Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 39 Minning Gyða Sólrún Leós- dóttir, Keflavík Fædd 9. janúar 1950 Dáin 29. maí 1993 Deyr fé, deyja frær.dur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Ur Hávamálum.) Þegar ég kom heim á hvítasunnu- dag úr stuttu ferðalagi barst mér sú fregn að frænka mín, Gyða Sól- rún, hefði verið burt kölluð úr þess- um heimi kvöldið áður. Hún andað- ist í Borgarspítalanum eftir fimm daga legu. Áður voru ferðirnar bún- ar að vera nokkuð tíðar á umrætt sjúkrahús. Mig setti hljóða og minningarnar hrönnuðust upp í huga mér. Mæður okkar voru hálfsystur, samfeðra. Afi okkar var Jóhannes Jakobsson frá Finnmörk í Miðfirði, orðlagður dugnaðarforkur. Sólrún fæddist á Akureyri og ólst þar upp í innbænum. Foreldrar hennar eru Gyða Jóhannesdóttir og Leó Guðmundsson, dugnaðar- og sómafólk. Þau Gyða og Leó áttu fjóra drengi saman áður en Sólrún fæddist. Hún kom eins og sólar- geisli inn í líf fjölskyldunnar. Ljós og björt og brosmilt barn, þannig man ég svo vel eftir henni. Síðan bættust þrjú börn í hópinn. Var ærið að starfa á svo stóru og mann- mörgu heimili. Sólrún var ekki ýkja há í loftinu þegar hún fór að taka til hendinni og hjálpaði til við allt sem aldur og geta leyfðu og vel það. Snemma kom dugnaður henn- ar og myndarskapur í ljós. Var henni oft líkt við afa okkar. Það var sama að hveiju hún gekk, sam- viskusemin og kappið var í fyrir- rúmi. Hún var mjög myndarleg við allar hannyrðir, saumaði heil ósköp bæði fatnað og útsaum, pijónaði og heklaði. Eins var hún lagin við matargerð. í lífi Sólrúnar, eins og svo margra annarra, skiptust á skin og skúrir. Ung að árum kynnist hún Halldóri Ármannssyni. Þau eignuðust tvö börn, Ásu Dóru, sem er gift og búsett í Keflavík, hennar maður er Skjöldur Skjaldarson og eiga þau tvo drengi sem voru í miklu uppá- haldi hjá ömmu sinni; og Pétur, hann er ógiftur og barnlaus, býr hjá fósturforeldrum sínum, Ástu og Benedikt, bróður Sólrúnar á Akur- eyri. Síðar eignaðist Sólrún Halldór Halldórsson sem er búsettur í Kefla- vík, giftur Guðrúnu S. Eiríksdóttur. Árið 1975 steig Sólrún mikið gæfu- spor er hún giftist Steinari Þórhalls- syni skipstjóra, miklum öðlings- manni. Þau bjuggu í Keflavík og eignuðust eina dóttur, Ingu Lóu, hún verður 18 ára á jóladag. Inga Lóa dvaldist sem skiptinemi í Bandaríkjunum síðastliðna níu mánuði og var rétt ókomin heim er móðir hennar andaðist. Steinar andaðist 19. febrúar 1989 eftir löng og erfið veikindi. Sólrún vann alltaf mikið utan sem innan heimilis. Lengst af vann hún í fiskvinnu hjá Heimi hf. og Útvegsmiðstöðinni. í tvö sumur vann hún í mötuneyti íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli. Hún réðst til starfa í eldhús á Hlé- vangi, dvalarheimili aldraðra í Keflavík, í mars 1992 og vann þar þangað til í nóvember, þá þrotin að kröftum og oft sárþjáð. En Sól- rún bar ekki tilfinningar sínar á torg, hún kvartaði ekki. Hún var skorin upp við btjósklosi í nóvem- ber, en batinn vildi ekki koma. Eft- ir ótal rannsóknir kom illkynja sjúk- dómur í ljós. Var það í desember. Um jólin dvaldist hún á Borgarspít- alanum. Sambýlismaður hennar, Guðbjörn Haffjörð Jónsson, stóð eins og klettur við hlið hennar í þessu stríði. Jú, stríð var það, þó að aldrei heyrði ég minnst á upp- gjöf. Hún var svo dugleg og bjart- sýn. Guðbjörn var hennar stoð og stytta og reyndist henni einstaklega vel. Börn Sólrúnar, ættingjar og vinir, allir vildu gleðja hana. Hún hafði gefið þeim svo ótal margt sjálf. Við sem unnum með henni á Hlévangi þökkum góð kynni og ágætt en alltof stutt samstarf. Við Sigurbjörg S. Sigurð- ardóttír — Minning Ég kynntist Sigurbjörgu fyrir sex árum. Það sem mér fannst einkenna Sigurbjörgu var hversu heilsteyptur persónuleiki hún var. Hún var af gamla skólanum ef svo má að orði komast. Hún nýtti alla hluti eins vel og hún gat og var því mjög nægjusöm kona. Sigurbjörg var mikill sjúklingur og bjó ein, en aldr- ei kvartaði hún um verki eða reyndi að koma áhyggjum sínum yfir á aðra. Hún ætlaðist aldrei til neins af neinum, en var sífellt í því hlut- verki að veita öðrum góð ráð og hlýju. Hún hirti ekki mikið um efnis- leg gæði, heldur átti hún óendan- lega mikið af andlegum gæðum. Þegar einhvern okkar úr fjöl- skyldunni bar að garði voru móttök- urnaT ekki af verri endanum. Rjómapönnukökur eða vöfflur eða eitthvert góðgætið sem hún átti gaf hún okkur. Það sem tengdi okkur Sigur- björgu svo náið saman var að við höfðum sama áhugamál, enda þótt nokkur ár skildi okkur að. Það