Morgunblaðið - 18.05.1993, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
41
Sólveig Þorsteins-
dóttir — Minning
Fædd 8. júní 1927
Dáin 7. maí 1993
Sólveig Þorsteinsdóttir, föður-
systir okkar, lést á Borgarspítalan-
um föstudaginn 7. maí síðastliðinn
eftir stutta sjúkdómslegu. Stella
frænka, eins og við kölluðum hana,
hafði verið veik lengi, en ávallt
borið sig vel og gert lítið úr verkjum
sínum og þrautum. Við höfðum því
ekki gert okkur grein fyrir hversu
alvarlega veik hún var. Hið stutta
dauðastríð kom okkur því á óvart.
Stella frænka fæddist í Reykja-
vík 8. júní árið 1927. Hún var dótt-
ir hjónanna Þorsteins Loftssonar
frá Krossi í Ölfusi (d. 1961) og
Pálínu Margrétar Vigfúsdóttur frá
Kálfárvöllum í Staðarsveit á Snæ-
fellsnesi (d. 1973). Tvo bræður átti
Stella, föður okkar Loft verkfræð-
ing og Leif ljósmyndara í Reykja-
vík, auk uppeldissystur, Helgu
Snæbjörnsdóttur. Ætíð var mikill
systkinakærleikur og gott samband
á milli þeirra. Stella lauk námi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík 1945
og hóf stuttu seinna störf hjá Fiski-
félagi íslands. Nokkur ár bjó hún
hjá Leifi bróður sínum og mágkonu
í Danmörku, en við lát föður síns
fluttist Stella aftur heim til að
hugsa um og halda heimili fyrir
móður sína. Hóf hún þá aftur störf
hjá Fiskifélagi íslands og starfaði
þar því mest alla starfsævi sína.
Stella frænka var alla tíð ógift og
bamlaus, en kærleik átti hún mik-
inn og nutum við bræðrabörn og
bræðrabamabörn hennar kærleik-
ans í ríkum mæli. Með þessum orð-
um viljum við minnast Stellu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Bræðrabörn.
„Þetta er hún Stella frænka.“
Nú eru liðin meira en 20 ár síðan
maðurinn minn kynnti mig þannig
fyrir Sólveigu Þorsteinsdóttur föð-
ursystur sinni. Stella rétti mér
höndina, höndin var mjúk, brosið
fallegt og augun glettin. Það var
þessi glettni sem mér fannst ein-
kenna Stellu alla tíð. Hún var alltaf
létt í skapi og það var alltaf stutt
í brosið. Aldrei heyrði ég hana
kvarta, jafnvel ekki eftir að hún var
orðin alvarlega veik.
Stella var ógift og barnlaus, en
hún átti góða að og ber það sérstak-
lega að nefna bræður hennar og
mágkonur, þau Loft og Emu, og
Leif og Friðriku, ásamt uppeldis-
systur hennar, Helgu Snæbjöms-
dóttur. Heimili þeirra stóðu Stellu
ávallt opin, og skiptust þau á að
vaka yfír henni eftir að heilsu henn-
ar hrakaði og augljóst var hvert
stefndi. Þótt Stellu yrði ekki bama
auðið bar hún alla tíð hag systkina-
barna sinna fyrir bijósti. Hún ljóm-
aði öll er hún talaði um litlu börnin
og minnist ég hennar oft, er fjöl-
skyldan var samankomin, þar sem
hún var á tali við yngstu kynslóð-
ina. Hún hafði einstakt lag á böm-
um og þau löðuðust að henni.
Þó að Stella hafí oftast verið kát
og hressileg er ég viss um að undir
niðri sló viðkvæmt hjarta, en hún
bar ekki tilfínningar sínar á torg.
Þótt stjama Stellu sé nú slokknuð
lifir samt minningin um góða konu
og vil ég votta bræðrum hennar og
fjölskyldum þeirra og Helgu mína
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
Stellu.
Hanna Lilja.
Hún hét Sólveig, var kölluð Stella
og það var alltaf svo bjart yfir
henni. Ef eitthvað skyggði á um
stund, var auðvelt að bægja því frá
og sjá til sólar á ný.
Ég hitti tengdaforeldra mína og
Stellu í fyrsta sinn árið 1953 þegar
hún var að koma heim úr Parísar-
ferð með vinkonum sínum, hress
og glöð. Ég fór með út á flugvöll
að sækja hana og var feimin. Heima
á heimili þeirra á Freyjugötunni,
beið fallega búið kaffíborðið. Allt
innanstokks var svo vandað og hlý-
legt, svo fallega menningarlegt, og
viðmót ijölskyldunnar var svo
traust og gott, að mér leið strax
vel hjá þeim. Stella varðveitti þetta
andrúmsloft og hlýju alla tíð.
