Morgunblaðið - 07.05.1993, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLEIKIR
Valur setur met
þegar Islendingar leika þrjá landsleiki við Englendinga
VALUR Ingimundarson körfu-
knattleiksmaður úr Njarðvík
slær landsleikjamet Torfa
Magnússonar landsliðsþjálf-
ara um helgina þegar íslend-
ingar mæta Englendingum þrí-
vegis í körfuknattleik. Valur
hefur leikið 130 leiki en Torfi
131 og metið fellur þvívæntan-
lega í Digranesi á morgun.
Landsleikirnir verða sex á næstu
dögum, fyrst þrír við Englend-
inga og síðan jafn margir við Eist-
lendinga. Fyrsti leikurinn er í Njarð-
vík í kvöld og síðan verður leikið á
morgun kl. 14 í Digranesi og á
sunnudagskvöldið á Akranesi. Leik-
irnir við Eistlendinga verða í Kefla-
vík á þriðjudaginn, Sauðárkróki á
miðvikudaginn og í Reykjavík á
fimmtudaginn.
Leikimir em liður í undirbúningi
liðsins fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu
síðar í þessum mánuði, en Englend-
ingar og Eistlendingar eru að und-
irbúa sig fyrir milliriðla þar sem
fæst úr því skorið hvaða þjóðir
hreppa fjögur laus sæti í úrslita-
keppni Evrópukeppninnar.
Torfi Magnússon hefur valið 14
leikmenn í þessa leiki og því munu
tveir hvíla í hveijum leik. Þrír nýlið-
ar eru í hópnum, Brynjar Harðarson,
Val, Pétur Ingvarsson,_Haukum og
Kristinn Friðriksson úr ÍBK. Þá mun
Herbert Arnarson leika fyrstu lands-
leiki hér heima en hann hefur verið
við nám í Bandaríkjunum undanfarin
ár.
Aðrir leikmenn eru Jón Kr. Gísla-
son, ÍBK, Albert Óskarsson, ÍBK,
Guðjón Skúlason, ÍBK, Guðmundur
Bragason, UMFG, Nökkvi Már Jóns-
son, ÍBK, Magnús Matthíasson, Val,
Teitur Örlygsson, UMFN, Jón Arnar
Ingvarsson, Haukum, Valur Ingi-
mundarson, UMFN og Henning
SU M ARAÆTLU N
HERJÓLFS 1993
Gildir frá 6. maí - 6. sept.
ALLA DAGA VIKUNNAR:
Frá Vestmannaeyjum.............kl. 08.15
Frá Þorlákshöfn................kl. 12.00
AUKAFERÐIR FÖSTUD. OG SUNNUD.
Frá Vestmannaeyjum.......kl. 15.30
Frá Þorlákshöfn................kl. 19.00
AUK ÞESS Á FIMMTUD. í JÚNÍ OG JÚLÍ:
Frá Vestmannaeyjum.............kl. 15.30
Frá Þorlákshöfn..........kl. 19.00
Ferðir skipsins falla niður 30. maí og 6. júní
1993 og þá getur áætlunin breyst 30/7-3/8
v/þjóðhátíðar.
Ferðirfrá Umferðarmiðstöðinni (BSÍ) kl. 10.45
og 17.30 í tengslum við brottför Herjólfs frá
Þorlákshöfn.
Vinsamlega leitið frekari upplýsinga:
í Vestmannaeyjum: S. 98-12800 - Fax 98-12991.
í Þorlákshöfn: S. 98-33915.
í Reykjavík: S. 91-22300.
<H4 HERJÓLFUR h.f.
▼ Vestmannaeyjum
- Herjólfur brúar bilið -
Henningsson, UMFS.
Torfi segir liðið sterkt þó svo ekki
sé alltaf hægt að fá alla þá menn
sem vilji stæði til. „Það voru nokkrir
sem gáfu ekki kost á sér vegna vinnu
og annarra þátta,“ sagði Torfí og
nefndi í því sambandi Guðna Guðna-
son og Friðrik Ragnarsson úr KR,
Kristinn Einarsson og Bárð Eyþórs-
son úr Snæfeili, Pál Kolbeinsson frá
Tindastóli og Birgi Mikaelsson hjá
Skallagrími.
„Pétur Guðmundsson treysti sér
"ékki til að vera með því hann hefur
ekkert leikið síðustu mánuðina og
við munum sakna hans því það mun-,
ar svo miklu að hafa hávaxna leik-
menn. Liðið okkar er lágvaxið og
fremur reynslulítið. Byijunarliðið frá
því í vor er þó allt með en varamenn-
irnir eru yngri og óreyndari en þá.
Ég tel okkur samt vera með gott lið
og þetta verður góður undirbúning-
ur,“ sagði Torfi.
ÍR dagurinn
Á morgun laugardag verður uppskeruhátíð
yngri flokka IR í handknattleik í 'Austur-
bergi og hefst hún kl. 14. Um kvöldið verð-
ur síðan árshátíð handknattleiksdeildar í
Sigtúni 3 og hefst borðhald kl. 20. Miða-
verð er kr. 1.500 en eftir kl. 23 verður
húsið opnað velunnurum félagsins sem eru
hvattir til að mæta.
Valur Ingimundarson setur landsleikjamet á morgun.
Boston úr leik
Kevin McHale leggurskóna á hilluna
STÓRVELDIÐ Boston Celtics
verður að sætta sig við að fylgj-
ast með úrslitakeppninni í
NBA-deildinni úr fjarlægð eftir
að liðið tapaði fyrir Charlotte
Hornets 104:103 í fyrrinótt.
