Morgunblaðið - 17.03.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
43
HANDKNATTLEIKUR / HMISVIÞJOÐ
■ RÚSSAR lögðu íslendinga að
velli í gær með sömu markatölu og
Sovétmenn gerðu í HM í Tékkó-
slóvakíu 1990 - í Bratislava,
19:27...
■ RÖGNVALD Erlingsson og
Stefán Amaldsson dæmdu leik
Tékka og Svisslendinga í Halm-
stad í gærkvöldi, þar sem Tékkar
unnu, 24:23, eftir að Svisslending-
ar voru fímm mörk yfír.
■ RÚSSAR, Svíar og Þjóðveijar
eru þeir einu sem ekki hafa tapað
leik í HM, en þessar þjóðir leika í
milliriðli 2. Þjóðverjar og Svíar
mætast í dag.
■ FRAKKAR eru gott sem komn-
ir í úrsiit með því að leggja Spán-
veija að velli í gær, 23:21. Þeir
þurfa nú aðeins að vinna Egypta
til að ná úrslitaleiknum.
■ FRAKKAR töpuðu fyrsta leik
sínum í HM, gegn Svisslendingum,
en síðan fóru þeir á beinu brautina.
I GUÐMUNDUR Hrafnkelsson
var útnefndur besti leikmaður ís-
lendinga og Talant Dujshebaev
var útnefndur besti Rússinn.
■ KEN Jörgenson, leikmaður
danska liðsins, fór úr axlarlið í gær
í leik gegn Ungveijum og er lík-
legt að hann verði ekki meira með.
44,1%
sóknar-
nýting
Islenska liðið fékk 19 sóknir í
■ fyrri hálfleik og nýtti 9
(47,36% nýting), en 10 af 24
sóknum eftir hlé gengu upp
(41,6%) og sóknamýtingin í
leiknum því 44,1%. Strákarnir
gerðu sex mörk af línu, fímm
eftir gegnumbrot, fjögur með
langskotum, þijú úr vítaköstum
og eitt eftir hraðaupphlaup.
• Sigurður Sveinsson gerði 5/3
mörk úr 7/4 skotum og var með
71,4% skotnýtingu. Hann var
með fjórar stoðsendingar,
fískaði eitt víti og tapaði boltan-
um þrisvar.
•Patrekur Jóhannesson var
með fímm mörk í 10 tilraunum
(50%), átti eina stoðsendingu og
tapaði boltanum einu sinni.
•Geir Sveinsson gerði þijú
mörk í fjórum tilraunum (75%)
og átti eina stoðsendingu.
Fiskaði tvö víiti.
•Gunnar Gunnarsson skaut
tvisvar og skoraði í bæði skipt-
in, 100% nýting, átti tvær stoð-
sendingar og missti boltann ijór-
um sinnum.
•Valdimar Grímsson gerði tvö
mörk í þremur tilraunum
(66,6%), átti eina stoðsendingu
og fékk eitt víti, en tapaði bolt-
anum einu sinni.
•Júlíus Jónasson var með eitt
skot og eitt mark. Hann „stal“
boltanum tvisvar og fískaði eitt
víti.
•Héðinn Gilsson gerði eitt
mark í fímm tilraunum (20%),
fékk eitt víti og tapaði boltanum
einu sinni.
•Konráð Olavson lét veija eina
skot sitt og tapaði boltanum einu
sinni.
•Guðmundur Hrafnkelsson
varði 6/4 langskot, 3/1 af línu,
2/1 eftir hraðaupphlaup, 2/1 úr
homi og eitt gegnumbrot eða
14 skot og þaraf sjö til mót-
heija aftur.
Fyrírliðinn góður
Morgunblaðið/RAX
Geir Sveinsson, fyrirliði landsliðsins, hefur staðið sig mjög vel á heimsmeistaramótinu. Hér er hann með knöttinn í leiknum
í gær, en Rússinn Andrej Antonevic virðist ekki alveg með á nótunum.
Geir Sveinsson:
Sóknar-
leikur
okkar
ekkiá-
sættan-
legur
Þetta var mun skárra en gegn
Þjóðverjum. Það vita allir
hvað það var hörmulegur leikur.
Nú gekk betur en til að leggja
Rússa að velli þurfum við að ná
svo til gallalausum leik. Vömin hjá
þeim er rosalega sterk og við náð-
um því miður ekki nógu mörgum
mörkum af níu metrunum til að»
draga þá út og aðeins í sundur,"
sagði Geir Sveinsson fyrirliði eftir
leikinn í gær.
„Þeir gera 12 mörk úr hraðaupp-
hlaupum og það er geysilega erfítt
að eiga við þá í þeim. Ég efast um
að vömin hefði lagast þó við hefð-
um breytt henni eða sett annan
mann inná í hana. Við ræddum um
það í hálfleik að vera svolítið
ákveðnari við Kudinov og það varð
raunin. Sóknarleikur okkar er ekki
ásættanlegur, og í raun frekar slak-
ur á köflum. Við erum að skora
fæst mörk í okkar riðli og raunar
einnig ef við miðum við hinn milli-
riðilinn.
