Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 40
-MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAeUR -5vJÚNÍ-1993-------------------------------- t GUNNAR ÓLAFSSON verslunarmaður, Gnoðarvogi 88, Reykjavík, lést 3. júní í Vífilsstaðaspítala. Margrét Leósdóttir, Laufey Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, RAGNHEIÐUR SVERRISDÓTTIR, Breiðabliki, Neskaupstað, lést í sjúkrahúsinu á Neskaupstað 4. júní. Sverrir Ásgeirsson, Kitty Óskarsdóttir, Bergþóra Asgeirsdóttir, Samúel Andrésson, Hjalti Ásgeirsson, Sesselja Eiriksdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, AGNAR EINARSSON, Ásvallagötu 65, sem lést 2. júní, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. júnf kl. 13.30. Ólöf Björnsdóttir, Ævar Agnarsson, Valgerður Hansdóttir, Erna Agnarsdóttir, T ryggvi Jónsson, Ragnar Agnarsson og barnabörn. t Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓHÖNNU GUNNARSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 58, verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. júní kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á að láta Hjartavernd og Krabbameinsfélagið njóta þess. Jónas Jónsson, Gylfi Jónasson, Hulda Hauksdóttir, Jón Halldór Jónasson, Guðrún G. Gröndal, Þórir Jónasson, Kristrún Ýr Gylfadóttir, Össur Ingi Jónsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LIUA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Dönustöðum, Vallartröð 12, sem andaðist 29. maí, verður kvödd í Kópavogskirkju mánudag- inn 7. júní kl. 15. Jarðsett verður í heimagrafreit á Dönustöðum. Viktoria Skúladóttir, Sigriður Skúladóttir, Sólrún Skúladóttir, Ingibjörg Skúladóttir, Guðrún Skúladóttir, Iða Brá Skúladóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. “ + Bróðir okkar, 1 SIGMUNDUR HALLDÓRSSON frá Hraungerði, Álftaveri, Stigahlíð 8, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 9. júní kl. 14.30. Rannveig Halldórsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir, Guðbjörg Stella Halldórsdóttir, Hallgrimur Halldórsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIRÍÐAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR frá Indriðastöðum í Skorradal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A-6 á Borgarspítal- anum og einnig starfsfólki lungnadeildar Vífilsstaðaspítala fyrir góða umönnun á liðnum árum. Hilmar Guðmundsson, Erla Ragnarsdóttir, Gylfi Þór Sigurðsson, Sveinn Sigurðsson, Inger Helgadóttir, Guðlaug Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Daníel Friðrik Guð- mundsson — Minning Fæddur 23. desember 1909 Dáinn 29. maí 1993 í dag kveðjum við elskulegan afa okkar sem lét í Sjúkrahúsi Suður- lands eftir erfið veikindi, áttatíu og þriggja ára gamall. Hann var bóndi á Efra-Seli í Hrunamanna- hreppi í hartnær 35 ár, en áður hafði hann verið til sjós og stundað ýmsa aðra vinnu. Afi kvæntist hinn 24. október árið 1936 ömmu okkar, Astríði Guðmundsdóttur. Þau eiga fjögur börn: Helga Erling, f. 1938, As- dísi, f. 1940, og tvíburasystumar Ástríði Guðnýju og Jóhönnu Sig- ríði, f. 1948. Barnabömin era sex. Afi starfaði mikið að félagsmálum og var oddviti í mörg ár. Hann var okkar besti vinur og ráðgjafí, hafði gott lag á börnum, kunni frá mörgu að segja, glettnin og gamansemin vora aldrei langt undan. Við teljum okkur rík að hafa fengið að alast upp í samfélagi við afa og ömmu, enda höfðu þau allt- af tíma fýrir okkur. Á þeirra heim- ili var mjög gestkvæmt og gott að koma, þar dvöldust margir ungling- ar í vinnu yfír sumarið og héldu þeir tryggð við þau alla tíð. Afa þótti gaman að fara með vísur og kunni margar mjög skemmtilegar. Sérstaklega fannst honum falleg þessi vísa sem við látum fylgja hér með: Kvöldblíðan lognværa kyssir hvem reit, komið er sumar og hýrt er í sveit. Sól er að kveðja við bláfjallabrún, brosa við aftanskin fagurgræn tún. Seg mér, hvað indælla auga þitt leit íslenska kvöldinu í fallegri sveit. (Guðm. Guðmundsson) Fjölskyldan vill færa starfsfólki Sjúkrahúss Suðurlands hjartans þakkir fyrir alla þá hlýju og góðu umönnun sem það veitti honum í veikindum hans. Veri elskulegur afí okkar kært kvaddur, hafí hann þökk fyrir allt. Ömmu okkar óskum við Guðs bless- unar um ókomin ár. Birgir Þór Jónsson, Kristín Ásta Jónsdóttir, Daníel Halldórsson, Halldóra Halldórsdóttir, Barði Sigurjónsson, Ásta Sigurjónsdóttir. í dag kveðjum við Danna gamla og þökkum kærlega fyrir sam- fylgdina. Daníel Guðmundsson var maður sem hafði skoðun á hlutun- um og var ófeiminn við að láta hana í ljós, hafði bein í nefínu, eins og sagt er, en meiddi þó aldrei neinn með því beini. Til þess var hann of góður drengur. Aðalein- kenni hans í umgengni við vini sína var hlýleg stríðni, glettnisglampinn var fljótur fram í augnkrókana og það