Morgunblaðið - 17.03.1993, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árrii Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
*
Landsbanki Islands
Landsbanki íslands er traustur
banki. Hann er ein af undir-
stöðum atvinnulífs okkar. Staða
efnahags- og atvinnumála þjóð-
arinnar endurspeglast í stöðu
Landsbankans hveiju sirini. Þeg-
ar vel gengur í atvinnulífinu og
þá ekki sízt í sjávarútvegi
blómstrar Landsbankinn og skil-
ar góðum hagnaði. Þegar illa
gengur í atvinnulífinu og þá sér-
staklega í sjávarútvegi koma þeir
erfíðleikar fram í rekstri Lands-
bankans. Þess vegna skiptir höf-
uðmáli, að bankinn sé svo öflug-
ur, að hann geti staðið af sér
samdráttarskeið í atvinnulífínu.
Ákvörðun ríkisstjómarinnar í
gær um aðgerðir til þess að efla
Landsbankann er ekki tekin
vegna þess, að bankinn hafi verið
kominn að fótum fram. Hún var
tekin til þess að enginn gæti ef-
ast um, að þjóðbankinn hefði
styrk til að vera atvinnulífi lands-
manna öflugur bakhjarl í einni
mestu kreppu, sem þjóðin hefur
kynnzt á þessari öld. I þessu ljósi
ber að skoða aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar. Þær munu auðvelda
bankanum að veita atvinnulífínu
nauðsynlega þjónustu á erfíð-
leikatímum.
Fráleitt er að bera stöðu
Landsbankans eða íslenzka
bankakerfísins yfirleitt saman við
stöðu banka á öðrum Norðurlönd-
um, sem lent hafa í mikilli
kreppu. Það er ekkert sambæri-
legt við stöðu Landsbanka ís-
lands og Sjóvinnubankans í Fær-
eyjum. Bankakreppan, sem ríkt
hefur í Noregi, Svíþjóð og Finn-
landi á undanförnum misserum
hefur ekki náð til íslands.
Hitt fer ekki á milli mála, að
bankarnir hér hafa orðið að
leggja margfalt meira fé í af-
skriftarsjóði en áður tíðkaðist.
Samdráttur í atvinnulífi, offjár-
festing á síðasta áratug, van-
þekking á því hvaða áhrif verð-
trygging og háir raunvextir
mundu hafa, mikil takmörkun
þorskveiða og almennt samdrátt-
arskeið í efnahagsmálum á Vest-
urlöndum, allt hefur þetta leitt
til meiri vandamála í atvinnulífi
okkar en við höfum kynnzt lengst
af lýðveldistímanum.
Bankar hér á Islandi hafa því
orðið að gera ráð fyrir meiri út-
lánatöpum en áður. Ástæða er
til að undirstrika, að framlög í
afskriftarsjóði bankanna byggj-
ast fyrst og fremst á mati á því,
hvað gæti tapast en ekki á því,
hvað þegar hefur tapast. Að
þessu leyti eru bankamir hér í
áþekkri stöðu og bankar á Vest-
urlöndum, sem allir hafa orðið
að gera ráð fyrir meiri útlánatöp-
um en áður. Hins vegar eru
vandamál bankanna á Norður-
löndunum þremur, sem áður voru
nefnd, margfalt meiri en íslenzku
bankanna.
Landsbanki íslands hefur einn-
ig búið við þau starfsskilyrði á
undanförnum áratugum, að
stjórnvöld hveiju sinni hafa gert
beina og óbeina kröfu til þess að
hafa áhrif á starfsemi bankans.
Bankaráðið hefur lengi verið
skipað fulltrúum stjómmála-
flokkanna, sem einnig hafa ráðið
bankastjórninni hveiju sinni.
Áhrif stjómmálamanna á lánveit-
ingar Landsbankans hafa vafa-
laust verið mikil framan af, þótt
jafn víst megi telja, að úr þeim
hafí dregið mjög á nokkmm und-
anfömum ámm.
