Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGljR.3. JÚNÍ 1993.
44
Minning
Gréta Sigurborg
Guðjónsdóttír
Fædd 4. ágúst 1910
Dáin 22. mai 1993
Hún er farin, hún amma Gréta,
farin til ástvina sem henni þótti
vænt um. Hún er farin í annan
heim þar sem ríkir eilífur friður.
Amma var sannfærð um að þegar
við yfirgæfum þessa jarðvist yrði
tekið á móti okkur af látnum ástvin-
um. Hún kveið ekki dauðanum en
lifði að því er virtist sátt við hin
óumflýjanlegu endalok. Þetta lífs-
viðhorf hafði mikil áhrif á okkur
bamabörnin.
Amma Gréta var yndislegur per-
sónuleiki, skemmtileg blanda af
dreymnum húmorista og alvarlegri
raunsæismanneskju. Hún hafði
þetta skemmtilega yfirbragð alda-
mótakynslóðarinnar, en var þó svo
nútímaleg í hugsun og öllu fasi.
Hún var falleg og alltaf fallega
klædd. Það var svo skrítið með
hana ömmu að okkur fannst hún
aldrei verða gömul.
Hún gat gert mikið grín að sjálfri
sér og tók sig aldrei of hátíðlega.
Mest allra hló hún sjálf þegar henni
var strítt á „„fussinu", eins og við
krakkamir kölluðum það ef hún
vandaði um við okkur. Amma var
sannur vinur okkar krakkanna, vin-
ur og andlegur félagi. Með ólíkind-
um var hversu vel hún fylgdist með
lífshlaupi okkar allra. Tengslin inn-
an stórfjölskyldunnar héldust því
betur fyrir hennar tilstilli. Hún sam-
einaði okkur öll á sinn ljúfa hátt.
Amma var einstaklega fordóma-
laus og hafði ríka réttlætiskennd.
Alltaf varði hún þá sem minna
máttu sin í þjóðfélaginu og minnti
okkur krakkana á rétt verðmæta-
mat. Að hennar mati voru veraldleg
gæði og metorð ekki réttur mæli-
kvarði á hamingju heldur heiðar-
leiki, mannkærleikur, umburðar-
lyndi og nægjusemi. Að þessu búum
við öll bamabömin og fínnum það
líklega best núna þegar hún er far-
in hve jafnréttishugsjón hennar
hefur haft mikil áhrif á lífsviðhorf
okkar.
Guð hefur kallað ömmu til sín.
Gott er að trúa því að nú líði henni
vel hjá fólkinu sínu sem henni og
okkur þótti svo vænt um. Nú er
hún hjá foreldrum sínum, afa Ólafí
og okkar yndislega föður, Matthíasi
Haraldssyni, sem var henni sem
annar sonur. Pabbi og amma vora
miklir mátar. Hann gat alltaf látið
henni líða vel og komið henni til
að hlæja. Við þurfum ekki að kvíða
því að skilja við þennan heim þegar
þar að kemur því þá taka þau á
móti okkur.
Amma Gréta hafði mikinn styrk
af tra sinni á Guð og eilíft líf. Það
er okkar styrkur nú. Við þökkum
elsku hjartans ömmu fyrir allt.
Asa, Brynja, Valgerður og Tinna.
Hún amma Gréta er látin. Með
nokkram orðum langar mig að
minnast hennar og þakka fyrir þær
stundir sem við áttum saman.
Mínar fyrstu minningar um
ömmu era frá því að ég fékk að
vera hjá henni í klukkubúðinni á
Skólavörðustígnum. Mér fannst
hún mjög merkileg kona og það
besta var að hún var amma mín.
Hún var reyndar ekkert voða upp-
tekin af mér sem lítilli stelpu, held-
ur naut ég hennar mest þegar ég
var orðin eldri og við gátum „stúd-
erað“ saman lífið og tilverana og
fólkið sem í henni hrærist.
Hún amma mín var mjög ættfróð
og spurði margra spurninga til að
vita hver tilheyrði hveijum. Svo
mikill var áhuginn, að hún vissi
allt um ættir kærasta vinkvenna
minna. Stundum þurfti að hringja
í viðkomandi til að fá nánari upplýs-
ingar, því að ég vissi sjaldnast
meir en skímamafnið.
