Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
mmmn
... sáttaumleitan
TM Reg. U.S Pat Off. — all rights reserved
® 1993 Los Angeles Times Syndicate
Þetta minnir mig á að bróðir þinn kemur í kvöldmat á morgun.
HÖGNI HRI.KKVÍSI
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reylgavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Er kreppa á Islandi?
Frá Karli Ormssyni:
VIÐ SEM höfum atvinnu verðum,
og sýnum það í verki, að vera ekki
sífellt með ósanngjarnar kröfur á
þjóðfélagið, það bætir engra hag.
Hugsum til nágranna okkar sem
við viljum helst bera okkur saman
við, þar gerir fólk nánast allt til
að halda atvinnu, hvað þá að
nokkrum detti í hug að hvetja til
vita gagnslausra verkfalla. Þær
þjóðir eru að berjast við hærri
vexti, meiri verðbólgu, langtum
meira atvinnuleysi, atvinnuleysi
hér er núna 4-5%, í Danmörku
og Svíþjóð er það 9-10%, í Þýzka-
landi og Bretlandi 10-15%, í Finn-
landi 20-30% og hjá frændum
okkar í Færeyjum stefnir í 40-50%
atvinnuleysi. Meðan við krefjumst
hærri launa og boðum verkföll eru
Finnar að semja um kauplækkun
og skattalækkun.
Skattahlutfall íslendinga er þó
þrátt fyrir allt lægst af þessum
löndum og með því lægsta í Evr-
ópu, og þykir þó flestum nóg um,
sem betur fer er þjóðin það vel
upplýst að þorri hennar veit þetta
allt, en okkur hættir við að þráast
við að gefa nokkuð eftir af því sem
við höfum einu sinni hreppt, jafn-
vel þó það sé gervihagsæld. Þetta
er svipað og í þeirri gömlu revíu;
allir vita þetta en enginn sér það.
Ég geri mér alveg ljóst að ekki
geta allir lagt eins mikið af mörk-
um til að bæta okkar þjóðarhag,
enda ekki ætlast til þess af stjórn-
völdum. En í heildina höfum við
íslendingar það gott og það
minnsta sem við getum, sem at-
vinnu höfum, er að kreljast ekki
meira meðan þjóðin réttir úr kútn-
um. Það hefur víst oft verið vitnað
í orð Abrahams Lincolns Banda-
ríkjaforseta: Spyrðu ekki hvað þjóð
þín getur gert fyrir þig, spyrðu
heldur hvað þú getur gert fyrir
þjóð þína. Þessi sömu orð endurtók
Kennedy forseti í innsetning-
arræðu sinni 1960. Ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar er staðráðin í
því að halda áfram á sömu braut
sem hún er á og koma þjóðinni
upp úr skuldafeni erlendra lána
og því sjóðasukki sem óprúttnir
stjómmálamenn hafa safnað í ára-
tugi af algjöru þekkingarleysi.
Það er satt hjá forsætisráðherra,
að fáar stéttir hafa tekið meira á
sig til að rétta hag þjóðarinnar en
bændur. Það verður að skapa þeirri
stétt þau skilyrði að geta keppt
við þjóðir EES þegar og ef við
göngum í hið evrópska efnahags-
samband. Bændur hafa verið tæld-
ir út í hveija tilraunabúgreinina
af annarri síðustu árin með væg-
ast sagt stundum hrikalegum af-
leiðingum. Fyrrverandi forsætis-
ráðherra stakk upp á því (í alvöru)
að bændur ræktuðu ánamaðka,
sem aukabúgrein, þvílíkur stór-
hugur, með allri virðingu fyrir
þeirri nytjaskepnu, ánamaðkinum.
Nú segir fyrrverandi forsætisráð-
herra að möguleikar okkar séu
ótakmarkaðir, því notaði hann ekki
tækifærið þá tvo áratugi sem hann
átti aðild að ríkisstjórn, eða fór
sjálfur með völdin? Ef okkur bæri
gæfu til að leggjast öll á eitt að
ráðast að rótum vandans í eitt
skipti fyrir öll og tryggja þar með
varanlega efnahagslegt sjálfstæði
okkar væri það eitt af stærstu
gæfusporum sem við gætum stigið.
KARL ORMSSON,
Huldulandi 5,
Reykjavík.
Nokkur orð um guðleysi
Frá Konráð Friðfinnssyni:
GUÐ skapaði heiminn og allt sem
í honum er. Og enn í dag á Guð
heiminn þó að heimurinn hafi kos-
ið að snúa baki sínu í Guð og val-
ið þá afleitu leið að ganga á hinum
breiða vegi blekkingarinnar undir
handleiðslu þess er ræður yfir
heiminum. Þ.e. Satan. En þetta
kemur glöggt fram þá er Satan
freistaði Jesús: „Þá fór hann með
hann upp og sýndi honum á auga-
bragði öll ríki veraldar. Og djöfull-
inn sagði við hann: Þér mun ég
gefa allt þetta veldi og dýrð þess,
því mér er það í hendur fengið,
og get gefið það hverjum er ég
vil. Ef þú fellur fram og tilbiður
mig, skal það allt verða þitt.“ (Lúk:
4,5-7.)
En Jesús lét ekki freistast þrátt
fyrir girnilegt boð. Hann benti
okkur hins vegar á aðra ágætari
leið. Guði sé lof.
