Morgunblaðið - 17.03.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
Bláa lóns stemmning
á Tveimur vinum
Næturlífið í Reykjavík gerist æ
íjölbreyttara er skemmtana-
haldarar keppa stíft um íslenska
nátthrafna. Eigendur Tveggja
vina gerbreyttu til dæmis staðnum
á skömmum tíma og opnuðu með
nýja „andlitinu" um síðustu helgi.
Öllum húsgögnum og innrétting-
um var mokað út og inn í húsið
var blásið sandi og annarri mylsnu
frá Bláa lóninu eina og sanna. Þá
voru þama settir upp nuddpottar,
bananatré, rósarunnar og fleira í
þeim dúr, allt til þess fallið að
koma á suðrænni stemmningu og
þótti það takast afgerandi vel.
Til þess að auka á suðrænuna
sprönguðu þjónar staðarins um í
efnislitlum sundskýlum einum fata
og nokkuð var um að gestir fækk-
uðu fötum og skelltu sér í heitu
pottana. Þá sýndu fyrirsætur frá
Módelmynd nýjustu sundfatatísk-
una frá Triumph sem verslunin
Aquasport er umboðsaðili fyrir.
Óhætt er því að segja að sjaldan
hafi klæðaléysi verið almennara á
íslenskum skemmtistað. Vert er
þó að geta, að margir voru þó
kappklæddir að vanda. Ekki mun
hér hafa verið á ferðinni breyting
til einnar helgar, heldur til ein-
hverrar frambúðar.
Gestir staðarins kunnu vel að meta almennt atgervi þjóna staðarins.
Morgunblaðið/Sverrir
Módelin Andrea Róbertsdóttir og
Hólmgeir Hólmgeirsson í sund-
fötunum.
Ein myndanna
sem fjaðrafokinu
olli.
KAMRYKVOLI)
í Úlfaldanum, Ármúla 17 a
Hallbjörn Hjartarson,
Anna Vilhjálms,
Hannes Jón,
KK-band,
„Kántrýband“
sérstaklega sett upp fyrir þetta eina kvöld.
FRÁBÆR SKEMMTUN. ALLIR VGLKOMNIR.
Miðaverö kr. 700,-
Málþing um
IÐNMENNTUN
Laugardaginn 20. mars nk.
f Borgartúni 6
Ki. 9:00-17:00
Hvernig á atvinnulífið að koma inn í
stjórnun iðnmenntunar?
Hvernig má auka sókn ungsfólks
í starfsmenntun?
Hvaða hæfnikröfur gerir atvinnulífið
til starfsmanna?
Hvernig sinna skólarnir þörfum nema
og atvinnulífs?
Aðalerindið flytur dr. Gestur Guðmundsson,
félagsfræðingur:
Vandi starfsmenntunar á framhaldsskólastigi.
Ráðstefnan er öllum opin, en menn eru
vinsamlega beðnir um að skrá þátttöku sína hjá
einhverjum neðangreindra aðila.
Ráðstefnugjald er kr. 1.500,- og eru veitingar (kaffi og
léttur hádegisverður) ásamt ráðstefnugögnum innifaldar
ígjaldinu.
Með von um góða þátttöku.
aiþýðusarnband íslands (813144)
Iðnnemasaniband Islands (14418)
Menntaraálaráðuneytið (689504)
Félao íslenskra iðnrekenda (27577)
Landssaniband iðnaðarmanna (621588)
Samband iðnmenntaskóla (823378)
BRÆÐI
Bruce gerir sig digran við Ijósmyndara
Bruce tryllist
bláum myndum af frúnni
Nú hafa birst myndir af banda-
rísku leikkonunni Demi Moore
frá árunum áður en hún varð eitt
stærsta nafnið í Hollywood. 17 ára
gömul var hún til í flest til að vekja
á sér athygli því draumurinn var
að verða fræg kvikmyndaleikkona.
Demi er undurfögur og hikaði ekki
við að fletta sig klæðum að meira
og minna leyti fyrir framan linsurn-
ar í þessu skyni. Eiginmaður Demi,
leikarinn Bruce Willis, sem sjálfur
er stórt nafn í kvikmyndabransan-
um vestra, varð hins vegar óður
af bræði er hann frétti að ljósmynd-
arinn væri að dusta rykið af mynd-
unum. Hann bauð ljósmyndaranum
gull og græna skóga fyrir negatív-
umar, en vinurinn vildi ekki seija.
Umræddar myndir eru ekki
djarfar miðað við sumt sem hefur
birst af Demi. Til að mynda er hún
ekki nakin á myndunum þótt fötin
sem hún klæðist séu að sönnu ekki
efnismikil. í ljósi þess botna fáir í
reiði bóndans sérstaklega vegna
þess að fyrir nokkrum mánuðum
sat Demi fyrir nakin og birtist tví-
vegis þannig á kápu hins víðlesna
tímarits „Vanity Fair“. í fyrra
skiptið var hún ólétt á áttunda
mánuði, í síðara skiptið léttari og
spengileg, en með Jakkaföt“ máluð
á kroppinn.
Það er haft fyrir satt að Demi
láti sér skapbræði Bruce bónda síns
í léttu rúmi liggja og ráði því sem
hún kærir sig um. Hún segist fyrir-
líta fátt meira heldur en tvöfalt sið-
gæði og viti fyrir víst, sem dæmi,
að sumir þeirra sem hefðu rakkað
hvað mest niður nektarmyndabók
söngkonunnar Madonnu væru ein-
staklingar sem öfunduðu hana af
auð sínum og glæsileika.
Demi Moore hefur getað valið
úr hlutverkum síðustu árin, en
næst mun hún bera fyrir augu
manna í aðalkvenhlutverkinu í end-
urgerðri útgáfu af stórmyndinni „Á
hverfanda hveli“. F'ramleiðendur og
leiksijóri myndarinnar voru mánuð-
um saman að velja í hlutverkið, en
það var engin önnur en Demi Mo-
ore sem hreppti það og var tekin
fram yfir margar af þekktustu leik-
konum Hollywood.
fclk í
fréttum
NÆTURLIFIÐ