Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
Kj ör dæmaskipan
eftir Magna
Guðmundsson
Umræða er á ný hafin um kjör-
dæmaskipun og hugsanlegar
breytingar á henni. Því ber að
fagna, enda hefir kerfið, sem við
buum við, ekki gefið góða raun.
Ég hefi áður fjallað um þetta efni,
bæði á síðum Morgunblaðsins og
í Ríkisútvarpinu, einkum um og
eftir stjórnarskrárbreytinguna
1959. Sumt af því, sem hér fer á
eftir, er endurtekning, en það á
erindi við lesendur í dag. Ég lagð-
ist gegn hlutfallskosningum og
geri það enn. Reynslan síðustu
áratugi hefir staðfest orð mín.
Einmenningskj ördæmi
í áratugi var hluti alþingis-
manna kosinn í einmenningskjör-
dæmum, en aðeins hluti. Þess
vegna er ekki unnt að segja, að
það kosningakerfi hafi ríkt hér-
lendis. Þegar frá árinu 1915 hafa
hlutfallskosningar t.d. verið við-
hafðar í höfuðborginni. Frá sama
tíma voru landkjörnir þingmenn,
sex að tölu, valdir með þeim hætti,
þar sem landið allt var eitt kjör-
dæmi. Árið 1933 komu svonefndir
uppbótarþingmenn til sögunnar,
þ.e. fallnir frambjóðendur í kjör-
dæmi, sem fengu sæti á Alþingi
skv. heiidarfylgi flokka og þar með
lögmáli hlutfallskosninga. Með
stjórnarskrárbreytingu 1942 urðu
hlutfallskjördæmi 6 í landinu utan
Reykjavíkur: Árnessýsla, Rangár-
vallasýsla, Múlasýslur báðar,
Eyja- og Skagafjarðarsýslur. Eftir
það var aðeins minni hluti þing-
manna kosinn óhlutbundið, þ.e.
21 af 52 — og kerfi hlutfallskosn-
inga því ráðandi frá sama tíma.
Það kerfi var fullkomnað 1959,
þegar landinu öllu var skipt í stór
kjördæmi með hlutfallskosningu.
Það er vissulega eftirtektarvert,
að kerfi einmenningskjördæma er
við lýði í engilsaxneskum löndum,
einmitt þar, sem stjórnarfar er
stöðugast og styrkast. Nánast eini
gallinn á því kerfi er sá, að minni-
hlutaflokkur getur náð meirihluta
á þingi. En það má útiloka, ef
tveim skilyrðum er fullnægt: (i)
Kjördæmin þurfa að vera tiltölu-
lega smá og (ii) atkvæðafjöldi
þeirra nokkuð jafn. Þetta er vel
framkvæmanlegt, en krefst þess
hér hjá okkur, að Reykjavík verði
skipt upp í einmenningskjördæmi
líka, eins og landsbyggðin. Kosnin-
gatölur frá t.d. Bretlandi hafa
sýnt, að einmenningskjördæmi
geta leitt til nær algers jafnaðar
milli flokka. Atkvæði glatast flokki
í einu kjördæmi, öðrum í hinu, og
talan gengur upp. Þótt einhvers
misræmis kunni að gæta stundum,
þykja það smámunir í samanburði
við öryggið, sem þetta kerfi veitir.
Ágallar hlutfallskosninga
Helzti ágallinn er sá, að hlut-
fallskosningar efla smáflokka og
flokksbrot og gera stjórnarmynd-
un erfiða. Þegar hún tekst ekki,
nema með þátttöku minnihluta-
flokka, verður að „semja“ við þá.
Meirihlutaflokkurinn verður að
víkja frá stefnu sinni til samkomu-
lags. Með þeim hætti er sjónarmið-
um minnihlutans þröngvað upp á
meirihlutann. Það brýtur grund-
vallarreglu lýðræðisskipulagsins,
þá reglu, að meirihlutinn eigi að
ráða.
