Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 Á umhverfisdegi eftirEið Guðnason í vaxandi mæli hafa augu manna lokist upp fyrir þeirri stað- reynd, að umhverfísspilling er ört vaxandi vá. Á æ fleiri sviðum bregðast þjóðir heims nú við um- hverfísvanda af ýmsu tagi og er ekki seinna vænna því langan tíma tekur að bæta fyrir brot liðinna ára og alda, til dæmis að stöðva eyðingu ózonlagsins og draga úr gróðurhúsaáhrifum, sem leiða munu til hækkunar hitastigs á jörðinni með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum. Frá því að Sameinuðu þjóðirnar boðuðu til fyrstu umhverfísráð- stefnunnar í Stokkhólmi í júní 1972 hefur 5. júní ár hvert verið alþjóðlegur umhverfisdagur. í ár er athyglinni beint að þeirri stað- reynd að fátæktin er eitt helzta umhverfísvandamál veraldarinnar. Einkunnarorð dagsins eru: Fá- tæktin og umhverfið: Rjúfum víta- hringinn. Þverstæðan: Fátækt — bruðl Það er raunar ein mesta þver- stæða vorra tíma að það er ekki aðeins fátæktin í vanþróuðu lönd- unum sem er umhverfísvandamál, heldur og ekki síður velmegunar- bruðlið í velþróuðu og vellríku lönd- unum. Hvert bam sem lítur dags- ins ljós í Evrópu gerir 25falt til- kall til auðlinda jarðar miðað við hvert barn sem fæðist á Indlandi. Ef allar þjóðir notuðu pappír í jafn- ríkum mæli og við Vesturlandabú- ar væru skógar jarðar löngu uppr- ættir. Við sem byggjum hin svo- kölluðu iðnvæddu lönd notum 80% allra auðlinda og orku í veröldinni og erum þó ekki nema brot af íbúa- tölu jarðar. Fátæktin knýr fólk til þess að ganga of nærri jörðinni og ef valið stendur um það að éta útsæðið eða deyja úr hungri þá borða menn útsæðið í'trausti þess að þeim legg- ist eitthvað til. Það þekkjum við. Fáfræðin er fylgikona fátæktar- innar. íbúum jarðar fjölgar nú um jafna íbúatölu íslensku þjóðarinnar eða um 260 þúsund manns á hveij- um einasta sólarhring. Það fæðast þijú börn á hverri sekúndu. íbúar jarðar eru nú 5,3 milljarðar. Ef heldur sem horfir verða íbúar jarð- ar 9 milljarðar árið 2025, eftir aðeins 32 ár. í fjölmörgum þróun- arlöndum eiga konur að meðaltali 7 börn. Dæmi sanna að með nokk- urri viðbótarskólagöngu, sem sam- svaraði líklega grunnskóla hér, lækkar þessi tala niður í þijú börn á hveija konu. Aukin menntun kvenna i þróunarlöndunum mundi að auki hafa margvísleg önnur áhrif til góðs bæði varðandi af- komu og ástand umhverfis vegna þess að konurnar í þessum löndum stjórna í ríkum mæli daglegu lífi og neyslu fjölskyldunnar. Banvænt vatn Fátæktinni og fáfræðinni fylgir líka skortur á hreinlæti. 1200 millj- ón manns í veröldinni hafa ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni. Á degi hveijum deyja 25 þúsund manns sem drukkið hafa mengað vatn. Sumsstaðar í Afríku tekur það konurnar tólf klukkustundir að sækja vatn til heimilishalds. Yfirleitt er vatnið óhreint. Vatns- mengun er mesti mengunarvaldur í veröldinni. Sú skoðun á vaxandi fýlgi að fagna að fátæktin sé megi- norsök fátæktarinnar. Þess vegna snýst umræðan um umhverfismál í mjög auknum mæli um það hvern- ig og hve fljótt ríku löndin eigi að koma hinum fátæku til hjálpar. Þetta var eitt meginviðfangsefni umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó fyrir ári síðan. Um þetta voru líka umræður á fundi framkvæmdaráðs Umhverfísstofn- unar Sameinuðu þjóðanna, UNEP, um miðjan maí. Nýráðinn fram- kvæmdastjóri UNEP Elizabeth Dowdeswell frá Eanada, sem mikl- ar vonir eru bundnar við, hefur lagt sérstaka áherslu á, að nú þurfi að finna viljann og verkfærin til að uppræta fátæktina því getan til að vinna það verk sé sannarlega til staðar. Eftirbátar annarra þjóða Þrátt fýrir ýmsan efnahags- vanda, lækkandi afurðaverð og minnkandi afla úr sjó, erum við íslendingar engu að síður meðal þeirra þjóða heims, sem hafa hæst- ar tekjur og best lífskjör. Við erum hins v:gar ekki í hópi þeirra ríkja sem leggja mest fram til þess að uppræta fátækt í veröldinni eða til að styðja fátækustu löndin til sjálfsbjargar. Þar erum við eftir- bátar annarra þjóða. Þannig greið- um við árlega til Umhverfisstofn- unar Sameinuðu þjóðanna og verk- efna á hennar vegum rúmlega fimm þúsund Bandaríkjadali eða Eiður Guðnason * „I baráttunni við fá- tæktina og umhverfis- vandann eru verkefnin óþrjótandi.