Eftir leikinn tilkynnti Kevin
McHale, bakvörður, að hann
væri hættur.
Þetta er í fyrsta sinn í langan
tíma, sem Boston er slegið út
í fyrstu umferð. Á hinn bóginn er
Charlotte, sem er
FráGunnan fimm , f?amalf
Valgeirssyni felag, í fyrsta smn 1
i Bandaríkjunum úrslitakeppni og
getur þakkað mið-
heijanum og nýliðanum Allonso
Morning sigurinn. Strákurinn skor-
aði, þegar 0,4 sek. voru til leiks-
loka. Reyndar sýndi sjónvarpsupp-
taka að síðasta skot Boston var
ólöglega varið af spjaldinu, en dóm-
ararnir sáu það ekki og því fór sem
fór.
Charlotte var með 18 stiga for-
ystu eftir þriðja leikhluta, en Boston
lék mjög vel í fjórða leikhluta og
komst yfir, 103:102, þegar 30 sek-
úndur voru til leiksloka. Morning
KORFUBOLTA-
NÁMSKEIÐ
verða haldin í Valsheimilinu
dagana 10. -15. maí.
Aðalleiðbeinandi:
FRANC BOOKER
Skráning fer fram í Valsheimilinu og (síma 12187
föstudag frá kl. 13-18
laugardag frá kl. 9-16
Gjald fyrir námskeið er kr. 2.500.-
Aldurshópar: |. "80 "81 "82
II. "83 "84 "85
Körfuknattleiksdeild
Vals
var stigahæstur heimamanna með
33 stig, en McHale var með 19 stig
í síðasta leik sínum með Boston
eftir 13 ár í eldlínunni. „Ég ætlaði
að hætta í fyrra en strákarnir mín-
ir báðu mig um að halda áfram
eitt tímabil í viðbót,“ sagði bakvörð-
urinn, sem er 35 ára og hefur þrisv-
ar orðið meistari með Celtics. „Ég
hef verið slæmur í hnjánum í allan
vetur og nú eru þau einfaldlega
búin. Það er erfitt að sætta sig við
þessi úrslit og staðreyndin er sú að
ég hefði viljað leika enn einn leik
heima í Boston Garden,“ bætti
McHale við, en hann var sjö sinnum
valinn í stjörnulið.
San Antonio vann Portland
107:101 og leiðir 2-1. David Robin-
son var með 26 stig fyrir heima-
menn, en Drexler skoraði 19 fyrir
Portland.
Cleveland er 2-1 yfir gegn New
Jersey eftir 93:84 útisigur, en stað-
an hjá LA Clippers og Houston er
jöfn, 2-2, eftir 93:90 sigur Clip-
pers. Bakvörðurinn Mark Jackson
gerði útum leikinn, skoraði úr þrem-
ur af fjórum vítaskotum síðustu 30
sekúndurnar.
JAPONSK BOGFIMI
KNATTSPYRNA
Clough vill
ekkihætta
Brian Clough, stjóri hjá Notting-
ham Forest, ákvað í gær að
hætta við að hætta hjá félaginu
nema Chris Wootton yrði Iátinn
hætta í stjórn, en nýlega voru hafð-
ar eftir honum ýmsar ásakanir í
garð Cloughs.
„Annað hvort hættir hann eða
ég held áfram. Ég á eitt ár eftir
af samningi mínum og er tilbúinn
að vera í fimm ár til viðbótar ef
með þarf. Þetta er ekki hótun, þetta
er loforð sem ég ætla að halda,“
sagði Clough.
Ikvöld
Körfuknattleikur
Fyrsti landsleikurinn af þrem-
ur við Englendinga verður í
Njarðvík í kvöld og hefst kl.
20.30.
Handknattleikur
Þriðji ieikur Selfyssinga og
ÍR-inga um þriðja sætið í
handknattleiknum og vænt-
anlegt sæti í Evrópukeppninni
verður á Selfossi í kvöld kl. 20.
Tryggvi á japanska
meistaramótið
TRYGGVI Sigurðsson verður á
meðal þátttakenda á japanska
meistaramótinu í Kyudo, jap-
anskri bogfimi, sem hefst í
KyotoíJapanídag.
Tryggvi hefur stundað Kyudo
hátt á annan áratug og er 5.
dan frá japanska bogfimisamband-
inu, Z.N.K.R. Hann hefur áður
keppt á mótum í Japan og sigraði
m.a. í keppni erlendra þátttakenda
á afmælismóti Z.N.K.R. 1990, en
keppendur komu þá frá flestum
Vestur-Evrópuþjóðum og Banda-
ríkjunum.
Japanska meistaramótið fer ár-
lega fram í hinni fornu höfuðborg
Japan og er eiginlegt heimsmeist-
aramót í japanskri bogfimi. Kepp-
endur koma víðs vegar að í Japan
og erlendir þátttakendur frá og með
5. dan geta verið með. Fyrirkomu-
lagið er þannig að skotið er á mark
af 28 metra færi og sigrar sá kepp-
andi, sem hittir flestum örvum í
mark, en einnig er dæmt eftir stíi
keppenda.
Kyudo er fornfræg íþrótt í Jap-
an, þar sem iðkendur á öllum aldri
og af báðum kynjum skipta hundr-
uðum þúsunda. Bogfimin skipar
veglegan sess í hugum Japana og
er talin endurspegla margt það
göfugasta í menningararfleifð
þeirra.