Morgunblaðið - 07.05.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAHIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
5
Þrefaldur vinningur í Víkingalottóinu
Fyrsti viimingur tæp-
ast undir 65 milljónum
TVÖFALDUR pottur í norræna Víkingalottóinu gekk ekki út sl. mið-
vikudag. Framkvæmdastjóri íslenskrar getspár, Vilhjálmur Vilhjálms-
son, getur þess til að heildarupphæð vinninga verði um 80 milljónir
og verði óskiptur fyrsti vinningur því varla undir 65 milljónum.
Vilhjálmur sagði, í samtali við Hingað til hefur hlutfallið verið u.þ.b.
Morgunblaðið, að þeir hjá íslenskri ein röð á íbúa. Síðastliðinn miðviku-
getspá byggjust við því að hvert dag hafði salan aukist í tæpar tvær
mannsbarn keypti sem svarar 3,8 raðir enda var um tvöfaldan pott að
talnaröðum fyrir næsta miðvikudag. ræða. Dregið er næsta miðvikudag.
Kynning á höfund-
arrétti myndverka
í undirbúningi
MYNDHÖFUNDASJÓÐUR íslands, Myndstef, hyggur á næstunni á
víðtæka kynningu á höfundarrétti myndverka, meðal annars með út-
gáfu bæklings þar sem gerð verður grein fyrir höfundarréttinum og
greiðslum fyrir notkun myndverka. Innan vébanda Myndstefs eru nú
milli 700-800 myndhöfundar. Að sögn Knúts Bruun, stjórnarformanns
Myndstefs, hefur verið gefin út gjaldskrá vegna ýmiss konar notkun-
ar myndverka og sagði hann að þegar væri byijað að fara eftir henni.
Gjaldtaka fyrir notkun myndverka
er að sögn Knúts Bruun algeng víð-
ast hvar í heiminum og í Frakk-
landi, Hollandi og Þýskalandi hefur
þetta viðgengist mjög lengi.
„Það eru um þrjú ár síðan svokall-
að Myndstef var stofnað hér á landi
og það má segja að þessi mál séu
komin á mjög góðan skrið núna.
Mikilvægar breytingar á höfundar-
lögum gengu í gildi hér á landi í
maí 1992 og þar með varð þessi
myndlistarréttur í raun til. Á Norð-
urlöndum er þetta síðan í svipuðum
takti og hér á landi,“ sagði Knútur.
Hann sagði að ef um hvers konar
birtingu myndverka án heimildar
væri að ræða þá væri gert ráð fyrir
því samkvæmt gjaldskrá að viðkom-
andi greiði eitt og hálft gjald, en í
byrjun yrði þó farið að allri inn-
heimtu með gát og liðlegheitum.
„Það er auðvitað búið að nota
myndverk hér á landi í heimildar-
leysi í tugi ára og því erum við nú
að breyta. Við erum í samningavið-
ræðum við sjónvarpsstöðvarnar um
þessi mál og erum að byija viðræður
við Félag íslenskra bókaútgefenda,
en jafnframt höfum við kynnt þetta
hjá söfnum. Þess má geta að við
höfum tekið ákveðnar breytingar inn
á okkur sem þessir aðilar hafa beðið
okkur að gera og sem okkur hafa
fundist skynsamlegar," sagði Knút-
ur.
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Hreindýr í heimsókn í Fellabæ
ÁTTA hreindýr hafa að undanförnu verið í heim- unahagsínumhiðbestainnámillihúsaíFellabæn-
sókn í Fellabæ á Héraði. Dýrin eru fremur ung um og kroppa nýgræðinginn við ráðhúsið og ná-
og tiltölulega gæf. Þau virðast vel á sig komin og lægt iðnaðarhúsum á kvöldin og snemma morguns.
Lánþegum lífeyrissjóðanna fjölgaði um 27% í fyrra
Þríðjungs hækkun á útlánum
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR veittu nálega 27% fleiri lán til sjóðfélaga á
árinu 1992 en árið á undan, samkvæmt könnun sem Samband al-
mennra lífeyrissjóða hefur gert meðal lífeyrissjóða landsins. Heild-
arfjárhæð veittra lána á síðasta ári hækkaði um 37,5% frá árinu á
undan, að raungildi um 32,6% eða tæplega þriðjungshækkun.
Að meðaltali voru lánin um 900
þúsund kr. og er það 4,4% raun-
hækkun milli ára. Tæplega helm-
ingur útlána til sjóðfélaga er frá
tveimur stærstu lifeyrissjóðunum,
það er Lífeyrissjóði verslunarmanna
og Lífeyrissjóði starfsmanna rikis-
ins. Sextán lífeyrissjóðir veittu eng-
in lán á síðasta ári.
Skýrt er frá lánakönnuninni í
SAL-fréttum, fréttabréfi Sambands
almennra lífeyrissjóða. Þar kemur
jafnframt fram að hlutfall lána til
sjóðfélaga hefur undanfarin fimm
ár verið á bilinu 11-14% af ráðstöf-
unarfé sjóðanna og á síðasta ári
var þetta hlutfall 14%. Á árinu
1984 lánuðu lífeyrissjóðirnir hins
vegar um 62% af ráðstöfunarfé sínu
beint til sjóðfélaga.
TEGUND
ARGERÐ STAÐGR.
VERÐ
MERCEDES BENZ190 '88 1.390.000
MMCCOLTGLXI '91 850.000
MMC PAJERO, STUTTUR '87 870.000
RENAULT CHAMADETXE '91 890.000
SAAB9000 '88 950.000
V0LV0 244 '87 780.000
BMW316 '87 650.000
PEUGEOT 205 XR '91 620.000
FORD BRONCOII '84 650.000
PONTIAC 6000 LE STATION '85 590.000
VWGOLF, 5D.'87 500.000
UTSOLU
VERÐ
1.120.000
800.000
800.000
790.000
790.000
690.000
590.000
570.000
550.000
490.000
450.000
TEGUND
ARGERÐ STAÐGR. UTSOLU
VWPOLO.VSK.
MMCGALANT
PEUGEOT 309 GL PROFIL
TOYOTACOROLLA
SUZUKI SWIFTT VIN CAM
MMCCOLTGL
FORD ESCORTXR3I
DAIHATSU CUORE
OPELKADETT
SUZUKIFOX
SUBARU JUSTY
VERÐ VERÐ
'90 480.000 430.000
'87 490.000 420.000
'88 470.000 390.000
'87 420.000 320.000
'87 390.000 320.000
'85 350.000 300.000
'84 410.000 290.000
'88 300.000 250.000
'85 280.000 240.000
'82 ■ 390.000 240.000
'86 290.000 240.000
Þessa viku bjóöum viö notaða bíla £
einstöku verði.
Beinn sími í söludeild
notaðra bíla er 676833.
Opið: l/irkadagakl. 10-18
og laugardaga kl. 13-17
Þú getur sparað allt að kr. 270.000,-
ENGIN útborgun -Visa og Euro raðgreiðslur - Skuldabréf til allt að 36 mánaða
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1 * Reykjavík * Sími 686633
Nokkrir notaðir bílar
á ótrúlega góðu verðii