Morgunblaðið - 07.05.1993, Blaðsíða 48
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
sjovaoqalmennar
L
MORGVNBLAÐÍD, KRINGLAN 1 103 RKYKJA VÍK
SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 7 MAÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Bátur í höfn
Sjávarútvegsráðherra telur
engan vafa á að þessi bátur
fari aftur á veiðar
Þorsteinn Pálsson
Hvalur
verður
veiddur
að nýju
ÞORSTEINN Pálsson sjávar-
útvegsráðherra segir að það
sé enginn vafi á því að hval-
veiðar verði hafnar á ný við
Island. Hins vegar sé ekki
búið að taka ákvörðun um
hvenær veiðarnar hefjist en
hann reiknar með að byrjað
verði á hrefnuveiðum.
Hvað varðar að Norðmenn
sleppa við hótanir frá Banda-
ríkjamönnum þrátt fyrir að fá
á sig staðfestingarkæru bendir
Þorsteinn á að sama staða hafi
komið upp er vísindaveiðar ís-
lendinga voru stundaðar. Þá
gaf viðskiptaráðuneyti Banda-
ríkjanna út staðfestingarákæru
á hendur íslendingum en
Bandaríkjaforseti kom í veg
fyrir að viðskiptaþvinganir yrðu
heimilaðar.
Sjá bls. 16 og 17.
35 sóttu
um ábúð í
Skálholti
ÞRJÁTÍU og fimm umsóknir
bárust til biskupsstofu þegar
auglýst var eftir ábúanda að
jörðinni Skálholti en Björn Er-
lendsson er að bregða þar búi
af heilsufarsástæðum.
Kirkjan byggir
jörðina en ábúandi
rekur búið fyrir
eigin reikning og
kaupir bústofn og
tæki. Auk þess
sinnir ábúandinn
ýmsum störfum í
tengslum við rekstur kirkjunnar á
staðnum og fær sérstaklega greitt
fyrir.
Fólkið sem sækir um ábúð í Skál-
holti er úr flestum landshlutum,
Sunnlendingar þó íjölmennastir.
Þýðing varnarliðsins í Keflavík fyrir þjóðarbúið
Tekjumar heldur
meiri en af ISAL
TEKJUR íslendinga af varnarliðinu á Keflavíkurfiugvelli á þessu
ári eru heldur meiri en af útflutningi Islenzka álfélagsins. Á síðasta
ári námu gjaldeyristekjur þjóðarinnar vegna varnarliðsins 9,8 millj-
örðum króna, sem svarar til um 8% af litflutningstekjunum. Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að ef tekjurnar
snöggminnkuðu, leiddi það til mikillar röskunar í þjóðarbúskapnum.
Tekjur af varnarliðinu svara til
tekna af 100.000 tonna þorskveiði,
sem er helmingur leyfilegs afla í ár.
Bandaríkjamenn greiða rekstur
Keflavíkurflugvallar, að undan-
skildum kostnaði vegna flugum-
sjónar og blindflugslendingartækja.
Greiðslur Bandaríkjamanna í rekst-
urinn nema líklega milljarði á þessu
ári, en hlutfall borgaralegs flugs
af umferð um völlinn er nú 40%,
og hafa Bandaríkjamenn óskað eft-
ir kostnaðarþátttöku Islendinga.
60% af telqum hitaveitunnar
Sveitarstjórnarmenn á Suður-
nesjum eru mjög uggandi vegna
fyrirhugaðs niðurskurðar á Kefla-
víkurflugvelli. Bæði myndi slíkt
þýða tekjumissi fyrir sveitarfélögin
og stóraukið atvinnuleysi. Forystu-
menn verkalýðsfélaga segja að ís-
lenzkir starfsmenn varnarliðsins
hafi að engu að hverfa, missi þeir
vinnuna. Sem dæmi um þátt varn-
arliðsins í umsvifum á Suðumesjum
má nefna að 60% af tekjum Hita-
veitu Suðumesja koma frá varnar-
liðinu.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra segir að ekki sé tíma-
bært að ræða brottför vamarliðsins
að fullu og öllu. Stjómarandstaðan
gagnrýnir utanríkisráðherra og for-
mann utanríkismálanefndar Al-
þingis fyrir að halda upplýsingum
um fyrirhugaðan niðurskurð á
Keflavíkurflugvelli leyndum fyrir
utanríkismálanefnd.
Sjá „Niðurskurður fyrirhugað-
ur hjá Varnarliðinu" á bls.
18-21 og 24-25.
