Morgunblaðið - 18.05.1993, Qupperneq 29
h
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1993
29
Morgunblaðið/Kristinn
Gler í stað steypu
ÚR glerskála sem byggður verður sunnan við Iðnó í stað viðbyggingar úr steinsteypu verður fallegt útsýni yfir Tjörnina. Myndin er tekin af líkani.
Teikningar að endurbyggingu Iðnó sem menningarmiðstöðvar
GlerskáJi verður byggð-
ur á Tjamarbakkanum
Nýr aðalinngangur
NÝR aðalinngangur í menningarmiðstöðina Iðnó verður undir endurgerð-
um svölum Vonarstrætismegin, þar sem inngangurinn var í upphafi.
Núverandi hurðum á þessari hlið verður breytt í glugga eins og var í
öndverðu. Þá verða byggðar svalir yfir inngang á vesturhlið hússins.
Athygli vekur að skorsteinar verða settir á þak hússins.
Sody Shop verslana
ískra
jandi
Morgunblaöiö/Árni Sæberg
fær.
ég ekki fengið ilmvatn í pínulitlu
glasi?
Það er sem sagt mikilvægt að
hafa ekki efni á að kaupa hlutina.
Þá fara hjólin að snúast.
Þið ættuð að geta nýtt hráefnið
úr gróðurhúsunum ykkar, ef til vill
leirinn. Leyndarmál ' íslands er
hreina loftið. Alls staðar í heiminum
flýr fólk undan menguninni og því
hafið þið óþijótandi möguleika í
sambandi við ferðamannaþjónustu
og heilsuhæli til dæmis. Þið hafið
hreina loftið, vatnið, fisk sem er
laus við mengun og stórkostlega
náttúru. Konur gætu ti! dæmis
breytt sveitaheimilum sínum í gisti-
heimili.
Ef ég réði einhveiju á íslandi
myndi ég safna konum saman á
ráðstefnu þar sem við færum yfir
alla þá möguleika sem við hefðum
í sambandi við stofnun fyrirtækja."
- Þú mælir kannski með því að
þær taki bankalán og stofni lítil
fyrirtæki?
„Nei, það eru ekki peningarnir
sem skipta máli í þessu sambandi
nema síður sé. Það er einmitt í
auraleysinu sem hugmyndaflugið
fer af stað. í fljótu bragði sýnist
mér íslandi vera stjórnað um of af
karlmönnum og það má vera að það
komi í veg fyrir að nýjar hugmynd-
ir í sambandi við átvinnusköpun
verði til.“
- Mér heyrist á öllu að þú hafir
meiri trú á konum en körlum þegar
blómleg viðskipti eru annars vegar?
„Konur hafa mikil völd því þær
stjórna í flestum tilvikum hvað er
keypt og hvað ekki. Þær geta líka
haft gífurleg áhrif í sambandi við
verndun umhverfis. Ef þú menntar
eina konu, menntar þú heila fjöl-
skyldu. Ég hef ferðast víða um heim
og alls staðar sé ég þennan sam-
starfsvilja hjá "konum sem ég sé
aldrei meðal karla. Samskipti
kvenna byggjast aldrei á drottnun
heldur samvinnu."
Nýjasta þróunarverkefni Anitu
Roddick fór fram í Mexíkó. Þar
höfðu eiginmenn yfirgefið konur og
börn og haldið í atvinnuleit til ann-
arra landa. Anita aðstoðað konurn-
ar við að koma á fót verksmiðju sem
framleiðir krem úr ákveðinni
kaktustegund, sem hún síðan kaup-
ir fyrir Body Shop, og skapaði þar
með um 600 konum atvinnu.
Viðtal: Kristín Marja
Baldursdóttir
EFTIR endurbyggingu Iðnó sem
menningarmiðstöðvar verður að-
alinngangur hússins undir endur-
gerðum svölum við Vonarstræti. I
stað steinbyggingar sem nú er
Tjarnarmegin verður byggður
veitingaskáli úr gleri. Svalir í að-
alsal verða fjarlægðar ásamt nú-
verandi upphækkun í salnum. Þá
vekur athygli að skorsteinum verð-
ur komið fyrir á þaki hússins, eins
og var í upphafi þegar húsið var
hitað með kolum, en ætlunin er að
nota þá til loftræstingar. í sumar
verður unnið við lagfæringar utan
húss, unnið verður að endurgerð
hússins að innan í vetur og er
áætlað að framkvæmdum Ijúki
næsta vor. Samkvæmt áætlunum
sem gerðar voru í vetur er búist
við að framkvæmdin kosti rúmar
100 milljónir kr.
