Morgunblaðið - 05.06.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JUNI 1993
Ungir sjálfstæðismenn kjósa í sumar
Tveir sælgast eftir
formannsembætti
JÓNAS Fr. Jónsson, lög-fræðing-ur Verslunarráðs íslands og stjórnar-
maður í Sambandi ungra sjálfstæðismanna (SUS), lýsti yfir því á
fundi með ungum sjálfstæðismönnum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi
að hann gæfi kost á sér til formennsku í SUS á þingi sambandsins
í sumar. Starfandi formaður SUS, Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórn-
málafræðinemi, lýsti yfir framboði sínu í apríl síðastliðnum og segir
yfirlýsingu Jónasar um mótframboð engu breyta um framboð sitt.
Þing SUS verður haldið á Selfossi og í Hveragerði 13.-15. ágúst.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Jónas Fr. Jóns-
son sagði í sam-
tali við Morgun-
blaðið í gær að
hann hefði tekið
ákvörðun um
framboð eftir
fjölmarga fundi
og samtöl við
ungt sjálfstæð-
isfólk um allt
land. Jónas
sagði að ýmis-
legt hafi verið
vel gert í starfi
saihbandsins á
undanfömum
árum en þó
mætti margt
betur fara. SUS
þyrfti til dæmis
að auka vægi sitt í þjóðfélagsum-
ræðunni og standa betur að því að
kynna hugsjónir sjálfstæðisstefn-
unnar meðal ungs fólks. Þá þyrfti
að benda því betur á þann árangur
sem ríkisstjómin hefði náð þrátt
fyrir þá erfiðu stöðu sem Islending-
ar væm í og stærsta verkefni SUS
á næstunni væri að ná aftur því
fylgi sem tapast hefði, frammi fyrir
sveitarstjómar- og alþingiskosning-
um. Þá myndi hann leggja sérstaka
áherslu á að bæta samstarf stjóm-
arinnar og aðildarfélaga á lands-
byggðinni.
Hef ekki orðið var við ósætti
Jónas Fr. Jónsson
hafi lagt, af hálfu Jónasar. „Ég hef
orðið var við mikinn stuðning með-
al ungs sjálfstæðisfólks, sem sýnir
sig best í því að yfir 200 manns
taka nú virkan þátt í málefnastarf-
inu. Kannski sést árangur starfsins
best í miklum stuðningi ungs fólks
við Sjálfstæðisflokkinn, eins og nýj-
ustu kannanir sýna. Fylgið er hlut-
fallslega langmest meðal þess. Ég
vona hins vegar og hef fulla trú
á, að þetta muni verða málefnaleg
og drengileg barátta."
Guðlaugur Þór sagðist hafa unn-
ið að mótun sterkrar málefnalegrar
stefnu SUS og að sem flestir tækju
þátt í starfí hreyfingarinnar, sam-
tímis því sem hann hafi haldið góð-
um tengslum við félögin innan SUS
og gera ungum sjálfstæðismönnum
á landsbyggðinni auðvelt að taka
virkan þátt í málefnastarfinu sem
og öðrum störfum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listahátíð sett í Hafnarfirði
LISTAHÁTÍÐ var sett í Kaplakrika í Hafnarfírði í
gærkvöld með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands,
hafnfírskra kóra og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur. Á með-
al gesta við setningu hátíðarinnar voru Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra og Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarstjóri í Hafnarfirði sem setti hátíð-
ina. I dag verða opnaðar sýningar fjögurra myndlistar-
manna og á morgun verða tónleikar Peters Mate píanó-
leikara í Hafnarborg og sýning kúbanskra dansara í
Straumi. Á minni myndinni setur Gunnar Gunnars-
son, formaður stjórnar Listahátíðar, hátíðina.
