Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 38
1
félk í
fréttum
COSPER
Hana. Kemur Mæja, þessi gangandi beinagrind!
MOKQUNBLAÐIÐ yÖSTUP/VGUR 7. MAÍ 199,3
ISUZXJ vörubílagrindur árgerö ’92
á bagstæöu veröi
Burðargeta á grind frá þremur til sex tomi,
einnig 4x4
BÍLHEIMAR
ISUZU Höfóabakka 9, sími 634000 og 634050 ISUZU
LJOSMYNDUN
Óvænt sending frá Leica
Páll Stefánsson ljósmyndari Ice-
land Review fékk nýlega
óvænta sendingu í póstinum. Það
var þýska Leica-verksmiðjan sem
sendi honum nýja myndavél til
prófunar, Leica R6.2, áður en hún
verður sett á markaðinn í haust.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir
Pál því hann var einn þriggja ljós-
myndara í heiminum, sem valinn
var til þess arna. Hinir voru fransk-
ur ljósmyndari, sem þekktur er
fyrir að hafa gefið út bækur með
myndun frá ýmsum löndum eins
og Tíbet, Nepal og Indlandi, en
hinn er bandarískur og starfar fyr-
ir tímaritið National Geographic.
Endingin könnuð
„Þetta er auðvitað mikil viður-
kenning og gaman að eftir manni
er tekið,“ segir Páll og útskýrir
að þeir hafi hringt í sig frá Leica
og spurt hvort hann vildi fá þessa
nýju myndavél senda. „Myndavélin
kostar á þriðja hundrað þúsund
krónur, svo að fyrstu viðbrögðin
hjá mér voru að spyrja hvaða kvað-
ir fylgdu því að prófa vélina. Þeir
svöruðu að það eina sem ég ætti
að hugsa um væri að nota vélina
mikið og gæta þess að fara ekki
vel með hana. Það er vegna þess,
að myndavélin er með sérstaklega
styrkta kápu sem á að þola hnjask
og mikla notkun. Þeir vilja kanna
hjá atvinnuljósmyndurum sem eru
'mikið á ferðinni hvernig endingin
er. Eftir þijá mánuði á ég síðan
að senda afraksturinn út og þeir
skoða vélina, kanna rispur, beyglur
og almennt ástand hennar.“
Þegar Páll er spurður hvort ekki
sé erfitt að meðhöndla svona nýja
og dýra vél harkalega jánkar hann
því og bætir við að blendnar tilfinn-
ingar fylgi þessari kvöð. Annars
vegar tími hann ekki að fara illa
með hana og hins vegar vilji hann
gjaman gera eins og fyrir hann
sé lagt. „Fyrir þá sem þekkja til
ljósmyndunar eru Leica-myndavél-
amar Rolls Roycinn. Við erum til
dæmis bara tveir atvinnuljósmynd-
arnir á íslandi, Ragnar Axelsson
Páll Stef-
ánsson
með
myndavél-
ina sem
hann á alls
ekki að
fara vel
með.
á Morgunblaðinu og ég, sem notum
þessa tegund að staðaldri. Til gam-
ans má lika geta þess, að af tíu
fremstu ljósmyndurum í heimi nota
svona 7 Leica-vélar.“
Myndir Páls á dagatölum
Þýska Leica-verksmiðjan gefur
út dagatal árlega með 12 ljós-
myndum. í fyrra, á 75 ára afmæli
fyrirtækisins, völdu þeir eina mynd
Páls til að prýða dagatalið, en það
var mynd af hestum í Skagafirði.
Hann var heppinn að eigin sögn,
að þeir birtu aftur ljósmynd eftir
hann ári síðar, því þeir hafa ekki
áður birt mynd eftir sama ljós-
Morgunblaðið/RAX
myndara tvö ár í röð. „Þetta er
dálítil spurning um að vera á rétt-
um stað á réttum tíma,“ segir
Páll. „Það vildi mér til happs í fyrra
skiptið að myndavélin mín varð
fyrir hnjaski og bilaði. Ég ákvað
að fara sjálfur með hana út til
verksmiðjunnar og tók með mér
nokkrar myndir til að sýna þeim.
Þeir voru þá að leggja síðustu hönd
á almanakið og völdu eina mynd-
ina. Árið eftir sendi ég þeim mynd
af Sveinbirni Beinteinssyni alls-
heijargoða. Ég hafði náð mynd af
honum í miðnætursólinni og vissi
að hún var góð, svo það sakaði
ekki að reyna. Og þeir birtu hana.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ólafur M. Guðnason, íris Steinarrsdóttir, Edgar K. Gapunay og
Rakel Isaksen tóku þátt í heimsmeistarakeppni unglinga í samkvæm-
isdönsum í Þýskalandi.
DANS
Kepptu í dansi
í Þýskalandi
Fjögur ungmenni, Edgar K. Gap-
unay, Rakel ísaksen, íris Stein-
arrsdóttir og Ólafur M. Guðnason,
tóku um síðustu mánaðamót þátt í
Heimsmeistarakeppni unglinga í
samkvæmisdönsum sem fuiltrúar ís-
lands. Þau eru öll frá Dansskóla Sig-
urðar Hákonarsonar. Unga fólkið
keppti tvívegis í tveimur borgum í
Þýskalandi, annars vegar var um að
ræða keppni í latin-dönsum og hins
vegar í standard-dönsum. Ungmenn-
in öðluðust þátttökurétt þegar þau
urðu íslandsmeistarar í 5x5 dansa
keppni, sem haldin var síðastliðið
haust, en um 50 pör tóku alls þátt
í keppninni.
Að sögn Edgars K. Gapunay voru
ferðalangaranir afskaplega ánægðir,
þrátt fyrir að þeir hafi lent neðarlega
í keppninni. „Það skiptir ekki öllu
máli,“ sagði hann, „heldur er maður
reynslunni ríkari að hafa fengið tæki-
færi til að taka þátt í keppni sem
þessari. Keppnin er rosaleg, því
þama taka þátt tvö bestu pörin frá
hveiju landi. Það var ekki við því
að búast við við næðum verðlauna-
sætum, þar sem þetta var í fyrsta
skipti sem við kepptum."
STJÖRNUR
Keypti höll
fyrir 1,9 milljarða
Leikarinn Michael Douglas keypti
30 miiljón dollara (tæplega 1,9
milljarðar ísl. króna) höll á Mallorca
sem nokkurs konar yfirbót vegna
framferðis síns við eiginkonuna, Dí-
öndru, þau ár sem hann hélt fram-
hjá henni. Hún vissi ekki af þessari
ráðstöfun og komu kaup-
in henni skemmtilga á
óvart. Þegar búið var að
breyta höllinni að ósk
Díöndru fóru þau þangað
til að endurupplifa brúð-
kaupsferðina.
Michael fór eins og
kunnugt er á meðferðar-
stofnun vegna kynlífs-
fíknar sinnar og segir
hann að meðferðin hafi
tekist vel. Hann segist
hafa tekið mikla áhættu
í sambandi við smit-
hættu, en nú hyggist
hann halda sig einungis við eina
konu, Díöndru. Haft er eftir vinum
hjónanna að þau hafí ekki verið eins
hamingjusöm frá því þau giftu sig
fyrir 15 árum, en í öll þessi ár hefur
Díandra þurft að horfast í augu við
framhjáhald eiginmannsins.
Michael Douglas ásamt eiginkonu sinni Dí-
öndru og syninum Cameron.