MorgunDiaoio/ övernr
Eignarhaldsfélag stofnað á Suðurnesjum
EIGNARHALDSFÉLAG Suðurnesja hf. var stofnað
í Keflavík í gærkvöldi. Heildarhlutafé er 115,4
milljónir og heimilt er að auka það í allt að 200
milljónir. Tilgangur félagsins er að efla atvinnulíf
á Suðurnesjum með hlutafjárkaupum í fyrirtækj-
um, lánveitingum og öðrum hætti, sem eflt getur
atvinnulífið með arðsemismarkmið í huga. Stofnfé-
lagar eru 49 og lagði Keflavíkurbær fram stærstan
hlut, 49 milljónir. Njarðvíkurbær leggur fram 16
millj. og Grindavík 14 millj. Á fundinum var kosin
fimm manna stjórn og hana skipa Valþór Söring
Jónsson úr Njarðvík, Jón Gunnar Stefánsson,
Grindavík, Sigurður Ásbjarnarson, Sandgerði,
Guðjón Ólafsson og Gunnar Sveinsson úr Keflavík.
Sigurður Sveinsson, FH, skorar.
FH jafnaði
FH-INGAR sýndu sínar bestu
hliðar í annarri viðureigninni
gegpi Val um íslandsmeistaratit-
ilinn, sem fór fram í gærkvöldi
og unnu 33:26 í framlengdum leik.
Staðan er því jöfn, 1-1, en liðið,
sem sigrar í þremur leikjum,
verður Islandsmeistari.
Heimamenn höfðu undirtökin all-
an leikinn en Valsmenn gerðu fjögur
mörk í röð og jöfnuðu áður en yfir
lauk. í framlengingunni höfðu FH-
ingar öll völd og skoruðu úr 10 af
12 sóknum.
Sjá nánar á bls. 47.
---------------
Þrír útlend-
ingar gjald-
gengir með
landsliðinu
ALÞINGI samþykkti seint í gær-
kvöldi frumvarp til laga um veit-
ingu rikisborgararéttar og öðluð-
ust þá m.a. þrír knattspyrnumenn
frá fyrrum Júgóslavíu íslenskan
ríkisborgararétt.
Leikmennirnir eru Luca _ Kostic,
miðvörður íslandsmeistara ÍA, sem
var kjörinn besti leikmaður 1. deild-
ar í fyrra, Izudin Deivic, bakvörður
hjá KR, og Salih Porca, miðjumaður
í Fylki. Ríkisborgararéttur þeirra
gerir það að verkum að þeir geta
leikið með íslenska landsliðinu í
knattspyrnu.
Kínveijinn Hou Xiao Fei, þjálfari
ÍS í blaki, fékk einnig íslenskan ríkis-
borgararétt.
Hækkun jensins góð bú-
bót fyrir rækjuseljendur
JAPANSKA jenið hefur hækkað um 30% frá
því í fyrrasumar og orðið útflytjendum á
heilfrystri rækju til Japans góð búbót. Geng-
ishagnaður þeirra mældur í íslenskum krón-
um milli ára nemur næstum hálfum millj-
arði króna. í fyrra voru seld um 4.000 tonn
af heilfrystum rækjuafurðum frá Islandi til
Japans og reiknað er með að sama magn
fari þangað í ár.
Teitur Gylfason, sölustjóri hjá íslenskum sjáv-
arafurðum, segir að þokkalegt verð fáist nú
fyrir rækju í Japan og er verð fyrir stærstu
rækjuna, eða 50-70 stykki í kílói, sérstaklega
gott. „Hins vegar ber að geta þess að fyrir
tveimur árum lækkaði verð á rækju verulega í
jenum, sérstaklega á þeim stærðum sem við
veiðum og það var lágt lengi á eftir,“ segir
Teitur. „Nú hefur það stigið aftur og það sam-
hliða hækkandi gengi jensins á móti krónunni
hefur komið sér vel fyrir okkur.“
Minnsta rækjan hækkar minna
Verð á stærstu rækjunni liggur nú á bilinu
2.200-2.500 jen fyrir kílóið og á næsta flokki
fyrir neðan, 70-90 stk. í kílói, hefur verðið stig-
ið upp í 960 jen fyrir kíló. Hins vegar hefur
verð á minnstu rækjunni hækkað mjög lítið og
er lágt eða 540 jen fyrir kíló. I íslenskum krón-
um er verðið mjög gott og nær 30% hærra en
í fyrra vegna gengisþróunarinnar. „Japans-
markaður fyrir rækju er erfiður og hefur verið
það undanfarin tvö ár og hvort þetta verð held-
ur sér á eftir að koma í ljós,“ segir Téitur.
Lítil veiði á Dorhnbanka
Eiður Sveinsson, skipstjóri á rækjutogaranum
Klöru Sveindóttur, segir að aflabrögðin á úthafs-
rækjunni síðustu vikurnar hafi verið misjöfn og
fremur lítið hafi veiðst á Dorhnbanka síðustu
daga. Klara var þar á veiðum fyrir rúmlega
viku og fékk ágætan afla eða 30 tonn og var
aflaverðmætið um 11,5 milljónir króna.