Sú hugmyndafræði er byggir
einvörðungu á mannasetningum
fær ekki staðist tímans tönn. Slíkt
Víkveqi
Skrifari lagði land undir fót í síð-
asta mánuði og kom þá meðal
annars við á flugvöllum í Kaup-
mannahöfn, Vínarborg og London.
Það sem vakti sérstaka athygli hans
og samferðarmanna í þessu ferða-
lagi var hversu mjög flugfélög hafa
aukið eigið- Ttirlit. Þannig var fjór-
um sinnum spurt um vegabréf á
flugvöllunum; fyrst þegar óskað var
eftir ákveðnum sætisnúmerum fyrir
hópinn nokkrum tímum fyrir brott-
för, aftur þegar farangur var af-
greiddur inn í kerfið og brottfarar-
spjald afhent og loks þegar farið
var um borð í vélina. Að sjálfsögðu
var einnig óskað eftir vegabréfi
þegar hópurinn fór í gegnum hið
hefðbundna vegabréfa- og vopna-
eftirlit.
Fróðir menn sögðu Víkveija að
þetta væri vegna þess að stöðugt
er útilokað. Og afleiðingar þess að
meirihluti mannkyns hafnar
Drottni vorum sem frelsara birtist
fólkinu með ýmsu móti. T.d. sem
stríðsátök, hungursneyð, deilur,
öfund, sálrænir og andlegir erfið-
leikar hjá fólki, og svo framvegis.
Tökum sem dæmi kommúnism-
ann og hugmyndafræðina er hann
stóð á. En hún bannaði mönnum
hreint og beint að tilbiðja Guð.
Kommarnir hugðust nefnilega og
alfarið reisa fyrirmyndarríki sitt
án nokkurs atbeina Almættisins.
Hveijar eru síðan staðreyndir
málsins? Einfaldlega þær að
draumurinn entist þeim í 70 ár.
Og er þeir vöknuðu, hvað blasti
þá við þeim? Sviðin og nakin jörð
er brauðfæðir vart fólkið. Saman-
ber Rússland nútímans. Og enn
leika menn blekkingarleiki en í
formi kapitalisma og fjármagns-
veldis. Sá „ismi“ ásamt og öðrum
„ismum" mun samt líða undir lok.
En í þessa veru er mannkynsagan
öll sömul skráð. Sem sagt, til skipt-
is velmegun og hrun hjá ríkjum
skrifar
ykist sókn fólks frá t.d. Afríku og
Austur-Evrópu til Vesturlanda án
þess að hafa fengið nauðsynleg leyfi
til dvalar í viðkomandi landi. Flug-
félög hafa þurft að bera mikinn
kostnað þar sem þau eru á vissan
hátt gerð ábyrg fyrir því fólki sem
ferðast með þeim og hafa þurft að
skila ferðalöngum með ófullnægj-
andi pappíra sömu leið til baka með
tilheyrandi amstri og óþægindum.
Flugleiðir hafa eins og önnur flugfé-
lög lent í erfiðleikum vegna slíks
fólks.
x x x
Flugleiðir hafa nýlega gert sam-
starfssamning við SAS-flug-
félagið um þjónustu við farþega
félagsins á Heathrow og er innritun
og þjónusta fyrir Flugleiðir nú í
nýrri og glæsilegri álmu flughafn-
og heimsálfum.
Er heimsbyggðin fékk pata af
að Serbar væru að stráfella músl-
ima í Bosníu-Herzegóvínu spurðu
menn hver annan þessara spurn-
inga: „Hvar er Guð núna? Hví læt-
ur hann þvílíkt og annað eins ger-
ast? Hefur hann gleymt þessu
fólki?“ En því er til að svara að
Guð hefur engum gleymt. Þvert á
móti að þá hafa mennirnir gleymt
Guði og þess vegna kallað yfir sig
þessar hörmungar. Fólk getur þar
af leiðandi aldrei kennt Drottni um
stríðs- eða hörmungarástands er
skapast, heldur Guðleysinu í heim-
inum. Það, og það, eitt er sökudólg-
urinn gegnum alla historíuna.
Þannig má í raun sjá að allt ber
að sama brunni í þessum efnum.
Ástæðurnar hafa þegar verið tí-
undaðar. Að halda öðru fram er
því miður blekking.
KONRÁÐ FRIÐFINNSSON,
Þórhólsgötu la
Neskaupstað.
arinnar. Víkveiji hafði reiknað með
að vistaskiptunum fylgdi bætt þjón-
usta en sú var ekki raunin sunnu-
dagskvöldið 23. maí. Fólk mátti
gera sér að góðu að bíða í allt að
tvær klukkustundir í biðröð áður
en það fékk afgreiðslu og voru sum-
ir að vonum orðnir þreyttir og leið-
ir á þessari bið. Starfsfólk SAS
gerði hvað það gat og reyndi að
sækja þá í röðina, sem ella kynnu
að hafa misst af flugvél sinni, en
annaði engan veginn umferðinni.
Nú er SAS ekki þekkt fyrir slaka
þjónustu - þvert á móti - og von-
andi var þetta kvöld undantekning-
in frá reglunni og fjöldi farþega
langt umfram það sem venjan er.
Fyrir fólkið sem eyddi tíma sínum
í biðröðinni var þetta þó einu skipti
of oft.