Heldur lifnar yfir hlutabréfaviðskiptum á V erðbréfaþingi Islands
Sölugengi hlutabréfa fer
hækkandi á markaðnum
VIÐSKIPTI með hlutabréf voru með líflegra móti í gSer, en alls
fóru í gegnum viðskiptakerfi Verðbréfaþings íslands viðskipti að
fjárhæð sjö milljónir króna. Viðskipti áttu sér stað með bréf í níu
hlutafélögum og hækkaði lokagengi hlutabréfa í sjö þeirra. Skráð-
viðskipti á Verðbréfaþingi í gær voru 14 óg að sögn Tómasar
Arnar Kristinssonar hjá Verðbréfaþingi er það með því mesta sem
verið hefur á einum degi eftir áramót. Þannig var heildarfjöldi
viðskipta í apríl og mai síðastliðnum í kringum 60 í hvorum mán-
uði fyrir sig.
„Ég hef ekki enn heyrt um
ástæður fyrir framboði Jónasar, og
reyndar hefur hann ekki tilkynnt
mér að hann hygðist bjóða sig
fram,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðar-
son, formaður SUS, í gærkvöldi.
Guðlaugur tók við formennsku i
vetur, þegar Davíð Stefánsson sagði
af sér
Aðspurður kvaðst Guðlaugur Þór
ekki hafa orðið var við ósætti við
þá stefnu og áherslur sem hann
♦ ♦ ♦-----
Datt fimm
metra af þaki
MAÐUR á sjötugsaldri slasaðist
þegar hann féll fimm metra ofan
af þaki húss við Síðumúla síðdeg-
is í gær.
Maðurinn var að vinna í stiga á
þakinu en féll til jarðar ofan í jáma-
hrúgu, að sögn lögreglu. Hann
meiddist á höfði og hlaut innvortis
meiðsli en mun þó ekki vera talinn
í lífshættu.
„Þó ekki sé hægt að fullyrða
neitt um þróunina á hlutabréfa-
markaði út frá einstaka degi gæti
þetta gefið vísbendingu um að íjár-
festar telji að verð á hlutabréfum
hafi náð botninum," sagði Tómas
Öm. Hann sagði ennfremur að við-
skipti vikunnar frá mánudegi til
fímmtudags hefðu verið með dauf-
ara móti og því hafí kippurinn í gær
komið á óvart. í kjölfarið gæti orð-
ið spennandi að fylgjast með verð-
þróun á hlutabréfamarkaðnum
næstu daga.
Flugleiðabréf á uppleið
í Flugleiðum áttu sér stað. við-
skipti með hlutabréf að fjárhæð 1,4
milljónir króna í gær. Lokagengi
bréfanna var 1,12 sem er hækkun
um 0,06 frá deginum áður. Þetta
er annan daginn í röð sem hluta-
bréfagengi Flugleiða hækkar um
0,06, en það stóð í 1,0 um miðja
vikuna. Í Olís námu viðskipti gær-
dagsins 1,8 milljónum. Lokagengið
var 1,8 sem er hækkun um 0,05
frá síðustu viðskiptum. í Jarðbor-
unum lækkaði gengi bréfa um 0,02
í 1,8 í skráðum viðskiptum dagsins
sem námu einnig 1,8 milljónum.
