Morgunblaðið - 03.06.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1993
Víkingalottóið
Potturinn
þrefald-
ur næst
ENGINN reyndist vera með
allar tölur réttar í Víkinga-
lottóinu þegar dregið var í
gærkvöldi og færist vinnings-
upphæðin, 45 milljónir, yfir í
pottinn sem dregið verður úr
næsta miðvikudagskvöld.
Bónusvinningurinn gekk
heldur ekki út.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar íslenskrar getspár, sagði
að potturinn yrði þrefaldur næst
og þætti sér ekki ólíklegt að hann
yrði vænn, á bilinu 70 til 80 milljón-
ir króna. Síðast þegar pottur Vík-
ingalottósins var þrefaldur nam
vinningsupphæðin 77 milljónum
króna, sem kom í hlut Finna.
„Það má alveg búast við að upp-
hæðin verði á þeim nótum, það er
vaninn þegar potturinn er þrefald-
ur. Fólk hugsar sér gott til glóðar-
innar að vera með þegar búast má
við háum vinningum," sagði Alfreð.
Lottótölurnar í gærkvöldi voru
5, 16,18, 23, 28 og 39 og bónustöl-
urnar þrjár voru 6, 43 og 45.
Rotta gerði sig heima-
komna í bamaherbergi
FJÖLSKYLDA nokkur í Vesturbænum
varð fyrir heldur óhugnanlegri reynslu
í fyrrakvöld þegar um 30 sm löng rotta
gerði sig heimakæra í barnaherberg-
inu. Dóttirin, sjö ára gömul, kom að
rottunni þar sem hún sat í hnipri í einu
horni herbergisins. íbúð fjölskyldunn-
ar er í kjallara og komst rottan inn
um glugga á barnaherberginu.
Stúlkan var fyrr um daginn að leik úti í
garði er hún sá dýr sem hún taldi vera mús.
Móðir litlu stúlkunnar, sagði að hún hefði
talið að þarna væri aðeins á ferðinni mús,
enda hefði hún ekki séð önnur nagdýr en
hamstra og naggrísi. „Dóttir mín hljóp á eftir
dýrinu en það hvarf út í buskann. Hún sagð-
ist vilja eiga mús en við sögðum henni að
þetta hlyti að hafa verið rotta. Sjúkdómar
fylgdu slíkum dýrum og að þau lifðu í skólp-
ræsum. Um kvöldið þegar hún fór inn til sín
að hátta rak hún upp skaðræðisöskur, því þar
var rottan í hnipri undir skrifborði," sagði
móðirin.
Áhugalausir kettir
Heimilisfaðirinn greip það sem hendi var
næst og flýtti sér inn í herbergið vopnaður
fötu. Þegar hann hafði króað rottuna af stökk
hún á móti honum og hvæsti. Hann fangaði
rottuna í fötuna og drap hana með því að
drekkja henni.
Á heimilinu eru þrír síamskettir. Móður
stúlkunnar sagðist svo frá að skömmu áður
en barnið fór inn í herbergið hefðu kettimir
rölt út úr því áhugalausir með öllu fyrir rott-
unni. Grunur leikur á að rottan hafi komið
upp úr holræsi sem létt járngrind er yfir. Nú
er búið að fergja grindina með þungum steini.
Fjölskyldan gerði stórþvott á herberginu og
öllum innanstokksmunum enda ekki vitað hve
lengi rottan hafí verið í herberginu.
Engin plága í gangi
Guðmundur Bjömsson verkstjóri hjá Mein-
dýravörnum Reykjavíkurborgar segir vel
hugsanlegt að rottan hafi lyft ristinni af niður-
fallinu og komist upp úr skólpræsinu með
þeim hætti. „Það er engin plága núna og allt
innan eðlilegra marka miðað við árstíma.
Rottugangurinn eykst aðeins yfir sumartím-
ann og rotturnar koma gjaman upp um biluð
holræsi og það sem fólk hefur trassað að láta
laga, eins og rör sem eru í sundur úti í lóðum.
Oft er heitt vatn í jarðveginum og moldin vill
morkna og rotturnar grafa sig upp á yfirborð-
ið,“ sagði Guðmundur.
Herferð á sumrin
Hann sagði það ekkert launungarmál að
það væru rottur í holræsakerfi Reykjavíkur
og ef ekki væri nógu vel gengið um rennur
og niðurföll væri alltaf sá möguleiki til staðar
að rotturnar leituðu í híbýli manna. Á sumrin
væri herferð í gangi og sumarfólk ráðið sem
eitrar fyrir rottum í öllum götubrunnum borg-
arinnar til að halda stofninum niðri. Rottur á
Reykjavíkursvæðinu em allar svokallaðar
brúnar norskar rottur (Rattus Norvegius).
Svarta rottan sem hefur borist hingað með
skipum hefur ekki náð fótfestu hér á landi,
að sögn Guðmundar. Hann sagði að ekkert
tilfelli sjúkdóma af völdum rottugangs hefði
komið upp hérlendis en vitað væri að rottur
gætu borið með sér sjúkdóma, eins og salmon-
ellusýkingar.
Móttaka í Ráðhúsinu
Morgunblaðið/Þorkell
Er ráðstefnan helguð verkum dr.
Björns Sigurðssonar læknis, sem
var fýrsti forstöðumaður Tilrauna-
stöðvar háskólans í meinafræðum
á Keldum.
