Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 17

Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 I fjötrum marxískrar söguskoðunar eftir Siglaug Brynleifsson Samkvæmt marxískri söguskoð- un var eignarrétturinn kveikjan að hrakfallasögu mannkynsins. Fyrir daga eignarréttarins ríkti dýrðar- ástand í mannheimum, þ.e. á dögum manndýrsins. Fátséktin orsakaðist af eignarréttinum og fátæktin er spillandi, samkvæmt kenningunni, og fátæklingar því gjörspilltir. „Hin nýja íslenzka söguskoðun,“ sem er reyndar útþynnt og meira að segja bjöguð marxísk söguskoðun, ein- hvers konar tötra marxismi, (sam- anber útgáfubækur Námsgagna- stofnunar í greininni) kennir, að fáeinir landeigendur hafi mótað ís- lenzkt samfélag á fýrri öldum til þeirrar gerðar, að þorri þjóðarinnar var öreigar, kúgaðir og arðrændir og þá líkast til gjörspilltir. Nú vill svo til að á þessum öldum jaðraði við að landið væri vart byggilegt sökum áhrifa „litlu ísald- ar“ sem rýrði framleiðslugetu og olli hungurdauða víða um norðan- og vestanverða Evrópu, jafnvel í blómlegasta landbúnaðarlandi Evr- ópu, Frakklandi. Þetta er feimnis- mál nýju söguskoðunarinnar. Heimildir sem þessi söguskoðun styðst við eru einkum annálar, en eins og kunnugt er eru annálsverð tíðindi eins og fréttamatur nú á dögum, það sem er frábrugðið eða afbrigðilegt og því alltaf undan- tekning frá því venjulega. Einnig má nota skrár og skýrslur stjóm- valda og heimildir úr Fombréfa- safni, jarðabækur og manntöl, og rit eða ritgerðir um hag landsins, einkum frá 18. öld. Því fjölskrúð- ugri sem heimildir em, því auðveld- ara er um vik að velja þær, sem henta fyrirfram ákveðinni mynd af samfélagi fortíðar. Rit erlendra ferðamanna geta sum hentað vel til að fylla mynd- ina, t.d. rit Dithmars Blefkens og Gories Peerses o.fl. af þeirri teg- und. Með vali heimilda verður auð- velt að kynna fortíðina á þann hátt að hún falli að söguskoðun marx- ismans um sögulega þróun til sam- eignar samfélagsins, sem er óhjá- kvæmileg og verður ekki undan vikist. Þar sem svo er í pottinn búið er eðlilega sleppt öllu því efni sem stangast á við kenningamar, lýsingar á þéttbýliskjömum á 18. öld og á 19. öld og þær heimildir sem draga upp aðra mynd eru úti- lokaðar, svo dæmi sé tekið. í sambandi við „nýja söguskoð- un“ er masað um einhveija glans- mynd sem dregin hafí verið upp í kennslubókum á fyrri hluta þessar- ar aldar. Hvar er þá glansmynd að fínna? Fátækt og ill meðferð á böm- um er útmáluð í „nýju sagnfræð- inni“, líkast sem enginn hafi vitað um að íslenskt samfélag var fátækt alla „minni ísöld“ og ill meðferð á bömum átti sér stað. Almennar misþyrmingar áttu sér hins vegar ekki stað eins og látið er að liggja í þessum fræðum. Áhrif íslenskra valdsmanna á stjóm landsins em ekki ný fræðsla. Páll Eggert Ólason fjallar um þau efni í Sögu íslend- inga fyrir 50 ámm. Fjandskapur landeigenda við búsetufólk og and- staða þeirra gegn þéttbýlismyndun er heldur ekki staðreynd. Auðug- asti landeigandi landsins á 18. öld lagði sitt til í fjármunum til Innrétt- inga og útgerðar sem Skúli Magn- ússon stóð fyrir, og hann var ekki sá eini. Páll Vídalín hafði fullan hug á breyttum atvinnuháttum og þar með myndun þéttbýliskjama löngu fyrr. „Nýja söguskoðunin" er alls ekki ný og höfuðtilgangur þeirra fræða er að sýna fram á hina sögulegu þróun til þess samfélagsforms sem átti að vera lok allrar sögu. En því ' miður hefur hina sögulegu þróun dagað uppi í þeim ríkjum sem byggðu á marxískum söguskilningi. Sá skilningur er nú þegar kominn í mslagáminn samkvæmt skoðun allra þeirra sagnfræðinga, ekki síst rússneskra, sem sjá haldleysi kenn- inganna um sögulega þróun tii sós- íalismans. Talsverður hópur ís- lenskra sagnfræðinga virðist ekki hafa frétt af hruni marxískrar sagn- fræði. En einhvem tíma munu þeir frétta af þessum atburðum og eftir nokkurn tíma, væntanlega skilja inntakið. En meðan beðið er eftir sinnaskiptum er haldið áfram að kenna þessi fræði í skólum lands- ins, fræði sem byggð em á útdauð- um forsendum. Og afleiðingarnar koma fram í fáránlegum útlistunum íslandssögunnar meðal skillítilla einstaklinga. Höfundur er rithöfundur. Siglaugur Brynleifsson Sumarfrí í Evrópu! Evrðpa bíður, full af spennandi ferðamöguleikum. Fjölmargir gistimöguleikar í boðl, allar upplýsingar em að flnna í SAS hótelbæklingnum. Flogið er til Kaupmannahafnar alla daga, allt að þrisvar sinnum á dag. Hafðu samband við söluskrífstofu HARÐVIÐARVAL HARÐVIÐARVAL HF. SAS eða ferðaskrifstofuna þína. KRÓKHÁLSI 4 R. SfMI 671010 Úr glasfiber Meö öllum búnaði • 6-7-8 metrar Staðgrelösluverð trá ki. 24.451,- TRANAVOGI 1 SÍMI 682850 • FAX 682856 Sumarleyfisfargjöld SAS Keftavik-Pans 29.900,- Kefiavik -Vin 30.900,- Keflavík - Hamtxug 29.900,- tteGsxrik-ZáHtkto 30.900,- Keflavik - Frankfurt 30.900,- Keftavík - MBanó 30.900,- Keftavik - Miinchen 30.S00,- Keflavík - Barceiona 30.900,- Verö gildlr tll 30. september og mlðast við dvöl erlendis í 6 - 30 daga. Barnaafsláttur er 33%. Bókunarfyrlrvarl 21 dagur. Innlendur flugvallarskattur 1.310 kr., þýskur flugvallarskattur 237 kr., franskur flugvallarskattur 199 kr., austurískur flugvallarskattur 225 kr. SAS á íslandi - valfrelsi i flugi! Laugavegi 172 Sfml 62 22 11 VJS/S82WVaOA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.