Meðan beðið var eftir kaffinu tók
Stella sitthvað upp úr farangrinum,
þar á meðal fína hvíta blúnduvasa-
klúta, alveg óborganlega, og bauð
mér að velja einn. Klútinn þann á
ég enn ásamt öðrum góðum gjöfum
frá henni.
Smám saman kynntist ég henni
betur. Mér, sem átti enga systur,
þótti mikið til Stellu koma, hvað
hún var flink og myndarleg í hönd-
unum og hafði auga fyrir ýmsu sem
ég gaf ekki gaum.
Stella sagði mér sögu fjölskyld-
unnar, því að fjölskyldulífíð og
heimilið var hennar áhugasvið og
FLÍSAR
fiF LUUi
i
Stóriiöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
þar naut hún sín best, þótt hún
gegndi ábyrgðarstarfí í atvinnulíf-
inu. Oft hugsaði ég um það hversu
góð móðir hún hefði orðið, en hún
var einhleyp alla ævi og eignaðist
ekki böm.
Hún átti skemmtjlega bernsku í
Vesturbænum í Reykjavík og í
sveitinni í Hveragerði og atburði frá
æskudögunum glæddi hún ljóma
ævintýra og naut þess að minnast
og segja frá.
Leifur, „litli bróðir" hennar, sem
ég var_ að trúlofast, átti líka sína
sögu. Ég fann að hún mundi ekki
sleppa honum alveg, heldur verða
virkur þátttakandi í lífi okkar. Hún
reyndist líka alla tíð traustasti
heimilisvinur okkar og systir sem
aldrei brást þessi 40 ár sem við
höfum átt saman.
Meðan við bjuggum í Kaup-
mannahöfn heimsótti hún okkur,
fyrst vorið 1957. Hún ákvað svo
að fá sér atvinnu þar og fluttist til
okkar 1960. Hún fékk góða stöðu
á skrifstofu verkfræðifyrirtækisins
Phil & sön í Kaupmannahöfn, en
fluttist heim aftur eftir aðeins tæp
tvö ár, þegar faðir hennar var dáinn
eftir mjög stutta sjúkdómslegu, og
móðir hennar orðin öldruð og
heilsulaus. Þá sýndi hún mikla fórn-
fysi og dótturkærleik, því að hana
langaði til að vera áfram í Kaup-
mannahöfn og jafnvel setjast þar
að.
Stella hélt síðan heimili með
móður sinni í nokkur ár og sinnti
einnig næstum daglega eftir að hún
fluttist á sjúkrastofnun. Þá fluttist
Stella í eigin íbúð á Kleppsvegi og
gerði ailt upp með glæsibrag. Þar
bjó hún til dauðadags.
Gleðistundimar átti hún með
bræðrum sínum og fóstursystur,
fjölskyldum þeirra og vinum.
Tryggar og kærar vinkonur Stellu
frá æskuárunum héldu hópinn og á
vinnustað og í húsinu eignaðist hún
vini. Bömin okkar Leifs, Björn Geir
og Þorstein Pál, bar hún mjög fyrir
bijósti, einkum þann yngri sem hún
vildi reynast sem önnur móðir og
hafa hjá sér sem mest. Væntum-
þykjan var gagnkvæm alla tíð. Sig-
rún, kona Björns Geirs, og Stella
urðu mestu mátar og börnin þeirra
urðu Stellu mikil uppspretta ástar
og ánægju.
Annars áttu öll böm, bæði skyld
og óskyld, vísan vin þar sem Stella
var og glögg var hún á þarfír þeirra
og viðbrögð og mörgum krökkum
gaf hún falleg plögg og pijónaföt.
Stella var fíngerð kona og hold-
ug, falleg, brosmild og létt í spori,
þar til heilsan brást. Fram til hins
síðasta hélt hún hressu geði. Gam-
ansöm var hún og skjót til svars,
en alvaran bjó undir og ákveðnar
skoðanir og lífsviðhorf mótuðu ævi
hennar og störf. Hún vandaði fram-
komu sína og allt sem hún tók sér
fyrir hendur, en setti aldrei ofan í
við þá sem breyskari voru.
Starfskröftunum eyddi hún sem
gjaldkeri Fiskifélags íslands, að
undanskildum þeim stutta tíma sem
hún bjó í Kaupmannahöfn. Hún lét
ekki af störfum fyrr en rétt eftir
áramót 1992. Þá var hún farin að
missa heilsu og krabbamein sem
hún hafði barist við áður og sigrast
á tók hana aftur heljartökum.