Alls munu um 130 vísindamenn
á sviði líf- og læknisfræði hvað-
anæva að úr heiminum sitja ráð-
í dag
Óráðin gáta
Sex til átta hringlaga tóftir sjást
vestan við Nesstofu á Seltjamar-
nesi 27
Kærður fyrir hrefnukjötssölu
Þorvaldur Baldvinsson kaupmaður
á Akureyri, sem Hvalavinafélagið
hefur kært fyrir að selja hrefnu-
kjöt, segist frekar fara í fangelsi
en gefa upp hvaðan kjötið kom 34
Verökönnun vikunnar____________
Stjúpumar í Hveragerði eru 20%
ódýrari en annars staðar 36
Leiðari
Þekkingin er markaðsvara 30
Stjórnarandstaðan tortryggin á samráð í efnahagsmálum
Davíð tekur viðbrögð-
umim sem misskilningi
í GÆR héldu Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneytið móttöku
í Ráðhúsinu fyrir þátttakendur á læknaráðstefnunni.
130 vísindamenn
á læknaráðstefnu
VÍSINDAAKADEMÍA New York og íslenska menntamála-
ráðuneytið standa fyrir alþjóðlegri læknaráðstefnu um
hæggenga veirusjúkdóma í miðtaugakerfinu, sem sett verð-
ur í dag í Háskólabíói að viðstöddum forseta íslands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur.
stefnuna en meðal þeirra eru nokkr-
ir af fremstu sérfræðingum á sviði
rannsókna á hæggengum veirusýk-
ingum. Þeirra á meðal er dr. Rob-
ert C. Gallo, annar tveggja manna
sem uppgötvuðu alnæmisveiruna,
og nóbelsverðlaunahafinn dr. Garle-
ton Gajdusek.
Ráðstefnunni lýkur á laugardag.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segist taka fyrstu við-
brögð stjórnarandstöðunnar
við boði ríkisstjórnarinnar um
víðtækt samráð stjórnar,
stjórnarandstöðu og aðila
vinnumarkaðarins um það
með hvaða hætti verði tekið á
vanda sjávarútvegsins í kjölfar
skertra fiskveiðiheimilda, sem
misskilning. Fulltrúar stjórn-
arandstöðunnar taka hug-
myndum forsætisráðherra
með undrun og nokkurri tor-
tryggni en fulltrúar ASÍ og
VSI lýsa sig reiðubúna til þátt-
töku í starfshópnum.
Halldór Ásgrímsson, varaformað-
ur Framsóknarflokksins, sagði fram-
sóknarmenn ekki hafa heyrt í forsæt-
isráðherra nema í fjölmiðlum og
sagði óeðlilegt að hann sendi skila-
boð í jafnstórum og alvarlegum mál-
um með þeim hætti. Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, sagði að Alþýðubandalagið
teldi þörf á alvarlegum viðræðum
forystumanna stjórnmálaflokkanna í
landinu um breiða samstöðu til að
taka á vandanum. Honum leist ekki
Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá
þ Samdráttur í fólksbQainnflutn- þ Kvikmyndir vikunnar - Út-
mgi - Lakkns a Hvolsvelli - Hve- sendingarsvæði útvarps - Dýr
nær réttir þjóðarbúið úr kútnum? mistök hjá BBC - Arfleiðarráðu-
- Tiffany á Islandi - Ferðaþjón- neytið - Bíóin í borginni - Mynd-
usta í ógöngum bönd - Leitin að Scarlett
á nefnd embættis- eða aðstoðar-
manna, sagði það óþarfa millilið.
Fyrst rætt í ríkisstjóm
„Stjómarandstaðan hefur fundið
að því að fá ekki að vera með í ráð-
um og þegar boðið er upp á samráð,
geta menn ekki farið í einhverja fýiu,
vegna þess að ekki hafí verið rætt
við þá formlega, áður en hugmyndin
var rædd í ríkisstjórn," sagði Davíð.
Davíð sagði að auðvitað hefði þessi
ákvörðun fyrst verið rædd í ríkis-
stjóm og í svona stóm máli hlytu
fulltrúar stjórnarandstöðunnar að
taka því fegins hendi að fá að hafa
áhrif við undirbúning málsins.
Sjá frétt á miðopnu.
Charles Egill Hirt.
*
Árangurslaus leit
að ungum manni
FJÖLMENNT lið björgunarsveita frá Vesturlandi, Húnavatns-
sýslu og höfuðborgarsvæðinu hélt í gær áfram leit á Snæfells-
nesi að Charles Agli Hirt, 29 ára gömlum manni úr Kópa-
vogi, sem saknað hefur verið frá því á þriðjudag. Leitin hafði
ekki borið árangur þegar Morgunblaðið hafði síðast fregnir.
Talið er að hann hafí tekið rútu
áleiðis að Snæfellsnesi á þriðjudag
og talið að síðast hafí sést til ferða
hans þegar hann hélt gangandi frá
Ólafsvík áleiðis að Snæfellsjökli.
Eftir hádegi í gær vom um 120
manns úr björgunarsveitum úr
byggðum á Snæfellsnesi og í Búðar-
dal við leit, auk þess sem liðsauki
barst frá Akranesi, Borgamesi, vest-
anverðu Húnaþingi og um klukkan
hálffímm síðdegis í gær lagði um þ;
bil 100 manna liðsauki frá Land
björg í Reykjavík af stað vestur
að taka þátt í leitinni.
Leitað hefur verið á öllu svæðii
frá Ólafsvík og að Snæfellsjökli <
síðdegis einnig í átt að Rifí og Helli
sandi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar leita
við Snæfellsnes i fyrrinótt og aft'
síðdegis í gær.
€
€
I
f
f
I
f
f
f
f
f
f
i
i
i