Morgunblaðið - 07.05.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.05.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7, MAÍ 1993 _______________H Laugavegssamtökin Stóðhesturinn Orri aðalnúmerið á Hestadögum í Reiðhöllinni „Reynum að þókn- ast kröfuhörðum sýningarge stum ‘ ‘ EFTIR tæplega tveggja ára fjarveru frá sýningarbrautunum kemur glæsihesturinn Orri frá Þúfu loks fram í Reiðhöllinni um helgina þegar sunnlenskir hestamenn í samvinnu við Fáksmenn bjóða upp á Hestadaga um helgina. Fyrsta sýning- in verður í kvöld og síðan annað kvöld og sú þriðja á sunnu- dag. Gunnar Arnarsson sýningar- stjóri sagði að óhætt væri að kaila þetta stórsýningu því óvenju vel væri til vandað bæði hvað varðar val á hrossum sem fram kæmu og eins uppsetningu atriðanna sem boðið verður upp á. Sagði hann að enginn ung- mennafélagsandi hafi svifið yfir vötnum þegar hross voru valin á sýninguna og mörgum góðum hrossum hafnað.„Það verður reynt að þóknast kröfuhörðum sýningargestum til hins ýtrasta,“ sagði Gunnar. Af sýningaratrið- um nefndi hann fyrst til sögunn- ar mikinn fjölda stóðhesta sem allt í allt væru í kringum þijátíu. Þar af væru hátt í 25 þeirra með fyrstu verðlaun og af þeim yrðu sjö sýndir með afkvæmum. Eru það Ofeigur frá Flugumýri, Gáski frá Hofsstöðum, Feykir frá Haf- steinsstöðum, Máni frá Ketilstöð- um og Viðar frá Viðvík auk þess sem ung afkvæmi þeirra Kveiks frá Miðsitju og Sörla frá Búlandi yrðu sýnd flest hver í taumi. Þá koma 2 eða 3 hestar af Stóð- hestastöðinni. Áhættuatriði Af öðrum atriðum mætti nefna spennandi áhættuatriði þar sem Sigurður V. Matthíasson sýnir hversu hugaður og taugasterkur íslenski hesturinn er. Fáksmenn og sunnlendingar heyja gæðinga- einvígi þar sem landskunnir gæð- ingadómarar munu dæma en heildarupphæð verðlauna er 150 þúsund krónur. Þá mun sá kunni hestamaður Sigurður Sæmunds- son koma með rollurnar sínar og fjárhunda sem hann hefur verið að dunda sér við að temja og sýna þéttbýlisbúum hversu gagn- legir góðir fjárhundar geta verið. Kynbótahryssur verða einnig sýndar og sagði Gunnar það vera ungar glæsihryssur, bæði dæmd- ar og ódæmdar. Töltsýning Fákskvenna Fákskonur mæta uppábúnar i sérstakri töltsýningu, boðið upp Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Orri frá Þúfu HÁPUNKTUR Hestadaga verður sýning Orra frá Þúfu og Gunn- ars Arnarssonar sem hér fara mikinn á æfingu. á skeiðsýningu að venju og mæt- ir þar til leiks konungur skeið- hestanna í röðum stóðhesta Nátt- fari frá Ytra Dalsgerði sem nú er 23 vetra gamall og engan bilb- ug á honum að finna. Verður Náttfari þar með afkvæmum sín- um í skeiðsýningunni. Fjögur ræktunarbú verða með sýningu en hápunkturinn er sýning Orra frá Þúfu sem Gunnar sýningar- stjóri hefur verið með i þjálfun í tvo mánuði sérstaklega fyrir þessa sýningu. Segja árrisulir menn í Víðidalnum að hann sé stórglæsilegur um þessar mundir en Gunnar hefur farið mjög leynt með þjálfun hans þennan tíma og aðeins riðið honum eld- snemma á morgnanna. Einhveiju sinni mun Gunnar þó hafa farið á bak honum á miðjum degi og segja sjónarvottar að umferða- röngþveiti hafi orðið í Víðidaln- um. En eitt er víst, það munu margir bíða spenntir eftir að fá sjá gæðinginn Orra frá Þúfu á nýjan leik. Úrskurður ríkislögmanns vegna ágreinings um Elliðaárbrú Ekki skylt að sækja um bygg- ingarleyfi fyrir brúarsmíðina RÍKISLÖGMAÐUR álítur að Vegagerð ríkisins sé ekki skylt að sækja um byggingarleyfi fyr- ir Elliðaárbrú á þeirri forsendu að fram- kvæmdir sem varða samgöngukerfið falli und- ir undanþáguákvæði í byggpngarlögum. Um- hverfisráðuneytið telur rétt að fallast á þá niðurstöðu, að því er fram kemur í bréfi frá ráðuneytinu til byggingarnefndar. Samgöngu- og umhverfísráðuneytin gerðu með sér samkomulag þess efnis að óska eftir álitsgerð ríkislögmanns vegna deilunnar um brúarsmíðina því áður hefur komið upp ágreiningur í hliðstæðum málum milli félagsmálaráðuneytisins og sam- gönguráðuneytisins. í álitsgerð ríkislögmanns seg- ir: „Brú er hluti vegar. Þegar brúarsmí.