Morgunblaðið - 03.04.1993, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.04.1993, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993 ilfofgmiMbiftfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Hvítur hrafninn flaug (!) Otarfsmenn við Ríkis- ^ sjónvarpið hafa fagn- að brottrekstri Hrafns Gunnlaugssonar og lýst yfir stuðningi við útvarps- stjóra. Það hlýtur að merkja að unnt væri að reka hvaða starfsmann Ríkisútvarpsins sem er fyrir óæskilegar skoðanir. En slíkur brottrekstur hef- ur ekki tíðkast hér á landi og hefur þótt góð regla. Þá hafa nokkrir listamenn sem segjast hafa „með einhverjum hætti átt sam- skipti og samvinnu við Ríkisútvarpið — Sjónvarp“ mótmælt fyrirvaralausum brottrekstri Hrafns úr starfí og telja að brott- vikning dagskrárstjórans „feli í sér aðför að al- mennu tjáningarfrelsi og er óréttlætanlegt að æðsti yfirmaður Ríkisútvarpsins standi fyrir slíkri aðför“. Meðal þeirra eru nokkrir helstu kvikmyndagerðar- menn landsins. Hér er um grundvallaratriði að ræða og kemur persónu Hrafns Gunnlaugssonar lítið við, né verkum hans. Annað- hvort mega opinberir starfsmenn hafa skoðun á starfsvettvangi sínum eða ekki. Ef þeir mega það ekki hlýtur skoðun að telj- ast mistök í starfi. Það getur varla átt við í stofn- un sem byggist á mál- frelsi. Ríkisútvarpið verð- ur ekki rekið á svo þver- sagnakenndum forsendum þó þversagnir geti dugað vel í skáldskap. Stofnunin þarf á að halda friði, ekki síst vegna þess að hún á undir högg að sækja gagn- vart þeim sem vilja selja hana til einkarekstrar og hafa nú fengið enn eina ^öðrina í sinn hatt. En einkarekstrarstöðvar sem stofnaðar hafa verið á síð- ustu árum eru síður en svo hvatning til breytinga. Gamla gufan stendur þvert á móti vel fyrir sínu og þá má fullyrða að menningarþættir ýmiss konar hafa blómstrað í baðstofuhlýju andrúmi. Nú er það öðru mikilvæg- ara að íslenskt sjónvarp framleiði gott íslenskt efni sem beri arfi okkar og menningu eitthvert vitni. Viðleitni í þá átt hefur verið í Ríkissjónvarpinu en betur má ef duga skal. Það getur ekki verið tilgangur Ríkissjónvarps að gegna hlutverki myndbandaleig- unnar, heldur að skapa ís- lenskt andrúm í nýjum mikilvægum miðli og taka áskorun nýrrar tækni. En hlutfall íslensks efnis er ekki komið að æskilegum mörkum, hvorki í Ríkis- sjónvarpinu né á Stöð 2. Að því þarf að vinna enda getur það skipt sköpum. Við hljótum að hafa efni á því að vinna mikilvægt sjónvarpsefni úr umhverfi okkar og rysjóttum veru- leika og þeir menn sem starfa við þessa fjölmiðla verða að gera sér grein fyrir því að rásirnar eru takmörkuð auðlind og eru því forréttindi, sem Morg- unblaðið telur eðlilegt að skattleggja með einhverj- um hætti. Þá liggur það ljóst fyrir að þessum for- réttindum fylgir ábyrgð og kröfur um góða stjórn- un og framlagsdijúgt starf í þágu þess umhverfis og þeirrar menningar sem rækta á. Ofbeldi getur ekki verið helsta viðmiðun í neinum fjölmiðli þótt ein- kennandi sé fyrir nútíma- þjóðfélag. En til þess að vinna mikilvægt sjón- varpsefni úr umhverfi okkar þurfum við þekk- ingu og frjóa hugsun. Við gerum það ekki án þeirra kvikmyndagerðarmanna sem sýnt hafa yfirburði í grein sinni. Slíka menn er að finna undir mótmælun- um gegn brottrekstri Hrafns Gunnlaugssonar. Viðvörun þeirra er mark- tæk vísbending um grund- vallaratriði. TILLÖGUR NEFNDAR UM MÓTUN SJÁVARÚTVEGS Afl iamar ks kerfi ð verði fest í sessi NIÐURSTÖÐUR nefndar sjávarútvegsráð- herra um mótun sjávarútvegsstefnu voru gerðar opinberar í gær. Skýrsla nefndarinn- ar var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gærmorg- un og síðan lögð fram í sjávarútvegsnefnd Alþingis. Hún verður send hagsmunaaðilum til umsagnar og er búist við að það taki þrjár vikur að afla umsagnanna. