að fyrirkomulagi
fjármögnunar vegna austurhlut-
ans verður breytt þannig að þang-
að munu renna 55,8 milljarðar
marka árið 1995, fyrst og fremst
frá sambandsstjórninni í Bonn.
Lækka vextirnir?
Hin pólitísku viðbrögð við þess-
ari þjóðarsátt hafa verið jákvæð
ekki síst þar sem talið er að nú
muni Bundesbankanum gefast
svigrúm til að lækka vexti en
háir raunvextir í Þýskalandi eru
taldir hafa staðið efnahagsbata
jafnt þar sem annars staðar í
Evrópu fyrir þrifum. Úr þýsku
viðskiptalífi hafa þó heyrst ýmsar
gagnrýnisraddir og hafa menn þar
m.a. bent á að ekkert í þjóðarsátt-
inni muni stuðla að því að auka
samkeppnishæfni Þjóðveija á er-
lendum mörkuðum sem og að enn
skorti mikið á til að koma ríkisfj-
ármálunum í ásættanlegt horf.
Ri sagði að skot- og sprengju-
hríð bærist til Norður-Kóreu frá
sameiginlegum heræfíngum
120.000 manna suður-kóresks og
bandarísks herliðs sunnan vopna-
hléslínunnar sem skiptir Kóreu-
skaganum í tvennt. Hélt Ri því
fram á blaðamannafundi í Genf í
gær að viðsjárvert hættuástand,
sem gæti leitt til styijaldar á hverri
stundu, hefði skapast við landa-
maerin.
í síðustu viku var lýst viðbún-
aðarástandi í Norður-Kóreu vegna
yfirvofandi styijaldarhættu.
Ferðafrelsi útlendinga sem dvöld-
ust í landinu var takmarkað. Á
föstudag ákváðu Norður-Kóreu-
menn að segja sig frá samningum
um takmörkun útbreiðslu kjarn-
orkuvopna. Af hálfu SÞ hefur sú
ákvörðun verið fordæmd og Bill
Clinton Bandaríkjaforseti sagðist
í gær vona að ráðamenn í Pyongy-
ang endurskoðuðu afstöðu sína.
Embættismenn í bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu gáfu þó skýrt til
kynna að ekki hefði orðið vart
óvenjulegs viðbúnaðar í Norður-
Kóreu.
♦ » ♦
Grænland
Snjóblínda
olli þyrlu-
slysinu
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
MANNLEG mistök urðu þess
valdandi að þyrla Gronlandsfly
fórst við Upernavik á Norðvest-
ur-Grænalandi 1. mars sl.. Með
þyrlunni, sem var af gerðinni
Bell 212, fórust fjórir menn, þar
af mánaðargamalt kornabarn.
Við rannsókn á segulbandsupp-
tökum í hljóðrita þyrlunnar virtist
allt með felldu. Samtöl flugmanns
og flugvirkja sem var með í för
voru eðlileg en lauk síðan allt í
einu.
Engin viðmiðun
í niðurstöðu flugslysanefndar
segir að snjóblinda hafi gert það
að verkum að flugmaðurinn hafði
enga viðmiðun í umhverfinu. Því
hefði hann ekki skynjað legu þyrl-
unnar sem flogið hefði niður á við
í sveig og skollið í jörðina.
Sýnt þykir að þyrlan hafí ekki
farist vegna vélarbilunar eða bil-
unar í tækjabúnaði. Óhappið hefur
orðið til þess að Gronlandsfly íhug-
ar nú að láta tvo flugmenn ætíð
vera í áhöfn þyrla af þessari teg-
und.
KRINGLU
m
17.-20. mars
Miðvikudag - Fimmtudag
Föstudag - Laugardag
í Kringlukasti er hægt að
gera ævintýralega góð kaup
❖
Yfir 300 kostaboð
aðeins í fjóra daga
Ekki utsala • Allt nýjar vörur
❖
Girnileg tilboð á
veitingastöðunum
❖
Lesið nánar um tilboðin í
bæklingnum sem dreift
hefur verið
'tóri afsláttur er leikur
sem fram fer á miðvikudag,
fimmtudag og föstudag. Nokkrar
verslanir bjóða þá daga fáeina veglega hluti.
Á HVERJUM DEGI VERÐUR BOÐIÐ UPPÁ
EFTIRFARANDI HLUTI MEÐ MEIRA EN
HELMINGS AFSLÆTTI:
Japis: 1 stk. Pansonic samstæða kr>4>2J500" 24.900
Byggt & Búið: 1 stk. Candy þvottavél kr, 67 300" 25.000
Hagkaup: 2 stk. Cyclojet ofnar J«\-27ríMHr 9.900
Skífan: 1 stk. Fender rafmagnsgitar kr.'50:000_ 23.000
Byggt & Búið: 1 stk. AEG eldavél kM52r963' 25.000
Japis: 1 stk. videomyndavél Jcr^S4Æ6<Þ 24.900
Hagkaup: 1 stk. troðfull matarkarfa kr. 20:000_ 9.000
Bílaleikur: B & L bjóða einn Hyundai Pony 1300 á dag
með 150.000 kr. afslætti.
Komið í KRINGLUNA, kynnið
ykkur leikreglurnar og
fylgist með á Bylgjunni.
Afgreiðslutími Kringlunnar:
Mánudaga til fimmtudaga 10-18.30,
föstudaga 10-19, laugardaga 10-16.
KRINGWN
ÍMBÉLÍWBáÉMt
ERLENT
HÚTIL ALEXANDRS AUGLÝSINGASTOFA