Afleiðingar margflokka stjórn-
arsamstarfs eru ýmis konar. Ein
er skortur á beinum valkostum
fyrir kjósendur. Þegar þeir ganga
að kjörborði, vita þeir í rauninni
ekki, um hvað þeir eru að kjósa,
því að stefnan er háð væntanleg-
um málefnasamningi milli flokka,
— allt undir því komið, hvernig
kaupin gerast á eyrinni, þegar þar
að kemur. Önnur afleiðing er sam-
ábyrgð flokka, þegar tveir eða
fleiri fara með stjórn. Ekki er við
neinn að sakast öðrum fremur, ef
miður fer, og þar með úr sögunni
gullna reglan, að flokkur standi
og falli með sínum gjörðum. Þriðja
afleiðingin, sem hér verður nefnd,
er vanmáttur í viðureign við sér-
hagsmuni. í málefnasaningi verða
báðir flokkar — eða allir, ef þeir
eru margir — að „slá af“ skoðun-
um sínum. Hversu mikið, fer eftir
samningsstöðu hvers og eins eða
lagni í hrossakaupum. Niðurstað-
an verður gjaman einhvers konar
millileið, sem er hvorki fugl né
fiskur.
Reynslan er ólygnust
Einmitt þetta hefir berlega
komið fram hérlendis í glímunni
við verðbólgu, sem óx án afláts í
áratugí. Aðeins kreppa og at-
vinnuleysi gat stöðvað hana. Þar
var ekki við mennina að sakast,
heldur kerfið.
Bæði Þýzkaland og Frakkland
hafa búið við nákvæmlega sama
kerfi og við núna: Fá, stór kjör-
dæmi með hlutfallskosningu, lista-
kjöri og uppbótarsætum, — Þýzka-
land á dögum Weimar-lýðveldisins
1919-1932 og Frakkland á dög-
um Fjórða lýðveldisins 1946-
Magni Guðmundsson
„Með kerfi einmenn-
ingskjördæma þjappa
kjósendur sér saman
um meginstefnu, en
tvístrast ekki í smá-
hopa, sem togast á um
völdin.“
1957. Bæði liðu undir lok, þegar
ringulreið innan þings og sundr-
ung með þjóðinni náðu hámarki.
Bæði enduðu með einræði, hvort
með sínum hætti, svo sem kunn-
ugt er.
Þessi lönd hafa tekið upp ein-
menningskjördæmi, og Italía er
að bætast í hópinn eftir bitra
reynslu. Landsmenn kröfðust þess
af stjórnmálamönnum sínum í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Eftir stjórnarskrár-
breytinguna hér 1959
Þegar landinu öllu hafði verið
skipt í stjór kjördæmi með hlut-
fallskosningu, komu upp ný póli-
tísk vandamál. Val frambjóðenda
færðist með listakjörinu frá kjós-
endum til flokksins og þó einkum
miðstjórnar. Við þetta breyttist
svipur eða andlit Alþingis. Menn
úr atvinnulífinu, greindir og oft
litríkir persónuleikar, sem á 4ra
ára fresti urðu að veija þingsæti
sitt í kjördaemi, hurfu flestir úr
þingsölum. í stað þeirra komu
ungmenni úr skólum, uppalningar
forustuliðsins hjá flokkunum. í því
ljósi má skoða þann „strákslega“
blæ, sem stundum auðkennir um-
ræðuna á Alþingi síðustu árin. —
Lengstum hefir Framsóknar-
flokkurinn verið fylgjandi kerfi
einmenningskjördæma. Sama
gildir um ýmsa helztu ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins, þeirra á með-
al fyrrum forsætisráðherra dr.
Bjarna Benediktsson. Hann lét
þess eitt sinn getið við mig, að
hann væri ákveðinn stuðnings-
maður einmenningskjördæma, —
með einu skilyrði þó, þ.e. að sama
kjördæmaskipun gilti í landinu
öllu, ekki eitt kerfi á landsbyggð-
inni og annað í höfuðborginni.
Ymsir sjálfstæðismenn, einkum
hinir yngri, vilja hlutfallskosning-
ar. Þeir beita óspart slagorðinu
um ,jafnt vægi atkvæða“, eins og
það sé réttlætismál. Það er þó
engan veginn tryggt með hlutfalls-
kosningu, eins og reynslan hefir
sýnt.