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra segist vonast til geta lagt frumvarpið fram á vorþingi. Sjávarútvegsráðherra skipaði nefndina í ágúst 1991. Magnús Gunnarsson og Þröstur Ólafsson voru skipaðir formenn, en aðrir nefndarmenn eru Árni Vilhjálmsson, Björn Dagbjartsson, Pétur Bjarnason, Vilhjálmur Egilsson, Þorkell Helgason og Örn Traustason. í byijun janúar sl. tók Vilhjálmur við formennsku af Magnúsi. Starfsmaður nefndarinnar var Andri Teitsson. Fiskistofnar byggðir upp I inngangsorðum skýrslunnar kemur fram að nefndin telur að eftirfarandi markmið eigi að hafa að leiðarljósi við mótun sjávarútvegsstefnu: Að byggja upp fiskistofna þannig að þeir gefi hámarksaf- rakstur til lengri tíma litið. Að móta umhverfi sem stuðlar að hámörkun arðsins af auðlindinni í hafinu um leið og íslenskum sjávarútvegi er veitt eðlilegt rekstraröryggi þannig að hann verði sam- keppnisfær á alþjóðlegum markaði. Að arðsemi fjármagns í sjávarútvegi verði ekki síðri en annarsstaðar og að greinin geti boðið starfsfólki eftirsókn- arverð launakjör. Að sátt náist meðal þjóðarinnar um meginstefnuna í sj ávarútvegsmálum. Þá segir í innganginum: „Nefndin taldi það hlutverk sitt að beina sjónum sínum fyrst og fremst að heildarhags- munum þjóðarinnar sem á lífskjör sín að verulegu leyti undir því að afkoma í sjávarútvegi sé góð. Minni hagsmun- ir þurftu því ef til vill sumsstaðar að víkja. Hagkvæmni er sá rauði þráður sem gengur í gegnum þessa tillögugerð. Tillögurnar, sem kynntar verða í formi draga, eru niður- staða málamiðlunar þar sem mörg mismunandi sjónarmið þurfti að sætta. Þær bera þess að sjálfsögðu nokkur merki.“ Efldar verði rannsóknir á lífríkinu í hafinu Nefndin dregur niðurstöður sínar saman í svohljóðandi útdrætti: Efldar verði rannsóknir á lífríkinu í hafinu umhverfis landið. Sérstaklega verði rannsakað hvað veldur sveiflum í nýliðun þorskstofnsins, samspil mismunandi fisk-, dýra- og plöntutegunda í hafinu, og áhrif veiðarfæra á lífríki og hafsbotn. Einnig verði rannsóknir á sviði fiskeldis efldar. Aflamarkskerfið verði fest í sessi. Aflamark verði sett á keilu, löngu, lúðu, steinbít og blá- löngu. Heimilt verði að framselja aflahlutdeild báts yfir á vinnslustöð enda hafi vinnslustöðin gilt útflutningsleyfi. Ekki skal skrá meiri kvóta á fiskvinnsluhús en sem svarar eðlilegri vinnslugetu þess. Ákvæði um framsal skipa og veiðiheimilda á milli byggð- arlaga verði óbreytt. Meirihluti nefndarinnar leggur til eftirfarandi, Árni Vil- hjálmsson styður tillögurnar ekki: Allir smábátar verði teknir inn í aflamarkskerfið 1. september 1993. Krókabát- um verði úthlutað 8.600 tonna aflahlutdeild í þorskígildum (m.v. slægðan fisk), eða tvöfaldri þeirri hlutdeild sem þeim tilheyrir skv. núgildandi lögum. Kvótanum verði úthlutað á grundvelli aflareynslu á árunum 1991 og 1992, og jafn- vel einnig fyrstu átta mánaðanna 1993. Ennfremur fái bátarnir sérstaka viðbótarúthlutun þannig að heildarafla- mark þeirra nái samtals 13.275 tonnum (þorskígildi, slægt) meðan leyfilegur heildarafli er svo lítill að úthlutað afla- mark til þeirra nái ekki því magni sjálfkrafa. Bátar undir 6 brl. sem völdu aflamark árið 1990 fái viðbótarúthlutun þannig að aflamark þeirra verði aldrei undir 4.725 þorsk- ígildistonnum, en það er nú um 3.900 þorskígildistonn (slægt). Viðbótarúthlutuninni verði skipt á grundvelli afla- hlutdeildar 15. febrúar 1993. Varanleg aflahlutdeild og viðbótarúthlutun til báta undir 6 brl. verði ekki framseljan- leg nema til annarra báta undir 6 brl. Tvöföldun kvóta vegna línuveiða í mánuðunum nóvem- ber til febrúar verði lögð af. Úthlutað verði aflamarki til þeirra skipa sem þessar veiðar hafa stundað, á grundvelli aflareynslu. Til greina kemur að miða við meðalafla- reynslu síðustu þijú tvöföldunartímabil, eða meðaltal tveggja bestu tímabila af þremur. Þó verði að hámarki úthlutað 15 þús. tonnum af þorski og 2 þús. tonnum af ýsu, en undanfarin ár hefur verið gert ráð fyrir því við úthlutun aflamarks, að afli utan kvóta á línuveiðum