Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
55
Skortur
Frá Jóni Val Jenssyni:
Mikill aðstöðumunur er kominn
upp milli ríkra og fátækra á ís-
landi. Hingað til hafa flestir búið
við sæmileg lífskjör. 90% íslenzkra
fjölskyldna eiga eigið húsnæði, sem
er hátt hlutfall meðal þjóða heims.
En til eru minnihlutahópar, eigna-
laust fólk sem líður skort, þ. á m.
margir öryrkjar og ungar, ófag-
lærðar, einstæðar mæður, sem fá
ekki vinnu nema á lægstu launum.
Fjöldi einstæðra mæðra er um
6.300, með á tíunda þúsund böm á
framfæri sínu. 50% þessara mæðra
eiga ekki sitt eigið húsnæði. Neyð
þessa hóps fer nú vaxandi. 35%
einstæðra mæðra eru inni á foreldr-
um, ættingjum eða vinum, oft tíma-
bundið. Aðrar beijast erfiðri baráttu
í dýru leiguhúsnæði, eru á sífelldum
flutningum og líða skort. Margar
njóta einskis stuðnings frá foreldr-
um. Með því að vera nærri fátækt-
armörkum er þeim ókleift að leggja
til hliðar fé fyrir eigin húsnæði.
Börnin gjalda þessa aðstöðumunar,
því að þau fá ekki þann stuðning
sem þarf til að þroska hæfileika
sína, eðlilegt sjálfstraust og getu
til að sækja fram í menntun og
starfsþjálfun.
Hjálparstofnunin Móðir og barn,
sem var stofnuð í desember 1987,
vill styðja þessa minnstu fjölskyldu-
einingu með því að veita eignalaus-
um mæðrum húsnæðisaðstoð, eink-
um meðan börnin eru á viðkvæm-
asta skeiði. Fyrsta íbúð Móður og
bams var opnuð í nóvember 1989.
Nú í maí, 3‘A ári seinna, hefur 52
konum með 63 börn verið úthlutað
niðurgreiddum leiguíbúðum á veg-
um Móður og barns. Niðurgreiðslan
nemur 8.500 kr. á mánuði eða
102.000 þann árstíma, sem konan
hefur íbúðina. Það segir sína sögu
um afkomu þessara kvenna', að
þessi fjárhæð getur skipt sköpum
fyrir þær til að geta yfirleitt haldið
eigið heimili eða haft betur í barátt-
unni við að greiða niður skuldir.
Stofnunin vinnur þannig gegn því
að þessi smæsta fjölskyldueining
tvístrist og liðsinnir viðkomandi
mæðrum til að búa börnum sínum
öruggar uppeldisaðstæður. En Móð-
ir og barn skortir bæði húsnæði og
fjármuni til að sinna þessu starfi
sem bæri; vegna fjölda þeirra, sem
leita ásjár, um 300 frá upphafi,
Þegar bændur
mótmæltu símanum
Frá Valdimar Guðjónssyni:
það er alltaf nokkur hópur manna
sem hefur bændur og landbúnaðinn
illa á hornum sér. Hann er talinn
dragbítur framfara ekki aðeins í
fortíðinni heldur jafnvel enn í dag.
Hámarki hefur þessi áróður náð
með einstæðum þáttum Baldurs
Hermannssonar.
Kosturinn við þessa þætti var
lesturinn úr gömlum annálum. Fólk
heyrði þar ýmsan fróðleik sem var
gagnlegt því. almenningur les yfír-
leitt ekki bækur lengur. En ályktan-
ir Baldurs voru margar hreint
kostulegar. Alla þættina var fullyrt
að þetta og hitt hefði verið blóma-
brekkan ein, hefðu heimskir bænd-
ur ekki staðið í veginum.
ímyndum okkur að komin sé 24.
öldin. Sagfræðingi (eða efnafræð-
ingi) dettur í hug að gera sjónvarps-
þátt um 21. öldina. Að sönnu yrði
hér ekki fábreytt samfélag líkt og
Baldur fjallaði um en ímyndum
okkur útkomuna ef fólkinu og lífinu
í Reykjavík væri lýst út frá dómum
hæstaréttar eða sífelldum sifja-:
. spellsmálum. Menningu yrði að'
sjálfsögðu sleppt. Eða minntist
Baldur nokkuð á íslendingasögur
eða sagnahefð?
Að lokum þetta. Það er orðin
föst klisja í öllum tegundum fjöl-
miðla þegar tekið er dæmi um
þröngsýni eða afturhald að þetta
og hitt sé eins og þegar bændum
mótmæltu símanum. Þeir mót-
mæltu að sönnu. En hvers vegna?
Þeir (eflaust ekki allir bændur) og
ýmsir fleiri vildu frekar loftskeyta-
samband en síma. Hér var einfald-
lega deilu- og álitamál þess tíma.
Og ekki verður betur séð en við
íslendingar deilum enn innbyrðis.
Hér mætti nefna sæstreng, EES,
álver o.s.frv. Það má eflaust leiða
að því gild rök að fjarskiptatæknin
hefði þjónað fleirum og fyrr á ís-
landi hefði sú leið verið farin. Sím-
inn hefði hvort eð er komið. Hér
var því fremur framsýni en skamm-
sýni.
Bændur eru allavega, nú sem
fyrr á öldum. Veröldin er hvorki
svört né hvít. Verst er kannski að
við skyldum ekki álpast til að vera
eskimóar líkt og Baldur Hermanns-
son óskaði sér.
VALDIMAR GUÐJÓNSSON,
Gaulveijabæ.
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
T-bolur fannst
GRÁR og grænn T-bolur fannst
2. í hvítasunnu í Öskuhlíðinni.