Þegar ég lagði af stað til náms-
dvalar til Hollands í ágúst á síðasta
ári þótti henni verst ef ég skyldi
bindast einhveijum útlendingi. Ekki
vegna þess að hún væri hrædd um
að ég myndi festast þar, því að hún
var viss um að mér tækist að draga
hann hingað heim með ákveðninni
sem ég hefði erft frá henni, heldur
vegna þess að þá gæti hún ekki
rakið ættir hans.
Oft og iðulega hringdi hún í mig
til að koma með uppástungur um
hvað viturlegast væri fyrir mig að
gera í framtíðinni. í einni af þeim
símhringingum vildi hún allt í einu
óð og uppvæg fara að senda mig
upp í háskóla. Þegar ég fór að benda
henni á að enn væri nokkur tími í
stúdentsprófíð sagði hún: „Nei, ég
á ekki við það, ég meinti að þú
gætir farið þangað og skoðað þig
um, hvort það væri ekki einhver
sem þér litist á, helst úr Iögfræði
eða læknadeild."
Ég hafði lúmskt gaman af þess-
um heilabrotum hennar, og þótti
óneitanlega vænt um alla þá um-
hyggju sem hún bar fyrir mér. Hún
vildi tryggja mér öragga framtíð.
Svona fylgdist hún með okkur
öllum 18 bamabömunum, bar hag
okkar allra fyrir bijósti og var stolt
af okkur öllum. Við voram líka stolt
af henni. Hún var sú sem fyrst fékk
að vita öll leyndarmál og átti trún-
að okkar allra. Oft þegar maður
frétti svo seinna af fjölgun í íjöl-
skyldunni heyrðist hún segja: „Ég
er búin að vita þetta Iengi.“ Hún
kunni að þegja yfír því sem ekki
átti að tala um.
Hún amma mín reiddist aldrei
eða móðgaðist. Hún gat orðið þreytt
og sagði oft: „Jæja, farðu nú að
drífa þig heim.“ En alltaf sagði hún
það á þann hátt að maður fór að
hlæja og annaðhvort fór að tygja
sig af stáð eða sagði henni að hún
réði því nú bara ekkert hvenær
gestir færa.
Hún var hrein og bein, mild,
skemmtileg og svo litríkur persónu-
leiki að fá orð í minningargrein
duga skammt.
Hún amma mín var merkileg
kona og minningamar um hana era
mér dýrmætar.
Vertu sæl, mér svífur yfir
sífellt blessuð minning þín.
Vertu sæl, ég veit þú lifir,
veit þú hugsar enn til mín.
Guð geymi ömmu okkar sem gaf
okkur svo mikið.
Fyrir hönd okkar systkina,
Gréta Sigpirborg Guðjónsdóttir.
Yndisleg kona er horfín sjónum
okkar í bili. Okkur fannst hún hlyti
að vera eilíf, svo stór og órjúfanleg-
ur hluti var hún af tilvera okkar
allra. Einhvem veginn er það svo
ótrúlegt að hún sé farin frá okkur,
þó að mikil veikindi á undanfömum
tólf áram gerðu það að verkum, að
í undirmeðvitundinni áttum við von
á því, að þessi stund myndi renna
upp fyrr heldur en síðar.
Gréta Sigurborg, tengdamóðir
mín, var um margra hluta sakir
stórmerkileg kona, sem hélt reisn
sinni, andlegri heilsu og mikilleik
fram á síðasta dag. Ást og um-
hyggju bama sinna, tengdabama,
bamabama og maka þeirra, átti
hún í þeim ríkasta mæli, sem verða
kann. Það var fagurt að fylgjast
með umhyggju og ást barna hennar
við sjúkrabeðið, vikuna sem hún lá
nú á Borgarspítala Reykjavíkur
hinsta sinni.
Á Borgarspítalanum og eins á
Landspítalanum, hjartadeildum,
átti hún alltaf vísan stað, ef um
skyndileg áföll var að ræða.
Hún var svo lánsöm að eiga þess
kost að búa sínu „búi“ eins og hún
sagði sjálf, fram til síðasta dags
nánast. Reyndar með góðri og
dyggri aðstoð hjúkranarfræðings í
heimahjúkran og skal henni það
mjög vel þakkað.
Gréta var „„sjálfs sín herra“ og
fylgdist vel með öllu sínu fólki í
stóra og smáu. Hún bar mikla ást
til fjölskyldu sinnar og gætti þess
að vera í stöðugu sambandi við alla.
Var þá ekki gerður greinarmunur
á börnum, tengdabörnum, barna-
börnum eða tengdabamabömum.
Alltaf gaman að fjalla um menn
og málefni, góðar bækur, ljós,
krossgátur eða hannyrðir.
