Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Afleiðing röskunar í hringrás hafanna Samgönguráðuneyti Hiti færi und- ir frostmark TALIÐ er hugsanlegt að aukinn hiti á norðurhveli jarðar vegna gróðurhúsaáhrifa geti raskað hringrás hafanna og þar með Golfstraumnum með þeim afleiðingum að 6-8 stig- um kaldara yrði á stórum hluta Norður-Atlantshafs í ná- grenni íslands. Það þýddi að meðalhiti á íslandi yrði vei undir frostmarki. Þetta kemur fram í grein Trausta Jóns- sonar veðurfræðings og Tómasar Jóhannessonar jöklafræð- ings í Lesbók Morgunblaðsins í dag. Trausti og Tómas segja frá kenn- ingum bandaríska vísindamannsins .^Broecker um heildarhringrás heimshafanna og segja að hún geti skýrt margt í umræðu um veður- farsbreytingar. Hringrásin, sem gengur undir nafninu Færibandið meðal vísindamanna, leiðir til djúp- sjávarmyndunar suður af Græn- landi sem veitir Golfstraumnum norður eftir, til íslands. íslensku vísindamennirnir segja að ef jafnvægisástandið í höfunum raskist, til dæmis af völdum gróður- húsaáhrifa, geti hafstraumar breyst _ í árþúsundir með þeim afleiðingum að meðalhitinn á íslandi færi vel undir frostmarkið. Gróður í Sahara Trausti og Tómas nefna að eitt sinn hafi verið gróður í Saharaeyði- mörkinni og regnskógar Amazon- svæðisins mun minni en nú. Telja þeir líklegt að breytingar þar teng- ist öðru ástandi í hringrás heims- hafanna en nú ríkir og að í umræð- unni um gróðurhúsaáhrifin sé nauð- synlegt að taka tillit til hugsanlegra breytinga á Færibandinu. Sjá Lesbók, bls. 4-6: „Veður- horfur á næstu öld“. Halldór Blöndal samgönguráðherra Útboð sjónvarps- rása kemur tíl álita HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra telur koma til álita að bjóða út sjónvarpsrásir á örbylgju, en alls hefur verið sótt um 64 slíkar rásir til útvarpsréttarnefndar á sama tíma og einungis um 20 rásir eru til skiptanna. Áhugi umsækjenda beinist einkum að því að nota rásirnar til endurvarps á erlendu gervihnattasjón- 'varpi, en einnig er Háskóli Islands meðal umsækjenda og hefur hug á að nýta rásimar til kennslusjónvarps. Útboðsleiðin hefur verið farin í Bretlandi á þeirri forsendu að hér sé um takmarkaða auðlind að ræða, og við síðustu úthlutun þar missti til að mynda Thames-sjónvarpsstöðin rás þá sem stöðin hafði haft yfir að ráða um árabil vegna þess að annar umsækjandi bauð betur. I samtali við Morgunblaðið segir Halldór Blöndal að hann telji að út- varpsréttamefnd eigi að gæta þess almenna sjónarmiðs í þessu sam- bandi að nægilegt svigrúm verði til að hreint kennslusjónvarp geti þróast hér á landi. „Á hinn bóginn er aðkal- , .Jandi spuming hvemig skuli standa að því að varpa beint sjónvarpsefni sem viðkomandi leggur ekkert í. Raunar sé ég enga réttláta reglu um hvemig hægt sé að gera upp á milli einstaklinga og félaga þegar kemur Drukkiní bfltúr með ,föðumum FIMMTÁN ára stúlka ók bíl á staur á Flugvallarvegi í Reykja- vlk í fyrrinótt. Faðir hennar sat í framsæti bílsins. Telpan er talin hafa verið ölvuð við aksturinn, auk þess að vera réttindalaus. Hvorki hana né föður hennar sakaði, að sögn lögreglu, en bíllinn skemmdist nokkuð. að þessu. Við erum að úthluta verð- mætum og ég sé ekki annað en að útboðsleið komi þar til álita.