Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
39
Minning
Grímur Eiríksson
í Ljótshólum
Við lát þessa nafna míns og ná-
frænda riflast upp hlýjar minningar
frá langri samleið, sem hófst er við
vorum smástrákar. Faðir Gríms, Ei-
ríkur Grímsson, frá Syðri-Reykjum
í Biskupstungum, og móðir mín Katr-
ín voru alsystkin, en þau ólust upp
í stórum systkinahópi, sem síðar
dreifðist víða. Fjögur fluttust til
Norðurlands, eða þær Ágústína á
Haukagili og Herdís í Vatnshlíð, auk
þeirra Eiríks og Katrínar. Er af þessu
ljós saga hvemig þessi grein Bol-
holtsættarinnar fluttist norður yfir
Kjöl, en Grímur afi okkar Gríms í
Ljótshóium var fjórði liður frá þeim
Bolholtshjónum Eiríki Jónssyni og
Kristínu Þorsteinsdóttur, sem bjuggu
í Bolholti á Rangárvöllum á árunum
1760 til 1783.
Móðir Gríms í Ljótshólum var Ing-
iríður Jónsdóttir, frá Ljótshólum, en
móðir hennar var Guðrún Eysteins-
dóttir, systir Björns er eitt sinn bjó
á Réttarhóli í Forsæludalskvíslum.
Með ýmsu móti bar Grímur Eiríks-
son svipmót feðra sinna er blandað-
ist þannig í persónuleika hans að
geðfellt var. Hann hafði glaða fram-
komu og kunni vel að halda á spaugs-
yrðum um menn og málefni, án þess
að sárindum ylli. Hann kunni mjög
skil á málefnum samfélagsins, en
krafðist, þar um, lítillar forustu þótt
nokkuð væri þar til kvaddur. Var
m.a. í skattanefnd Svínavatnshrepps
Sigurjón Sigtryggs-
son - Minning
Um páskana í vor frétti ég að
Siguijón Sigtryggsson fræðimaður
og rithöfundur á Siglufirði væri
kominn á sjúkrahúsið á Akureyri.
Mánuði seinna barst mér til útlanda
fregnin um andlát hans.
Liðið er hátt í hálfa öld síðan við
Siguijón hittumst fyrst, á matsölu á
Siglufirði. Fljótlega þróaðist með
okkur kunningsskapur og síðan vin-
átta sem varð því traustari sem
lengra leið. Síðustu árin stóð ég svo
í þakkarskuld við þennan gáfaða og
stórfróða mann fyrir ráð og leiðbein-
ingar sem hann gaf mér þegar ég
byijaði sjálfur að fást við grúsk.
Síðastliðna hálfa öld hafa orðið
aldahvörf hér á landi í mörgum efn-
um, ekki síst menntunarmöguleikum
ungs fólks. Það er freistandi að velta
fyrir sér hver hefði orðið ævibraut
Siguijóns Sigtryggssonar ef hann
hefði í æsku átt kost á að feta þá
beinu og breiðu braut til æðstu
mennta sem nú má heita opin hveij-
um unglingi, í stað þess að flytjast
milli þrettán heimila fyrstu fimmtán
æviárin og heíja síðan hina eiginlegu
lífsbaráttu í þrengingunum og at-
vinnuleysi heimskreppunnar miklu.
Lærdómur er raunar ekki einhlít-
ur til að vinna merkileg afrek, til
dæmis að rita merkar bækur. Til
þess þarf fyrst og fremst merkilega
menn, sem hafa metnað, greind og
eljusemi til að skila góðu verki. Þetta
hefur þó ýmsum greindum og gegn-
um mönnum tekist í hjáverkum frá
erfiðisvinnu og þrátt fyrir kröpp
æskukjör. Einn þeirra var Siguijón
Sigtryggsson.
Prentaðar bækur Siguijóns eru í
sex bindum, Sjóferðaminningar Sig-
urpáls Steinþórssonar, Frá
Hvannadölum til Úlfsdala í þrem
bindum og Hreiðarsstaðakotsætt í
tveim. Greinar hans í Súlum, Sögu
og Siglfirðingabók, Skagfirskum
æviskrám og víðar nema eflaust
vænu bindi. Otalið er þá stærsta og
merkasta verk hans, sem ekki var
að fullu lokið þegar hann lést, en
það eru æviskrár Siglfirðinga og
Ólafsfirðinga allt aftur til 1835. Það
verk var þó svo langt komið, að
horfur eru á að það verði gefið út
innan skamms og mun þá væntan-
lega fylla nokkur bindi.
Hér verður ekki rakið lífshlaup
Siguijóns í einstökum atriðum. Það
var gert í ágætri minningargrein
Þorsteins Jónssonar ættfræðings,
sem birtist á útfarardaginn, og
ástæðulaust er að endurtaka. Til-
gangurinn með þessum orðum er
einungis að votta minningu góðs
vinar og ágæts fræðimanns skyld-
uga virðingu og ástvinum hans sam-
úð.
Benedikt Sigurðsson.
Ávarp frá landsfundi um
óháð Island, 22. maí 1993
Samningurinn um Evrópskt efna-
hagssvæði hefur nú verið lögfestur
án þess að leitað hafi verið eftir áliti
þjóðarinnar á þessu afdrifaríka máli.
Við afgreiðslu málsins var horft
framhjá gildum álitsgerðum sér-
fræðinga um að samningurinn gangi
gegn íslensku stjómarskránni og
undirskriftum nær 35 þúsund kjós-
enda undir kröfuna um þjóðarat-
kvæði.
