Morgunblaðið - 03.04.1993, Page 13

Morgunblaðið - 03.04.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993 —:—■■ v :—: !■ - - -—-!■ -. ■■;-■ i ■.—i— 13 The New York Times og Liberation um Inguló Vægðarlaus mynd af lífi sjómanna Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgnnbladsins. DAGBLAÐIÐ The New York Times birti á fímmtudag fremur jákvæða umsögn um kvikmyndina Inguló eftir Ásdísi Thoroddsen með þeim fyrirvara þó að fyrir kæmu „sláandi tilviljanir", sem myndinni tækist ekki að rísa undir. Einn- ig var Sólveigu Amarsdóttur í hlutverki Ingulóar hælt fyrir sjálfsöryggi. Þá hefur Morgunblaðinu borist lofsamleg umsögn franska dagblaðsins Liberation um myndina. Janet Maslin, kvikmyndagagnrýnandi The New York Times, sagði í grein sinni að myndin væri „nöpur“ og „hortug" og lýsti söguhetjunni sem „fýldri“ undir fyrir- sögninni „uppreisn og ástir á íslandi". Maslin rakti söguþráð myndarinnar og lætur tveggja leikara getið, Haraldar Hall- grímssonar í hlutverki Sveins, bróður Ing- ulóar, og Þorláks Kristinssonar í hlutverki Vilhjálms, sem dregur Inguló á tálar þegar þau eru vistmenn á geðdeild í Reykjavík og síðar kemur í ljós að er eigandi báts, sem Ingaló ræður sig á. í gagnrýninni sagði að „fáar kvikmyndir næðu sér á strik aftur“ eftir uppljóstrun á borð við þá að fyrrum ástmaður Ingulóar reynist vinnuveitandi hennar, „síst þegar kvikmynd er jafn opin og jafn mikillar óá- kveðni gætir og í þessari". Eftir að hafa virst einblína á sögu Ingulóar færist kvik- myndin yfir í að veita stærri og almennari mynd af vinnuaðstæðum meðal Islenskra sjómanna, sem búa í frystihúsum milli ferða og kvarta sáran undan lífsskilyrðum í ver- búðunum þar. Sagði Maslin að ástæða væri til að sjá myndina vegna þess að „hún gæfi sannfær- andi og vægðarlausa mynd af lífi sjómann- anna“. Sólveigu Arnarsdóttur er hælt í hlut- verki Ingulóar, en sögupersónan sögð bragð- dauf. „Ingaló sjálf er of niðurdregin og lok- uð til að vekja mikinn áhuga, en Sólveig býr yfir framkomu, sem er sláandi fyrir augað, og miklu sjálfsöryggi," skrifaði gagn- rýnandinn. Tilefni þessarar umsagnar er að Nútíma- listasafnið í New York (Museum of Modern Art) hefur nú til sýninga kvik- myndir, sem eiga að bera vitni nýjum leikstjórum og myndum, og Ingaló er þeirra á meðal. Myndin var sýnd á fimmtudags- kvöld og verður aftur sýnd á sunnudag. Stjörnur í Rúðuborg Hér á eftir fer hluti úr grein, sem birtist í franska blaðinu „Liberation", föstudaginn 26. mars sl. Höfundur er Hugues Beaudouin, en hann var menn- ingarfulltrúi í franska sendiráð- inu í Reykjavík um nokkurra ára bil. „Ferskur andvari frá íslandi lék um Rúðuborg um síðustu helgi, þegar verðlaun hinnar árlegu norrænu kvikmyndahátíðar voru af- hent í sjötta sinn. Það var nefnilega íslenzk mynd, „Ingaló", fyrsta verk ungrar og glæsi- legrar konu, Ásdísar Thoroddsen, sem hreppti þau, og jafnframt var aðalleikkona myndarinnar, Sólveig Arnardóttir, kjörin bezti kvenleikarinn. Myndin „Ingaló“ er tekin í litlu fiski- mannaþorpi og fjallar um líf fiskverkafólks. Hún segir frá aðkomustúlku, „Inguló" (Sól- veig Arnarsdóttir), sem rís upp gegn ofur- efli karlmannsins í þessu hijúfa og ömurlega umhverfi og neitar að viðurkenna kyn- bundna yfirburði hans. Höfundurinn Ásdís Thoroddsen kemst svo að orði: „Þessi mynd er bæði sálfræðilegs og félagslegs eðlis, til- raun til þess að sýna fram á þá takmarka- lausu angist, sem ríkir í vonlausu og af- skiptu umnhverfi.“ Manni verður ósjálfrátt hugsað til þess, að í sjávarþorpum ekki fjarri Rúðuborg lifa fiskimenn við ekki ósvipaðar aðstæður. Við höfum áður upplifað hina fersku strauma frá ís- landi. Menn voru ekki fýrr búnir að fá augastað á þessu landi á síðasta ári, en mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, „Börn náttúrunnar", var kjörin af áhorfendum bezta mynd hátíðarinnar og hlaut margvís- lega viðurkenningu. Su mynd átti raunar eftir að gera garð- inn frægan bæði vestan hafs og austan. Það kveður svo sannarlega að íslenskri kvikmyndagerð miðað við það, hversu markaðurinn er þröpgur. Takmörkuð fjárráð fámennrar þjóðar neyðir íslenzka kvikmyndagerðar- menn til þess að leita á önnur mið, fara út fyrir landsteinana í leit að íjármagni. Þann- ig hefur ísland aukið framleiðslu sína á ári hveiju úr þremur upp í átta myndir. Og margar þeirra skipa veglegan sess á alþjóð- legum kvikmyndahátíðum víða um héim. Benda má á, að íslenzkar myndir verða sýnd- ar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í La Rochelle I júlí og fyrrverandi nemanda við Femis-kvikmyndaskólann í París, Gísla Snæ Erlingssyni, hefur skyndilega skotið upp á stjörnuhimininn og verður með sína fyrstu mynd í Cannes að vori. Nafn myndarinnar er „Stuttur Frakki“.“ Ásdís Thoroddsen, höfuudur kvikmyndarinnar Ingulóar. Opió í dagy laugardagy frá kl. 10-16 GAVINA, borðstofuhúsgögn úr hnoturót frá Palau á Spáni. Borðstofúborð, sporöskjulagað, og sex stólar kr., 139.035,- Stgr. Glerskápur frá kr. 82.770,- stgr. Buffetskápur kr. 83.514,- stgr. COLCHESTER, sófasett með ekta handverkuðu antikleðri frá stærsta leðurhúsgagnaframleiðanda Bretlands, Pendragon, tryggir ekki bara lægst verð heldur líka mestu gæðin. 3ja sæta sófi og tveir stólar, kr. 204.414,- Stgr. PETIVORTH, 3ja sæta sófi og tveir stólar, kr. 176.400,- stgr. húsgagnaverslun, Síðumúla 20, sími 688799. ZAETA, 3ja sæta sófi og tveir stólar, kr. 249.900,- stgr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.