Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
37 k
HELGARTILBODIN
MATVÆLI eru fyrirferðarmest í helgartilboðum stórmarkaðanna
þessa vikuna, nema í Miklagarði þar sem rýmingarsala í sérvöru-
deildum er ennþá. Hægt er að fá telpukjóla á tæpar 2.000 krónur nú
í stað tæplega 5.000 kr. áður og 30% afsláttur er veittur af öllum
geisladiskum. í Kjöti og fisk hefur verið opnuð búsáhaldaverslun,
en engin tilboðsverð eru á vörum þaðan. I Fjarðarkaupum verður
lögð áhersla á að kynna vörur frá Heinz og í Nóatúni eru nýir ís-
lenskir tómatar komnir niður í 189 kr. kg.
300 g af Nóa súkkulaði-rúsínum
kosta 159 kr. í Bónus og 3 bréf
af Hos örbylgjupoppi kosta 82 kr.
Athyglisvert tilboð er á kjötvörum
i Fjarðarkaupum, bæði á nauta-og
lambakjöti. Einnig er athyglisvert
tilboð á grillkjöti í Kjöti og fiski.
BÓNUS
Tilboðin gilda frá fimmtudegi til
laugardags.
Hos Micro Popp 3 bréf.....82 kr.
D. Pasta skrúfur 500 g....43 kr.
Bónus WÚ pappír (íslenskur)
12 rúllur....... 229 kr.
Cornfleaks 1 kg .. 199 kr.
Nóa rúsínur 300 g 159 kr.
4 stórborgarar með
sósu og brauði 298 kr.
MIKLIGARÐUR
Engin sérstök tilboð á mat-
vöru en rýmingarsalan er
í fullum gangi.
Herraúlpur....
Herraskyrtur ....
Bamaflauelsbuxur
500 kr.
Telpukjólar............1.995 kr.
Dömupeysur.............1.495 kr.
Geisladiskar.......30% afsláttur
Sportskór nr. 35 - 46 ...995 kr.
Herraskór..............1.995 kr.
KJÖT OG FISKUR
í versluninni er tilboðsveggur með
30 mismunandi tilboðum. Á
fimmtudögum eru 10-15 tegundir
af grænmeti og ávextir á tilboðs-
verði, á mánudögum er tilboðsverð
395 kr. kg. á ýsuflökum, á þriðju-
dögum á lcjötfarsi 295 kr. kg, á
miðvikudögum á saltkjöti 449 kr.
kg, en helgartilboðin eru eftirfar-
andi:
Nautahakk................598 kr. kg
Lambagrillsneiðar.....720 kr. kg
Svínagrilisneiðar.....590 kr. kg
Orwille Mikropopp.....99 kr. pk.
Toffypopskex..............89 kr. pk.
21 kók 2x6 ....799 kr. kippan.
FJARÐARKAUP
Tilboðin gilda miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag.
Ananas kurl ‘Adós..........25 kr.
Aspas hvítur‘/2............59 kr.
Macvites súkkulaðikex
400 g.....................105 kr.
Snap Jacks kex fruit
ogcountry..................95 kr.
Niðurskorin 3ja koma
ogPálmabrauð...............98 kr.
Pampers bleijur...........897 kr.
Tómatsósa Hunts 680 g......98 kr.
Nautaframhryggsfile...998 kr. kg
Grilllærissneiðar......929 kr. kg
Nautagrillsneiðar......998 kr. kg
Kindabjúgu.............429 kr. kg
NÓATÚN
Þessi tilboð standa til miðvikudags
íslenskirtómatar.......189 kr. kg
Appelsínur l.flokkur.......69 kr.
2 stk. hvítlauksbrauð
Myllan....................139 kr.
Lambagrillsneiðar......599 kr. kg
Svínabógsneiðar........699 kr. kg
E1 Marino kaffi 454 g.....179 kr.
Maryland kex blátt 150 g...69 kr.
Hraunbitar stór pakki.....159 kr.
Vatnsmelónur............98 kr. kg
Hollenskar bökunar-
kartöflur...............59 kr. kg
2 stk. Kappahl sokkabuxur
samanípakka...............299 kr.
■
Hreinsun
á rimlagluggatjöldum
RIMLAGLUGGATJÖLD
hafa um árabil notið mikilla
vinsælda jafnt á heimilum
sem og á skrifstofum. Oft
vefst fyrir fólki hvemig best
sé að þrífa þau. Þótt tjöldin
séu tekin niður og þvegin
vandlega i baðkari er oft ill-
mögulegt að ná óhreinindum
af böndunum. Séu tjöldin
ekki þurrkuð nægilega vel
er líka hætta á að ryðrákir
myndist á rimla og uppistöð-
ur.
