Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 4

Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993 Rændi sjö ára stúlku úr rúminu og áreitti hana Hæstiréttur mildar dóm fyrir barnsrán HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 21 árs gamlan mann, Trausta Róbert Guðmundsson, í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa aðfaranótt 10. október á síðasta ári brotist inn á heimili í Hlíð- unum í Reykjavík og numið þar á brott úr rúmi sínu sjö ára gamla stúlku sem hann flutti með sér fáklædda í kirkjugarðinn í Fossvogi og áreitti þar kynferðislega. Refsing samkvæmt dómi Hæstaréttar er einu ári vægari en talið hafði verið hæfi- legt í Héraðsdómi. Þetta er áttundi óskilorðsbundni fangelsisdómurinn sem þessi mað- ur hefur hlotið síðan 1988 og 12. refsidómur hans frá 16 ára aldri. Geðlæknar telja manninn sakhæf- an. Um það bil 35 mínútur liðu frá því að móðir stúlkunnar varð mannaferða vör í húsinu og upp- götvaði að maðurinn hafði haft bamið á brott með sér uns lög- reglumenn fundu bamið og handt- VEÐUR óku manninn í Fossvogskirkju- garði. Barnið var í hættu í dómi Hæstaréttar er vitnað til framburðar lögreglumannsins sem fann bamið um að það hafi sagt sér að maðurinn hefði meðal ann- ars slegið sig í höfuðið. í dóminum segir að við ákvörðun refsingar verði að byggja á því, að stúlku- bamið hafi verið í alvarlegri hættu þennan tíma. Minnihluti vildi staðfesta Hæstaréttardómararnir Þór Vil- hjálmsson, Guðrún Erlendsdóttir og Hjörtur Torfason kváðu upp dóm Hæstaréttar en Garðar Gíslason og Gunnar M. Guðmundsson skiluðu sératkvæði og vildu staðfesta niður- stöðu Héraðsdóms um fimm ára fangelsi. Hlutabréf í Tölvusamskiptum hf. Gengi hlutabréfa á Verððbréfaþingi íslands frá júlí 1992 ÁSONDJFMA Gengi Viðskipti með hlutabréf á Verðbréfaþingi Islands frá júlí 1992, samtals kr. 8.781.402 Hlutabréf í Tölvusamskiptum seldust í gær á genginu 7,40 Gengi bréfanna aldrei hærra í GÆR seldust hlutabréf í Tölvusamskiptum hf. fyrir um / DAG kl. 12.00 Heimifd: Veðursíofa fslands (Byggt á veðurspá kl 16.15 í gær) VEÐURHORFUR I DAG, 7. MAI YFIRLIT: Yfir Skandinavíu og Norðursjó er 1033 mb hæð en minnkandi lægðardrag á Grænlandssundi. Við Nýfundnaland er heldur vaxandi 1005 mb lægð sem hreyfist norðaustur. SPA: Suðvestlæg og síðar suölæg átt, víða stinningskaldi en allhvasst á stöku stað. Á Norðaustur- og Austurlandi verður bjart veður að mestu og víða 8-12 stiga hiti en skúrir og öllu svalara sunnanlands og vest- an. Þegar líður á daginn lítur út fyrir heldur vaxandi sunnanátt og rign- ingu suövestanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Allhvöss suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum suðvestan- og vestanlands, en hægari suðvestanátt og úrkomulítið annars staðar. Hiti 6-7 stig. HORFUR Á SUNNUDAG OG MANUDAG: Fremur hæg suðvestanátt. Dálítil slydduél eða skúrir um vestanvert landið, úrkomulaust en skýjað annars staðar. Hiti 5-6 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. o Heiöskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað * r * * r r * r Slydda & Hálfskýjað * * * * ♦ * * * Snjókoma A Skýjað Alskýjað v ^ ý Skúrír Slydduél Éi Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaörimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka stig-. FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30igær) Víðast hvar er góð færð, en þó er hálka og skafrenningur á Hoitavörðu- heiði. Hálka er á Öxnadalsheiði. Brattabrekka er ófær. Á sunnanverðum Vestfjörðum er jeppafært um Kleifaheiði. Skafrenningur og hálka er á Háidáni, en er þó talið fært vel búnum bílum. Á norðanverðum Vestfjörð- um er fært um Breiöadalsheiði fyrir jeppa og stærri bíla en ófært um Botnsheiði. Steingrímsfjarðarheiði er opin eins og er, en gæti lokast með kvöldinu ef hvessir. