Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 19. landsþing Landssambands sjálfstæðiskvenna í Hafnarfirði Vegur kvenna innan flokksins verði meiri „ÞETTA var ánægjulegt og málefnalegt þing,“ sagði Arndís Jónsdóttir formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna að loknu 19. landsþingi sambandsins í gær, en það stóð í tvo daga og var haldið í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði. Helstu mál þingsins voru sveitarstjórnamál, næstu kosningar og einnig voru mennta- mál tU umræðu. Landsþing er haldið annað hvert ár, í sumar- byrjun. Fram komu á þinginu áhyggjur fulltrúa vegna minnkandi stuðn- ings kvenna við Sjálfstæðisflokk- inn um þessar mundir, einkum yngri kvenna. Svo virtist sem karl- ar styddu flokkinn í meira mæli en konur og var á þinginu lögð á það mikil áhersla í málflutningi þingfulltrúa að sjónarmið kvenna innan flokksins kæmu fram í rík- ari mæli fyrir næstu kosningar sem verða að ári. „Við munum skoða þetta mál vel og athuga hvaða leiðir eru færar til að okkar markmiðum verði náð,“ sagði Am- dís. „Við munum keppa að því að vegur kvenna innan flokksins verði meiri.“ Á síðasta landsþingi var sam- þykkt stjórnmálaályktun þar sem sagði að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að beita sér fyrir því að fleiri konur yrðu kallaðar til ábyrgðar- starfa á öllum sviðum þjóðfélags- ins í samræmi við stóraukna menntun þeirra. Á þinginu sagði Arndís að þegar litið væri á stöðu kvenna innan Sjálfstæðisflokksins hefði í raun lítið breyst. Aðhald í ríkisfjármálum I stjórnmálaályktun þingsins er lýst yfir stuðningi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að gæta aðhalds í ríkisfjármálum og einkavæðingu ríkisfyrirtækj a. Sj álfstæðiskonur hvetja stjórnina til stórátaka í þeim málum og leggja áherslu á að jafnvægi náist í ríkisfjármálum og erlendar skuldir lækki. Þá skora þær á stjórnina að láta af allri forsjárhyggju í byggðamálum og ná sem hagkvæmastri nýtingu á gæðum lands og sjávar. Þá segir einnig í stjórnmálaá- lyktun þingsins, að renna þurfi nýjum stoðum undir atvinnulíf þjóðarinnar og bæta samkeppnis- stöðu íslenskrar framleiðslu á er- lendum mörkuðum. fjölga þurfi nýjum atvinnumöguleikum með því að nýta umframfjárfestingar sem til eru í þekkingu, tækni og fasteignum. VEÐUR Heimild: Vedurstofa lslands (Byggt á vedurspá kf. 16.15 í g»r) IDAGkl. 12.00 VEÐURHORFUR í DAG, 5. JUNI YFIRLIT: Skammt suður af Reykjanesi er 990 mb laegð sem þokast austnorðaustur og grynnist. Milli Jan Mayen og Noregs er 1.025 mb hæðarsvæði sem þokast vestnorðvestur. SPÁ: Norðan kaldi eða stinningskaldi norðvestantil á landinu en hæg- ari norðlæg eða breytileg átt annarstaðar. Austast á landinu verður rign- ing frameftir morgni en annars verður skýjað með köflum og hætt við skúrum, einkum síðdegis. Hiti verður á bilinu 4-12 stig, kaldast á annesj- um norðanlands en hlýjast í innsveitum sunnan til. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG, MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Suðaustan- og austanátt, en líklega norðaustanátt á Vestfjörðum. Sumstaðar strekk- ingsvindur. Úrkomulítið norðanlands, en rigning eða skúrir í öðrum lands- hlutum, einkum suðaustanlands. Hiti 5-13 stig, hlýjast í innsveitum norðan- og vestanlands. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,4.30, 7.30,10.45, 12.46,16.30,19.30,22.30. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregn- ir: 990600. o a & m m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig. / / / * / * * * * * 10° Hitastig / / / / / * / / * / * * * * * V V V V Súid J Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka S — . ■ J i'" ' ' - 'IT- :V.. . ,■■■:. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær) Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins. Fært er fyrir létta bíla um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar og á Botns- og BreiÓadalsheiði á Vestfjörðum. Fólksbílafært um Lágheiði á Norðurlandi. Á Norðaustur- landi er ófært um Öxarfjarðarheiði, og Hólssand, ágæt færð um Möðru- dalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Á Austurlandi er fært um Breiðdals- heiði, Vatnsskarð eystra og Hellisheiði eystri. Hálendisvegir eru lokaðir vegna snjóa og aurbleytu. Viðgerðir á klæðingum eru víða hafnar og eru vegfarendur beðnir um að virða hraðatakmarkanir sem settar eru vegna hættu á grjótkasti. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. %’m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 8 alskýjað Reykjavík 12 skýjað Bergen 14 skýjað Helsinki 12 skýjað Kaupmannahðfn 19 léttskýjað Narssarssuaq 6 hálfskýjað Nuuk +1 þoka Ósló 16 léttskýjsð Stokkhólmur 17 léttskýjað Þórshöfn 8 rigning Algarve 21 léttskýjað Amsterdam 21 léttskýjað Barcelona 23 skýjað Berlín 20 iéttskýjað Chicago 11 rigning Feneyjar 26 léttskýjað Frankfurt 20 hálfskýjsð Glasgow 14 skýjað Hamborg 20 léttskýjað London 20 skýjað Los Angeles 17 skýjað Lúxemborg 20 léttskýjað Madríd 28 iéttskýjað Malaga 27 léttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Montreal 11 léttskýjað NewYork 16 skúrir Orlando 23 þokumóða Parfe 21 skýjað Madelra 22 hálfskýjað Róm 24 skýjað Vin 21 þrumuveður Washlngton 19 þokumóða Winnipeg 6 léttskýjað Morgunblaðið/Einar Falur Fara á brott með víkingnm SJÁLFSTÆÐISKONUR fengu fylgd víkinga að loknu landsþingi í gær, en tveggja daga þingi þeirra lauk með kvöldverði í Fjör- unni í Hafnarfirði. Vextir á óverðtryggð- um lánum 2,6% hærri en á verðtryggðum Minnsti munur í sparisjóðum og Landsbanka RAUNÁVÖXTUN óverðtryggðra skuldabréfalána hjá bönkum og sparisjóðum er nú 11,8%, ef miðað er við 1% verðbólgu, og er það 2,6% hærri ávöxtun en á vísitölubundnum lánum. Þessi munur hefur verið að aukast vegna þess að nafnvextir hafa ekki lækkað í takt við verðbólgu. Að sögn Ólafs K. Ólafs í peninga- máladeild Seðlabanka íslands voru vextir vísitölubundinna lána 9,4% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en raunávöxtun almennra óverð- tryggðra skuldabréfaútlána 10,2% að meðaltali þannig að munurinn var 0,8%. Síðan hafi verðbólgan minnkað mikið en nafnvextirnar ekki að sama skapi. Sagði Ólafur að það sem af væri öðrum ársfjórðungi væri mun- urinn 3,5%, því vísitölubundnu vext- irnir væru 9,2% og þeir óverðtryggðu 12,7% miðað við óbreytta vexti í júní. Hann sagðist þó búast við frekari lækkun nafnvaxta og myndi það minnka bilið. Landsbankinn og sparisjóðirnir eru með lægstu raunávöxtun al- mennra skuldabréfalána, 11,5%, eins pg sést á meðfylgjandi súluriti, en íslandsbanki er með hæstu vextina, 12,3%. Mesti munur á vöxtum verð- tryggðra og óverðtryggðra útlána er hjá Búnaðarbankanum, 2,8%, en minnsti munurinn er hjá sparisjóðun- um, 2,2%. Raunávöxtun útlána banka og sparisjóða frá 1. júní. 1993 E1 Búnaðarbanki Athugasemd fra utanríkisráðuneyti Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá utan- ríkisráðuneyti: Að gefnu tilefni vill utanrikis- ráðuneytið taka fram eftirfarandi: Það er rangt að Jón Sigurðsson, starfandi utanríkisráðherra í íjar- veru Jóns Baldvins Hannibalsson- ar, hafi gengið á fund starfandi sendiherra Bandaríkjanna á ís- landi, eftir að utanríkisráðuneyt- inu hafi borist formleg mótmæli bandarískra stjómvalda vegna ummæla Þorsteins Pálssonar, sjáv- arútvegsráðherra. Hið rétta er að settur sendifull- trúi og yfirmaður sendiráðs Bandaríkjanna á íslandi gekk á fund Jóns Sigurðssonar þann 16. maí sl. í tilefni af tilteknum um- mælum sjávarútvegsráðherra, sem skoða yrði sem móðgun við forseta Bandaríkjanna og afflutning á stefnu Bandaríkjastjórnar. Starfandi utanríkisráðherra, Jón Sigurðsson, baðst ekki afsök- unar á ummælum sjávarútvegsráð- herra en tók fram, að hvorki mætti líta á þau sem vott um mark- aða stefnu ríkisstjómarinnar né vitnisburð um skoðun ríkisstjórn- arinnar á forsetaembættinu eða þeim forseta, sem nú gegnir emb- ættinu. Aths. ritstj.: í frétt Morgunblaðsins í gær segir að starfandi utanríkisráðherra hafi „í reynd" beðist afsökunar á ummæl- um Þorsteins Pálssonar um Banda- ríkjaforseta. I athugasemd utanríkisráðuneytis segir að starfandi utanríkisráðherra hafi sagt að „hvorki mætti líta á þau, sem vott um markaða stefnu ríkisstjórnarinnar né vitriisburð um skoðun ríkisstjórnarinnar á forseta- embættinu eða þeim forseta, sem nú gegnir embættinu". Að mati Morgunblaðsins felst í þessu afsökunarbeiðni „í reynd“. Blaðið stendur því við frétt sína, enda hefur það fyrir henni óyggjandí heimildir eins og öðrum fréttum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.