Það er útilokað annað en
Landsbankinn verði fyrir áföllum,
þegar svo árar í sjávarútvegi, sem
nú. Bankinn er með stærstan
hluta sjávarútvegsins í viðskipt-
um. Til hans em gerðar miklar
kröfur, eins og bezt hefur komið
í ljós, þegar sjávarútvegsfyrir-
tæki í einstökum byggðarlögum
á landsbyggðinni hafa orðið
gjaldþrota. Þá em hvað eftir ann-
að gerðar meiri kröfur til Lands-
bankans.en eðlilegt getur talizt,
kröfur um að bankinn sé eins
konar pólitísk byggðastofnun.
Það sem mestu skiptir er, að
bankinn hafí traust sparifjáreig-
enda, verði eftir sem áður sterkur
bakhjarl atvinnulifsins og njóti
trausts á erlendum lánsfjármörk-
uðum. Landsbankinn og raunar
bankakerfíð allt hafa svo mikla
þýðingu fyrir þjóðarbúskapinn,
að þjóðin hlýtur að slá skjaldborg
um þennan lykilþátt í efnahags-
og atvinnulífi okkar.
Hugsanlegt er, að spurningar
vakni á erlendum fjármálamörk-
uðum um stöðu íslenzku bank-
anna í kjölfar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar. Áhrifín geta orðið
þau, að vaxtakostnaður lántak-
enda á erlendum mörkuðum
hækki að einhveiju marki. Þess
vegna skiptir máli, að ríkisstjórn
og Seðlabanki undirstriki ræki-
lega gagnvart hinum alþjóðlega
fjármálamarkaði, að íslenzka
bankakerfið njóti trausts og
stuðnings íslenzka ríkisins, ef á
þarf að halda. Að því marki miða
aðgerðir ríkisstjórnarinnar nú
ekki sízt og ættu að eyða efa-
semdum, ef einhveijar væru.
í þessu sambandi er ástæða
til að minna á, að Landsbankinn
hefur í samskiptum við erlenda
lánardrottna SIS sýnt, að ábyrgð
hans er gulls ígildi og við slíkar
aðstæður hafa erlendir lánar-
drottnar ekki tapað á viðskiptum
við íslendinga. Þessa hefur ræki-
lega verið gætt og leitt til þess,
að við njótum betri lánakjara en
ella mundi.
Allar ákvarðanir og aðgerðir
stjórnvalda, sem snerta banka
eru viðkvæmar og va'ndmeðfarn-
ar. Varfærni og ábyrgð eiga því
við, þegar bankakerfið er annars
vegar. Það þurfa stjórnmálamenn
í öllum flokkum að hafa í huga
næstu daga, þegar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar koma til umræðu á
Alþingi.
RIKISSTJORNIN LEGGUR LANDSBANKANUM TIL VIÐBOTARFE
Kjartan Gunnarsson varaformaður bankaráðs Landsbanka Islands
Landsbanki tapar allt að
2 milljörðum á fiskeldi
Aðgerð ríkissljórnarinnar styrkir stöðu bankans hér og erlendis
Morgunblaðið/Kristinn
Samið og reiknað að tjaldabaki
Á meðan ríkisstjórnin sat á fundi á fyrstu hæð Stjórnarráðshússins sátu ráðgjafar hennar á annarri hæð,
reiknuðu og lögðu drög að fréttatilkynningu stjórnarinnar. Frá vinstri: Sigurður Þórðarson ríkisendurskoð-
andi, Arni Tómasson, löggiltur endurskoðandi Landsbankans, Ólafur Davíðsson, ráðuneytissljóri forsætis-
ráðuneytisins, og Finnur Sveinbjörnsson, starfsmaður viðskiptaráðuneytisins.
