Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 ÓHÆTT er að segja að ekki hafi verið mikið svigrúm fyrir hvern og einn þegar 900 sextán og sautján ára unglingar voru komnir saman til að taka við verkefnum frá Skógrækt Reykjavíkur í Laugardalshöll í gærmorg- un. Að sögn Önnu Helgadóttur, deildarfulltrúa í Vinnu- miðlun skólafólks, gekk þó allt vel fyrir sig og hófu unglingamir störf í býtið i morgun. Þeir munu starfa við gróðurrækt á nokkrum stöðum í nágrenni borgarinn- ar, m.a. í Heiðmörk, við Rauðavatn, í Elliðaárdal og á Hólmsheiði. Vinnumiðlunin hefur nú samtals ráðið rúm- lega 1.300 manns til sumarstarfa en enn eru 900 á biðlista. Af þeim verða 100 ráðnir í gróðurrækt á Þing- völlum en hinir verða ráðnir til ýmissa starfa á vegum borgarinnar á næstu dögum. VEÐUR / IDAGkl. 12.00 r - t HeimiW: Veöurstofa Islands r ' (Byggt á veöurspé kl. 16.15 ?ö<er) VEÐURHORFUR I DAG, 2. JUNI YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1.025 mb hæð og önnur álíka mikil um 400 km norðaustur af Langanesi. 998 mb lægð um 700 km suður af Reykja- nesi þokast norðvestur. SPÁ: Austlæg átt, víða talsverður strekkingur um sunnan- og vestan- vert landið. Rigning framan af degi sunnanlands og þegar iíður á daginn fer einnig að rigna í öðrum landshlutum, þó veröur líklega úrkomulítið á Norðuriandi. Heldur hlýnar, einkum um landið sunnanvert. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan- og suðaustanátt, víða stinningskaldi og fremur hlýtt. Rigning um sunnanvert landiö en annars þurrt að mestu. HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi og Skúrir um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt og víða léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast norðaustanlands. HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg suðlæg átt og skúrir um sunnanvert landið, en víöast þurrt fyrir norðan. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast norðanlands. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. ■V Heiöskírt r r r r r r r r Rigning & A Q Léttskýjað Hálfskýjað * / * * * * * r * * r * r * * * Slydda Snjókoma Skýjað Alskýjað V $ V Skún'r Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fiaörimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig y súid = Þoka itig. FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins. Fært fyrir létta bíla um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar og á Botns- og Breiðdalsheiði á Vestfjörðum. Fólksbílafært um Lágheiði á Norðurlandi. A Norðaustur- landi er ófært um Öxarfjarðarheiði og Hólssand, ágæt færð um Möðrudalsör- æfi og Vopnafjarðarheiði. Á Austurlandi er fært um Breiðdalsheiði, Vatns- skarði eystra og Hellisheiði eystri. Hálendisvegir eru lokaðir vegna snjóa og aurbleytu. Viðgerðir á klæðningum eru víða hafnar og eru vegfarend- ur beðnir aö virða hraðatakmarkanir sem settar eru vegna hættu ó grjótkasti. Upplýsingar um færö eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerftin. w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veAur Akureyri 7 lénskýjað Reykjavlk 6 skúrir Bergen 8 léttskýjað Helsinki 15 skýjað Kaupmannahöfn 17 téttskýjað Narssarssuaq 7 léttskýjað Nuuk +1 þokaígrend Osló 12 skurir Stokkhólmur vantar Þórshöfn 7 skýjað Algarve 22 léttskýjað Amsterdam 20 skúrlr Barcelona 22 hálfskýjað Berlín 22 skýjað Chicago 12 alskýjað Feneyjar 26 léttskýjað Frankfurt 24 skýjað Glasgow 10 alskýjað Hamborg 19 háffskýjað London 1B skýjað Los Angeles 17 léttskýjað Lúxemborg 13 súld Madrid 21 léttskýjað Malaga 27 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Montreal 9 léttskýjað NewYork vantar Oriando 24 léttskýjað París vantar Madeira vantar Róm 25 léttskýjað Vín 26 iéttskýjað Washington 16 skýjað Winnipeg vantar Launað sumarnám í Iðnskólanum Mikil aðsókn á fyrsta degi MIKIL aðsokn virðist ætla að verða í sumarnám á vegum Iðn- skóláns í Reykjavík og Reykjavíkurborgar. Innritun hófst í gær, miðvikudag, og strax á þriðja tíma innritunar höfðu 80 sótt um. Rétt fyrir lokun í gær kl. 18:00 voru þeir orðnir 150 en innritun stendur yfir til 7. júní. Reykjavíkurborg veitir 25 millj- ónum króna til þessa verkefnis og er gert ráð fyrir því að um 