Með kerfi einmenningskjör-
dæma þjappa kjósendur sér saman
um meginstefnu, en tvístrast ekki
í smáhópa, sem togast á um völd-
in. Það er harla ólýðræðislegt, að
minnsti flokkur landsins ráði
stjórnarstefnunni, eins og við
þekkjum dæmin um.
Höfundur er doktor í hagfræði
'ý'Wmur l r l’Á:-
II .1 Al ’■ ítlflU
ÞER BYÐST
NÚ BÓKIN
SAMTÍÐARMENN
Á SÉRSTÖKU
KYNNINGAR-
VERÐI MEÐ
40%
AFSLÆTTI
SAMTIÐARMENN - EINA BOKIN SINNAR TEGL'NDAR Á ISLENSKUM BÓKAMARKAÐI
OMISSANDI UPPLYSINGAR
UM ÍSLENSKA SAMTÍÐARMENN
— sem nýtast þér jafnt heima og í vinnunni
Stórbókin SAMTÍÐARMENN veitir þér allar nauðsynlegar upp-
lýsingar um þá sem eru í sviðsljósinu. Fjallað er um 2000 núlifandi
íslendinga á viðameiri hátt en áður hefur verið gert í einni slíkri
bók. Alls koma 30.000 manns við sögu og er sagt frá fæðingardegi og
viðfangsefhum þeirra allra. Bókin er 750 síður í stóru broti. Þetta er
eina bókin sinnar tegundar á íslenskum markaði.
- í’ot
'ak,:
w
'7.2. IVIofd
■
«*te,
'‘,’nneúij^.p .
'“'MWinSolií
S" unghiTO, ir
it.Jra.-Oi blmóxr
US MjawV v
i,tPM>gnaic
"S rrlend ý-
ixxhviastjórí ASÍ írÁ iguo , -
slpmSliiifonliir.íasH/J974 ii| in"!1") 'i"rí: '
m* «»■ i HOIbri/iðl lv t r"'"",'"1’
ITO lll 1984. Fulllníi ASÍ I lulnr r 'T'kur
l'Klil 19S7, v.,«nii, Sur í/., Á'" W
"I 1991 iormiifHir MarHlt
Fwnwður Kreiu-atin<),,(ai j ' * fr‘' J»l.
im Van,þi„g„,llöur i A , l,lnj's >98« tíl
.4«, mií / „<.í„d„„, ,j| nð . ý <’> m>.
ursk«H\i orlofslog, lo«- Um ( ,„v
ifumað, hig „„, r,kis.il>vr T Sk>U“-
r«k"'"n,úfíi4/„|a.i„fsv,;(* /j'j"""
Mnd loKMisrJAhm, ,wr (¥du-
tvæm,l.„„.f„J |,.u 1 ‘m- 1 fr->m-
Ife„,h.«„J.,l,6,„ •s “"r„kVt'""J M «985.
kMtshbók , vcrsl„„.,rrvftf ,.,SI
sz***'*au**
Í-T‘T: s""JMi,r
1944. Fnrnl,f..
Lára'
l9'14-Forcldrar
SX&rSZZ?*'
í 4 II) ion V’S Alii [,»rl«Oísa,aa-«-
i"Tn"t""u 'ti7:.^SSr J
'Tfu Hnlcilcorí
þ.'iUlull ní4F>rtW'próf fr.j
"ni,l’n n"d Drama
■■
I97,-,
námskrffí óu
í'oítffTp/,
lyskðl.indi
ss....S'ÉS'S
Yeiur- HallaMa.iftT
1979 tíi 1l.i
Æá... . .. s
‘ykjavíi
í-ára Haíla Maa>
’ ^■ykj.ivfk íl'o,
^‘l^ungnrtagBr, í
»» v.ö Tónlistarv
rgvðtæknir, f. 5.10
v <«; Vifjji |.jn,r .. ■ • ■1 ’ >M4 I Riiykji,
"I. I. 4.4. i!)v> , u ' ksklPin'-‘rktn\1i,
„•yk?yiL Sy«M..
I4'4, M.irí., |,iWur ifffr Njy-ý”" d. 2.3.7.
f *•> U'""n rtaK'-ail. 1957
Mnki: Ifcter!T,hnSur- f. 30.4.
1990, Hofuro(|
iandúi)!
