Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 29 Hljómsveitin Sljórnin. ■ HLJÓMS VEITIN Stjórnin hefur nú hafið tónleika- og dan- sleikjaferð sína. um landið og lék í Miðgarði, Skagafirði, á föstu- dagskvöldið og leikur í Ýdölum, Aðaldal, í kvöld. Eftir helgina kem- ur út ný geislaplata Stjórnarinnar, Rigg, sem er fjórða breiðskífa hljómsveitarinnar. 11. júní nk. leik- ur Stjórnin í Þotunni í Keflavík, 12. júní Njálsbúð, 16. júní 1929, Akureyri, 18. og 19. júní í Vala- skjálf, Egilsstöðum, 25. júní í Ing- hóli, Selfossi, og 26. júní Höfn, Hornarfirði. Stjórnin skipa þau Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarsson, Friðrik Karlsson, Jó- hann Asmundsson og Halldór Hauksson. Hljóðmaður er Ingvar Jónsson, ljósameistari Helgi Krist- jánsson og yfirriggari Magnús Rögnvaldsson. ■ Á SJÓMANNADAGINN 6. júní verður sala og sýning á handa- vinnu vistfólks á Hrafnistuheimil- unum í Reykjavík og Hafnarfirði frá kl. 13-17. Á sýningunni í Reykjavík verður m.a. sýnd tó- vinna. Einnig verður kaffisala frá kl. 14.30-17 og rennur ágóðinn til velferðarmála vistfólksins. Á Hrafnistu í Reykjavík verður ágóðanum varið til kaupa á messu- skrúða. (Fréttatilkynning) ♦ ♦ ♦ Norrænt mót sálarrann- sóknafélaga SAMTÖK norrænna sálarrann- sókna- og spiritistafélaga halda mót í Danmörku í ágúst næst- komandi. Yfirskrift mótsins er „spíritisminn á nýrri öld“ og munu fjórir íslenskir miðlar starfa þar. íslendingar hafa tekið þátt í starfi Nordisk spiritualist union frá því árið 1976 og er Guðmundur Einarsson verkfræðingur nú for- maður samtakanna. Mótið í Danmörku verður haldið dagana 20. til 24. ágúst í sumarbúð- um dönsku verkalýðshreyfingarinn- ar í Karrebæksminde sem er um 150 km fyrir sunnan Kaupmanna- höfn. Þangað koma miðlar og fyrir- lesarar frá öllum Norðurlöndunum og Jose Stevens frá Bandaríkjun- um, segir \ frétt frá Sálarrann- sóknafélagi íslands. -----»-» ♦ Ljósmyndir á Bíldudal LJÓSMYNDASÝNINGIN Lífið í landinu verður í Samkomuhúsinu á Bíldudal á sjómannadaginn. Slysavarnadeild kvenna sér að vanda um kaffisamsæti í Sam- komuhúsinu þennan dag. Á ljósmyndasýningunni eru 28 myndir og myndraðir sem verðlaun- aðar voru í ljósmyndasamkeppni Okkar manna, félags fréttaritara Morgunblaðsins. Nokkrar myndanna eru frá Bíldudal. Þá eru á sýning- unni myndir sem tengjast sjómanns- starfínu. Rússar sækja í gamlar Lödur Sjómenn hafa verið staðnir að því að aka ölvaðir á óskráðum bílum UMFJÖLLUN um kaup rússneskra togarasjómanna á gömlum Lada-bifreiðum í fjölmiðlum hérlendis virtist hafa farið fyrir brjóstið á stýrimanni og skipstjóra rússnesks togara sem lá við landfestar á Ægisgarði í gær. Þegar blaðamann og ljós- myndara bar að garði hótaði stýrimaðurinn þeim að sælya byssu og skjóta á þá ef þeir hefðu sig ekki á brott. Þá var verið að skipa um borð fjölda Lada-bifreiða og mikill handa- gangur í öskjunni á bryggjunni. Blaðamanni og ljósmyndara varð að sjálfsögðu hverft við og leituðu fulltingis tollvarða sem vöktuðu athafnalífið við togarann úr bíl sín- um. Þeir töldu víst að engin alvara hefði búið að baki hótuninni, en engu að síður hlýtur það að teljast alvarlegur hlutur þegar útlendir sjómenn hóta með þessum hætti íslenskum ríkisborgurum sem eru að gegna sínu starfi. Starfsmaður Stálsmiðjunnar hf., sem ekki vildi láta nafns síns get- ið, varð á vegi tíðindamanna, og tjáði þeim að hann hefði orðið vitni að því að sjómenn á þessum sama togara hefðu í fýrrakvöld ekið um á hafnarbakkanum og hefði hann ekki séð betur en þeir væru ölvað- ir. Einn þeirra hefði reyndar mátt þakka forsjóninni fyrir að aka ekki fram af hafnarbakkanum. Aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík kvaðst ekki hafa haft afskipti af rússneskum togarasjó- mönnum í þetta sinn, en lögreglan hefði áður þurft að skipta sér af málum vegna þeirra. Þeir hafa, að sögn lögreglu, verið teknir ölvaðir oftar en einu sinni við akstur á óskráðum bílum og jafnvel á götum borgarinnar. Lögreglan vaktar hafnarsvæðið eins og önnur svæði borgarinnar en leggur enga sér- staka áherslu á löggæslu við rúss- neska togara. Aðalvarðstjóri sagði að engar af þeim sögum um við- skipti með Lada sem seljendur fá greitt fyrir í