200 ein- staklingar á aldrinum 16 til 20 ára geti lagt stund á nám við Iðnskólann í sumar. Nemendur fá borgaðar 30.000 kr. á mánuði í þá tvo mán- uði, sem námið stendur yfir. Atvinnulausir ganga fyrir Að sögn Grétars Eyjólfssonar, eins af þeim sem skipulagt hefur námið, er rúmlega þriðjungur um- sækjenda atvinnulaus en afgangur- inn að mestu skólafólk án sumar- vinnu. Þeir sem eru atvinnulausir ganga fyrir að sögn Grétars og skólafólki verður reynt að koma fyr- ir eins og pláss leyfir. Grétar sagði mesta aðsókn virðast vera í tölvugreinar og fataiðn auk þess sem málmiðnaðardeildin væri vinsæl. Enginn augljós munur væri á fjölda karla og kvenna. Innritunin fer fram í Iðnskólanum. Ovissa um upphæðir í fjárdráttarmálinu Nokkrir hafa ekki fengið endurgreitt RANNSÓKN á fjárdrætti starfsmanns í útibúi íslandsbanka í Grafarvogi sem upp komst í byijun aprO sl. er ekki lokið hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins en nokkrir viðskiptavinir hafa enn ekki fengið endurgreitt það fé sem þeir töpuðu þar sem ekki er ljóst um hve háar fjárhæðir er að ræða. Bankinn hefur hins vegar endurgreitt að fullu það fé sem sannað er að hafi verið dregið af reikningum nokkurra viðskiptavina. Starfsmaðurinn, sem var þjón-- ustustjóri við útibúið, var kærður til RLR 6. apríl sl. fyrir að hafa dregið sér 10-11 millj. kr. af reikningum nokkurra viðskiptavina á nokkuð löngum tíma. Við rannsókn hefur hins vegar komið í ljós að um hærri upphæðir er að tefla, en skv. upplýs- ingum Morgunblaðsins mun starfs- maðurinn hafa áunnið sér trúnað nokkurra viðskiptavina og annast fjármál þeirra. Gert upp þegar málið er upplýst Valur Valsson, bankastjóri ís- landsbanka, sagði að unnið væri að rannsókn málsins og hefðu meðal annars endurskoðendur bankans að- stoðað Rannsóknarlögregluna við öflun gagna. „Við höfum þegar gert upp við nokkra aðila þar sem þótti vera nokkuð ljóst um hvaða upphæð- ir væri að tefla en í þeim tilvikum þar sem það er ekki ljóst verðum við að bíða eftir niðurstöðu Rannsóknar- lögreglunnar þar til málið verður að fullu upplýst. Þá verður að sjálfsögðu gert upp og vextir greiddir eins og eðlilegt er. Það er enginn ágreining- ur uppi en það er ekki hægt að borga til nokkurra aðila vegna þess að við vitum ekki nákvæmlega um. hvaða upphæð er að tefla," sagði Valur. Golfvöllur við Korpúlfsstaði BORGARRÁÐ hefur samþykkt teikningar af 18 holu golfvelli við Korpúlfsstaði. Gert er ráð fyrir að samið verði við Golf- klúbb Reykjavíkur um bygg- ingu og rekstur vallarins. Völlurinn er unninn í samvinnu við höfund deiliskipulags Staða- hverfis, borgarskipulag, formann Golfklúbbs Reykjavíkur og veiðirétt- arhafa í Korpu. Hann verður 6.100 m að lengd frá meistarateigum. Landslag er auðvelt yfirferðar og hentar bæði bytjendum og eldri borgurum. Áhersla er lögð á góðar gönguleiðir almennings, bæði í fjöru, meðfram fjöru og upp með Korpu. Þá eru reiðleiðir skipulagðar um svæðið og áfram upp í Mosfellsbæ. Sérstakir reitir eru teknir frá til trjá- ræktar. Golfklúbburinn reki völlinn í samningi við Golfklúbb Reykja- víkur verður miðað við að Reykjavík- urborg láti gera völlinn svo og trjá- lundi, göngustíga, reiðstíga og ak- brautir. Golfklúbburinn fái völlinn til rekstrar og sjái um og kosti lagn- ingu úðunarkerfis, tækjabúnað, byggingu vallarskála, verkfæra- og tækjageymslu og skýlis á æfinga- svæði. Lagt er til að borgin og golfklúbb- urinn sjái hver um sinn hluta verks- ins og er stefnt að því, eftir þvi sem fjárveitingar leyfa, að borgin vinni sinn hluta á 3 til 4 árum. -----♦ ♦ ♦----- Gokart smá- bílabraut á skautasvellinu í UNDIRBÚNINGI er að starf- rækt verði gokart-smábílabraut á skautasvellinu í Laugardal í sumar og hefst sú starfsemi væntanlega í lok júní. Að sögn Erlings Jóhannssonar hjá Iþrótta- og tómstundaráði Reykja- víkur munu einkaaðilar sjá um þenn- an rekstur og leigja afnot af svellinu til starfseminnar, en væntanlega verða sex gokart-bílar þar til útleigu. Erlingur sagði að kannað hefði verið hvort hugsanlega yrði um ónæði að ræða frá starfsemi gokart- bílabrautar á skautasvellinu, en svo hefði ekki reynst vera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.