Morgunblaðið - 17.03.1993, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
KNATTSPYRNA
KEILA
Meistarar
Ajax úr leik
HOLLENSKA liðið Ajax vann
franska liðið Auxerre 1:0 í seinni
leik liðanna í átta liða úrslitum
Evrópukeppni féiagsiiða í gær-
kvöldi, en þar sem Frakkarnir
unnu fyrri leikinn 4:2, féllu Evr-
ópumeistararnir úr keppninni.
Gerald Baticle fékk sannkallað
dauðafæri þegar á fyrstu mín-
útu eftir að Edwin van der Sar,
markvörður Ajax, færði honum bolt-
ann á silfurfati, en Baticle skaut
yfír. Frakkamir voru aðgangshárð-
ari fyrstu 20 mínúturnar og heima-
menn áttu í erfiðleikum með að ná
undirtökunum, en eftir þetta réðu
þeir gangi leiksins. Þeir sóttu stíft
án árangurs þar til þeir uppskáru
mark um miðjan seinni hálfleik.
Miðjumaðurinn Rob Alflen tók auka-
spymu og vamarmaðurinn Frank
de Boer gerði glæsilegt mark með
skalla.
Hollendingarnir reyndu allt hvað
þeir gátu til að bæta markinu við,
sem þeir þurftu, en vörn Frakkanna
var vel á verði og stóðst álagið.
Blackbum úr leik
Það gengur illa hjá Kenny Dalglish og leikmönnum hans hjá Black-
bum þessa dagana. Sheffíeld United vann Blackburn í 8-liða
úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær — í vítaspymukeppni, eftir jafn-
teflisleik 2:2. Blackbum tapaði fyrir Sheff. Wed. á sunnudaginn í
undanúrslitum deildarbikarkeppninni.
Rcutcr
Pascal Vahirua, útheijinn snjalli hjá Auxerre (t.h.) í baráttu um knöttinn
við Sonny Silooy á Ólympíuleikvanginum L Amsterdam í gærkvöldi.
FOLX
■ RUDI Völler og Alen Boksic
hafa ekki leikið með Marseille að
undanfömu vegna meiðsla, en stefnt
er að því að þeir verði með gegn
CSKA Moskva í úrslitakeppni Evr-
ópumóts meistaraliða í kvöld.
■ MARSEILLE er efst í riðlinum
á markatölu, en treystir að fyrr-
nefnda félaga, sem hafa samtals
gert 24 mörk ■ BASILE Boli kem-
ur aftur inní vömina eftir að hafa
verið frá vegna meiðsla.
■ RÚSSARNIR voru í Barcelona
og undirbjuggu sig þar fyrir leikinn.
■ ILSHAT FayzuIIin, semjafnaði
í fyrri leik liðanna í Berlín, sagði
að CSKA myndi leggja áherslu á
sterkan- vamarleik og beita skyndi-
sóknum. „Vöm Marseille er sein
og við reynum að nýta okkur það.“
H ALAIN Roche og Laurent Fo-
umier taka út leikbann og verða
ekki með PSV í seinni leiknum gegn
Real Madrid annaðkvöld. Francois
Calderaro og Francis Llacer eru
meiddir og leika því ekki með
franska liðinu.
■ RANGERS verður án nokkurra
lykilmanna gegn Club Briigge, en
aðeins fímm leikmenn liðsins hafa
leikið alla sjö Evrópuleikina í vetur
og tveir þeirra eru tæpir.
■ GARY STEVENS, enski landsl-
iðsmaðurinn hjá Glasgow Rangers,
leikur ekki meira með Rangers á
þessu keppnistímabili. Hann þarf í
uppskurð á fæti.
■ GIOVANNI Trapattoni, þjálf-
ari Juventus, bauðst til að segja
starfí sínu lausu í síðustu viku, en
Agnelli eigandi tók það ekki í mál.
Liðið mætir Benfica í UEFA-keppn-
inni í kvöld, en Juve tapaði fyrri
leiknum 2:1 og hefur tapað þremur
af síðustu fímm deildarleikjum.
■ HENRIK Larsen, landsliðsmað-
ur Dana sem hefur verið í láni hjá
Aston Villa, segist ekkert hafa að
gera hjá Villa og hann sjái ekki að
hann komist í liðið. Larsen var lán-
aður frá ítalska liðinu Pisa en hefur
ekki leikið einn leik með aðalliði
Villa.