furðulega við hana var að manni fannst hún aldrei gömul. Hún var saumakona að atvinnu og fylgdist því náið með öllu sem var á döfinni í tískuheiminum. Hún vissi bókstaf- lega allt um saumaskap og hand- bragð hennar var mjög gott. Það sem ég hef það að atvinnu að stúd- era snið þurftum við oft að spjalla saman. Hún saumaði á mig og dótt- ur mína. Það má eiginlega segja að hún hafi saumað fram á hinsta dag. Hún skilaði síðasta kjólnum á laugardeginum 22. maí. Ég óska henni alls hins besta á þeirri eilífðarbraut sem hún er lögð af stað á. Við sem sitjum hér eftir á þessari jörð munum minnast þess- arar góðu konu um ókomna tíð. Guð blessi hana og alla hennar nánustu. Anna Gunnarsdóttir. Hún amma er farin. Minningin er um ömmu, þegar hún klæddi litla stelpu í rauðan flauelskjól sem skreyttur var hvítum blúndum frá toppi til táar, sem hún hafði saum- að, því það gat amma. Það var eins og i þræði þeim sem fór um hendur hennar væru töfrar. Þær voru ófáar stundirnar sem hægt var að sitja við saumavélina hjá henni og sjá hvað allt lék ljúflega í höndum hennar og hvað allt var fallegt. Já, Söknuðurinn er sár, en minn- ingin varir um allar þær stundir og daga í Hólmgarðinum hjá ömmu, sem tók öllu svo vel og gerði aldrei veður útaf hlutunum. Hún var staðföst og nýtin, og aldrei heyrði ég hana kvarta. Já, minningin lifir í hjartanu, eins og þegar ég, stúlkan í rauða kjólnum, leit í spelgilinn og sá kjólinn sem amma saumaði. Minninginn um Sigurbjörgu ömmu verður geymd í þeirri tilfinn- ingu. Guð geymi hana. Sigurbjörg G. Tracey. biðjum Guð að sefa sorg og styrkja foreldra, börn, barnabörn, systkini og Guðbjörn. Auður Guðvinsdóttir. Að kvöldi laugardagsins 29. maí lést Sólrún Leósdóttir í Borgarspít- alanum aðeins 43 ára gömul. Þó að við vissum um þann sjúkdóm sem hún átti við að stríða þá áttum við ekki von á að hann tæki hana svona fljótt því að Sólrún var lífsglöð kona sem lét ekki bilbug á sér finna og var ávallt hress og kát. Allt frá okkar fyrstu kynnum þegar Sólrún og Bubbi hófu sambúð fundum við að þarna var Bubbi búinn að finna sér lífsförunaut sem bjó honum og dóttur sinni fallegt heimili. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, allt lék í höndum hennar. Tengdaforeldrum sínum var hún einstaklega góð, kom ávallt við þegar hún átti leið hjá og þá oft færandi hendi. Ekki lét hún hjá liggja að senda þeim laufabrauð um jólin meðan hún lá sjálf veik í spítal- anum. í dag þegar við kveðjum Sólrúnu og þökkum henni samfylgdina sendum við þér, Bubbi minn, for- eldrum, börnum og öðrum ástvin- um, okkar dýpstu samúð. Lát opnast harðlæst hús míns hjarta, Drottinn minn, svo hýsi’ eg hjartans fús þar helgan anda þinn. Lát friðmál frelsarans þar föstum bústað ná og orð og anda hans mér ætíð búa hjá. Þorgerður, Jón Hansson og fjölskylda. Okkur langar að minnast kærrar vinkonu og samstarfsfélaga sem í blóma lífsins er hrifin á brott. Stutt er síðan Sólrún greindist með sjúk- dóm þann sem hún barðist við af þeirri hörku og ákveðni sem ein- kenndi hennar persónu. Hún var dugnaðarforkur til vinnu og ekki var minni dugnaður í henni þó hún væri í sælureitnum sínum í Þjórs- árdal sem var henni einkar kær. Við minnumst skemmtilegra stunda er Sólrún dreif okkur í laufa- brauðsgerð og var þá glatt á hjalla og margt látið fjúka. Hún gerði sér lítið fyrir og bakaði nokkrar smá- kökuuppskriftir fyrir eina okkar fyrir ein jólin og þetta fannst henni nú ekki mikið mál. Fyrir rúmum fjórum árum missti hún, þá tæplega fertug, eiginmann sinn, Steinar Þórhallsson, sem einn- ig vann með okkur til margra ára. I gegnum erfið og löng veikindi hans stóð hún sem klettur við hlið hans og lét aldrei á sér bilbug finna. Fyrir þremur árum kynntist hún sambýlismanni sínum, Guðbirni Jónssyni, sem reyndist Sólrúnu og börnum hennar einstaklega vel. Mikili er missir Ingu Lóu dóttur hennar sem nú hefur misst báða foreldra sína með stuttu millibili. Inga Lóa hafði ekki hitt móður sína í tæpt ár þar sem hún dvaldist við nám erlendis. Við viljum að lokum senda okkar innilegustu samúðarkveðjur til Bubba, Ásu Dóru, Halldórs, Péturs, Ingu Lóu, og annarra aðstandenda. „Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarveru hans, eins og fjall- göngumaður sér fjallið best af sléttunni." (Kahlil Gibran) Vinkonur úr ÚM. Hftgaegfc FLÍSAR Stórhöi'ða 17, við GuIUnbrú, sírni 67 48 44 GDAFLÍSARÁGÓÐUVIRÐI 11 ÍSíip”!:: Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 FLÍSAR I Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.