Iðnó var byggð skömmu fyrir síð-
ustu aldamót og er húsið því að verða
aldargamalt. A fyrsta fundi borgar-
stjórnar í nýbyggðu Ráðhúsi Reykja-
víkur var ákveðið að borgin keypti
Iðnó í félagi við þijú verkalýðsfélög
og éndurbyggði það sem menningar-
miðstöð. Sérstakri bygginganefnd var
falið að sjá um endurbygginguna og
fól hún Ingimundi Sveinssyni arkitekt
að gera tillögur um verkið. Tillögur
hans hafa nú verið samþykktar í bygg-
inganefndinni og húsafriðunarnefnd
ríkisins hefur fallist á meginlínurnar
í tillögunum. Þær verða síðan lagðar
fyrir næsta fund bygginganefndar
borgarinnar.
Nær upprunalegri mynd
„Húsið er friðað og verður þvi að
fara varlega í allar breytingar. Meg-
instefnan er að færa húsið nær upp-
runalegri mynd,“ sagði Ingimundui'
Sveinsson í samtali við Morgunblaðið
í gær. Hann sagði að á húsinu hefðu
verið gerðar ýmsar breytingar á löng-
um tíma og eftir endurbygginguna
yrði það mun líkara því sem var í
upphafi en verið hefði undanfarna
áratugi.
Að sögn Ingimundar eru helstu
breytíngar þær að aðalinngangur
verður frá Vonarstræti, undir endur-
gerðum svölum, eins og var í upp-
hafi. Frá því um 1930 hefur inngang-
urinn verið í steinbyggingu sem þá
var gerð sunnan við húsið. Sú bygging
verður rifin og í staðinn byggður 60
fermetra glerskáli. Opnanir úr gler-
skála í aðalsal verða endurgerðar í
upprunalegri mynd. Segir Ingimundur
að úr glerskálanum sé skemmtilegt
útsýni yfir Tjörnina.
Ingimundur sagði að svalir í aðalsal
yrðu íjarlægðar. Þær væru ekki upp-
runalegar og hefði húsafriðunarnefnd
lagt til að reynt yrði að ijarlægja
þær. Ingimundur sagði að við það
yrði salurinn glæsilegur og mun líkari
því sem var þegar húsið var fyrst tek-
ið í notkun.
Ýmsar minni breytingar verða gerð-
ar á húsinu, meðal annars á eldhúsi
og snyrtingum. Ingimundur sagði að
þær miðuðu annars vegar að því að
færa húsið nær upprunalegri mynd
og hins vegar að því að mæta nútím-
akröfum um aðstöðu miðað við fyrir-
hugaða notkun.
Fjölnotahús
Gert er ráð fyrir því að Iðnó verði
fjölnotahús. Sviðið er á sínum stað
þannig að þar á að vera hægt að setja
upp leiksýningar með stuttum fyr-
irvara. En einnig á að vera hægt að
nýta það fyrir aðra starfsemi, til dæm-
is árshátíðir, fundi og veislur. Hægt
verður að fjarlægja stólana úr aðal-
salnum og tengja veitingasalina á 1.
og 2. hæð vesturálmu og glerskálann
við aðalsalinn þannig að húsið rúmi á
þriðja hundrað gesti.
í supiar verður byijað á endurbótum
utanhúss, að sögn Ingimundar. Stein-
byggingin sunnan við húsið \4rður
rifín og glerskálinn byggður í staðinn.
Báruklæðning á veggjum og þaki end-;
urnýjuð og skipt um gler og glugga
eftir því sem þurfa þykir. í vetur er
fyrirhugað að vinna innan húss og
stefnt hefur verið að því að ljúka fram-
kvæmdum næsta vor.
Á grunnmynd 1. hæðar sést anddyri Vonarstrætismegin, aðalsalur og leiksvið, veitingasalur í glerskála
Tjarnarmegin og veitingasalur og eldhús í vesturálmu.