Mesta hækkun varð á Skeljungs-
bréfum, en þau hækkuðu úr 4,0 S
4,25 í viðskiptúm að fjárhæð 126
þúsund krónur. Þá hækkaði gengi
hlutabréfa í íslandsbanka um 0,15
í dag
Enn eitt áfallið
Blökkumenn eru æva.reiðir eftir að
Clinton dró til baka útnefningu
Lani Cuiniers 24
Rjúpunni fækkar enn____________
Einungis fundust 76 ijúpnapör í
Hrísey í vor 30
Norðurlandameistarar___________
Guðjón Hauksson og Friðrik Jak-
obsson eru Norðurlandameistarar
í parakeppni í pílukasti 50
jeiðari________________________
Samkeppni í stað verðlagshafta 26
Lesbók
► Veðurhorfur á næstu öld -
Nýtrúararhreyfingar og nýöld á
íslandi - Axarskaft Blóðaxar;
galdrar í Eglu- Ahrif kynþroska
á bleikju - Jan Mayen er Svalbarði
IRgraaabtabib
Menning/Listir
► Tónleikar Maté, Barueco og
Caput, sýningar Yampolski og
Huft - Sakari kveður Sinfóníuna
- Tónverk Straessers - Kórar og
orgel - Dæmdir höfundar
í 0,95 í viðskiptum sem námu 319
þúsundum. í Hampiðjunni skiptu
bréf að fjárhæð 941 þúsund krónur
um eigendur. Lokagengi var 1,16
sem er hækkun um 0,06 og hjá
Útgerðarfélagi Akureyrar hækkaði
gengi um 0,10 í 3,25 í viðskiptum
sem námu 173 milljónum. Hjá
Granda voru viðskipti að fjárhæð
358 þúsund og gengið hækkaði úr
1,70 í 1,80. Bréf í Marel lækkuðu
hins vegar um 0,04 í 2,50 en við-
skiptin voru 135 þúsund.
Borgarstjóri um versnandi fjárhagsstöðu
Ekki grípið til upp-
sagna starfsfólks
ARSREIKNINGUR Reykjavíkurborgar fyrir árið 1992 var lagður
fram til fyrri umræðu í borgarsljóm í fyrrakvöld. Þar kemur fram
að staða Reykjavíkurborgar, það er heildarskuldir umfram peninga-
legar eignir, versnaði á síðasta ári um 1.609 milljónir króna og staða
borgarsjóðs versnaði um 2.193 milljónir. í ræðu borgarsljóra kom
fram að þrátt fyrir verri stöðu borgarinnar legði meirihlutinn í
borgarstjóm áherslu á að grípa eklu til uppsagna starfsfólks að svo
stöddu til að lækka reksturskostnað.
Markús Öm Antonsson, borgar-
stjóri, sagði að sá efnahagsvandi
sem steðjað hafí að þjóðinni komi
að sjálfsögðu niður á Reykjavíkur-
borg eins og öðrum aðilum. Snögg
umskipti til hins verra setji mark
sitt á niðurstöður reikningsins varð-
andi minni tekjur en áætlaðar höfðu
verið á síðasta ári.
„Engu að síður hefur meirihlut-
inn í borgarstjóm haft það að ským
leiðarljósi, að Reykjavíkurborg
myndi ekki að svo stöddu grípa til
uppsagna starfsfólks í því skyni að
lækka reksturskostnað, heldur
myndi þvert á móti leitast við að
halda uppi fullum framkvæmda-
þrótti til að efla atvinnulífíð í borg-
inni almennt og skapa skólafólki
sumarstörf,“ sagði borgarstjóri.
Sérstakar aðgerðir
Hann sagði að þessu markmiði hefði
verið náð með lántöku til fram-
kvæmda og sérstakra aðgerða í
atvinnumálum. „Það ætti því eng-
um að koma á, óvart að skuldir
borgarinnar hækki milii ára af þess-
um sökum,“ sagði borgarstjóri.
Sjá bls. 18: „Staða borgarinnar..."
-----------------
Sauðárkrókur
Tveir á sjúkra-
hús eftir harð-
an árekstur
ÖKUMENN tveggja bifreiða sem
skullu saman á Sauðárkróki voru
fluttir á sjúkrahús í gærmorgun.
Um hálftima tók að ná öðrum
þeirra út úr bíl sínum.
Slysið var með þeim hætti, að
jeppa var ekið af Hólmagrunni’ inn
á Strandveg í veg fyrir fólksbil. Jepp-
inn valt við áreksturinn. Ökumenn
voru einir í bílum sínum og slösuðust
báðir, en dijúga stund tók að ná
ökumanni jeppans út. Meiðsl hans
voru minni en ætlað var í fyrstu.
Bilarnir eru mikið skemmdir.
í
t
1
I
«
I
I
«
I
i
I
1
I
*