í mínum augum var Stella
kjamakona, heilsteypt og traust
eins og allt ættfólk hennar. Mikið
tóm skilur hún eftir sig. Hvernig
verða jól og páskar án Stellu
frænku? Ekki er hægt að hugsa sér
fjölskylduhátíð án Stellu sem alltaf
var með okkur.
Hjartans þakkir fylgja henni fyrir
fölskvalausa vináttu og tryggð við
fjölskyldu mína og bræðra minna,
sem bjuggu öll á Lundi og Nýja
Lundi. Hún var Stella frænka þeirra
líka. Aldraður faðir minn syrgir
hana með okkur. Við biðjum henni
eilífrar blessunar, heiðrum minn-
inguna um hana og vonum að við
fáum öll að hittast aftur.
Friðrika Geirsdóttir.
Enn eitt skarð er_ höggvið í
saumaklúbbinn okkar. í dag kveðj-
um við kæra vinkonu, Stellu, eins
og hún var ætíð kölluð.
En þetta er víst gangur lífsins
„að heilsast og kveðjast". Það er
alltaf sárt að sjá á bak góðum vini
og félaga eftir áratuga samfylgd
og ánægjulegar samverustundir
fyrst á skólaárunum í Kvennaskól-
anum í Reykjavík og síðan í sauma-
klúbbnum okkar, þar sem viðhöfum
komið reglulega saman í næstum
50 ár og erum orðnar stór hluti
hver af annarri.
Stella ólst upp í Reykjavík ásamt
tveim bræðrum, Lofti og Leifí, og
fóstursystur, Helgu, dóttir hjón-
anna Pálínu Vigfúsdóttur og Þor-
steins Loftssonar, vélfræðiráðu-
nauts hjá Fiskifélagi íslands.
Að lokinni skólagöngu hóf hún
störf hjá Fiskifélagi Islands og vann
þar allan sinn starfsaldur að undan-
skildum tveim árum, Sem hún starf-
aði í Kaupmannahöfn og dvaldi þá
hjá bróður sínum Leifí og konu
hans Friðriku, sem þar voru við
nám.
Stella giftist ekki og var bam-
laus, en systkinabörn og böm þeirra
fengu marga fallega handunna flík-
ina, slík var hún. Fjölskyldan var
samhent og kunni Stella að meta
það. Hún var mjög listræn, hafði
fágaðan smekk og bar heimili henn-
ar þess ljósan vott. Þangað var
gaman að koma og njóta gestrisni
hennar.
Fyrir fímm árum veiktist hún af
krabbameini og gekkst undir upp-
skurð og erfíða meðferð sem því
fylgir. Hún náði sér vel aftur, enda
barðist hún og var jákvæð. í vetur
dró ský fyrir sólu. Gmnar okkur
að hún hafí leynt því eins og hún
gat bæði fyrir sjálfri sér og öðmm
að veikindin væm að taka sig upp
á ný, en nú varð hún að láta undan.
Það er nákvæmlega einn mánuð-
ur síðan hún var hjá okkur, þá
greinilega sjúk. Þrem dögum síðar
var hún komin á sjúkrahús og átti
ekki afturkvæmt.
Við þökkum henni allar ánægju-
stundirnar í gegnum árin og mun-
um minnast hennar fyrst og fremst
fyrir hennar glaðværa yfirbragð og
jákvæða hugarfar. Hennar verður
saknað úr hópnum.
Blessuð sé minning hennar.
Við vottum bræðrum hennar,
fóstursystur og fjölskyldum þeirra
okkir dýpstu samúð.
Saumaklúbburinn.
<_)U A B ^
"Éif- Auglýsing frá
'WM* Seðlabanka íslands
Staða bankastjóra í Seðlabanka íslands er laus frá 1. júlí 1993. Samkvæmt lögum
um Seðlabanka íslands skipar ráðherra í stöðu bankastjóra að fengnum tillögum
bankaráðs. Bankaráðið auglýsir hér með eftir umsóknum um fyrrgreinda stöðu til
undirbúnings tillögugerðar. I umsókn skal ítarlega greint frá menntun og starfsferli
umsækjanda.
Umsóknir sendist Seðlabanka íslands, Ágústi Einarssyni, formanni bankaráðs, Kalk-
ofnsvegi 1, 150 Reykjavík, fyrir 15. júní 1993.
Reykjavík, 17. maí 1993.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
BANKARÁÐ.
Fjárstoð hf.
Endurskipulagning fjármála, skuldbreytingar,
samningaumleitanir við kröfuhafa, aðstoð á greiðslu-
stöðvunartíma, nauðasamningar, lögfræðiráðgjöf,
Borgartúni 18, sími 629091_________
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI
20 manna veisla í
einum poka af
lambakjöti á aðeins
169 kr. fyrir mamiinn