Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 5
Gróðrarstöð án opinberra styrkja MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JUNI 1993 HÖGNA segir að aðeins séu 100 félagar í akademíu franskra arkitekta og sé þeim ætlað sæti ævilangt. SÆKIÐ SUMARIÐ TIL OKKAR Gróðurvinin er í Möridnni Islendingur í Akademíu franskra arkitekta Högna Sigurðardóttir eini útlendingnrinn Islandsdagskrá í evr- ópskri sjónvarpsstöð SÍÐASTLIÐIÐ þriðjudagskvöld var fjögurra klst. löng íslandskynn- ing á dagskrá evrópsku sjónvarpsstöðvarinnar ARTE í Strassbourg, en hún er í eigu Norddeutsche Rundfunk og franska ríkissjónvarps- ins. Þumall kvikmyndagerð og Magna film sáu um gerð dagskrárinn- ar, og að sögn Sigríðar Halldórsdóttur handritshöfundar hafa fyrir- spurnir borist hingað til lands í kjölfar sýningarinnar. Dagskrá ART&sjónvarpsstöðvar- sýnt viðtal þýsks sjónvarpsmanns við innar er send út bæði til frönsku- og þýskumælandi landa, og sagði Sigríður að Þumli og Magna film hefði borist beiðni síðastliðið haust um gerð íslandsdagskrárinnar, en unnið var að henni síðastliðinn vet- ur. Dagskráin hófst með sýningu kvikmyndarinnar Atómstöðvarinnar, en því næst var heimildarmynd um ísland á árunum 1944-1974. Þá var frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands, og síðan heimildarmynd um Halldór Laxness, sem upphaflega var gerð af Stöð 2, en Þumall hefur geng- ið frá í þýskri útgáfu. Næst var sýnd 25 mínútna mynd um Reykjavík sam- tímans og að lokum mynd sem gerð var í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá Vestmannaeyjagosinu. Nýr frystitog- ari keyptur SÍLDARVINNSLAN í Neskaups- stað hefur gengið endanlega frá kaupum á nýjum 1.200 tonna frystitogara frá Spáni. Skipið er í smíðum og gert er ráð fyrir að það verði afhent í ágústmánuði. Kaupverð skipsins er 400 milljón- ir, sem «r innan við 60% af smíða- verði. Skýringin á lágu verði er sú að áætlaður kaupandi varð gjaldþrota á meðan á smíðatíma stóð og eignaðist banki á Spáni skipið við það en hann telur hagsmunum sínum best borgið með því að selja skipið á lágu verði frekar en að sitja uppi með það til lengri tíma. Skipið er 52 metrar að lengd og 12 metrar á breidd með 3 þús. hest- afla Wártsíla Vasa aðalvél. Skipið er systurskip Ottós Wathne, togara Seyðfírðinga að öðru leyti en því að það er sérstaklega styrkt til veiða í ís. Gert út á rækju Skipið verður gert út á rækju og veiðar á djúpslóð en ísstyrkingin auðveldar því rækjuveiðar á Dohm- banka. Gert er ráð fyrir að í áhöfn verði 20 manns og 10 manns í skipti- áhöfn. A'ils verða því ráðnir 30 manns á skipið. Á móti skipinu er Hilmir NK 171 úreltur en hann hefur verið seldur úr landi og verður afhentur í októ- ber. Loks má geta þess að síldar- vinnslan á 50% í hlutafélaginu Birt- ingi hf., sem nýlega seldi samnefnd- an togara til Suður-Afríku. -----♦ ♦ <---- Dönskum dag- blöðum dreift samdægurs ALMENN dreifing á dönskum dagblöðum, Politiken, Ekstrablad- et, Berlinske Tidende og B.T. hófst hérlendis 1. júní siðastliðinn og er blöðunum dreift samdægurs. Það er I.B. Blaðadreifing h.f., sem sér um dreifínguna og er þeim dreift frá kl. 12 til kl. 15, til helstu blaðsölu- staða í Reykjavík og úti á landi. Þjón- ustan býðst einnig í föstum áskrift- um. Þá eru einnig bresk og banda- rísk dagblöð í dreifíngu, svo og sunnudagsblöð. Síldarvinnslan í Neskaupsstað HÖGNA Sigurðardóttir, arkitekt, tók sæti í Akademíu franskra arkitekta 27. maí. Akademíunni tilheyra aðeins 100 félagar og er Högna eini útlendingurinn. Hún segir útnefninguna mikinn heiður fyrir sig. Högna, sem lengi hefur lifað og starfað í París, sagði að sér hefði verið boðin innganga í akademíuna fyrir tæpu ári. „Ég sagði þá strax eins og satt er að ég væri útlending- ur og ynni alltaf í samvinnu við þijá aðra arkitekta. En þeir sögðu það enga fyrirstöðu og svona boði væri alltaf tekið vegna þess hversu mikill heiður fælist í því. Svo ég þakkaði aðeins fyrir,“ sagði Högna. þrjá félaga sína vinna að ýmsum verkefnum í París. „En aðalverk- efnin tvö og þau sem liggur mest á eru viðbót við Parísarháskóla og bókhlaða fyrir fjármálaráðuneytið," sagði hún. Hvað verkefni á íslandi varðaði sagðist hún ekkert hafa gert hér frá því að hún hefði lokið áfanga við sundlaugarbyggingu í Kópavogi. Eftir Högnu liggja líka fjölmörg íbúðarhús á íslandi. 150 ára akademía Hún sagði að akademían, sem er 150 ára gömul, léti til sín taka ýmis mál innan stéttarinnar. „Hún ver t.d. mál hennar, gefur út bækl- inga, heldur sýningar, verðlaunar arkitektanema og veitir styrki til arkitekta. Mestu heiðursverðlaun akademíunnar eru svo gullmedalia og fær hana að þessu sinni norski arkitektinn Sverre Sehn. Hann kemur til að veita henni viðtöku núna síðast í júní,“ sagði hún. Veigamikil verkefni Högna sagðist í samvinnu við -------♦ ♦ ♦------ Harðgerðar, stórar og fallegar plöntur eru aðalsmerki okkar. Þið fáið vel ræktuð lauftré, skrautrunna og barrtré í miklu úrvali. Einnig bjóðum við skógarplöntur á einstöku verði. • Ráðleggjum um plöntuval. • Sendum plöntur hvert á land sem er. • Gerum ræktunarsamninga til lengri tíma. • Auðvelt að semja um hagstæð kjör ef um stærri kaup er að ræða. Góð lausn fyrir fyrirtæki, félagasamtök, húsfélög og bæjarfélög. • Biðjið um vandaðan garðræktarbækling með plöntulista. • Nú er komið út veggspjald með myndum og upplýsingum um skrautrunna. GRÓÐRARSTÖÐIN í* pí STJORNUGROF18, SlMl 814288

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.