Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
Ágreimngsmál Mývetninga
eftir Kristján
Þórhallsson
Tvö ágreiningsmál Mývetninga
hafa komist í hámæli utansveitar
að undanförnu.
Skólamálið
Annað þessara mála er skóla-
málið. Sveitarstjórn hefur nú sem
kunnugt er endanlega afgreitt það
mál í samræmi við tillögur
fræðsluskrifstofu umdæmisins,
þ.e. að Grunnskóli Skútustaða-
skólahverfis verði í nýju skólahúsi
í Reykjahlíð, en skólasel á Skútu-
stöðum fyrir 1.-3. bekk næstu 3
ár. Að sjálfsögðu ber að hlíta lög-
legum samþykktum meirihluta
bæði skólanefndar og sveitar-'
stjórnar í þessu máli, þó ekki séu
allir fyllilega sáttir við þau mála-
lok.
Vitanlega getur óbreytt skóla-
stefna aldrei gilt hér í Mývatns-
sveit um aldur og ævi. Nú er senn
lokið við að byggja vandað og
mjög fullkomið skólahús í Reykja-
hlíð sem verður væntanlega tilbúið
fyrir næsta skólaár. Hægt er að
kenna öllum nemendum í Mý-
vatnssveit í þessu húsi, og er sjálf-
sagt að nýta það til fulls eftir því
sem ástæður leyfa. Þegar bygging
hússins hófst voru nemendur hér
í sveitinni yfir 100 en nú 80. Þetta
kallar auðvitað á gjörbrejTta
skólastefnu. Enda líka talið hag-
kvæmast að kennsla fari fram á
einum stað. Menn verða að átta
sig á þessum staðreyndum þegar
verið er að fullmóta framtíðar
skólastefnu í Mývatnssveit.
Kripalujóga
Orka sem endist
Byrjendanámskeið hefst 7. júní.
Kennt mánud. og miðvikud. frá
kl. 16.30-18.00.
Kennari Áslaug Höskuldsdóttir.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
Kísiliðjan
Það vekur furðu að að hluta eru
sömu andstöðumenn við breytta
skólastefnu hér í sveitinni og vilja
jafnframt Kísiliðjuna burtu. Hver
er ástæðan?
Hún virðist vera orðin augljós.
Fólksfjölgunin í norðurhluta sveit-
arinnar vegna Kísiliðjunnar var
þeim slíkur þyrnir í augum því þá
mundu valdahlutföllin í sveitinni
breytast þeim í óhag. Þess vegna
þótti bráðnauðsynlegt að stöðva
starfsemi hennar með öllum ráðum
og fækka fólkinu áður en skóla-
húsið í Reykjahlíð yrði fullbyggt.
Þessir menn hafa reynt að telja
fólki trú um, að Kísiliðjan hafi
stórskaðað lífríki Mývatns. Þrátt
fyrir umfangsmiklar og fjárfrekar
rannsóknir í mörg ár hefur ekkert
sannast um tjón af hennar völdum.
Hins vegar er hægt að sanna
að með dælingu úr Ytriflóa hefur
raunar tekist að bjarga tilveru
hans sem er vissulega veruleg
náttúruvernd.
Um fugl og fisk
Andstæðingar Kísiliðjunnar
halda því aftur á móti fram að
dælingin úr hluta Ytriflóa hafi
stórskaðað lífríki Mývatns. Hvar
hafa þeir sannanir fyrir því? Þeir
segja að silungsveiðin hafi minnk-
að, fuglunum fækkað og hrópa
sífellt úlfur, úlfur.
Aldrei er talað um skaðsemi
minksins í Mývatnssveit síðari ár.
Þó er vitað að hann eyddi næstum
öllu varpi í Slútnesi, helsta varp-
svæði í Mývatni, og víðar hvarf
andavarpið að miklu eða öllu leyti.
brother
merkivélar
txother 2000
5 leturgerðir, 9 minni ofl.
brother 8000
10 leturgerðir, 6 stærðir,
Þ og Ð, strikamerki ofl.
Kristján Þórhallsson
„Það vekur furðu að að
hluta eru sömu and-
stöðumenn við breytta
skólastefnu hér í sveit-
inni og vilja jafnframt
Kísiliðjuna burtu.“
En fyrir dugnað Inga Yngvasonar,
minkaveiðimanns, hefur tekist að
halda minknum niðri hin síðari ár.
En ekki má slaka á eftirliti og
minkaveiðum ef ekki á allt að fara
í sama horfið. Enginn vafi er á
því að minknum tókst þegar verst
lét að fæla fuglinn burtu og
höggva stór skörð í stofninn á
Mýv&tni. Því miður bendir margt
til að hann sé farinn að ná sér upp
á nv.
Arið 1991 var mikið af fugli,
3M
Eyrnatappar
ekki síst unga, á vatninu enda
veður þá hagstætt og lífríkið í
miklum blóma. Sumarið 1992 virt-
ist varpið víða ætla að verða með
besta móti. En veðurofsar um
miðjan júní og Jónsmessuhret urðu
til þess að fuglinn afrækti hreiðrin
svo að örfáir ungar komust út á
vatnið. Auðvitað var þetta mikið
áfall fyrir stofninn. Undanfarna
daga hefur sést mikið af fugli hér
við Ytriflóa, og meira að talið er
en síðustu ár, miðað við árstíma.
Einnig vekja athygli stórir hópar
af húsönd sem sumir hafa haldið
fram að væri í mikilli útrýmingar-
hættu.