áfengi hafí verið stað- festar. Lögreglan hefur farið um borð í rússneska togara vegna gruns um viðskipti af þessum toga. Morgunblaðið hefur fregnað að rússneskir togarasjómenn leiti uppi gamlar Lödur í borginni og geri tilboð í þær. Með Lada í takinu LADA-bíIar voru í röðum á hafnarbakkanum á Ægisgarði og hróp og köll bárust frá rússneskum sjómönnum sem höfðu fest kaup á bilunum. Mikill skortur er á varahlutum í þessa rússnesku bíla í heimalandinu og heyrst hefur að ein framrúða jafngildi mánaðarlaunum verkamanns í Rússlandi. Alþjóðleg friðar- og umhverfisverndarsamtök vilja halda stórtónleika á íslandi Tina Turner með friðar- boðskap í Laugardalshöll? NÝSTOFNUÐ alþjóðleg friðar- og umhverfisvemdarsamtök sem kalla sig United World Foundation hafa óskað eftir því við borgaryfirvöld að fá Laugardalshöllina leigða til tónleika- halds 17. júlí nk. Samtökin stefna að því að 16 heimsþekktir skemmtikraftar komi fram á tónleikunum og hafa sex þegar lýst yfir áhuga á að taka þátt í þeim. Samtökin hyggjast sjón- varpa frá tónleikunum um allan heim í gegnum gervihnött og hafa sex stórar sjónvarpsstöðvar lýst yfir áhuga á þessu máli. Aðstandendur samtakanna hafa einnig átt viðræður við forsvars- menn hjá Ríkisútvarpinu Sjónvarpi um tæknilega hlið málsins. Þeir skemmtikraftar sem hafa lýst áhuga á að koma fram á tónleikun- um eru Chris De Burgh, Chris Rea, Status Quo, Cliff ÍRichard, Sinnita og Paul Young. Samtökin ætla einnig að reyna að fá Tinu Turner og Michael Jackson til að koma fram á tónleikunum. Höllin til reiðu Júlíus Hafstein, formaður íþrótta- og tómstundaráðs, stað- festi að aðstandendur samtakanna og borgaryfirvöld hefðu átt fund um þetta mál og óskað hefði verið eftir leigu á Laugardalshöllinni 17. júlí nk. „Hún er til reiðu á þeim tíma og þeir fá hana, að því til- skyldu að þeir standi skil á öllum leigugjöldum og tryggingum og öðru því sem til þarf,“ sagði Júl- íus. Hann sagðist hvorki hafa séð samninga við skemmtikrafta né erlendar sjónvarpsstöðvar hjá þessum aðilum. Hann kvaðst hafa óskað eftir að fá að sjá þá og ver- ið tjáð að ekkert væri því til fýrir- stöðu þegar þeir hefðu fengið vil- yrði fyrir því að hér yrði öll að- staða fyrir hendi. Júlíus sagðist ekki kannast við þessi samtök og þau væru ekki skráð nema þau hefðu verið skráð á Islandi í gær. Fox og RAI Þær erlendu sjónvarpsstöðvar sem hafa lýst yfir áhuga á tónleik- unum eru Fox, sem sjónvarpa myndi til Bandaríkjanna, Carlton í Bretlandi, RTL Plus í Þýska- landi, Ovidev TV á Spáni, Telfr- ance í Frakkalandi og RAI á Ítalíu. --------------» ♦ » - ■ HLJÓMS VEITIN Græni bíll- inn hans Garðars leikur í kvöld á dansleik í félagsheimilinu Baldurs- hajga á Bíldudal. Húsið opnar kl. 23. Græni bíllinn hans Garðars er sex ára gömul hljómsveit og hana skipa: Þórarinn Hannesson, söngvari, Viðar Ástvaldsson, trymbill, Matthías Ágústsson, bas- saleikari og Bjarni Þór gítarileik- ari. Hljómsveitin mun koma víða við á næstu mánuðum. Súðavík verður heimsótt 26. júní, Þingeyri 3. júlí og Birkimelur 10. júlí. Motocrosskeppandi á flugi Motocross um helgina FYRSTA íslandsmeistarakeppni sumarsins í motocrossi verður hald- in sunnudaginn 6. júní á svæði Vélhjólaíþróttaklúbbsins við Sand- skeið, ekið upp Bláfjallaveginn. Keppnin hefst klukkan 14 og eru allir helstu ökumenn landins skráð- ir til keppni. Einnig verður keppt í skellinöðruflokki. Nýtt garðyrkjurit ÚT er komið garðyrkjuritið Sum- ar í Sigtúni í stóru broti, litprent- að og 48 blaðsiður. Blaðið er prentað í prentsmiðjunni Odda. Blómaval gefur út. I því má fínna margvíslegar greinar og fróðleik sem tengist sumri og sól. Svo sem rósir, blóma- rækt, garðyrkju, trjárækt, hollustu- vörur og útivist ýmiss konar. Með útgáfu þessa sumarblaðs bryddar Blómaval upp á nýjung í starfsemi sinni og hefur fengið til liðs við sig fjöldamörg fyrirtæki sem kynna framleiðslu sína og vöru- framboð á mjög upplýsandi máta. Blaðinu verður dreift ókeypis til viðskiptavina í verslun Blómavals næstu daga, en viðskiptavinir úti á landi geta fengið blaðið sent ef þeir æskja þess. (Fréttatilkynning) Út er komið nýtt garðyrkjurit, Sumar í Sigtúni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.