ði er liður í vegagerð er ekki skylt að sækja um byggingar- leyfí til byggingamefndar viðkomandi sveitarfé- lags vegna brúarinnar sérstaklega." Málið ekki fyrir dómstóla Gunnar Sigurðsson fulltrúi í byggingamefnd Reykjavíkurborgar sagði í samtali við Morgunblað- ið að nefndin kæmi ekki saman fyrr en næsta fimmtudag, því lægi ákvörðun í þessu máli ekki fyrir. Hann taldi hinsvegar að fyrst umhverfísráðu- neytið hefði fallist á álitsgerð ríkislögmanns bæri byggingarnefnd að hlíta þeirri niðurstöðu. Bygg- ingarnefnd hefði rekið mál sitt samkvæmt úr- skurðum félagsmálaráðuneytisins, sem áður fór með stjóm byggingarmála, vegna byggingar Höfðabakkabrúar 1980 og brúar yfir Straumfjarð- ará í Miklaholtshreppi 1988. Byggingarmál heyra nú undir umhverfisráðuneytið og því bæri nefnd- inni að fara eftir úrskurði þess. Gunnar taldi því ólíklegt að byggingarnefnd teldi ástæðu til að láta reyna á álitsgerð rikislögmanns fýrir dómstólum. Langur laugar- áagurá morgnn LANGUR laugardagur verður nú 8. maí. Kaupmenn við Lauga- veg og Bankastræti standa fyrir löngum laugardegi fyrsta virka laugardag hvers mánaðar. Á löngum laugardegi eru verslanir opnar frá kl. 10-17. Þennan langa laugardag er fyrir- hugað að vera með uppákomur. Byijað verður á Mackintosh-kynn- ingu um hádegi hjá Nóatúni, Laugavegi 116, og um éittleytið fer hestvagn með Mackintosh-parið ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur niður Laugaveg og Bankastræti og hefst kynning í Hagkaup um kl. 14. Og um þrjúleytið fer hestvagninn ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur aðra ferð niður Laugaveg og Banka- stræti og um kl. 16 hefst kynning í versluninni Vínberinu. Auk þess verður Skífan ásamt Hljómbæ með karaoke fyrir gang- andi vegfarendur á Laugavegi 26. KFUK og KFUM verða með kynn- ingu á sumarbúðum fyrir börn. Farið verður í bangsaleikinn og felst hann í því að fínna bangsa sem settur er í verslunarglugga við Laugaveg og Bankastræti og verða stóri og litli bangsi á Laugaveginum að leita að bangsanum. I verðlaun verða fímm dósir af Mackintosh- konfekti. í tilefni af langa laugardeginum bjóða margar verslanir fyrstu við- skiptavinum sínum Mackintosh. Að auki bjóða verslanir og veitinga- staðir upp á afslátt eða sértilboð í tilefni dagsins. Laugavegssamtökin hvetja alla til að koma í stærstu verslunarmiðstöð landsins nk. laug- ardag og njóta dagsins. (Fréttatilkynning) ■.. ♦ ♦ 4- Vitni óskast LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eftir að hafa tal af vitnum, sem sáu árekstur í Norðurfelli á sunnudag, 2. maí. Áreksturinn varð um kl. 13, milli strætisvagns og fólksbíls. Þeir sem gætu gefíð upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við slysarannsóknadeild lögreglunnar. Jón Norðmann Pálsson látinn LATINN er í Reykjavík Jon Norðmann Pálsson flugvirki, fyrrúm deildarstjóri og yfir- skoðunarmaður Flugleiða. Jón var 70 ára gamall en hann var fæddur 13. febrúar 1923, sonur hjónana Páls Isólfsson- ar organleikara og Kristínar Norðmann. Jón hóf störf hjá Flugfélagi ís- lands í maí 1943 og starfaði í 47 ár hjá því félagi og Flugleiðum er það var stofnað. Arið 1949 var sett á laggirnar skoðunardeild á félaginu og var Jón forstöðumaður þeirrar deildar í 31 ár þar til hann lét af störfum 1990. Jón var fyrsti formaður Flug- virkjafélags íslands, átti sæti í Rannsóknarnefnd flugslysa og var ritari hjá Flugmálafélagi íslands í nokkur ár. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Jón Norðmann Pálsson. Jóhanna Ólafsdóttir. Jón lætur eftir sig þijú börn. Opel Corsa vsk. - bíll Er þrælsterkur, spameytinn og lipur sendibíll. Tilvalinn í atvinnureksturinn Verð kr 696.OOO.- árg. 1992 Verð kr. 559.000.- án vsk. BÍLHEiMAR Höfóabakka 9, sími 634000 og 634050

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.