Morgunblaðið - 03.06.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1993
19
Garnaveik kýr tveggja ára.
að sláturhúsið er í því hólfi og
garnaveikir gripir eru fluttir þang-
að til slátrunar. Allt sauðfé er þó
bólusett þar eins og áður segir.
Sama er að segja um önnur svæði
sem gripir frá Gunnarsholti hafa
verið fluttir til með leyfi Sauðfjár-
veikivama.
Það er réttmæt ábending sem
höfð er eftir „bændum sem gagn-
rýna sauðfjárveikivarnirnar" í
sama viðtali 10. mars að ýmislegt
sé ótryggt i framkvæmd vamanna,
svo sem ferðir véla og tækja, hlífð-
arföt fólks og annað sem óhreink-
ast af dýmm á sýktum stöðum.
Þetta er einmitt það sem heima-
menn sjálfir eiga að líta eftir, land-
búnaðarnefndir, riðunefndir og ein-
stakir bændur. Það gera ekki aðrir
betur. Þetta er tekið fram í reglu-
gerðum og þráfaldlega skorað á
menn að vera á varðbergi og er
gert hér ennþá einu sinni. Það er
þó óskynsamlegt að réttlæta
ógætni á einu sviði með því að
benda á aðra ógætni eða mistök.
Flutningur á túnþökum frá
Gunnarsholti að Loftsölum árið
1989 er nefndur í Morgunblaðsvið-
talinu 28. janúar. Sauðfjárveiki-
varnir gátu leyft hann vegna þess
að hann var hættulaus að okkar
dómi. Þökurnar voru teknar af frið-
uðu landi og svæðið sem þær fóm
á átti til öryggis að friða. Eg vænti
þess að það hafi verið gert.
Sóttkvíun sem boðin var er ekki
nógu örugg ef nautgripir eru flutt-
ir frá garnaveikisvæði á ósýkt
svæði, því að kýr geta gengið með
veikina langa ævi án þess að unnt
sé að sanna það, þótt venjulega sé
meðgöngutími tvö ár.
Af því sem hér hefur verið sagt
ætti að sjást að eðlilega hefur ver-
ið staðið að þessu máli. Ég hvet
Mýrdælinga til að standa saman
um varnir síns ágæta og tiltölulega
hreina svæðis hvað varðar smit-
sjúkdóma og láta ekki von um
óvissan gróða sem fáum yrði til
hagsbóta deyfa skynsemina. Ég hef
lagt til að Mýrdælingar sem eiga
Galloway-nautgripi, því að vissu-
lega eru þeir til í Mýrdal, hjálpi
ungu mönnunum af stað með því
að láta þá fá gripi af þeim stofni
til eldis.
Keldum, mars 1993.
Höfundur er sérfræðingur
Sauðfjársjúkdómanefndar.
Breskur
miðill á
*
Islandi
BRESKI miðillinn Marjory Kite mun
starfa á íslandi dagana 1. til 16. júní.
Þessa dag mun hún bjóða upp á
einkatíma sem eru 30 mínútur í senn.
í slíkum tímum eru veittar upplýs-
ingar frá framliðnum og persónuleg
ráðgjöf, segir í frétt frá Nýaldarsam-
tökunum.
Einnig mun Kite bjóða upp á þjálf-
unarnámskeið. Þátttakendum verður
kennt að auka skynjun sína á eigin
meðvitund og næmi. Einnig fer fram
heilun og heilunarkennsla á nám-
skeiðinu, laugardaginn 5. júní klukk-
an 13:30. Loks verður boðið upp á
tvær skyggnilýsingar, 3. og 10. júní
og hefjast þær klukkan 20:30. Allar
upplýsingar eru veittar hjá Nýaldar-
samtökunum.
♦ ♦ ♦
Fundur
um viðhorf
gagnvart út-
lendingum
FÉLAG nýrra íslendinga heldur mán-
aðarlegan félagsfund sinn í Gerðu-
bergi í kvöld 3. júní klukkan 20. Efni
fundarins verður „Viðhorf íslendinga
gagnvart útlendingum". FNÍ er fé-
lagsskapur fyrir útlendinga og vel-
unnara þeirra. Aðalmarkmið félags-
ins er að efla skilning milli fólks af
öllum þjóðemum sem býr á íslandi
með auknum menningarlegum og
félagslegum samskiptum. Fundir fé-
lagsins fara fram á ensku og eru
öllum opnir.
SJOMANNA
DAGURINN
í HAFNARFIRÐI
stendur fyrir Sjómannadagshófi
í Súlnasal Hótel Sögu á
Sjómannadaginn 6. júní.
Fordrykkur.
Veis lukvöldve rður.
Skemmtiatriði.
Er það satt sem þeir segja um landann.
Þórhallur "Laddi" Sigurðsson
Olafia Hrönn Jónsdóttir
Haraldur "Halli" Sigurðsson og
Hjálmar "ekkifréttamaður" Hjálmarsson.
Húsið opnað kl. 19.00.
Að loknu bórðhaldi kl. 23.00
hefst opinn dansleikur með hinni
vinsœlu hljómsveit
* Björgvins Halldórssonar.
Verð á dansleik kr. 850.-
- lofar góðu!
4
*
Þessa dagana er t
einstakt taekifæri
til að kaupa
allskonar vörur a
heildsöluverði.
aðeins nyjar
OG GÓÐAR VORUR
SK-............
SKÓR ..
Allor stserdir, margar gerdir.
Mikið^oM allskonar leikföngum.
búsáhöld og gjafavörur
Allskonar vörur.
geisladiskar og
kassettur
Nýtt og eldro effm.
*
rýmingarsala af ^4IKLIG4RDUR
HEILDSÖLULAGER markaður við sund_