“ Sjá miðsíðu: „Kapphlaupið um sjónvarpsrásirnar". Morgunblaðið/Einar Falur Forsetar við upphaf kvöldverðar GESTIR í kvöldverðarboði forseta íslands til heiðurs Portúgalsfor- seta á Hótel Sögu í gærkvöldi skörtuðu sínu fegursta. Við upp- haf kvöldverðarins stilltu frú Vigdís Finnbogadóttir, dr. Mário Soares og frú Maria Barroso Soares sér upp til myndatöku. Opin- ber heimsókn Portúgalsforseta hófst í gærmorgun og henni lýkur á morgun, sunnudag. Sjá nánar um heimsóknina á bls. 22-23 Starfsemi Framtíðcir- ferða verði rannsökuð SAMGONGURAÐUNEYTIÐ hefur óskað eftir að Rannsókn- arlögregla ríkisins rannsaki starfsemi Framtíðarferða sem undanfarna mánuði hafa selt fjölda íslendinga íbúðaréttindi í hóteli í Portúgal. Samkvæmt heimildum blaðsins fór ráðuneytið fram á rannsóknina þar sem kvartanir hafa borist vegna þess að fyrirtækið hafí ekki staðið við samninga. Þannig hafí Domino do Sol í Portúgal ekki fengið í hendur sinn hluta þeirra samninga sem Framtíðarferðir hafí gert við einstaklinga hér á landi. Það fólk sem keypt hafi sér íbúðaréttindi hafí þess vegna kom- ið að lokuðum dyrum í Portúgal. Börn á sjúkrahúsum Umönnun- arbætur til foreldra FORELDRAR barna sem dvelj- ast á sjúkrahúsi vegna lífs- hættulegs sjúkdóms og þarfn- ast yfirsetu foreldris eða fram- færenda geta nú sótt um umönnunarbætur frá Trygg- ingastofnun. Ákvæði fyrri reglugerðar um að barnið yrði að dvelja í heima- húsi og sjúkdómur eða fötlun hefði í för með sér tilfínnanleg útgjöld gerði það að verkum að ekki var unnt að sækja um greiðslur vegna bama sem dvöldu á sjúkrahúsi. Sjá bls. 17: Aukinn réttur sjúkra barna. Heildartap Sambands íslenskra samvinnufélaga 1,4 milljarðar í fyrra Endurskoðendur með fyrirvara í áritun sinni ENDURSKOÐENDUR Sambandsins telja að framvinda mála og óvissa hjá tveimur dótturfélögum kunni að skerða möguleika þess til að standa í skilum með skuldbinding- ar. I áritun í ársreikningi benda þeir á að sú staða kunni að leiða til þess að annað mat en það sem notað er í ársreikningum á eignum Sambandsins ætti betur við. „Hér er m.a. átt við þá alkunnu staðreynd að söluverð eigna er annað og lægra við þvingaða sölu þeirra heldur en það sem fæst við frjálsa samningsgerð,“ sagði Geir Geirsson endurskoðandi í umsögn sinni á aðalfundi Sam- bandsins í gær. Heildartap Sambandsins á sl. ári nam alls tæplega 1,4 milljörðum króna og vegur þar þyngst um 670 milljóna tap dótturfélaganna. Fram kom á allt það fé sem aðalfundinum að Sambandið hefur lagt til Jötuns og Miklagarðs er nú tapað og mjög gengið á framlag Sambandsins tii íslensks skinnaiðn- aðar á Akureyri. Áætlað tap Mikla- garðs á sl. ári er 472 milljónir, tap Jötuns var 151 milljón og Islensks skinnaiðnaðar 95 milljónir. Eigin- fjárstaða Miklagarðs og Jötuns var neikvæð um samtals 160 milljónir um áramótin en eiginfjárstaða ís- lensks skinnaiðnaðar rýmaði á sl. ári um 44%. Athugað með eignasölu Að sögn Sigurðar Markússonar, stjórnarformanns Sambandsins, er nú beðið eftir endanlegu uppgjöri fyrir Miklagarð og mun stjórnin ráða ráðum sínum eftir það vegna frekari sölu eigna. Hann sagðist vona að sala á þeim einingum Mik- lagarðs sem eftir eru, þ.e. verslun- inni við Sund og rafbúðinni, skýrð- ist á næstu tveimur vikum. Að- spurður um möguleika á sölu á 45% hlut Sambandsins í Goða og 83% hlut í Prentsmiðjunni Eddu sagði Sigurður að engar ákvarðanir hefðu verið teknar þar um. „En auðvitað hlýtur að koma að því að við lítum á þær eignir sem eftir eru og athug- um hvað við getum selt af þeim til þess að halda ennþá áfram að greiða skuldir." Sjá bls. 20: „Heildartap Sam- bandsins 1,4 milljarðar kr.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.