Eigandi má hafa samband við
Ásu í síma 694176 til kl. 16 og
14710 eftir kl. 19.
Ljósmælir týndist
COSSEN ljósmælir tapaðist niðri
við Tjörn sl. laugardag. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 610044.
Hjól tapaðist
BLÁTT Muddy-fox-fjallahjól
með svörtum doppum hvarf frá
Víðimel aðfaranótt sunnudagsins
29. maí sl. Hafi einhver orðið
hjólsins var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 16757.
Gleraugu fundust
LESGLERAUGU (hálf) í leður-
hulstri fundust sl. sunnudags-
kvöld við Félagsheimilið í Kópa-
vogi. Upplýsingar í síma 41597.
GÆLUDÝR
Kettlingar
FJÓRIR svartir kettlingar fást
gefins. Upplýsingar í síma
651126.
Köttur tapast frá
Furugerði
STÓR fressköttur, svartur með
hvíta bringu, trýni og loppur tap-
aðist frá Furugerði. Er með
rauða hálsól og viðhengi með
símanúmerinu 37470. Gegnir
nafninu Mússa. Hafi einhver orð-
ið hans var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 37470.
Kettlingar
TVEIR gullfallegir, 9 vikna,
kassavanir kettlingar, Svalur og
Svala, fást gefins. Upplýsingar í
síma 46538.
verður að takmarka þessa aðstoð
við eitt ár fyrir hveija konu. Á þessu
ári hafa 33 konur bætzt við á bið-
lista, en aðeins sex íbúðir losnað á
sama tíma. Þörfin og neyðin er
mikil, en þær konur verða að ganga
fyrir, sem eru lægst launaðar og
búa við erfíðustu aðstæður.
Móðir og barn leitar nú til al-
mennings um stuðning við þetta
starf, með föstu styrktarmannatil-
lagi. Eins leitar stofnunin eftir hag-
kvæmu húsnæði, einstaklings- og
tveggja herbergja íbúðum. En hent-
ugasta lausn á þessum húsnæðis-
skorti er að útvega stofnuninni hús
sem hýst gæti margar konur, sem
myndu hafa sameiginlegt eldhús og
aðra aðstöðu. Með því móti yrði
heimilisreksturinn hagkvæmari
bæði fyrir konurnar sjálfar og
stofnunina — rafmagns-, hita- og
símakostnaður minni, barnagæzla
auðveldari o.s.frv. Ef rúmgott hús
stendur til boða á vægum kjörum,
er stofnunin reiðubúin að láta fara
fram þær umbætur sem til þarf til
að skipta því niður í smærri eining-
ar.
Við í stjórn Móður og barns heit-
um á landsmenn að bregðast vel
við kalli okkar um að efla þessa
húsnæðisaðstoð eins og þörfin kref-
ur. Með því erum við að stuðla að
réttlátara samfélagi, sem býr börn-
um sínum mannsæmandi aðstæður.
JÓN VALUR JENSSON
Sjálfseignarstofnunin
Móðir og barn
Sólvallagata 32 A, Reykjavík
Pennavinir
Tvítug Ghanastúlka með áhuga
á íþróttum, ferðalögum og ljós-
myndun:
Juliana Johnsen,
P.O. Box 1309,
Oguaa,
Ghana.
Ellefu ára sænsk stúlka með
áhuga á dýrum og náttúrulífí, frí-
merkjum, tónlist (þverflautu), o.fl.;
Kristina Gavare,
Körsbargsvágen 4,
S-43543 Mölnlycke,
Sverige.
Fráskilinn 55 ára bandarískur
karlmaður með margvísleg áhuga-
mál vill skrifast á við konur:
Irving Doress,
31 Boston Avenue,
Somerville,
MA 02144,
U.S.A.
Tvítug Ghanastúlka með áhuga
á tónlist, póstkortum og Ijósmynd-
un:
Margaret Afful,
P.O. Box 1309,
Oguaa,
Ghana.
/r
LA PRiMAVERA
RISTORANTE
Innilegar þakkir til þeirra, er sýndu mér vin-
semd og hlýhug með heimsóknum, skeytum
og símtölum á níutíu ára afmœli mínu þann
26. maí sl.
Jónina Margrét Egilsdóttir
frá Lágu-Kotey,
Melgerði 24, Kópavogi.
- uti og inm -
Varanleg lausi
Gegnheilar útiflísar ^
á svalir.tröppur, sólstofui
og jafnvel bílskúrinn.
Dœmi: 8 rrftvalir. FITsar 20 x 20 kr. 15.840
frosthelt lím oa arófur fúai kr. 1.750
17.590
Sumorafslótti ir 10% kr. 1.760
Ódýrara en þú hélst. kr. 15.830
Ný sending
á ótrúlegu verði
Amsterdam
LEIÐRÉTTIN G AR
Verð frá kr. 65.950,- staðgr.
Stuðlaberg í
Suðursveit
í Morgunblaðinu 30. maí á bak-
síðu birtist mynd af stuðlabergi.
Tekið skal fram að bérgið er í Borg-
arhafnarfjalli, sem er í Suðursveit.
Nafn misritaðist
I sjávarútvegsblaði Morgun-
blaðsins í gær er rætt við tvo trillu-
karla í Reykjavík. Er annar þeirra
þar nefndur Einar Sigurðsson.
Hann heitir hins vegar Elmar og
er beðist velvirðingar á mistökun-
um.
Dæmi: Visa raðgreiðslur til 18 mánaða,
engin útborgun. Kr. 3.993,- á mán. ca.
Smiðjuvegi 6,
Kópavogi.
Sími 44544.
I 1 utl bihUt
| Meimenþúgeturímyridadþér!