Enn hrópa andstæðingar Kísil-
iðjunnar „allt er dautt" vegna
dælingarinnar úr Ytriflóa. í októ-
ber 1991 kannaði undirritaður við-
horf félaga í Veiðifélagi Mývatns
til áframhaldandi starfsemi Kísil-
iðjunnar. Samtals 23 félagar eða
% félagsmanna lýstu stuðningi við
hana.
Þann 15. mars 1991 var á fundi
í Veiðifélagi Mývatns samþykkt
samhljóða tillaga þar sem net
skyldu ekki vera höfð í vatninu
að degi frá 1. ágúst til 27. septem-
ber. Sannað er að fuglinum og
ekki síst ungunum er hættara við
að fara í netin á daginn heldur
en um nætur. Menn höfðu nú hald-
ið að slíkt mundi stuðla að frekari
náttúruvernd, en hvað skeður?
Stjórn Veiðifélags Mývatns fékkst
ekki til að framfylgja þessari sam-
þykkt þrátt fyrir ítrekuð tilmæli
félagsmanna 1991, og ekki heldur
sumarið 1992. Það er alvarlegt
mál að stjórnin, sem þykist vera
málsvari verndunar lífríkis Mý-
vatns þegar Kísiliðjan á í hlut,
fæst ekki til að fylgja framan-
greindri tillögu. Hvað veldur?
Bréf „bændanna“
10. mars sl. birtist bréf ritað
af fjórtánmenningum sem segjast
allir vera bændur á Mývatnssvæð-
inu. Þegar nánar er að kannað
hvaða bændur hér er um að ræða,
kemur í ljós að aðeins 6 búa við
Mývatn og enginn við Ytriflóa.
Þeir sem ekki búa á bökkum Mý-
vatns hafa enga möguleika til að
fylgjast nægilega vel með lífríki
þess og fuglastofnum. Engu að
síður skrifa þessir fjórtánmenn-
ingar undir ósannaðar fullyrðingar
og segja í bréfinu, að rannsóknir
hafi ekki sýnt „neina aðra mögu-
lega skaðvalda fyrir hinni miklu
lífríkishnignun á svæðinu en
námugröft Kísiliðjunnar" og því
verði hún að hætta starfsemi eins
fljótt og auðið er, ef takast eigi
að bjarga svæðinu.
Sveiflur á silungsveiði
Mikið hefur verið rætt og ritað
um tíðar sveiflur á silungsveiði í
Mývatni og minnkandi afla. And-
stæðingar Kísiliðjunnar kenna
starfsemi hennar um. Ástæða er
til að skoða þetta ofurlítið nánar.
Stefán Stefánsson í Ytri-Neslönd-
um, f. 1854, d. 1929, ritaði mikið
um veiði í Mývatni og m.a., að
eftir því sem næst yrði komist og
eftir sögnum gömlu mannanna,
þá hefði hver aldan rekið aðra, að
veiðileysisár hafa komið mörg ár
í röð og svo aftur nokkur aflaár
mismunandi mikil.
Hjálmar Helgason, f. 1833, d.
1916, sagði oft margt um veiði-
skap og annað frá fyrri tíð. Hann
sagði að faðir sinn hefði sagt sér
að einar þrjár bröndur hefðu veiðst
yfir heilt sumar á Skútustöðum
og eitt árið hefði úr öllu Mývatni
verið dregin ein branda á dorg.
Þá segir Þorgrímur Starri í við-
tali við Þjóðviljann 1959 m.a.:
„Veiðin hefur alltaf gengið í öld-
um, alltaf verið áraskipti að sil-
ungsmagninu í vatninu og byggist
það vafalaust á tíðarfarinu. Hins
vegar er þess ekki að dyljast að
hið alvarlega veiðileysi nú stafar
af miklu leyti af ofveiði á undan-
förnum árum. Ný gerð tækni er
komin til sögunnar, nælonnet, vél-
bátar og netafjöldinn er úr hófi
fram.“
Þessar tilvitnanir í gagnmerka
menn sýna og sanna að miklar
sveiflur voru í lífríki og veiði í
Mývatni löngu fyrir daga Kísiliðj-
unnar.
Síðustu ár má því um kenna
óhagstæðu veðurfari, skefjalausri
sókn, engri ræktun og miklu full-
komnari tækni, - en Kísiliðjunni
ekki.
Höfundur er fyrrverandi
starfsmaður Kísiliðjunnar og býr
að Björk í Mývatnssveit
•./tiHn-nnnt'V':,.
æsileg sumarvara!
Langur laugardagdr framundan - opiö frá kl. 10.00 til 17.00
*5 :
' S. J f.
SNIDUC
BLAÐA-
CRIND
ÁAÐEINS
KR. 3.700,-.
EINNIG
MIKIÐ ÚRVAL
AF TÁGA-
VÖRU.
* 1 - ">-■
- > •* ■'
1 i!
j 6 CLÖS í PAKKA
i|| ÁAÐEINS
395,
CHUBB -STÓLARNIR ERU KOMNIR AFTUR!
KR. 9.490,- STGR. PÚÐARNIR KR. 1.990,-.
lliBiii
habitat DECK sólstólar. vandaðir
EIKARSTÓLAR í MÖRGUM LITUM. VERÐ KR. 2.950,-.
"| •
HINIR SÍVINSÆLU
CAMP LEIKSTJÓRASTÓLAR V----------------------------------------------------------—------'
ákr.2.400,- LAUGAVEGI 13 - SÍMI (91) 625870