Ekki var sjaldan skipst á upp-
skriftum ýmist símleiðis eða í ná-
vígi. Gaman og gagnlegt var að
fylgjast með því hversu vel hún
náði til allra. I þessu var auðvitað
fólgin smá stjórnsemi, sem okkur
þótti dálítið notaleg.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast henni á öðram, ólíkum vett-
vangi en í faðmi fjölskyldunnar.
Við unnum saman í tuttugu og
fímm ár. Hún tengdamóðir mín var
„fín“ verslunardama af guðs náð.
Hafði gerst verslunardama ung að
áram í Ámundabúð á Hverfísgöt-
unni, einni af virtustu verslunum
Reykjavíkur í þá daga. Hún starf-
aði síðar hjá frú Önnu Friðriksson
í tískuversluninni Nínon í Banka-
stræti og þar eignaðist hún góða
vinkonu, frú Ástu Eiríksdóttur,
ekkju Svavars Guðnasonar listmál-
ara. Hafa þær haldið góðu vináttu-
sambandi ætíð síðan. Einnig starf-
aði Gréta um tíma í Hattaverslun
Ingibjargar Bjarna í Bankastræti.
Þaðan „rændi" ég henni eiginlega
og fékk hana til starfa í úraverslun
minni, sem fyrst var til húsa í Vest-
urveri við Aðalstræti, síðan á Vest-
urgötu og eftir það á Skólavörðu-
stíg. Þetta var framraun mín á sviði
verslunarreksturs. Góðan „hauk“
átti ég í homi þar sem Gréta var.
Hún var fljót að setja sig inn í allt,
sem laut að þeirri starfsgrein sem
úraviðgerðir og verslun með úr og
klukkur var. Eg tel að við höfum á
margan hátt verið lík. Hún var að
minnsta kosti með báða fætur á
jörðinni, raunsæ og hafði ákveðnar
skoðanir. Hag verslunarinnar bar
hún fyrir bijósti, sem hún væri
hennar eigin. Ég veit að ég tala
fyrir munn nágranna okkar á Skóla-
vörðustígnum, að þar var hún hvers
manns hugljúfi og átti vináttu
þeirra, sem þar stunduðu verslun-
ar-, veitinga- og iðnrekstur. Það
vora ófáir sem gengu við hjá henni,
settust í stólinn þar og ræddu um
daginn og veginn. Mig granar meira
að segja að nokkrir hafi verið smá-
skotnir í henni. Það era ekki nema
nokkrar vikur síðan hún sat við
gluggann okkar á Skólavörðustígn-
um og horfði á lífið fyrir utan og
undi sér við að horfa á gömlu kunn-
ingjana á fleygiferð í hringiðu hins
daglega lífs.
Ég þakka fyrir þann tíma sem
við áttum saman. Við vissum ná-
kvæmlega hvar við höfðum hvort
annað. Það bar aldrei nokkum
skugga á okkar samvera og sam-
vinnu. Mikið þakklæti kemur upp í
hugann, þegar hugsað er til síðustu
daga hennar á sjúkrabeði. Þar naut
hún svo frábærrar umönnunar og
mannlegrar hlýju að eigi verður á
betra kosið. Læknar og starfsfólk
hjarta- og öldranardeilda Borgar-
spítalans, þar sem hún dvaldi á síð-
asta ári, svo og læknar og hjúkrun-
arfólk hjarta- og lyíjadeilda Land-
spítalans, eiga þakkir skildar fyrir
umönnunina, skilninginn og hlýj-
una, sem Gréta mín naut og við
ekki síður.
Hinsta stundin var friðsæl og
fögur. Hún umvafði okkur öll og
við hana. Hún gerði okkur stundina
léttbæra, þessi „stóra" kona. Þakk-
læti er mér í huga fyrir að hafa
fengið að vera í nálægð á þeirri
stundu. Við eigum eftir að sakna
Grétu mikið. Það var engin sú stund
til í stórfjölskyldunni að hún væri
ekki með í veisluhöldum og öllum
mannfagnuði á hátíðarstundum.
Ættmóðirin sjálf í hásæti, hvort
heldur var skírnarveisla, brúðkaup-
sveisla, afmæli eða áfanga fagnað
á menntabraut. Það var henni hjart-
ans mál að fjölskylda hennar öðlað-
ist góða menntun. Því fylgdi hún
gjarnan eftir á sinn hátt, því unga
fólkið tók mikið mark á hennar
orðum og ráðleggingum. Flestir í
fjölskyldunni höfðu símasamband
daglega eða litu inn, sem gefur
hugmynd um hversu náin tengslin
vora.
