Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUK 5. JÚNÍ 1993 „Eir þettcK. oJJLt sem. þu he-far cxÁ segja. þer t'iL jorncur? " Með morgunkaffinu Af því þú ert svo ánægður með matinn hennar mömmu, ætla ég að segja þér svolítið skemmtilegt,. HÖGNI HREKKVÍSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Kerlingarfjöll Frá Valgarð Briem: VIÐ ERUM uppi í Kérlingarfjöll- um. Sólin, sem í gær olli bruna á nefi, enni og kinnum, er nú skýjum hulin, það byijaði að rigna með morgninum. Fyrst dropar á stangli síðan þéttar gusur og nú sem hellt sé úr bala. Lognið í morgun breytt- ist í golu, storm og nú öskrandi rok. Asgarðsá, þetta friðsemdar fljót, æðir fram kolbrún og ógnandi. Blákvísl, venjulega væð á öklastíg- vélum, verður ófær öflugustu jepp- um. Ófáir menn sjást á ferli milli nípa og höfuðbóls með 45° halla frá jörðu. Veður eins og Hannes var að óska sér að fá á Kaldadal. Það styttir upp og lægir. Sólin brýst gegnum skýin og geislar hennar þerra og verma brekkur og gil. Kallið kemur. Allir á skíði. Okk- ur verður ljóst að skaparinn ákvað hlé á skíðun þennan morgun til þess að gefa andlitshúðinni færi á að jafna sig, fótunum hvíld og okkur tilefni til að ræðast við og skiptast á skoðunum við skólafé- lagana. Þegar í brekkumar kemur blasir enn ein orsökin við. Snjóinn sem sól gærdagsins hafði brætt og safnast hafði í hóla og ójöfnur, hefur rigningin lamið saman og þjappað svo að færið er nú á ný óspillt og létt. Þar gnæfir Snækollur við bláan himininn og Mælifellshnjúkur flyt- ur skagfirskar kveðjur suður Kjöl. Þvílíkur unaður að fá að upplifa íslenska fjallakyrrð á skíðum þegar veðrið er þannig að ekki er þörf fyrir önnur föt en sundskýlu og skíðaskó. Áður fyrr var þrekraun að ferð- ast til Kerlingarfjalla. Nú er það létt. Bættir vegir og brúaðar ár og bílamir eins og á vængjum. Til þess að njóta fegurðar ís- lenskra öræfa er ekki nóg að þjóta um þau á fleygiferð. Menn þurfa að dveljast þar og anda að sér tign fjallanna og víðáttu jökla og sanda. Það er óvíða betra en í Kerlingar- fjöllum. VALGARÐ BRIEM Sörlaskjóli 2, Reykjavík Körfuboltahringnr Frá Jóhanni Þór Hopkins. ÞAÐ ER ekki á hveijum degi sem gefst sérstakt tilefni til að þakka góða þjónustu hjá því opinbera en það virðist þó geta gerst. En þannig er mál með vexti að undirritaður, sem býr í Bökkunum (Breiðholt 1), tók sig til fyrir nokkrum dögum og smíðaði körfu- boltastaur sem síðan var settur upp á leiksvæði við Dvergabakka. Það skipti náttúrlega engum tog- um að fréttin af þessu framtaki barst sem eldur um sinu um alla Bakkana og streymdi að marg- menni mikið til að leika körfu- bolta. Undirritaður var að vonum hissa á þessari ótrúlegu ásókn og spurðist fyrir um ástæðuna fyrir þessum mikla áhuga á þessari sérstöku körfu. Kom þá í ljós að þær kröfur sem fyrir voru í hverf- inu voru allt of háar og þar að auki allar í ólagi. Sneri undirritaður sér því til Breiðholtsstöðvar gatnamála- stjóra og ræddi þar við Hörð Ein- arsson varðandi ónýtu körfurnar. Tók Hörður þessari málaleitan mjög vel og lofaði úrbótum og viti menn, strax um morguninn fundu starfsmenn hans sér tíma til að mæta á staðinn og gera kröfumar klárar. En þá var eftir málið varðandi hæðina á körfunum og að ábend- ingu