þurfti lítið til að kynda undir þeirri glóð til að skelmissvipurinn kviknaði á andlitinu öllu. En þetta prakkaraandlit geislaði frá sér hlýju, Danni gamli var enginn gár- ungi, hann var maður sem þótti vænt um fólk, sitt fólk og annað fólk, maður sem börn og dýr treystu af eðlisávísun, fullorðnir af því hann brást þeim aldrei. Helsti þátturinn í skapgerð Dan- íels var kannski þrautseigjan. Hann vissi hvað hann vildi og kom því í verk sem hann ætlaði sér með fullri forsjá og aðgát, eins og þegar hann þokaði sér með göngugrindinni yfir hlaðið seinustu árin til að komast í heita pottinn á nýja bænum, hægt og bítandi en án þess að detta, hann var af kynslóð sem kunni fótum sínum forráð og án þess nokkurn tímann að gefast upp eða æðrast. Þó er hætt við að ellin hefði ráðið betur við hann en hún gerði ef hann hefði ekki átt góða að. Að því leyti uppskar hann eins og hann sáði: Nú gat hann treyst á þá sem áður treystu á hann. Það verður tómlegra í sveitinni og heiminum án Danna gamla, en í rauninni vorum við heppin að fá að hafa hann skeleggan og skarpan næstum fram í andlátið og hann var heppinn að þurfa aldrei að gef- ast upp. í banalegunni sást hann brosa yfír að geta sagt orðið já. Kristín, Jón Hallur og Brynja. í dag er til moldar borinn í Hranakirkju Daníel Friðrik Guð- mundsson frá Efra Seli, Hruna- mannahreppi. Daníel var fæddur á Hesti í Önundarfirði 23. desember 1909 og var því á áttugasta og fjórða aldursári er hann lést hinn 29. maí. Daníel var ótrúlega em fram til hins síðasta en í lok apríl fékk hann áfall og átti ekki afturkvæmt af sjúkrahúsi eftir það. Á uppvaxtarárum sínum og allt fram til 1942 stundaði Daníel sjó- mennsku en fór þá að vinna í landi, þá fljótlega lenti hann í mjög alvar- legu vinnuslysi sem leiddi til þess að hann missti mjög mátt í öðrum fæti og varð að búa við þá fötlun alla ævi. í Hrunamannahrepp fluttist Daníel 1945 og gerðist bóndi að Efra Seli, bjó hann myndarbúi til ársins 1967, en þá tóku við búinu sonur hans, dóttir og tengdasonur. Félagsmál vora honum alla tíð hugleikin og tók hann virkan þátt í þeim, fyrst félagsmálum bænda- stéttarinnar og síðan félagsmálum bændastéttarinnar og síðan sveitarstjómarmálum. Hafði hann ákveðnar skoðanir á hverju máli og lét þær koma fram í umræðum, enda fylgdi hann þeim einarðlega eftir og þurfti sterk rök til að breyta skoðunum hans. Daníel var því snemma falin for- ysta í hinum ýmsu félögum og í hreppsnefnd Hrunamannahrepps var hann kosinn 1962, sat hann í henni í 20 ár þar af sem oddviti í 16 ár frá 1966 til 1982. Þau ár sem Daníel var oddviti voru mikil upp- gangsár í Hranamannahreppi. Þéttbýli var sem óðast að myndast á Flúðum, garðyrkjustöðvar risu, iðnaðarmenn settust að og byggðu verkstæði, sveitarfélagið breyttist úr hreinu bændasamfélagi í blöndu af dreifbýli og þéttbýli. Nýr skóli var byggður, leiguíbúðir fyrir kenn- ara og einnig almennar leiguíbúðir fyrir kennara og einnig almennar leiguíbúðir því að aukinn iðnaður kallaði á fleiri vinnandi hendur. Að mörgu var að hyggja, byggja varð götur, leggja holræsi og skipu- leggja ný byggingarsvæði, keypt var land undir nýjar lóðir. Þá var ekki hvað minnst verkefni að leggja hitaveitu í hin nýju hverfí, svo og að útvega kalt neysluvatn. Að öllum þessum verkefnum vann Daníel af dugnaði og atorku og er með ólíkindum hve framsýnn og stórhuga hann var við uppbygg- ingu þéttbýliskjarnans. Skildi hann flestum mönnum betur hve mikill styrkur það er fyrir hvert sveitarfé- lag að þéttbýli myndist og sambúð við dreifbýli sé sem best. Daníel gætti þess vel að láta umsvifin á Flúðum ekki bitna á öðrum íbúum sveitarinnar, beitti hann sér fyrir uppbyggingu sýslu- vega á sveitabæi svo og úrbótum á þjóðvegakerfinu í heild. Afréttar- málin voru tekin föstum tökum, vegslóðar lagðir og hús byggð, þá var einnig lagður grunnur að land- græðslu á afréttinum. Hér er aðeins minnst á örfá at- riði sem unnið var að í oddvitatíð Daníels, stóð ekki til að hafa langa upptalningu enda væri slíkt ekki í hans anda en í öllum þeim störfum sem honum var trúað fyrir sýndi hann einstaka samviskusemi, hans verklag var að geyma það ekki til morguns sem hægt var að gera í dag. Sá sem þessar línur ritar skilur kannski öðram fremur hversu mik- ilsvert er að opinber störf séu þann- ig unnin að virðing myndist milli samskiptaaðila. Þegar ég tók við starfi Daníels 1982 var skemmtileg reynsla að Fjöldi mynda, sem birst hafa með minningargreinum í Morgunblaöinu á árum 1979-1991, er enn ósóttur. Þeir sem eiga ósóttar myndir eru vinsamlegast beönir aö vitja þeirra fyrir 1. júlí næstkomandi, þar sem ekki eru tök á aö geyma þær lengur. Upplýsingar veittar í síma 69 11 35. Kringlunni 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.