Ógleymanlegt verður okkur
ferðalag sem hófst á Stokkseyri,
síðan lá leiðin um Þrastarskóg með
viðkomu hjá góðum vinum. Þaðan
um Þingvallasveit og fagrar sveitir
Borgarfjarðar. Þetta var um versl-
unarmannahelgi fyrir tæpum
tveimur árum í sól og sumri. Hlýjar
móttökur fengum við hjá góðri
frænku í Borgamesi. Þá lék Gréta
á als oddi.
Besta vinkona Grétu, Lilja Sig-
urðardóttir, hugsaði vel og elsku-
lega um hana. Þær höfðu daglegt
símasamband og gættu vel hvor
annarrar. Lærdómsríkt er að fylgj-
ast með slíkri tryggð og væntum-
þykju. Hennar söknuður er líka sár.
Margs er að minnast og fyrir
margt er að þakka. Gréta var góð
og guðhrædd kona. Ég veit að góð-
ur guð leiðir hana á æðri vegum.
Tengdamóður mína kveð ég með
hennar orðum; „Guð geymi þig.“
Helgi.
Er nóttin lægir stormsins þunga þyt
og þreyttir hvílast eftir dagsins strit,
er eins og lífið breyti allt um blæ
og borgin fái annan svip og lit. '
Svo Ijúfri stund má enginn grýta á glæ,
er guðafriður vefst um lönd og sæ
og gott á sá, sem gat við lífið sætzt,
og gleymt, að hann er einn í stórum bæ.
(D.S.)
Borgin fær svo sannarlega annan
svip, þegar ekki er lengur hægt að
koma í heimsókn á Reynimelinn og
enginn svarar í síma 15796.
Elsku Gréta, en þú ræktaðir
garðinn þinn svo vel að það vora
margir sem vöndu komur sínar á
Reynimelinn. Bömin þín, tengda-
bömin, vinir og svo öll ömmubömin
og langömmubömin og það er stór
og fallegur hópur. Samband þitt við
unga fólkið var alveg einstakt. Þú
vart ekki bara amma þeirra, þú
áttir þau sem vini, trúnaðarvini.
Fallegt og skemmtilegt samband.
Allir vora til í að fara á flakk með
ömmu, fara í heimsókn, eða á kaffi-
hús, kíkja í búðir. Kolaportið heim-
sóttum við og drakkum þar kaffí.
Þú varst meira að segja að ráðgera
að fara á nýtt kaffíhús, Kaffí Par-
ís. Svo stundimar sem þú áttir ein
vora sem betur fer ekki eins marg-
ar og hjá mörgum sem era orðnir
einir.
En þú kunnir líka að vera ein.
Þá var bæði hugur og hönd síupp-
tekin. Þá lést þú fara vel um þig í
góðum stól, hlustaðir á fjölmiðlana
og sinntir handavinnu. Ég gæti trú-
að að þú slægir met í afköstum í
handavinnu. Við höfum öll meira
eða minna notið góðs af handavinn-
unni þinni. Peysur, hosur, treflar,
útsaumaðar veggmyndir, stólar,
hekluð rúmteppi, lopateppi til að
slá um sig, til að hlýja sér, púðar
í sófann, sérvéttuhringir og
diskadúkar þegar lagt var á borð á
hátíðarstundum. Sjölin og peysurn-
ar sem við höfum gefíð vinum í
útlöndum, allt er þetta handavinnan
þín. Þú sérð þú verður áfram með
okkur, bæði í anda og verki og það
er góð tilfínning. Ég veit ég tala
ekki bara fyrir mig, heldur marga
aðra. Það er mikil list hvernig þú
raðaðir saman litum. Síminn var
þér góður félagi og hafðir þú hann
ávallt í nálægð. Þú hafðir gaman
af að lesa góðar bækur. Góð bók
og nammi voru bestu gjafimar sem
þú fékkst. Krossgátur voru líka í
uppáhaldi hjá þér, þú lagðir líka
oft kapal og hafðir gaman af að
spila á spil. Við spiluðum stundum
vist á sunnudögum, þegar þið
mamma komuð og borðuðuð með
okkur. Þið. mamma höfðuð svo
margt að ræða um, t.d. Mýramenn,
því að þangað áttuð þið báðar ætt-
ir að rekja.