KJARTAN Gunnarsson,
varaformaður, bankaráðs
Landsbanka Islands, segist
vera mjög ánægður og fagna
þeim aðgerðum sem ríkis-
stjórnin hafi ákveðið að grípa
til til að bæta eiginfjárstöðu
Landsbankans. Hann teldi að
þetta væri mikilvægt skref
til þess að styrkja og styðja
íslenska bankakerfið. Þarna
væri ekki einvörðungu um
það að ræða að eigandi
Landsbankans legði honum
til aukið fé svo að hann upp-
fyllti öll skilyrði Iaga, heldur
væri einnig verið að gera
mjög mikilvægar fyrirbyggj-
andi ráðstafanir til að koma
í veg fyrir að nokkur minnsti
vafi geti leikið á um trúverð-
ugleika íslenskra banka al-
mennt, því ráðstafanirnar
gætu nytst öllum lánastofn-
unum.
Kjartan sagði að það væru um
það bil tvö ár síðan Landsbankinn
hefði gert grein fyrir því að það
væru líkur til að hann gæti ekki
‘ uppfyllt þessar nýju reglur um eig-
iníjárhlutfall banka og sparisjóða.
Um áramótin hefði bankinn fengið
1.250 milljónir í víkjandi lán frá
Seðlabankanum með atbeina ríkis-
stjórnarinnar til að uppfylla þessi
skilyrði og þá hefði því jafnframt
verið lýst yfir að málið yrði tekið
upp aftur á nýju ári. Komið hefði
í ljós þegar farið hefði verið yfir
stöðuna að afskriftarþörfin væri svo
mikil að væri hún uppfyllt myndi
eigið fé rýma það mikið að það
færi niður fyrir viðmiðunarmörk.
Aðspurður hvað það væri í rekstri
bankans sem gerði það að verkum
að nauðsynlegt væri að veita honum
Össur sagðist telja fyrir sitt leyti
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar gefí
tilefni til þess að menn íhugi nú
sterklega hvort ekki sé rétt að renna
saman Landsbankanum og Búnað-
arbankanum og búa til einn ríkis-
banka.
þijá milljarða króna til viðbótar við
þær 1.250 milljónir sem hann hefði
fengið með víkjandi láni, sagði
Kjartan að ákveðin atriði varðandi
hinar nýju reglur um eiginfjárhlut-
fall kæmu mjög þungt við Lands-
bankann vegna þess hve stór hluti
útlána hans væri til ákveðinna
greina atvinnurekstrar. Hins vegar
væri verið að leggja til hliðar í af-
skriftarsjóð til þess að gæta mætt
„Síðan tel ég auðvitað nauðsyn-
legt að menn kanni stöðu bankaeft-
irlitsins í þessu máli. Það er lagt á
borð fyrir okkur þingmenn að bank-
ýnn á í erfiðleikum og það er nauð-
synlegt að setja þarna inn sem svar-
ar 4,2 milljörðum. Þá hlýtur maður
þeim áföllum sem menn ættu von
á. Þá væri stefnt að því að fara
með eiginfjárhlutfallið í 9% til að
hafa svigrúm sem væri nauðsynlegt
og allt þetta samanlagt gerði að
verkum að til þyrfti talsvert háa
fjárhæð.
Afskriftarsjóðurinn
2,8 milljarðar
Afskriftarsjóður Landsbankans
að spyija sjálfan sig hvernig stend-
ur á því að bankaeftirlitið hefur
ekki gert athugasemdir við þetta.
Það þarf að fá glöggar skýringar
frá því óg maður satt að segja velt-
ir fyrir sér stöðu bankaeftirlitsins í
þessu máli,“ sagði Össur.
Nauðsynlegt að hraða málinu
„Það voru allir á því að þetta
væri nauðsynlegt úr því sem komið
væri og nauðsynlegt að hraða þessu
máli allra hluta vegna,“ sagði Geir
H. Haarde formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Að-
spurður um hvort honum hefði verið
kunnugt um fyrirhugaðar aðgerðir
fyrr en í gær sagðist Geir ekki vilja
tjá sig um það, en sagði að það
hefði legið fyrir lengi að það kæmi
að því að það þyrfti að styrkja
eiginíjárstöðu bankans.
