Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR %. MAÍ 1993
mmánn
Með
morgunkaffinu
Þeir eru eitthvað spenntir í
dag.
fRwjjwn’WíttJÍfc
BRÉF TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811
Félag skapandi
fólks - Stofnskrá
Frá Tryggva V. Líndal:
Tilgangur félagsins skal vera að
auka samkennd fólks sem vinnur að
skapandi verkum, til að skapa feg-
urra mannlíf. Reynt skal að ná til
fólks sem er innan stéttarfélaga lista-
manna og fræðimanna, en einnig
annarra, svo sem blaðaskrifara, tóm-
stundalistamanna og alþýðufræði-
manna.
Tilgangur félagsins skal því vera
að hvetja félagsmenn til skapandi
verka, með því að mynda umræðu-
grundvöll þeirra í milli. Skal þetta
gert með því a) að félagið fylgist
með því hvort eitthvað komi frá fé-
lagsmönnum á opinberum vettvangi
og b) að félagsmenn verði til viðræðu
um þau málefni sem aðrir félags-
menn kunna að leita til þeirra með.
Skilyrði fyrir þátttöku eru að við-
komandi hafi fengið eitthvert hug-
verk sitt eða handverk kynnt í fjöl-
miðlum eða á sýningu eða með öðrum
opinberum hætti á undanfömu ári.
Starfsemi félagsins skal vera með
sem óformlegusturh hætti: Engin
félagsgjöld, formaður, gjaldkeri, rit-
ari eða formlegir fundir. Þess í stað
skulu allir félagsmenn skrá sig á
sameiginlegan lista, sem tiltaki nafn,
sérsvið, símanúmer og dagsetningu.
Eina formfasta verkefni félgsins
er að tilsjónarmaður félagalistans
skal gefa nýjum félagsmönnum ljós-
rit af stofnskránni og lista með félög-
unum sem eru fyrir, og hafa síðan
samband við þá á árs fresti hið
minnsta, til að fylgjast með því að
þeir hafi birt eitthvað, og til að gefa
þeim nöfn nýrra félaga.
Skal félagið teljast við lýði meðan
einhver fæst til að sinna þessu starfí
í sjálfboðavinnu.
Hugsanleg framtíðarmarkmið: Að
skilgreina sameiginlegan hugsjóna-
grundvöll skapandi fólks í ljósi fræð-
anna, (t.d. í Ijósi Upplýsingarstefn-
unnar). Einnig að kynna starfsemi
félagsins í fjölmiðlum, að skilgreina
sameiginlega hagmuni og að leita
erlends samstarfs.
TRYGGVI V. LÍNDAL,
Skeggjagötu 3,
Reykjavík.
Þakkir til RÚV
Frá Sveini Hirti Guðfinnssyni:
ÉG ER viss um að margur Elvis-
adáandinn hefur setið stjarfur fyrir
framan sjónvarpið, þegar myndin
„Blue Hawaii", eða „Astir og anan-
as“ var sýnd miðvikudagskvöldið
28. apríl sl.
Myndin Blue Hawaii var áttunda
mynd Elvis, en fyrsta mynd hans,
„Love me Tender", kom út í ágúst
árið 1956. Þá var hann aðeins 21
árs. Elvis lék í samtals 31 mynd.
Síðasta myndin sem hann lék í hét
„Change of Habit“ og var gerð í
nóvember 1969.
Alls mun sjónvarpið sýna sjö
myndir með konungi rokksins, Elv-
is Aaron Presley.
Ég vil þakka RÚV fyrir frábært
framtak. Batnandi mönnum er best
að lifa. SVEINN HJÖRTUR
GUÐFINN SSON,
Bólstaðarhlíð 9,
Reykjavík.
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HÖGNI HREKKVÍSI
Yíkveiji skrifar
Nú í vor verða þau merku tíma-
mót hjá Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð að hann hefur starf-
að í aldarfjórðung. Víkveiji var einn
fyrstu nemenda MH og varð vitni
að fyrstu veikburða tónunum sem
komu úr börkum kórfélaga. Líklega
hefur engan viðstaddra grunað að
kórinn ætti eftir að eflast og dafna
með þeim glæsibrag sem raun hefur
orðið.
Þorgerður Ingólfsdóttir hefur
verið stjómandi frá upphafi og unn-
ið ómetanlegt starf. Þau ungmenni
skipta eflaust þúsundum sem notið
hafa tilsagnar Þorgerðar og kynnst
í starfi kórsins helstu perlum tón-
bókmenntanna. Uppeldislegt gildi
kórstarfs er óumdeilt og eitt helsta
tónskáld þjóðarinnar sagði nýlega
í eyru Víkverja að það væri marg-
sannað að þeir sem væru uppaldir
í góðri tónlist leiddust síður á braut-
ir afbrota en hinir sem hlustuðu
bara á gargmúsík. Vonandi heldur
Þorgerður sem lengst áfram sínu
stórmerka starfi, sem augsýnilega
er unnið af hugsjón.
Fréttir Morgunblaðsins um opn-
un Fjölskyldugarðsins í Laug-
ardal vöktu gleði Víkveija. Af
myndum og uppdráttum af garðin-
um má ráða að hann verði ákaflega
fjölbreyttur og fræðandi fyrir þá
sem þangað sækja. Þegar garðurinn
verður opnaður í júní má segja að
sjái fyrir endann á skipulagningu
Laugardalsins. Um margra ára
skeið var þessi víðfeðmi dalur að-
eins notaður til íþróttaiðkana og
ræktunar blómjurta en nú hefur
dýragarður verið opnaður og innan
skamms mun opnaður garður fyrir
alla fjölskylduna. Þetta er mikið
ánægjuefni fyrir alla Reykvíkinga.
xxx'
Mikið vill meira, varð Víkveija
að orði þegar hann las nýlega
samtal við Hauk Guðlaugsson org-
elleikara. Haukur var að undirbúa
tónleika í Hallgrímskirkju, þar sem
hann ætlaði að leika nokkur verk
á hið nýja og glæsilega orgel kirkj-
unnar. Eins og menn muna kostaði
orgelið tugi milljóna króna og létu
þúsundir manna fé af hendi rakna
svo kaupin yrðu möguleg.
En nú þegar orgelið góða er kom-
ið virðist það ekki nóg. Haukur vill
nefnilega að keypt verði sérstakt
spilaborð svo orgelleikarinn geti
setið niðri í kirkjunni og heyrt
hvernig orgelið hljómar þar! Mun
vera búið að leggja drög að því að
fá spilaborðið þótt það kosti nokkr-
ar milljónir.
xxx
Ibeinni útsendingu Stöðvar 2 frá
Fegurðarsamkeppni íslands sl.
föstudagskvöld var nokkur bið á
því að drottningin yrði krýnd. Var
gefið í skyn að það væri vegna
ósamkomulags í dómnefndinni.
Víkveiji getur upplýst að sú var
ekki ástæða tafarinnar heldur hitt,
að Stöð 2 gleymdi að láta dóm-
nefndina vita af því að hún ætti
að ganga í salinn svona snemma.
Þegar dómnefndin var loks látin
vita var eftir töluverð vinna við frá-
gang umslaga og að yfirfara seðla
úr sal. Var því verki flýtt eftir
megni, en dómnefnd hafði gert upp
hug sinn á miðju úrslitakvöldinu.