Þeir gera síðustu fjögur mörkin
og ég er ekki sáttur við það. Ef
við hefðum tapað með aðeins minni
mun hefði maður eflaust verið mun
sáttari. Fjögur til fímm mörk hefði
verið betra en átta mörk er of mik-
ið,“ sagði Geir.
Hörkuleikur
Munurinn liggur í
hraðaupphlaupunum
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari eftirtapið í gær
Þetta var hörkuleikur, en við
verðum allir að leika 100% ef við
eigum að geta unnið þá, enda eru
þeir Ólympíumeistarar," sagði Pat-
rekur Jóhannesson sem stóð vel'
fyrir sínu þegar hann kom inná í
síðari hálfleik.
Varstu ekki farinn að bíða eftir
að fá að koma inná?
„Nei, nei. Maður bíður bara eftir
sínu tækifæri og reynir að nýta það
þegar manni er sagt að fara inná,“
bætti Patrekur við.
Rússar léku rosalega sterka vöm
og fengu með henni mörg
hraðaupphlaup og í þeim liggur
munurinn í kvöld,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson þjálfari.
Þegar hann var spurður hvort
ekki hefði hvarflað að honum að
breyta um vamaraðferð eða setja
Patrek inná fyrr, bæði í sókn og
vöm sagði hann: „Vömin var góð
hjá okkur í fyrri hálfleik og hún
var ekki áhyggjuefni. Munurinn á
liðunum liggur í hraðaupphlaupun-
um. Það hentar Patreki mjög vel
að leika gegn Rússum þar sem þeir
standa og veija öll hoppskot. Ef til
vill hefði ég átt að setja hann inn
fyrr en við fáum á okkur 5 til 6
mörk úr hraðaupphlaupum í fyrri
hálfleik og þar lá munurinn. Patrek-
ur er enn óþekkt stærð og hann
þarf að klára sitt dæmi með 21 árs
liðinu og annað slíkt áður en hann
er tilbúinn á HM ’95.“
Ertu með þessu að segja að þú
treystir honum ekki til að leika hér
á HM?
„Nei, ég er ekkert að segja að
ég treysti honum ekki. Éins og ég
var að segja hefði ég ef til vill átt
að setja hann fyrr inn en munurinn
lá í hraðaupphlaupunum. Héðinn
náði ekki að klára að hoppa yfír
þá, síðan gekk erfíðlega hjá Júlíusi
og þá kom Patrekur. Hann hefur
fengið sín tækifæri í vetur og það
hefur ef til vill gengið upp og nið-
ur. Ég get ekki verið 100% ömggur
um að Patrekur komi með svona
leik eins og í kvöld.“
Varstu aldrei að hugsa um að
breyta um vöm?
„Við prófuðum að taka menn úr
umferð en það gekk mun verr. Við
lékum við þá í Lotto keppninni í
Noregi og prófuðum 3-2-1 vörn þar
og réðum ekkert við þá. Þeir gera
12 mörk úr hraðaupphlaupum og
þar liggur þetta einfaldlega.
Nú kemur ekkert annað en sigur
til greina gegn Dönum og þá leikum
við um sjöunda sætið. Það er árang-
ur sem er allt í lagi, en ekki eins
góður og maður var ef til vill að
vonast eftir. Ef við hefðum klárað
Þjóveijaleikinn hefðum við leikið
um fimmta sætið. Það hefði verið
hægt. Fyrirfram óttaðist ég ekki
Þjóðveija, ég hélt að Ungveijar
yrðu að keppa um þetta sæti við
okkur.
Ég sé ekkert lið sem getur sigrað
Rússa. Ég sagði í upphafi að Rúss-
ar og Frakkar myndu leika til úr-
slita og ég held það rætist," sagði
Þorbergur.
Við lékum
mjög vel
^ - sagði Maxímov, þjálfari Rússa
Það besta við íslenska liðið er að það berst alltaf alveg til loka
hvers leiks og ég var alls ekki viss um sigur fyrr en alveg
undir lokin,“ sagði Vladímir Maxímov þjálfari Rússa eftir leikinn.
„Við lékum mjög vel í kvöld en þrátt fyrir það var ég ekki viss
um sigur fyrr en í lokin. Ég held að allir leikmenn mínir hafí gert
sitt besta og ég hafði gaman af leiknum. Allir leikir hafa sín sérein-
kenni, það eru engir tveir leikir eins, og ég hafði mikla ánægju af
þessum. Þetta var góður leikur.
Á Ólympíuleikunum voru 80% leikmanna Rússar en nú erum við
bara með Rússa en það er samt vandamál að finna eitthvert tungu-
mál sem allir geta talað. Vandamálið hjá okkur núna er að við höfð-
um bara viku til að æfa fyrir keppnina en sovésku liðin, sem kepptu
í gamla daga, höfðu allan þann tíma sem þjálfarinn vildi,“ sagði
þjálfarinn.