4 óJiufiV
' ham n
1989.
ík
Tón-
'fö/- iónlistí
> Gardabji
á
- „ tJíUK
1 ‘hiukuíkjuf
Zi.,,, , * •• Ohiturv^forf: i
•s ‘"slr.l tón/isi „JkV '■ 1
onmngan V„,v,r JtÍT , ,,u
,.j "tkenninj
'lii
iKfununi
iríl"rl»nJ„nu
Spáni.
^yOrpor
mi).
'1987,'
H.irn:
ir, (mmlwv.
t Utk
R SímoftsftM
vkýHíkogj'&'
f. 262 m:
kamri í íl
. 2.12. m
'6. H«Stóysfc
12.3. mh
9 1962 ogfc
mi:h
ntf ursLnlr-'
MM
1919.
1978.
/ra MK s.,i.
.»«< Wll/W&. jÁ!6S «» '92". c,
1985, |Vií XWIU.
'«'• tychuirv , I rt''"r««'l.vl.llimailv-fr,
•v«"í ' SvDh.kniimm 'T. IWi' S«^M«I'
“» ' ■Uu„fS|„. |C,‘?.ra"a,S«»«„ins:
1 '»«. euiiUlT".' KrykM’kur 1978
’7f. '!''vUr„Wjí' r'|”'"!TÍ"".'r «97.4 11,
1^83 i(l 1987 t--i 1 ‘nn,1*kiii,i
. ... "inmw
Londcin !W> til V-.,
Slnrísliiun ii.si,im.i,,„ö
U,a MargréUragnatstlntfir *,
> 9.10. lypfl\D‘ ’"!KÍsin,',V„r.
'WMfc" l.vkn.,ri,!irj “ ujr'' !£*»
I.vknir „„ nr„ JLtr nrT','".,Krisl’-'n
«• «5.1/. I"41 ÁmlT^ r . B"d,lr,k """n
'931’, Ást, Kr/íta F 1S S,«,‘lrl"-k"ir. fVf
l-fi'l.'r f.iiDmuiiJssui, ,,„„„|v;k9!l:,0,,lfur
Foreldrar moka: Anm' 'rZvJ' V1'-2
fym- marftsMDá, 15,T 'T ksMllir'
niundurölnfss,,,, vcrks,uh Á'.13..0* Gu‘\
Ldra.Rafnstíóttir
< uúrZ u:T’,.m..s,iW\\v\,L'r
Ura Margrét
Ragriarsdðm
71 w23. Dörn:
ÞVERSKURÐARMYND AFISLENSKU
ÞJÓÐINNI Á LÍÐANDI STUND
Ljósmyndir af öllum 2000 Samtíðarmönnunum í bókinni.
Ritstörf Samtíðarmannsins eru tíunduð og getið um bækur
og greinar í blöðum og tímaritum.
Upplýsingar um foreldra og systkini, störf þeirra og
fæðingardaga.
Nöfn barna Samtíðarmannsins og stjúpbarna, viðfangsefni
þeirra og fæðingardagar.
Sagt er frá menntun viðkomandi.
Starfsferill Samtíðarmanns er rakinn ítarlega. Greint frá
öðrum störfum, m.a. á sviði félagsmála og lista.
Nafn og starfsheiti, fæðingardagur, ár og staður.
Sagt er frá helstu íþróttaafrekum. Greint frá
viðurkenningum sem Samtíðarmanninum hafa hlotnast.
Maki, starf hans og fæðingardagur. Fyrri maki og starf
hans. Upplýsingar um foreldra maka.
FULLT VERÐ ÞESSARAR MIKLU
BÓKAR ER 14.600 KRÓNUR.
ÞÚ FÆRÐ HANA AFTUR Á MÓTl Á
SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐl Á AÐEINS
8*760kr.
M.
m
VAKA-HELGAFELL
LIFANDI ÚTGÁFA - ALLT ÁRIÐ
Ef þú vilt dreifa greiðslunum á nokkra mánuði með raðgreiðslum
Visa eða Eurocard er verðið 9.200 krónur vaxtalaust!
HRINGDU OG FÁÐU SAMTÍÐARMENN
SENDA HEIM. PÖNTUNARSÍMINN ER
688 300