„Nú er um að ræða að klára árið
1992 með sómasamlegum hætti og
þá kemur inn í það viðhorf endur-
skoðenda og þeirra sem taka ábyrgð
á þessum ársreikningum, þannig að
það var brýnt að ljúka þessu núna.
Það kemur ekkert flatt upp á þá
sem hafa haft áðstöðu til þess að
fylgjast með þessari þróun,“ sagði
Geir.
nam 2,8 milljörðum í árslok 1992
og rætt er um að bæta við hann
1.700 milljónum miðað við árslok
og hækka hann í 4,5 milljarða
króna. Á þessu ári á að bæta 1.300
milljónum við og hækka afskriftar-
sjóðinn í 5,8 milljarða. Kjartan sagði
að það væri mat manna að á árinu
1993 þyrfti bankinn að hafa mjög
umtalsverðar fjárhæðir til að mæta
afskriftum eða hugsanlega yfir 4
Jóhannes sagði að þegar Lands-
bankanum var veitt víkjandi lán fyr-
ir áramótin hafí legið fyrir að veita
þyrfti meiri aðstoð í vor. Menn hefðu
gefíð sér tíma til að skoða málið
betur og nú liggi það mat fyrir.
Rétt þætti að ganga frá málunum
áður en gengið er frá ársreikningi
bankans fyrir síðasta ár og því væri
verið að vinna að málinu með þessum
hætti nú.
Seðlabankastjóri lagði á það
áherslu að lánveitingin um áramót
og ráðstafanimar nú væru ein og
sama aðgerðin. Hins vegar væri því
ekki að neita að komið hefði í ljós
að meiri aðstoð hefði þurft en áður
var reiknað með. Þá sagði hann
mikilvægt að með þessum ráðstöf-
milljarða króna. Aðspurður sagði
Kjartan að þessi staða endurspe-
glaði að mörgu leyti erfitt ástand í
þjóðfélaginu, en einnig ýmsar fýrri
útlánaákvarðanir bankans. Þar
mætti nefna fiskeldið en Lands-
bankinn hefði lánað mest til þess.
Líklega væri það fast að tvö þúsund
milljónum króna alls sem bankinn
hefði þurft og myndi afskrifa vegna
þess.
Ekki áfellisdómur
Aðspurður hvort þetta sé ekki
þungur áfellisdómur yfír rekstri
bankans á undanförnum árum sagð-
ist Kjartan ekki vera þeirrar skoð-
unar. Hann teldi að langsamlega
stærstur hlutinn af þessu væri
óviðráðanlegur, eins og til dæmis
þeir þættir sem kæmu til vegna
efnahagsumhverfisins. Það væri
ekki á valdi bankans að koma í veg
fyrir að veð væru talin rýrna að
verðgildi og á sínum tíma hefði það
verið stefna stjórnvalda að leysa hér
efnahagsvandann með fiskeldi. Að
mörgu leyti mætti segja að nú væri
verið að taka á uppsöfnuðum vanda-
málum sem hefðu ekki komið fram
af fullum þunga fyrr en undanfarið
og ef til vill væri oft búið að teygja
sig alltof langt til að halda stórum
atvinnufyrirtækjum gangandi sem
veittu mörgu fólki vinnu.
Kjartan sagði að til þessara að-
gerða væri gripið í fullu samráði
við stjórn bankans, enda hefði bank-
inn óskað eftir þessu. „Ég tel að
þessi aðgerð skjóti styrkari stoðum
undir Landsbankann bæði hér á
landi og erlendis og sé honum mjög
til framdráttar. Ég minni bara á
það að þetta er ríkisbanki sem ríkið
á. Hlutafélagsbanki sækir svona
fyrirgreiðslu til sinna hlutafjáreig-
enda eins og hlutafélagsbankinn hér
hefur gert á síðustu árum í veruleg-
um mæli og það var hið eðlilega
fyrir bankann að gera við þessar
aðstæður að snúa sér til ríkisstjórn-
arinnar,“ sagði Kjartan.