Það er aldrei auðvelt fyrir mig
að skrifa, en það er auðvelt að
hugsa til baka og minnast sam-
skipta okkar. Það hafa farið ljótar
sögur af tengdamömmum, en ég
hef ekki fundið eina einustu sem
passar við þig og okkar samband.
Mig langaði að kveðja þig með
nokkram orðum og þakka þér sam-
fylgdina. Ég hef minnst þess hvem-
ig þú hefur haft það síðustu æviár-
in. En þar á undan áttir þú auðvit-
að mörg ár.
Þú fæddist í Reykjavík, ólst upp
í Aðalstræti, sönn Reykjavíkurmær.
Hittir glæsilegan ungan mann, Ólaf
Hafstein Einarsson kennara. Þið
genguð í hjónaband og eignuðust
fjögur böm, þrjár dætur og einn
son. Lengst af bjugguð þið á Ljós-
vallagötu 8, í góðu vinfengi við
gamla kirkjugarðinn. Þú vannst
alltaf úti við verslunarstörf, sam-
hliða heimilinu, sem ekki var venju-
legt í þá daga. En einkasyninum
höfum við deilt með okkur í aldar-
flórðung og höfum við gefíð þér
þijú barnabörn. Guðjón átti áður
soninn Geir. En saman eigum við
alnöfnu þína, Grétu Sigurborgu,
Stefán og Guðnýju Kristrúnu, sem
öll sakna ömmu Grétu núna, en
þakklát fyrir að hafa haft þig svona
lengi.
Ég má til með að minnast á eina
mjög sérstaka ferð sem við fóram
ásamt Elínu, Deddu elstu dóttur
þinni. Það var Amríkuferðin, eins
og við kölluðum hana.
Lagt var af stað í mikilli hríð á
gamlársdag 1982. Áhöld vora um
hvort hægt væri að fljúga vegna
veðurs. Ferðinni var heitið til Cleve-
land, Ohio. Þú áttir að fara í hjarta-
aðgerð. Aðgerðin gekk vel, en eftir-
köstin vora erfið og bára þig næst-
um ofurliði. Það horfði ekki vel fyr-
ir okkur fylgdarkonunum. Þá vora
góð ráð dýr. Þú hafðir legið í níu
sólarhringa í öndunarvél eftir að-
gerðina og þrekið var á þrotum.
Við Dedda gerðum okkur grein fyr-
ir hvert stefndi. Við urðum að taka
til okkar ráða. Þama dugðu iækna-
vísindin ekki til. Þú varst að gefast
upp. Við akváðum að breyta um
meðferð. í staðinn fyrir að vera
góðar og elskulegar við þig, þá
skipulögðum við árás. Fyrst fór
Dedda inn til þín og hundskammaði
þig fyrir að bregðast skyldum þín-
um, eiginmaðurinn lasburða heima
og þú búin að gefa allt frá þér. Því
næst gekk ég inn og var öskureið
og andstyggileg sem aldrei fyrr og
gekk út af gjörgæslunni með mikl-
um þjósti þetta kvöld. Árangurinn
lét ekki á sér standa. Seinna um
kvöldið hringdi vakthafandi hjúkr-
unarfræðingur og sagði okkur að
þú gerðir allt sem þér bæri, hreyfð-
ir þig og andaðir vel. Sem sagt,
værir vöknuð til lífsins. Öndunarvél-
ina yfírgafst þú næsta dag og allt
gekk eftir. Þetta era einu hörðu
orðin sem okkur fóra í millum. Það
er margs að minnast á langri leið.
Ánægjuleg ferðalög með ykkur
Ólafi um Noreg, Svíþjóð og Dan-
mörku, þegar við Guðjón bjuggum
í Noregi.
Það verður tómlegt næsta að-
fangadagskvöld. Mér fannst hátíðin
halda innreið sína þegar þið Ólafur
komuð rétt fyrir kl. 18.00. Það eru
tæp fimm ár síðan Ólafur dó, en
þú hélst áfram að koma.
Mig langar að nefna það hér,
hvað ég er alltaf þakklát tengdaföð-
ur mínum, Ólafi, fyrir þá sérstöku
hlýju og umhyggju sem hann sýndi
mér, þegar pabbi minn dó 1969.
Það voru engin orð sögð á þann
veg, en ég fann að hann reyndi að
bæta mér föðurmissinn.
Ég hef haft þessa kveðju á léttum
nótum, þannig voru okkar sam-
skipti. Síðasta boðið sem við vorum
saman í var 50 ára afmæli Matt-
híasar tengdasonar þíns 30. apríl