næmi þessu magni. Leyft verði að tvö eða fleiri minni skip fái veiðileyfi í staðinn fýrir eitt stórt'skip sem hverfur úr rekstri, ef saman- lögð rúmtala eykst ekki. Tryggt verði að lög um stjórn fiskveiða og önnur lög hamli ekki tímabundnum veiðum íslenskra skipa í lögsögu annarra ríkja. Hvatt er til að sameiningu sveitarfélaga og atvinnu- svæða verði hraðað. Úrtaksviktun verði heimiluð við löndun úr íslenskum skipum á viðurkenndum mörkuðum erlendis. Leitast verði við að flytja viðskipti með ferskan fisk inn í landið. Útgerð- armenn gefí upp raunhæft lágmarksverð þegar sótt er um leyfi til útflutnings á óunnum fiski í gámum, og leyfi verði ekki veitt ef tilboð fæst yfir þessu lágmarki. Brýnt er að hið opinbera geri það sem í þess valdi stend- ur til að mismuna ekki sjóvinnslu og landvinnslu. Varað er við kröfum til sjóvinnslu um óhagkvæmar fjárfestingar og rekstur. Hlutverk stjórnvalda í markaðsmálum er að gera samn- inga sem tryggja aðgang íslenskra afurða að mörkuðum erlendis. Óheimilt verði að fyrna kaupverð varanlegra aflahlut- deilda sem eigendaskipti verða að frá og með upphafi fisk- veiðiársins sem hefst 1. september 1996. Fram til þess tíma verði aflahlutdeild afskrifuð með sama hætti og skip. Rýmka verður heimildir erlendra aðila til fjárfestinga í íslenskum sjávarútvegi, einkum varðandi óbeina eignar- aðild. Athafnafrelsi erlendra skipa í íslenskum höfnum verði aukið. Þá bendir nefndin á samkomulag í ríkisstjórn um stofn- un svonefnds Þróunarsjóðs sjávarútvegsins, en með því samkomulagi var leitt til lykta eitt mikilvægasta viðfangs- efni nefndarinnar, gjaldtaka fyrir veiðiheimildir. 10-20% af fiotanum óþarf- ur við núverandi aðstæður ÞRÁTT fyrir lélegt ástand fiski- stofnanna benda athuganir á vegum nefndar um mótun sjávar- útvegsstefnu tii þess að íslenski fiskiskipaflotinn sé of stór og unnt væri að komast af með 10-20% minni flota við núverandi aðstæður. Takist hins vegar að byggja fiskistofnana upp í kjör- stærð nægi að gera út 60-80% af núverandi flota. Takist að byggja stofnana upp í kjörstærð mun eðlileg nýting þeirra krefj- ast mun minni sóknar og nú er, að því er fram kom í samtali Morgunblaðsins við Andra Teits- son starfsmann nefndarinnar. Niðurstöður í skýrslu nefndarinnar byggja á mati á flotastærð með sjávarút- vegshermi, líkani sem unnið hefur verið að í samvinnu íslenskra og norskra fræðimanna. Gerð hermisins er ekki lok- ið og í skýrslunni kemur fram fyrirvari um að afkastageta skipa sé vanmetin þannig að niðurstöður um skynsamlegan samdrátt séu mjög varfæmislegar. Þessar niðurstöður byggjast á tveimur meigintilraunum sem gerðar voru með hermilíkaninu til að meta stærð fiski- skipastólsins. I fyrsta lagi var með gögnum frá 1990 kannað hve mikið skorti á að út- haldsdagar samsvari fullu eðlilegu út- haldi. í skýrslunni segir að niðurstaðan sé sú að 10% eðlilegs úthaldstíma sé ónýttur, sem túlka megi þannig að kom- ast hefði mátt af með 10% minni flota /en þann sem í reynd var gerður út. Afköst miðað við kjörástand í öðru lagi var athugað hver yrðu afköst flotans miðað við kjörástand fiski- stofnanna og fundinn sá jafnvægisafli sem viðheldur stofninum í kjörstöðunni og er umtalsvert meiri en aflinn undan- farin misseri. Þar er um að ræða um 360 þús. tonn af þorski, um 45 þús. af ýsu, um 75 þús tonn af ufsa og um 35 þús. lestir af grálúðu. Niðurstaðan er sú að núverandi flota yrði ekki haldið til veiða um 20% tímans og sama vís- bending fengist með því að snúa dæm- inu við og leyfa flotanum að afla alls þess sem hann gæti annað. Þá yrði afl- inn um 20% meiri en fyrrgreindur jafn- vægisafli. Hagkvæmt að auka kvóta smærri togara Hvað samsetningu flotans varðar tel- ur líkanið það nú hagkvæmt að færa kvótana í nokkrum mæli til smærri tog- ara og þá frá litlu bátunum en frystitog- arar halda svipaðri hlutdeild og í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.