Morgunblaðið - 15.05.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAI 1993
21
Reuter.
Thatcher í Hong Kong
MARGARET Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, er
nú stödd í þriggja daga einkaheimsókn í Hong Kong og sést
hún hér ásamt Chris Patten ríkisstjóra Hong Kong, sem eitt
sinn var ráðherra í ríkisstjórn hennar.
Samkomulag í vinnudeilunni í Þýskalandi
Áformum um
aðjaína launa-
mun frestað
Dresden. Reuter.
SAMKOMULAG tókst í gær í deilu stéttarfélagsins IG
Metall og vinnuveitenda í stál- og verksmiðjuiðnaði í austur-
hluta Þýskalands. Hafði þá verkfall þúsunda starfsmanna
í Saxlandi og Brandenburg staðið í tólf daga og var verk-
fallið í þann mund að fara að breiðast út um allan austur-
hlutann.
í samkomulaginu felst að
áformum um að jafna kauplag í
austur- og vesturhluta landsins
er frestað til ársins 1996 en veru-
legar kauphækkanir, allt að 26%,
koma samt til framkvæmda strax
á þessu ári. Þá náðist samkomulag
um að þau fyrirtæki, sem ættu í
miklum fjárhagslegum erfiðleik-
um, fengju að greiða lægri laun,
en samningar segðu til um.
Sársaukafull málamiðlun
„Við höfum teygt okkur eins
langt og við getum til að fallast
á kröfur verkalýðsfélaganna,“
sagði Hans Peter Mtinter, aðal-
samningamaður vinnuveitenda.
Kallaði hann samkomulagið „sárs-
aukafulla málamiðlun“.
Franz Steinktihler, forseti IG
Metall, lýsti hins vegar yfír sigri
í deilunni. „IG Metall hefur tekist
að stöðva áform vinnuveitenda um
að breyta iaunastefn-
unni . . . Hið gífurlega viðnám
verkfallsmanna í austurhluta
Þýskalands og þær miklu fórnir
sem þeir færðu, hefur borgað sig,“
sagði Steinktihler og bætti við að
hann vonaðist til að vinnuveitend-
um hefði verið veitt ærleg ráðn-
ing, sem þeir myndu ekki gleyma.
Ef samkomulagið verður sam-
þykkt af verkalýðsfélögunum mun
verkfallinu, sem allt að 40 þúsund
ma'nns hafa tekið þátt í, ljúka
opinberlega á miðvikudag.
Knattspyman sam-
einar gamla fjendur
Beirút. Reuter.
ÞEIM SEM standa fyrir heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu hefur tekist það sem fjölmörgum stjórnmálaskör-
ungum tókst ekki þrátt fyrir hverja ráðstefnuna á fætur
annarri - að sameina líbönsku þjóðina.
Nú þegar verið er að endurreisa
landið eftir 15 ára borgarastyijöld
hafa hinir fornu fjendur, kristnir
menn og múslimar, sameinast í
stuðningi við landslið Líbanons í
knattspyrnu. Fyrsta umferð D-
riðils undankeppninnar í Asíu
hófst í Beirút á laugardag og
stendur í viku. Þar keppa landslið
Bahrains, Hong Kongs, Indlands
og Suður-Kóreu, auk Líbanons.
„Engin af tilraunum arabaríkja
og Vesturveldanna til að sameina
Líbani heppnaðist eins og í heims-
meistarakeppninni nú,“ segir
Farouk Bouzo, fyrrverandi here-
höfðingi frá Sýrlandi sem hefur
éftirlit með mótinu fyrir hönd
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA. „Þetta er miklu betra en
pólitísk ráðstefna. Knattspyrnan
hefur orðið til þess að fólk getur
fyrirgefið óvinum sínum í stríð-
inu.“
Knattspyrnuáhugamenn frá
kristna hlutanum í Beirút og frá
múslimska hlutanum hafa flykkst
á Buij Hammoud-knattspyrnu-
leikvanginn í borginni með andlit-
in máluð í fánalitum Líbanons.
Þeir sungu og börðu án afláts
þótt líbanska landsliðið tapaði
þremur fyrstu leikjunum.
Fyrirmyndarhegðun
Hegðun áfhorfendanna hefur
þótt til fyrirmyndar. Áður kom
fyrir að mörkum var svarað með
vélbyssuskothríð þannig að um-
skiptin hafa komið á óvart. „Áð-
ur, þegar landsliðið spilaði, voru
stuðningsmenn þess vanir að
söngla nöfn þeirra félagsliða sem
þeir héldu með. Núna hvetja allir
sama liðið,“ segir Emilio Nehme,
gamall íþróttafréttamaður út-
varpsstöðvar í Beirút. „Þetta er
eina sameiningartáknið sem við
höfum haft til þessa.“
Engin umferð hefur verið á
götum Beirút-borgar þegar sýnt
hefur verið beint frá leikjum lí-
banska landsliðsins. Sölumenn
hafa rifist við viðskiptavini sína
um leikaðferð liðsins og mikil sala
hefur verið á dagblöðum sem gef-
in eru út í tilefni af keppninni.
„Sannkallað knattspyrnuæði hef-
ur gripið um sig hér í Líbanon,“
segir Rahif Alameh, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnusam-
bands landsins.
Leikvangurinn var áður
skriðdrekageymsla
Rafik Hariri forsætisráðherra
segir að knattspyrnumótið sé
sönnun þess að friður sé loksins
kominn á í Líbanon. Myndir af
forsætisráðherranum eru á aðal-
inngangi knattspyrnuleikvangs-
ins og á ljósastaurum í grennd-
inni þótt hann sé múslimi og leik-
vangurinn sé á svæði kristinna
manna í Beirút. Hariri, sem er
auðugur kaupsýslumaður og hef-
ur verið í vinfengi við konunginn
í Saudi-Arabíu, gaf sjálfur helm-
inginn af því fjármagni sem notað
var til að endurreisa leikvanginn.
í stríðinu notuðu hersveitir krist-
inna manna leikvanginn sem
geymslustað fyrir skriðdreka sína.
ÆiT
Bólstrunin er samsett af mörgum
lögum úr mismunandi
náttúrulegum efnum, svo sem
ull og bómull, einnig
eggjabakkalöguðum svampefnum.
2. STUÐNINGUR
Fjaðrakerfið er þannig upp byggt,
að það gefur öllum líkamanum
mátulegan stuðning. Sealy
dýnurnar eru með sjálfstæðri
fjöðrun.
3. ENDING
Undirdýnan er sérstaklega hönnuð
til að fjaðra með efri dýnunni og
tryggja þannig langa endingu á
rúminu. Sérstök álagsstyrking er á
öllum hornum.
Sealy er langstœrsti dýnuframleiðandinn í Bandaríkjunum,
með 21% markaðshlutdeild skv. Furniture Today.
Við bjóðum upp á marga mismunandi verðflokka af dýnum frá Sealy, með mismunandi stífleika
og mismunandi endingu, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Sealy gceðadýnan tryggir þér góðan nœtursvefn án bakverkja að morgni.
Marco
húsgagnaveislun
Langholtsvegi 111 Sími 91-680 690.
Opið alla virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-14