Hann sagði að engin ný skilyrði
væru sett af hálfu ríkisstjórnarinnar
vegna þessarar fyrirgreiðslu um
rekstur bankans. Bankinn hefði í
janúar skilað til ríkisstjórnarinnar
tillögum um hagræðingu til að
lækka reksturskostnað, eins og ósk-
að hefði verið eftir þegar ríkisstjóm-
in hefði haft millgöngu um að út-
vega bankanum 1250 milljóna
króna lán í Seðlabankanum við síð-
astliðin áramót. Þær tillögur væru
til sameiginlegrar meðferðar í nefnd
Seðlabankans og Landsbankans og
þeirri vinnu yrði haldið áfram.
unum væri staða bankanna tryggð
með almennum aðgerðum.
Eiginfjárstaða hinna
bankanna betri
Spurður að því hvort að því kynni
að koma að grípa þyrfti til svipaðra
aðgerða til að styrkja stöðu hinna
íslensku bankanna sagði Jóhannes:
„Eiginijárstaða beggja hinna við-
skiptabankanna, íslandsbanka og
Búnaðarbanka, hefur verið verulega
betri en Landsbankans. Við sjáum
enga yfirvofandi hættu þar. Hins
vegar er gott að gera þessar breyt-
ingar á Tryggingarsjóði viðskipta-
bankanna og þar með að búa til
nýtt kerfi til að geta brugðist við
vandamálum sem upp kunna að
koma.“
Stjórnarflokkarnir styðja frumvarpið
Nauðsynlegt að
kanna stöðu
bankaeftirlits
-segir Ossur Skarphéðinsson
ÞINGFLOKKAR stjórnarflokkanna samþykktu á fundum síðdegis í
gær að styðja frumvarp ríkissljórnarinnar um aðgerðir til að bæta
eiginfjárstöðu Landsbankans. Að sögn Ossurar Skarphéðinssonar
formanns þingflokks Alþýðuflókksins eru sterkar raddir um það
innan þingflokksins að kannað verði hvort ekki sé rétt að setja til-
sjónarmenn með bankanum, og þá segist hann telja nauðsynlegt að
kanna stöðu bankaeftirlitsins í þessu máli.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
Lá fyrir að veita
þyrfti aðstoð í vor
JÓHANNES Nordal seðlabankastjóri telur að aðgerðir ríkissljórnar-
innar ásamt þeim ráðstöfunum sem Landsbankinn sjálfur grípur til
lagi eiginfjárstöðu hans til frambúðar.
Mikilvægt að raska ekki
samkeppnisstöðu banka
segja forsvarsmenn íslandsbanka og sparisjóðanna
FORSVARSMENN íslandsbanka
og sparisjóðanna segjast telja
mikilváegt að aðgerðir ríkissljórn-
arinnar vegna Landsbankans
raski ekki samkeppnisstöðu inn-
lánsstofnana. Er bent á að fram-
lög úr ríkissjóði til eins banka
hljóti að bæta stöðu hans í sam-
keppninni við aðra banka og
sparisjóði nema gripið verði til
ráðstafana til að koma í veg slík
áhrif.
„Mér þykja þetta slæm tíðindi,"
sagði Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka. „Landsbankinn hefur
verið stærsti banki þjóðarinnar og
hann gegnir afar mikilvægu hlut-
vérki í öllu atvinnu- og efnahagslífi
í landinu. Sá vandi sem nú hefur
komið upp hjá Landsbankanum er
að vissu leyti álitshnekkir fyrir allt
bankakerfið og allt atvinnulíf á ís-
landi. Það hlýtur að hafa ýmis áhrif.