Til þess að fyrirbyggja óhöpp
af þessu tagi þykir mörgum
þægilegt að setja tjöldin ein-
faldlega í hreinsun. Nokkrir
aðilar, t.d. Stjömuþvottur,
Tæknihreinsun og Álnabær,
taka að sér þrif og viðgerðir á
rimla-, strimla- og plíseruðum
gluggatjöldum. Venjuleg
hreinsun á rimlatjöldum í
Stjömuþvotti kostar 435 kr. en
séu tjöldin jafnframt afraf-
mögnuð og teflonhúðuð kostar
hreinsunin 495 kr. Hreinsun
og afrafmögnun í Tæknihreins-
un kostar 450 kr. Starfsmenn
beggja fyrirtækjanna koma
heim, taka tjöldin niður og
hengja þau upp að hreinsun
lokinni, samdægurs eða daginn
eftir án aukaþóknunar.
Með því að strjúka af tjöld-
unum með þurrum klút eða
ryksuga þau annað slagið ætti
að nægja að setja þau í hreins-
un á eins eða eins og hálfs árs
fresti. Rimlatjöld fyrir eldhús-
glugga safna í sig meiri fitu
og óhreinindum og væri æski-
legt að hreinsa þau á hálfs árs
fresti. ■
Þeir sem vilja „andabrauó"
geta sparað allt að 50% íbrauðkaupum
DAGSGÖMUL brauð
eru sums staðar seld
með verulegum af-
slætti, allt að 50%
samkvæmt lauslegri
athugun Daglegs
lífs. Stundum er
einnig hægt að
kaupa rjóma sem
kominn er á síðasta
söludag, með 50%
afslætti, en hann
er til dæmis upp-
lagður í ís, sósur og
súpur.
Samsölubrauð hf og Myllan
selja brauð sem hafa 4 „lífdaga".
Á umbúðirnar er stimplaður síðasti
söludagur, sem er 4. dagur frá
bakstri. Á 5. degi taka fyrirtækin
óseld brauð aftur og selja til svína-
fóðurgerðar. Kolbeinn Kristinsson
framkvæmdastjóri Myllunar sagðist
reikna með að um 7-10% framleiðsl-
unnar seldist ekki fersk. Aðrir við-
mælendur Daglegs lífs töldu rýrn-
unina svipaða. Kolbeinn sagði að
hjá Mylluni væri svolítið af 5 daga
gömlu brauði þurrkað og notað í
rasp, en afgangurinn seldur til
svínafóðurgerðar.
Erlendur Magnússon yfirmaður
Samsölubrauða tjáði okkur að verð
á gömlum brauðum væri reiknað
út frá næringargildi og allt af-
gangsbrauð selt í svínafóður. Kvað
hann þann kost mun hagkvæmari
en að henda brauðunum.
Gunnar Jóhannesson eigandi
Brauðbergs selur allar brauðvörur
með 50% afslætti daginn eftir
bakstur. „Sumir kaupa alltaf
dagsgömul brauð og eru mjög
ánægðir með að geta sparað þann-
ig, til dæmis stórar fjölskyldur eða
þeir sem hafa úr litlu að spila.“
Sagðist Gunnar yfirleitt ekki henda
miklu úr bakaríinu, enda væri prýði-
leg sala á dagsgömlum brauðum,
snúðum og vínarbrauðum.
í Björnsbakarfi varð Árni Krist-
inn Magnússon, eigandi, fyrir svör-
um og sagðist hann veita 20% af-
slátt af dagsgömlum brauðum.
Hluti af þeim væri þurrkaður og
notaður í rasp, og alltaf væru ein-
hveijir sem bæðu um anda-hesta-og
kindabrauð, en þau fengjust ókeyp-
is. Sagðist hann ekki verða var við
mikinn áhuga fólks á að kaupa
dagsgömul brauð til manneldis.
„Þeir sem versla í bakaraíium vilja
fyrst og fremst fersk brauð.“
Einstaka sinnum er hægt að fá
ijóma með 50% afslætti í verslun-
um, þegar komið er fram á síðasta
söludag. Hjá Mjólkursamsölunni
fengum við þær upplýsingar að 6
daga stimpill væri á ijóma, en þar
til fyrir tveimur árum hefði hann
verið 3 dagar. „Þá var algengara
að kaupmenn sætu uppi með rjóma
á síðasta söludegi, en núorðið ger-
ist það sárasjaldan,“ segir Eiríkur
Þorkelsson stöðvarstjóri. Þórhalla
Þórhallsdóttir verslunarstjóri í einni
af verslunum Hagkaups, sagði að
rjómi væri eina mjólkurafurðin sem
seld væri með afslætti á síðasta
söludegi og það kæmi fyrir um það
bil þrisvar til fjórum sinnum á ári.
TILBOÐ
BOLANDS
ftgrolls
HAGKAUP
- allt i einni ferö