Harðar sneri undirritaður sér til Einars Bjarna á aðalskrifstofu gatnamálastjóra með ósk um úr- bætur. Hafí greinarhöfundur verið hissa á viðbrögðum og efndum Harðar þá kom Einar Bjami mér svo sannarnlega á óvart. Ekki aðeins var hann fús að taka tillit til álits míns á málinu heldur bætti um betur og bauð tvær nýjar körf- ur á leikvöllinn í þeirri hæð sem hentaði betur hinum yngri körfu- boltaáhugamönnum. Og nú aðeins tveim dögum síðar hefur verið gert við skemmdu körfurnar og hafin er vinna við uppsetningu nýju karfanna. Einar Bjarni og Hörður Einars- sonar, þið eruð starfsstétt ykkar til sóma og öðram borgarstarfs- mönnum til fyrirmyndar. Undirrit- aður þakkar ykkur fyrir hönd barnanna í Bakkahverfi kærlega fyrir. JÓHANN ÞÓR HOPKINS, Dvergabakka 30, Rvík. I 4 í $ í i í 4 i Víkveiji skrifar Fyrir allnokkru skrifaði Víkvetji um þá bragðgóðu rjómaosta, með alls konar kryddjurtum, sem á markað væru komnir frá Mjólkur- búi Flóamanna. Þá sagðist Víkveiji hafa saknað þess að ekki fengist ostur á borð við danskan ost, sem seldur er undir merkinu „Pikant“ á meginlandi Evrópu. Víkveiji, sem gjarnan kaupir þá nýju osta, sem á markað koma, þótt ekki sé til annars en að smakka, rakst á öskju frá Mjólkur- búi Flóamanna með áletruninni „Rjómaostur með lauk og blönduð- um kryddjurtum“ og viti menn, þegar smakkað var á ostinum var þetta sami osturinn og sá danski „Pikant", og ekki síðri en hann. Víkveiji vill því hrósa ostagerðar- mönnum mjólkurbúsins fyrir vör- una og fullyrðir að þetta sé einhver bezti ostur sem hann hefur smakk- að úr annars ágætu úrvali íslenzkra osta. Foreldrasamtökin gefa út blað eða fréttabréf, sem ber heiti samtakanna. Þau era landssamtök foreldrafélaga og áhugafólks um málefni barna. Þetta blað barst inn á borð Víkveija á dögunum og í því er skýrsla stjórnar um starfíð 1992 til 1993. Þar segir í 9. kafla undir fyrirsögninni „Nefndastarf“: „Foreldrasamtökunum bauðst að tilnefna fulltrúa í ýmsar nefndir, bæði samstarfsverkefni félagasam- taka og einnig nefndir á vegum opinberra aðila. Vegna misskilnings í félagsmálaráðuneytinu var sam- tökunum ekki boðin aðild að nefnd sem annars vegar á að sjá um fram- kvæmd Árs fjölskyldunnar 1994 og hins vegar um mótun fjölskyldu- stefnu. Starf nefndarinnar hefur hingað til snúist fyrst og fremst um fjöl- skylduárið, en samtökin geta tæp- lega sætt sig við að eiga ekki aðild að nefnd um mótun fjölskyldu- stefnu, sérstaklega þar sem fjöldi félagasamtaka á þar fulltrúa. Það er því verkefnu næstu stjórnar að þrýsta á um aðild Foreldrasamtak- anna að þessari nefnd.“ Já, það er ekki að undra, að menn í Foreldrasamtökunum séu óánægðir, en jafnframt er undar- legt að nauðsynlegt sé að þrýsta á til þess að fá misskilning leiðréttan. XXX ópavogur heitir blað, sem gefið er út í samnefndum bæ. I því blaði gat að líta eftirfarandi klausu ( undir fyrirsögninni: Aldraðir í Kópavogi: Hætt að sprauta gegn infúensu.: ^ „I Félagsmálaráði Kópavogs hef- ur komið fram sú hugmynd að bærinn hætti að bjóða ellilífeyris- ( þegum ókeypis sprautun gegn inflú- ensufaraldri. Ástæðan mun vera sú að öldruðum fjölgar stöðugt í Kópa- vogi og hið sama á við um inflú- ensufaraldrana".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.