Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 19 Aljóðlegur umhverf- isdagur SÞ er í dag Skipstjórí í stólinn og Sigfús við flygilinn SAMEINUÐU þjóðirnar hafa allt frá því að umhverfisráð- stefnan Mannlegt umhverfi var haldin í Stokkhólmi árið 1972 haldið upp á Alþjóðlegan umhverfisdag þann 5. júní. A þeirri ráðstefnu var ákveðið að setja á laggirnar Umhverf- isstofnun Sameinuðu þjóðanna til þess að stuðla að bættri umhverfisstefnu og til þess að samræma umhverfisstefnu Sameinuðu þjóðanna, segir í frétt frá umhverfisráðuneytinu. VIÐ sjómannsmessu í Bústaðakirkju á sunnudaginn kl. 11 mun Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri og formaður Farmanna- og fiskisambandsins, stíga í stólinn og flytja prédikun dagsins. Sameinuðu þjóðimar hafa á hveiju ári tileinkað deginum ákveðin einkunnarorð til þess að leggja áherslu á tengsl manns og náttúru. Þannig hefur t.d. verið lögð áhersla á áhrif hættulegra efna í umhverfinu á börn og á nýtingu náttúruauðlinda. Ár hvert er Alþjóða umhverfisdagsins minnst víða um heim, meðal ann- ars í höfuðstöðvum Umhverfis- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, Bmssel, Mexíkóborg, Stokkhólmi og í ár verður dagsins sérstaklega minnst í Peking, höfuðborg Kína. Þar verða umhverfisverðlaun Sam- einuðu þjóðanna „Global 500“ af- hent 38 einstaklingum, samtökum og fyrirtækjum sem mikið þykja hafa lagt til umhverfísmála. Einkunnarorð Alþjóða umhverf- isdagsins í ár eru „Fátækt og umhverfí, ijúfum tengslin“. Sam- einuðu þjóðimar vilja með þessu leggja áherslu á náin tengsl fá- tæktar og hnignunar umhverfisins. Þar sem fátækt er ríkjandi er lang- tíma hagsmunum og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda oft fórnað fyrir stundarhagsmuni og barátt- una við að halda lífi. Það er í dag viðurkennt að fátækt er ekki bara afleiðing lélegs ástands umhverfis- ins heldur einnig að hluta til orsök Tónlistar- skóla Flat- eyrar slitið VORTÓNLEIKAR Tónlistar- skóla Flateyrar voru haldnir 16. maí sl. í sal Hjálms hf. Á dagskrá voru söngur og hljóðfæraleikur nemanda og kennara. í vetur var, auk söngkennslunnar, kennt á píanó, celló, gítar, trompet, klarínett og básúnu. Skólanum var slitið 27. maí. Stigapróf þreyttu að þessu sinni 10 nemendur og stóðust allir. í píanóleik lauk einn nemandi 5. stigi, tveir 4. stigi, fjórir 2. stigi og einn 1. stigi. Þá lauk einn nem- andi 4. stigs prófi í trompetleik og einn 1. stigs prófi í básúnuleik. Prófdómari var Michael A. Jones, tónlistarkennari og organisti í Bol- ungarvík. I tónfræði luku fjórir nemendur 3. stigi og sex nemendur 1. stigi. Hæstu einkunn við skólann hlaut Teitur Bjöm Einarsson, píanónem- andi, er lauk 5. stigi'. Alls voru nemendur 24 talsins, þar af 18 úr Flateyrarhreppi og 6 úr Mosvallahreppi. Skólastarfíð var með hefð- bundnum hætti. Haldnir vom jóla-, páska- og vortónleikar, auk sam- æfínga nemenda. Lögð var áhersla á að nemendur í píanóleik æfðu sig að leika undir cellóleik kennara síns. Þá komu nemendur fram með hljóðfæraleik í bamaguðsþjón- ustum í Flateyrarkirkju og sungu í almennum guðsþjónustum í prestakallinu. í vor var tekið á móti hópi tónlistarnema Margrétar Gunnarsdóttur á ísafírði og haldn- ir sameiginlegir tónleikar í sal Hjálms hf. Skólastjóri Tónlistar- skóla Flateyrar er Agústa Ágústs- dóttir og kennari, auk hennar, Gunnar Bjömsson. (Fréttatilkynning) þess. Það er því talið nauðsynlegt að útrýma fátækt í heiminum, ekki aðeins af mannúðarástæðum, held- ur einnig til þess að bæta ástand umhverfisins. Fréttatilkynning Fátækt EINKUNNAR orð Alþjóða um- hverfisdagsins í ár eru „Fátækt og umhverfi, rjúfum tengslin". Sjómannadagsins hefur verið minnst í Bústaðakirkju með sjó- mannamessu þar sem sálmar og tón- list taka mið af yfirskrift dagsins. Meðal annars verður fluttur sálmur- inn Þakkargjörð, lag Sigfúsar Hall- dórssonar við texta sr. Sigurðar Helga Guðmundssonar. Sigfús Halldórsson mun leika lög sín á flygil í 10 mínútur áður en messan hefst. Sjómenn og ástvinir þeirra hafa sótt vel til kirkjunnar á þessum degi og þeir aðrir, sem tengj- ast sjómennskunni. Kristin kirkja hefur frá öndverðu átt samleið með þeim sem fara hafsins vegu, allt frá því Kristur kallaði fyrstu postulana úr hópi fískimanna. Kirkjuskipið tekur því með hlýju á móti vöskum sjómönnum þessa lands. (Fréttatilkynning) wmm AFMÆLlSHÁTiÐ UM HELGINA I SEGLAGERÐINNIÆGI FÆST EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF UTIVISTARVORUM. OG NU HOLDUM VIÐ UPP Á 80 ÁRA AFMÆUÐ GtRÐ/A/ 1913 UM HELGINA \ - MED ÞÉR! 1993 15% afmælisafsláttur á DALLAS tjöldum fjölskyiduhústjaldið TILBOÐSVEISLA 10 %AFSLÁTTURAF ÖLLUM FERÐAÚTBÚNAÐI OG ÚTIVISTARVARNINGI verslun verslun okkar að Eyjaslóð 7 í Reykjavfk Gl-jÐI Dagskrá laugardagur 10:00 Sérverslun ferðafólksins opnar - tilboðsveisla 13:00 Klifur og sig - utan húss Hjálparsveit skáta Garðabac 14:00 Grillpylsur og gos fyrir alla 15:00 Fallhlifarstökk 17:00 Verslunin lokar sunnudagur 13:00 Sérverslun ferðafólksins opnar - tilboðsveisla 14:00 Klifur og sig - utan húss 14:00 Grillpylsur og gos fyrir alla 15:00 Fallhlifarstökk 17:00 Verslunin lokar .þar sem ferðalagið byrjar! SEQLAQERÐIN ÆJrr. L111™1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.