Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 49 Hvalveiðar og vísindi Frá Sigurði H. Jóhannssyni: Tvö nýleg atvik hafa orðið mér nokkurt umhugsunarefni. Annað er hin furðulega hugmynd sem birtist í Morgunblaðinu nýverið eftir við- mælanda, að Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, hafí hugsan- lega gerst sekur um landráð fýrir að móðga forseta Bandaríkjanna. Þorsteinn Pálsson er viðurkennt prúðmenni sem er manna ólíkleg- astur til að valda hneyksli, enda voru þessi ummæli hans, í léttum dúr, alveg meinlaus. Hörundsvið- kvæmni forseta Bandaríkjanna er merkileg, ekki síst þegar hann eða hans maður er búinn að stórmóðga íslensku og norsku þjóðina með hótunum sem ekki er sæmandi menningarþjóð að viðhafa. Hitt var hugmynd Sigurðar Gizurarsonar um að fara að vinna með Green- peace. Sem sagt „getir þú ekki sigr- að óvininn gakktu í lið með hon- um“. Athyglisvert, en kannski að á því séu fleiri hliðar. Greenpeace, undir stjórn fárra manna, hefur nokkuð sérstakt við- horf til náttúruverndar svo ekki sé meira sagt. Þau hafa séð leið til að afla fjár með því að treysta á fákunnáttu fólks og afla sér stuðn- ings þar. Þeir fundu út að best væri að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Seli og smærri hvalategundir þekkja margir í dýra- görðum, þar eru þeir vinsælir, einn- ig í barnasögum. Veiði á þessum dýrum var aðallega stunduð af litl- um og lítilsmegandi þjóðum sér til viðurværis. Þarna sáu þeir að lítilla vama var að vænta svo þeir byij- uðu á selnum, sem þó var ekki í útrýmingarhættu, og tqkst svo vel að þeir lögðu í rúst á skömmum tíma lífsbjörg fátæks fólks en öfluðu ógrynni fjár meðal efnaðs en fákunnandi fólks, einkum í Bandaríkjunum. Hvað snerti hval- veiðar skipti nokkuð öðru máli. Hvalveiðiþjóðir og vísindamenn töldu að þær veiðar yrði að stunda af varfærni til að valda ekki skaða og voru nokkuð sammála að hætta veiðum nema vísindarpenn teldu það óhætt. Nú hafa rannsóknir vís- indamanna leitt í ljós að óhætt er að veiða að vissu marki. Green- peace hafði reynt að þetta var gull- náma fyrir þá. Þeir voru orðnir svo fjársterkir að þeir gátu keypt nóg af sjónvarpsstöðvum til að flytja sinn áróður og þeir höfðu efni á að afla sér búnaðar til að gera spennumyndir, sem sjónvarpsstöðv- arnar eru auðvitað fúsar til að sýna. Þeir sýndu myndir af mönnum að skjóta hvali en þeir sýndu ekki rán- hvali rífa aðra hvali í tætlur, drepa kálfana þeirra, seli o.fl. Greenpeace tókst meira að segja að leika fákunnandi efnafólk, eink- um í Bandaríkjunum, svo grátt að greiða samtökunum stórfé með „ættleiðingu hvala!!!“ og lofuðu því að þeir skyldu láta það vita hverju sinni hvar fóstri væri nú staddur og að sjá um að hlú að honum. Svo er nú það. Greenpeace greiðir at- vinnuleysingjum og alls konar fólki fáeina dollara fyrir að standa með mótmælaspjöld fyrir utan verslanir og veitingastaði. Hvað veit það fólk um hvali? Náttúruverndarsamtök telja fákunnandi fólk á að senda mönnum, tengdum hvalveiðum, níð- bréf og fyrir hvert bréf sem þetta fólk sendir greiðir það 10 dollara til samtakanna sem bjóðast tii þess að koma til hjálpar gegn djöfsa. Níðbréf, send norskum manni, sem hefur engin afskipti af hvalveiðum lengur, gaf hundruð þúsunda í aðra hönd. Færeysku þjóðinni hafa bor- ist þúsundir níðbréfa með þeim hjartanlegu fyrirbænum að þjóðin „megi farast í kjamorkusprengju og brenna í helvíti". Þá býður Greenpeace fyrirtækjum vemd og meðmæli gegn umtalsverðum fyár- hæðum, annars geti verr farið. Hvað má kalla það? Bandaríkin hafa valið þann kost að afneita þekkingu og vísindum en styðja heldur Greenpeace. Kannski hefðu færri lögfræðingar verið skotnir á Italíu ef þeir hefðu valið þann kost- inn að ganga í lið með mafíunni? Hvernig stendur á því að Green- peace hefur óáreitt komist upp með að valda því ógnartjóni sem þeir hafa valdið í heiminum? Hvers vegna sátu ráðamenn þjóða hjá meðan þeir 'voru að eyðileggja lífs- afkomu Inuita á norðurslóðum? Líklega er ástæðan sú að ábyrg- ir menn urðu of seinir til. Upphaf- lega vom Greenpeace verndarsam- tök og nutu samúðar fólks víða um heim sem hafði áhyggjur af eyðingu náttúrunnar og dýravemd. Svo komust þessi samtök í hendur fárra ósvífínna manna sem sáu gróðaveg í því að spila á þá samúð og fylgi sem verndarsamtökin höfðu áunnið