Miðað við þær upplýsingar sem fram
hafa komið þá er vandi bankans það
mikill að eðlilegt er að stjórnvöld
grípi strax til ráðstafana svo ekki
hljótist nein frekari vandræði af. En
í því sambandi þá finnst mér mjög
mikilvægt að ráðstafanir ríkisstjóm-
arinnar raski ekki samkeppnisstöðu
innlánsstofnana. Þegar ríkið grípur
inn í bankareksturinn með framlög-
um úr ríkissjóði til eins bankans hlýt-
ur það að bæta stöðu hans í sam-
keppninni við aðra banka og spari-
sjóði nema að á einhvem hátt verði
tryggt að þau óæskilegu áhrif verði
ekki. Mér finnst mikilvægt að undir-
strika þýðingu þess að stjómvöld
tryggi það.“
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis og formaður Sambands ís-
lenskra sparisjóða, sagðist vona að
aðgerðir ríkisstjómarinnar vegna
Landsbankans myndu ekki leiða til
misvægis í samkeppnisstöðu innláns-
stofnana. Það þyrfti að skapa jafn-
Heimildir Tryggingarsjóðs við-
skiptabanka hafa hingað til verið
mun þrengri en hjá Tryggingar-
sjóði sparisjóða. Sá síðamefndi
hefur heimild til að gera ýmsar
ráðstafanir, m.a. veita sparisjóð-
um víkjandi lán, veita sérstaka
aðstoð, kaupa kröfur út úr spari-
sjóðum og liðka til með endur-
skipulagningu á sparisjóðum með
hverjum þeim hætti sem stjórn
sjóðsins telur hagkvæmt.
Eins og fram kemur í fréttatil-
ræði milli þeirra, ekki síst gagnvart
útlöndum. Hann benti á að þessar
aðgerðir kynnu að hafa neikvæð
áhrif á lánstraust annarra innláns-
stofnana hér á landi gagnvart er-
lendum aðilum, nema jafnræðis væri
gætt.
kynningu forsætisráðuneytisins
verður báðum sjóðunum heimilað
að taka lán með ríkisábyrgð að
fjárhæð 3 milljarðar króna. Af
þeirri fjárhæð er gert ráð fyrir
að Tryggingarsjóður viðskipta-
banka veiti Landsbankanum á
þessu ári allt að 1 milljarð í víkj-
andi lán. Þá verður skipuð nefnd
til að semja tillögur um eflingu
sjóðanna í framtíðinn og hugsan-
lega sameiningu þeirra.
Víðtækara svið
Tryggingarsj'óðs
viðskiptabanka
SAMKVÆMT gildandi lögum er einungis gert ráð fyrir að Trygg-
ingarsjóður viðskiptabanka geti bætt innstæðueigendum tjón sem
þeir kynnu að verða fyrir við gjaldþrot eða slit viðskiptabanka.
Sú breyting sem boðuð var í gær á tryggingarsjóðnum miðar
að því að heimila stjórn sjóðsins að veita jafnframt víkjandi lán
eða ráðstafa fjármunum úr sjóðnum í öðrum tilvikum en beinlín-
is þeim að bæta tjón.
Talsmenn stjórnarandstöðu ga;
ma, vinnubrögð stiórnarinnar
Alvarleg mistök sem
veikja lánstraust okkar
— segir Olafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, segir að með
vinnubrögðum sínum sé ríkisstjórnin að veikja lánstraust Islendinga
erlendis og lántökugjöld og greiðslur af erlendum lánum muni stór-
hækka vegna þess að áhættumat erlendra fjármálastofnana gagnvart
Islandi muni gjörbreytast á einni nóttu vegna þess hvernig staðið er
að þessum aðgerðum. Ólafur segir að Alþýðubandalagið hafi ekki tekið
afstöðu til þess hvort það muni styðja aðgerðirnar. Kristín Ástgeirsdótt-
ir þingmaður segist eiga von á að Kvennalistinn muni styðja aðgerðirn-
ar þó deila megi um hversu mikinn stuðning Landsbankinn þurfi. Stein-
grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í sjónvarps-
fréttum í gær að ríkisstjórnin hefði staðið að uppákomu sem væri að
hluta til sjónarspil.