Þótt samningurinn sé enn ekki
genginn í gildi er þegar komið í ljós
að ákvæði hans binda hendur Al-
þingis. Samstaða um óháð ísland
hafði ítrekað uppi vamaðarorð um
þetta efni, en nú fyrst em augu
margra að opnast fyrir alvöru máls-
ins. Ennfremur hefur komið í ljós
að fullyrðingar talsmanna samnings-
ins um fjárhagslegan ávinning af
honum standast engan veginn.
Það kerfi sem innleika á með EES
er andlýðræðislegt, leiðir til langtum
minni áhrifa kjörinna fulltrúa, auk-
ins valds embættismanna og minni
möguleika almennings til áhrifa.
Þetta kerfí mun jafnframt verða
afar kostnaðarsamt.
Enn hafa ekki verið lögfest frum-
vörp sem að sögn stjómvalda áttu
að koma í stað undanþáguákvæða,
m.a. um kaup á landi, auðlindir í
jörðu og virkjunarrétt fallvatna.
Komið hefur í ljós að ekki er eins
auðvelt og haldið var fram að setja
slík ákvæði í lög, nema þá skerða
vemlega rétt íslendinga sjálfra. Yfir-
ráð þjóðarinnar yfir auðlindum til
lands og sjávar eru því í hættu.
Með samþykkt samningsins hafa
þau öfl orðið ofan á sem vilja feta
slóðina inn í Evrópubandalagið. Hins
vegar vex nú andstaða almennings
í öðmm EFTA-ríkjum gegn inn-
göngu í Evrópubandalagið og gæti
það orðið til að snúa þessari þróun
við.
Samstaða hefur mikilvægu hlut-
verki að gegna. Samtökin munu
upplýsa um skaðleg áhrif EES-
samningsins og leita lags til að koma
í, veg fyrir að hann festist í sessi.
Ákvæði samningsins eru þannig að
möguleikar einstakra þjóðríkja til
að hafa áhrif á framvindu mála em
afar takmarkaðir. Evrópubandalagið
ræður ferðinni um mótun og út-
færslu nýrrar löggjafar á samnings-
sviðinu og nær daglega bætast við
nýjar samþykktir sem EFTA-ríkin
em nauðbeygð til að fallast á.
Samstaða mun áfram vinna gegn
öllum tilraunum til að innlima ísland
í Evrópubandalagið. í því efni eiga
samtökin samleið með öflugum
fjöldahreyfingum á öðmm Norður-
löndum. Samstaða um óháð ísland
heitir á íslendinga að halda vöku
sinni til vamar sjálfstæði þjóðarinn-
ar og endurheimta það sem tapast
hefur.
um árabil. Grímur var bóndi í Ljóts-
hólum á ámnum 1946 til 1970, er
hann hætti búskapnum vegna heilsu-
brests. Dvaldi hann þó, allmörg ár,
hér nyrðra, eftir búskaparlokin, og
var þá á tímabili gjaldkeri og reikn-
ingshaldari Húnavallaskóla. Eftir að
hann flutti til Reykjavíkur gerðist
hann vaktmaður í stjómarráðshúsinu
meðan heilsan leyfði. Samviskusemi
hans og drengskapur í störfum var
óbrigðul og á gleðistundum var hann
heill og léttur. Hann var söngvinn
og spilaði nokkuð á orgel, eins og
faðir hans hafði gert, meðan hans
naut við. Heimilið í Ljótshólum ein-
kenndist af snyrtimennsku og hlý-
Ieika er orsakaði vellíðan þeirra er
þar komu eða dvöldu.
Árið 1947 gekk Grímur að eiga
Ástríði Siguijónsdóttur frá Rútsstöð-
um í Svínadal og var því skammt
að sækja brúðina, aðeins yfir Svína-
dalsána að fara, sem ekki gat talist
farartálmi. Ásta, eins og hún er jafn-
an nefnd, hefir reynst manni sínum
frábær förunautur, og síðustu árin
þurfti nafni minn mjög á ástriki og
umhyggju konu sinnar að halda, er
heilsa hans þvarr.
Börn þeirra Ástu og Gríms eru
þau Eiríkur og Anna, bæði vel gefin
og hið glæsilegasta fólk. Bera þau
bæði mjög merki uppruna síns.
Nú þegar nafni minn frá Ljótshól-
um er allur er mér efst í huga hvað
það var gott að eiga hann að frænda
og vini. Hvað það var gott að blanda
við hann geði og ég sakna þess að
hafa ekki getað notið þess sem skyldi
eftir að langvegir aðskildu okkur.
Ég er þakklátur fyrir allar stundimar
sem ég dvaldi á heimili þeirra hjóna
og ég og kona mín biðjum Ástu,
bömunum, bamabömum og vensla-
mönnum blessunar.
Grímur Gíslason frá Saurbæ.
Tómsfundaskólinn
kynnir
grillnómskeið sumarið '93
Lærðu rétfu hcmdtökin
við grillið
• Grilluppskriftir fylgja
• Leiðbeinf um val ó hróefni
• Umhirða grilltækja
• Grilloð ó Thermos-grilli
Tími: 10. og 14. júní kl. 19.30
Leiðbeinandi: Egill Hólm
Skróning stendur yfir
1ÓMSTUNDA
SKOLINN
Grensásvegi 16a
Sími 67 72 22
Weetabix $
Alpen morgunmatur er hollur og orkuríkur matur fyrir þá sem
skila löngu dagsverki. Trefjarnar fyrir meltinguna og
vítamínin bæta heilsuna.
ALPEN ER KRÖFTUGT OG GOTT MORGUNKORN.