■ GHENT, sem leikur í belgísku
1. deildinni, réð í gær Hollending-
inn Hans Dorjee sem þjálfara liðs-
ins. Hann tók við embættinu af
Rene Vandereycken sem var rek-
inn fyrir hálfum mánuði. Dorjee var
aðstoðarþjálfari PSV Eindhoven
frá 1988 til 1991 er hann fór yfír
til Feyenoord en var ekki langlífur
þar því hann var rekinn í júní í fyrra.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Lakers lagði spútniklið
San Antonio á útivelli
Retuer
Charles Jones, t.h. leikmaður Washington Bullets, sækir að Larry Nance
hjá Cleveland í fýrrinótt. Bullets vann loks eftir sex tapleiki í röð.
JAMES Worthy og félagar i Los
Angeles Lakers komu á óvart
ífyrrinótt gegn spútnikliði John
Lucas og höfðu betur 92:87 í
San Antonio. James Worthy
skoraði 24 stig fyrir Lakers,
Byron Scott gerði 17 stig og
þar á meðal tólf þúsundasta
stig sitt á ferlinum.
BJ Armstrong setti persónulegt
met í stigaskori er hann gerði
28 stig í sigurleik Chicago Bulls
gegn LA Clippers 101:94. Michael
Jordan gerði „aðeins" 23 stig fyrir
meistarana. Með sigrinum fór Bulls
aftur á topp austurdeildarinnar.
Washington Bullets vann Cleve-
land Cavaliers í Washington
105:101. Tom Gugliotta skoraði 23
stig og tók 10 fráköst fyrir Bullets,
sem vann loks eftir sex tapleiki í
röð. Mark Price kom aftur inní lið
Cleveland eftir meiðsli og gerði 14
stig og átti sjö stoðsendingar á
aðeins 21 mínútu.
Glen Rice kom Denver í fram-
lengingu gegn Miami með glæsi-
legri þriggja stiga körfu, Miami
Heat vann þó 103:100. Dikembe
Mutombo tók 23 fráköst fyrir Denv-
er, Glen Rice skoraði 30 stig fyrir
Miami Heat og Ron Seikaly bætti
við 18 stigum og tók 21 frákast.
Heat hefur unnið 11 af síðustu 13
leikjum.
í Portland biðu New Jersey Nets
ósigur, 110:94. Cliff Robinson skor-
aði 25 stig og Terry Porter kom
næstur með 22 fyrir Blazers sem
höfðu tapað 12 af síðustu 19 leilq'-
um.
í Dallas gerði Karl Malone 36
stig fyrir Utah í 109:96 sigri gegn
Mavericks. John Stockton skoraði
16 stig og var með 13 stoðsending-
ar í þriðja sigri Jazz í síðustu 11
leikjum. Staða Mavericks er allt
annað en glæsileg. Liðið hefur að-
eins unnið 4 leiki og tapað 57.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
ÍA-ÍR..........................74:62
íþróttahús Akraness, fyrsti leikur um sæti
í úrvalsdeild næsta keppnistímabil, þriðju-
daginh 16. mars 1993.
Stig ÍA: Jón Þór Þórðarson 22, Eggert
Garðarsson 18, Keith Stewart 16, Pétur
Sigurðsson 11, Bjöm Steffensen 3, Garðar
Jónsson 3, Dagur Þórisson 1.
Stig ÍR: Eirikur Önundarson 19, Broddi
Sigurðsson 10, Kristján Henrysson 10,
Márus Amarsson 8, Hilmar gunnarsson 7,
Gunnar Öm Þorsteinsson 5, Aðalsteinn
Hrafnkelsson 3.
BÞað lið, sem sigrar í tveimur leikjum, flyst
í úrvalsdeild, en hitt leikur við Tindastól
um sæti í deildinni. Annar leikur ÍR og ÍA
verður í íþróttahúsi Seljaskóla á morgun
kl. 20.
NBA-deildin
Leikir uðfararnótt mánudags:
Washington - Cleveland........105:101
San Antonio - LA Lakers........87 : 92
Chicago - LA Clippers.........101: 94
Dallas - Utah.......................96 :109
Denver- Miami..................100:103
■eftir framlengingu.
Portland-NewJerseyNets........110: 94
Knattspyrna
UEFA-keppnin
Amsterdam, Hollandi:
Ajax - Auxerre................1:0
Frank de Boer (60.). 42.500.
■Auxerre vann samanlagt 4:3 og er komið
í undanúrslit.