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftiriiti í síma 91-631500 og fgrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 8 skýjeð Reykjavik 6 hálfskýjað Bergen 11 léttskýjað Helsinki 21 skýjað Kaupmannahöfn 10 skýjað Narssarssuaq vanter Nuuk +8 skýjað Osló 11 alskýjað Stokkhólmur 18 léttskýjað Þórshöfn 8 rigning Algarve 18 léttskýjað Amsterdam 14 léttskýjað Barcelons 21 léttskýjað Berlín 8 rigning Chicago 10 þokumóða Feneyjar 22 skýjað Frankfurt 8 rigning Glasgow 17 skýjað Hamborg 12 akýjað London 13 hálfskýjað LosAngeies 16 léttskýjað Lúxemborg 14 skýjað Madríd 21 léttskýjað Malaga 21 skýjað Mallorca 24 léttskýjað Montreal 15 lóttskýjað NewYork 18 léttskýjað Orlando 22 skýjað París 18 léttskýjað Madeira 19 skýjað Róm 18 skýjað Vín 18 léttskýjað Washington 17 léttskýjað Winnipeg 12 léttskýjað 1,4 milljónir króna. Þar af seld- ust bréf fyrir 190 þúsund á genginu 7,40, en það er hæsta gengi sem hefur verið á við- skiptum með bréf í fyrirtæk- inu. Annars var gengi bréf- anna á bilinu 6,80-7,35. Að sögn Elvars Guðjónssonar, deildarstjóra verðbréfamiðl- unar Kaupþings, voru það ein- staklingar sem keyptu bréfin í gær og um að ræða nýja hlut- hafa í félaginu. Nokkur sölutilboð á hlutabréfum í Tölvusamskiptum eru skráð á Opna tilboðsmarkaðnum. Þ. á m. eru söl- utilboð upp á 7,40 að nafnvirði 74 þúsund en hæsta sölutilboðið er á 9,00 sem er 50 þúsund að nafn- virði. Bæði er um að ræða sölutilboð frá fyrirtækinu sjálfu og öðrum hlut- höfum. Einnig er nokkuð um kauptil- boð og Elvar Guðjónsson segir að tölvert sé um fyrirspumir um hluta- bréf í Tölvusamskiptum. Hæstaréttardómur um 30 mánaða fangelsi og brottvísun frá landinu Nam konu á brott og nauðgaði henni HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 32 ára gamlan Ghana-búa með breskt ríkisfang, Hickmat Moustapha Baroudi, í fangelsi í tvö ár og sex mán- uði fyrir að hafa ráðist að fyrrverandi sambýliskonu sinni með hnífi, neytt hana á brott með sér af vinnustað hennar og nauðgað henni. Atburðurinn átti sér stað 12. janúar á þessu ári. Með dómi Hæstarétt- ar er fangelsisrefsing mannsins þyngd um eitt ár frá því sem Héraðs- dómur hafði ákveðið með dómi í byijun mars. Eftir afplánun refsingar- innar verður manninum vísað af landi brott. Maðurinn fór á vinnustað konunn- ar. Vitni voru að því er hann með líkamlegu ofbeldi þröngvaði henni til að koma með sér í bifreið fyrir utan vinnustaðinn. Vitnin sáu ekki hníf sem konan bar að maðurinn hefði ógnað sér með, Hann ók síðan bílnum að heimili konunnar þar sem talið er sannað að hann hafi þröng- vað henni til samræðis við sig. Neitaði nauðgxin Maðurinn játaði að hafa lent í deilum við konuna á vinnustað henn- ar en neitaði að hafa neytt hana á brott með sér. Hann hélt því fram að samfarir þeirra hefðu verið að frumkvæði konunnar en með hlið- sjón af aðdraganda málsins og fram- burðum vitna, þar á meðal þeirra sem ræddu við konuna strax eftir atburðinn, var frásögn konunnar lögð til grundvallar um að maðurinn hefði beitt ofbeldi og hótað frekari meiðingum léti hún ekki að vilja hans. Hæstaréttardómararnir Þór Vil- hjálmsson, Garðar Gíslason, Gunnar M. Guðmundsson, Haraldur Henrys- son og Pétur Kr. Hafstein dæmdu í málinu. Innflutningur á saltfiski til EB-landa Akvörðun um tolla- lækkun frestað um viku Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FASTAFULLTRÚAR aðildarríkja Evrópubandalagsins (EB) frestuðu umræðum og ákvörðun um tollaívilnanir m.a. á innfluttum saltfiski fram í næstu viku vegna ágreinings um innflutning á ferskum og fryst- um þorski. Samkvæmt málamiðlunartillögu sem lá fyrir fundinum á að heimila innflutning á 60 þúsund tonnum af blautverkuðum saltfiski á 4% tolli fram að næstu áramótum. Danir, sem eru í forsæti í ráð- herraráði EB þetta misseri, ákváðu í gær að taka innflutningskvótana af dagskrá fundar fastafulltrúanna þar sem útlit var fyrir að ekki næðist samstaða um málamiðlunartillögu þeirra. Ágreiningurinn stendur um nokk- ur þúsund tonn af ferskum og heil- frystum físki. Málamiðlunartillaga dönsku stjórnarinnar gerir ráð fyrir að innflutningur á ferskum og fryst- um físki hefjist 1. júlí en saltaðar og þurrkaðar afurðir megi flytja inn samkvæmt heimildunum strax og ákvörðunin hefur birst í stjómartíð- inum EB. Auk blautverkaða þorsks- ins á að heimila innflutning á 3.000 tonnum af söltuðum þorskflökum á 8% tolli, 2.000 tonnum af ufsaflökum á 10% tolli og 500 tonnum af skreið á 7% tolli. SamkVæmt heimildum Morgunblaðsins er talið víst að inn- flutningsheimildimar verði afgreidd- ar í næstu viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.