sér. Á þessu hafa menn ekki varað sig. Veikgeðja og misvitrir stjórn- málamenn hafa álitið auðveldari leið til vinsælda að láta berast með straumnum heldur en að hagnýta þau vísindi sem fjöldinn virtist ekki skilja. Það er ekkert vafamál að ríkis- stjórn okkar er á réttri leið. Sjávar- útvegsráðherra vinnur af festu og öryggi, enda styðst hann við þekk- VELVAKANDI HEIMILISAÐSTOÐ ÞÝSK stúlka, Elke Horn, óskar eftir að fá að dveljast á íslensku heimili og aðstoða við heimilis- störf. Hún getur byijað þann 1. júlí og starfað um þriggja mán- aða skeið. Áhugasamir em góð- fúslega beðnir um að skrifa henni og er heimilisfang hennar eftirfarandi. ELKE HORN, Pfaffephofene str. 2, D-8049 Kammersberg, Deutsc- hland TAPAÐ/FUNDIÐ Fjallahjóli stolið LÝST er eftir svörtu fjallahjóli af Trek gerð og tegundarnafn þess ritað grænum stöfum. Því var stolið aðfaranótt 27. eða 28. maí úr bakgarði við Bragagötu 27. Þeir sem kynnu að hafa upp- lýsingar um hjólið em vinsam- legast beðnir að hafa samband í síma 23105 eftir klukkan 17. Fundarlaunum er heitið. Gleraugnahulstur hvarf RAUÐBLEIKT gleraugnahulst- ur hvarf úr hjólatösku þann 25. maí sl. Hulstrið innihélt verðmæt sjóngleraugu með brúnni um- gjörð. Einnig má finna linsu- hulstur í hulstrinu. Þeir sem upplýsingar geta veitt em beðnir um að hafa samband við Guð- laugu Helgu í síma 625201 eða 626355 milli 14 og 18. Lyklakippa fannst KIPPA með húslyklum fannst á Egilsgötu gegnt heilsugæslu- stöðinni um hádegisbilið 3. júní sl. Upplýsingar veitir Lúðvík í síma 25204 GÆLUDÝR Fjórir kettlingar FJÓRIR tveggja mánaða kettl- ingar fást gefins. Þrír þeirra eru svartir og hvítir en sá fjórði brön- dóttur. Upplýsingar fást í síma 812945. Tveir kettlingar TVEIR tíu vikna kettlingar fást gefins hjá Ásrúnu. Þeir eru brön- dóttir og vel vandir. Upplýsingar I síma 54178. ingu og vísindi ásamt reynslu sjó- manna. Málið er ekki tapað. Með- flytjendur em mestu menningar- þjóðir heims. Það tekur tíma að uppfræða lýð sem hefur verið af- vegaleiddur. Það verður þó að gera, ekki aðeins vegna hvalveiða, því peningavandamál Greenpeace mun fínna nýjar leiðir. Þeir hafa valið sér að nýta sér vanþekkingu manns- ins. Við höfum nokkuð góða hug- mynd um hvar næsta árás verður gerð. Ef við „fljótum með straumnum" (eins og það var orðað í útavarpsvið- tali við Sigurð Gizurarson) lendum við í vilpu. SIGURÐUR H. JÓHANNSSON, Æsufelli 6, Reykjavík. Pennavinir Frá Bandaríkjunum skrifar 41 árs karlmaður sem vill skrifast á við 18-25 ára konur: Thomas T. Evans, Jr., 143205/04-320, P.O.Box 488, Burkeville, Va., 23922 U.S.A. Frá Þýskalandi skrifar 16 ára stúlka með mikinn áhuga á íslensk- um hestum: Rebecca Wolf, L-Herrmann Strasse 30, 0-1055 Berlin, Germany. Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka með áhuga á ljósmyndun ogtónlist: Tanya Riverson, P.O. Box 124, Cape Coast, Ghana. íslensk, 33 ára kona, búsett í Svíþjóð sl. átta ár, segist hafa áhgua á öllu milli himins og jarðar. Gefur ekki upp nafn en bréf ættu að komast til skila með eftirfarandi utanáskrift: “Stenbocken“, Poste Restante, 55610 Jönköping, Sverige. LEIÐRETTINGAR 'i í *fi I Nýkomið Smart sumarjakkar og kápur með og án hettu. Fjölbreytt úrval. Verð frá kr. 7.900 1 Alltaf eitthvað nýtt á tilboðsslánni. Opið laugardaga til kl. 17. \ovvfM5IÐ Laugavegi 21, sími 25580. Viöskiptavinir athugið Verslun okkar verður lokuó á laugardögum í sumar frá 1. júní til 1. september. BílavörubúÓin FJÖÐRIN Skeifunni 2, sími 812944. Guðrún útskrif- aðist elst allra I myndatexta með grein um Guð- rúnu Jónsdóttur frá Prestabakka í sérblaðinu Daglegu lífí sem birtist föstudaginn 4. júní var rangt farið með staðreyndir. Þar er Guðrún sögð vera elsti nemandinn sem stundað hefur nám við Háskóla ís- lands. Hið rétta er að hún er elsta konan sem lokið hefur prófí við Háskólann en árið 1990 lauk hún BA-prófí í mannfræði. ^SHEER FNERGY SOKKABUXUR - Þunnar - Fallegar á fæti - Hæfilega glansandi - Endingargóðar Orkugjafinn frá Leggs, sokkabuxur sem gefa daglangt fótanudd. Nú í nýjum umbúðum. Islen.sk///// Ameríska KÆRA JEIENA 150 uppseldar sýningar 151. syning miövikud. 9. júní kl. 152. syning timmtud. 10. junTIU. 20.00 - *■ IS 'V M Ji. ÞJODLEIKHUSIÐ 4 simi 91-TT2tTo — Greiðslukorfa§>jónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.