EVROPUKEPPNIN
Aris Salonika meistari
Aris Salonika frá Grikklandi
varð í gær Evrópumeistari
bikarhafa í körfuknattleik eftir
sigur á SK Istanbul frá Tyrk-
landi, 50:48, í úrslitaleik í Tórínó
á Ítalíu. 4.000 Grikkir sem voru
á meðal 7.000 áhorfenda létu
gleði sína óspart í Ijós eftir leikinn
og köstuðu öllu lauslegu inná völl-
in. Þá kom til óláta milli þeirra
og stuðningsmanna tyrkneska
liðsins. Setur úr áhorfendabekkj-
um fuku eins og hráviður um alla
íþróttahöllina og máttu leikmenn
þakka fyrir að komast af leikvelli
ómeiddir. Gríska Iiðið gæti átt á
hættu að fá refsingu vegna óláta
áhangenda liðsins.
Real Madrid frá Spáni sigraði
Virtus Bologna frá Ítalíu 79:58 í
8-liða úrslitum í Evrópukeppni
. meistaraliða og er komið í undan-
úrslit keppninnar sem fram fer í
Aþenu 13.-15. apríl ásamt PAOK
Salonika sem vann franska liðið
Orthez 81-65. Hin liðin í undanúr-
slitum verða sigurvegarar úr leik
Olympiakos/Limoges Frakklandi
og ítölsku liðanna Benetton Tre-
viso/Scavolini Pesaro.
Jónaog
Jón Helgi
íslands-
meistarar
JÓNA Gunnarsdóttir og Jón
Helgi Bragason, bæði úr Keilu-
félagi Reykjavíkur, urðu ís-
landsmeistarar 1993 í keilu
kvenna og karla, en íslands-
mótinu lauk í Keilulandi í
Garðabæ á laugardaginn. Met-
þátttaka var i mótinu, eða 110
alls, þar af 96 í karlaflokki.
Jóna sigraði Ágústu Þorsteins-
dóttur í tvöföldum úrslitaleik
kvenna með 375 stigum (182+193)
gegn 334 stigum (156+178). Elín
Oskarsdóttir varð þriðja.
Ágústa Þorsteinsdóttir sló ís-
landsmetið í 6 leikja röð kvenna í
tvígang í forkeppninni. Fyrst fékk
hún 1.188 stig í Keilubæ í Keflavík
og síðan 1.213 stig í Keilulandi í
Garðabæ.
Jón Helgi lék við Davíð Löve í
tvöföldum úrslitaleik um íslands-
meistaratitilinn í karlaflokki og
sigraði Jón með 389 stigum
(185+204) gegn 369 (168+201).
Stefán Ingi Oskarsson varð þriðji.
SUND
Amar Freyr
náði lág-
marki fyrir
meistaramót
háskólanna
Amar Freyr Ólafsson tryggði sér
rétt til að keppa á bandaríska
háskólameistaramótinu í sundi á
móti um helgina, þegar hann synti
400 stiku fjórsund á 3.58,28 mín.,
en lágmarkið er 3.59,49. Tími Am-
ars Freys jafngildir um 4,22 mín.
í 400 m fjórsundi, en íslandsmet
hans er 4.25,21.
Hann fór 200 stiku fjórsund á
1.54,45, sem jafngildir um 2.06 í
200 m fjórsundi, en íslandsmet
Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar er
2.05,22.
Amar Freyr fékk tímann 53,60
í 100 stiku baksundi og jafngildir
það um 58,80 í 100 m baksundi,
en íslandsmet Eðvarðs Þórs frá
1986 er 56,26. Þá keppti hann í
200 stiku baksundi og fór á 1.52,50,
sem jafngildir um 2.04,50 í 200 m
baksundi, en íslandsmet Eðvarðs
Þórs er 2.00,55.
íslandsmet hjá Gunnarí
Gunnar Ársælsson, IA, setti ís-
landsmet í 50 m flugsundi um helg-
ina, Sjmti á 26,03. Ifyrra met hans
var 26,39.
LEIÐRETTINGAR
Nöfn sigurvegara í bogfimi á íslands-
móti fatlaðra víxluðust í myndatexta í blað-
inu í gær. Jón M. Amason er lengst til
vinstri og þá Leifur Karlsson, en Óskar
Konráðsson lengst til hægri.
Úrslit í 100 m bringusundi kvenna, opn-
um flokki, voru ekki rétt skráð hjá móts-
haldara. Anna Rún Kristjánsdóttír úr
Hvöt, sem tók þátt í sínum fyrsta íslands-
móti, varð þriðja á 2:41.20 mín. og vann
brons.
í kvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna, úrslitak.
Garðabæn Stjaman - Selfoss ...kl. 20
Vestm.: ÍBV-Grótta......kl. 20
Víkin: Víkingur-Ármann..kl. 20
2. deild karla, úrslitak.
Digranes: UBK-ÍH........kl. 20
Keflavík: HKN-Grótta....kl. 20