„Ríkisstjórnin hefur greinilega gert
alvarleg mistök,“ segir Ólafur Ragn-
ar. „Með vinnubrögðum af þessu tagi
er verið að tilkynna hinu alþjóðlega
bankakerfi og fjármálastofnunum að
peningakerfí íslendinga sé að fara
fram af bjargbrúninni," sagði hann.
Ólafur sagði að ekki hefði verið til-
efni til slíkra skyndiákvarðana vegna
stöðu Landsbankans. „Mér hefur ver-
ið tjáð að bankaráðsmenn Landsbank-
ans hafi ekki vitað um neina slíka
stöðu í morgun. Bankastjórar bank-
ans ekki heldur, fyrr en í morgun
þegar þeir voru kallaðir á fund Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráðherra.
Fyrir lá uppgjör á stöðu Lands-
bankans á árinu 1992. Var eigið fé
bankans 6 milljarðar. 2,8 miiljarðar
voru til í afskriftasjóði í bankanum
og þrátt fyrir að bankinn væri búinn
að leggja 1.500 millj. til hliðar í af-
skriftasjóð, leggja stórar upphæðir til
hliðar til að standa við lífeyrisskuld-
bindingar og nýta sér alla hugsanlega
skattafrádrætti, sem bankinn á
möguleika á, virtist engu að síður
ekki vera nema 300 milljóna króna
tap á bankanum á síðastliðnu ári og
er hann þó yfir BIS-mörkunum,“
sagði hann.
„Þegar horft er á þessar staðreynd-
ir og litið yfír verk ríkisstjórnarinnar
í dag er maður furðu lostinn yfir þess-
um vinnubrögðum. Menn hljóta þá
að spyija hver sé tilgangurinn eða
eru viðskiptaráðherra og forsætisráð-
herra, sem mér er sagt að séu þeir
ráðherrar í ríkisstjórninni sem hafí
fjallað um þetta mál á síðustu sólar-
hringum, svo gjörsamlega vanhæfir
til að taka á vandamálum að þeir
breyta viðfangsefni, sem vissulega
þurfti að taka á en var hægt að gefa
sér þó nokkurn tíma til að fjalla um
með eðlilegum hætti, í alvarlegustu
krísu sem upp hefur komið í langan
tíma í peningakerfi þjóðarinnar,"
sagði Ólafur.
Getur vakið tortryggni
Kristín sagði að ekki kæmi á óvart
að grípa þyrfti til ráðstafana vegna
stöðu Landsbankans því á undanföm-
um mánuðum hefði legið fyrir að erf-
iðleikar atvinnulífsins hlytu að bitna
á bankanum.
„Ég er ekki sátt við hvemig ríkis-
stjómin hefur staðið að þessari að-
gerð. Ég held að menn verði að vara
sig á að ijúka svona upp til handa
og fóta eins og ríkisstjórnin hefur
gert, því það getur vakið mikla tor-
tryggni, bæði hjá sparifjáreigendum
og eins út á við hjá erlendum lána-
stofnunum. Það kom mjög á óvart
að ríkisstjómin skyldi ijúka upp með
þessum hætti," sagði Kristín.
Morgunblaðið náði ekki tali af
Steingrími Hermannssyni, sem sæti
á í bankaráði Landsbankans, en í
sjónvarpsfréttum í gærkvöldi sagði
hann að vandi bankans hefði verið
blásinn upp. Lausafjárstaða bankans
væri sterkari en nokkru sinni og hann
ætti 6-7 milljarða í eigin fé en vax-
andi erfiðleikar atvinnulífsins hefði
bitnað á bankanum. Sagði Steingrím-
ur að stjórnendur bankans hefðu átt
samráð við viðskiptaráðherra um leið-
ir til að mæta þessum vanda að und-
anförnu og því kæmi það flatt upp á
alla þegar ríkisstjómin gripi til
„sjokk-meðferðar" af þessu tagi.
If