“ rétt á fjórða hundrað þúsund krón- ur. Á sama tíma borga Svíar um 200 milljónir króna til Umhverfis- stofnunarinnar og Danir, sem að okkur slepptum greiða lægsta upp- hæð Norðurlandaþjóðanna, borga um 60 milljónir króna. Þrátt fyrir ítrekaðar viljayfirlýs- ingar hefur okkur íslendingum gengið afar illa að standa við fög- ur fyrirheit um aukna þróunarað- stoð til að vinna gegn vesöld og örbirgð í veröldinni. Við höfum verið víðsfjarri því stefnumarki að láta eitt prósent af vergri lands- framleiðslu renna til þróunarhjálp- ar. Árið 1991 var þetta hlutfall hjá okkur aðeins 0,13 prósent af vergri þjóðarframleiðslu. Milli ár- anna 1992 og 1993 hækkuðu framlög til þróunaraðstoðar mjög verulega og stefnt er að því að þar verði framhald á. Stendur til bóta í skýrslu umhverfisráðherra til Alþingis í mars á þessu ári um mótun stefnu í umhverfismálum segir svo í kafla um þróunarað- stoð: „Það er stefna ríkisstjórnar- innar að þróunaraðstoð nemi ár- lega fyrir næstu aldamót a.m.k. 0,4% af vergri þjóðarframleiðslu. Þessu markmiði verður náð með því að auka framlög um 20% ár hvert. Áhersla verður lögð á að miða þróunaraðstoð við kröfur sjálfbærrar þróunar og til eflingar þróunarsamvinnu á þeim sviðum þar sem ísland hefur á að skipa sérþekkingu og reynslu, svo sem á sviði fískveiða og fiskvinnslu, nýtingu jarðvarma og virkjun fall- vatna og eftirliti með jarðskjálfta- og eldvirkni. Ennfremur verður lögð sérstök áhersla á að styðja við aukna menntun og réttindi kvenna.“. Þetta eru í senn raunhæf og skynsamleg markmið. í baráttunni við fátæktina og umhverfísvand- ann eru verkefnin óþijótandi og þau eru bæði nær og fjær. í lönd- um þriðja heimsins blasa við hörm- ungar hungurs og fátæktar en nær okkur, í mið- og austur-Evrópu, sjáum við ijúkandi rústir kommún- ismans, — mesta umhverfisslyss gjörvallrar mannkynssögunnar. Til að ijúfa þann margfalda vítahring sem við nú erum í verðum við sem byggjum velmegunarlöndin að búa okkur undir það á komandi árum að taka á okkur einhveija lífskjara- skerðingu ef ekki á illa að fara fyrir okkur og þessari einu jörð. Höfundur er umhverfisráðherra. Ný hugsun um sjáv- arútvegsstefnu eftir Hannes Jónsson Formenn nefndar til þess að „móta heildstæða sjávarútvegs- stefnu" hafa kynnt efni skýrslu sinnar víða um land. Á vorfundum þeirra kom greinilega í ljós, að svo til enginn mælti með skýrslunni nema höfundarnir. Flestir töldu hana ónytjuplagg. Þingmeirihluti fékkst heldur ekki fyrir sjávarút- vegsstefnu þeirra. Sjávarútvegsráð- herra tók því þá skynsamlegu ákvörðun að stöðva málið í þinginu. Hitt er þó ljóst, að flestir vilja ekki búa við óbreytta sjávarútvegs- stefnu. Einkum er mikill ágreining- ur um gildandi kvótakerfi, sem heft- ir athafnafrelsi margra útvegs- manna og bátasjómanna; rýrir möguleika á arðbærum rekstri; flyt- ur vinnu úr landi út á sjó; og hefur reynst byggðafjandsamlegt, af því kvótinn er bundinn skipum og afía- reynslu, ekki byggðarlögum. Auk þess hefur kerfíð kallað fram brask útvegsmanna með eign, sem þjóðin á, ekki þeir. Hagkvæmasta útgerðin? Full þörf er á að endurmeta arð- semi hinna ýmsu stærða báta, skipa og veiðitækni. Onundur Ásgeirsson hefur birt athyglisverðar greinar um málið, síðast grein hér í blaðinu 11. f.m. Þar leiðréttir hann m.a. rangar tölur úr skýrslu tvíhöfða (töflu 8.2, bls. 93) um arðsemi stærri og dýr- ari skipa, af því að tvíhöfði reiknar ekki með fjármagnskostnaði við arð- semisútreikning, dregur því rangar ályktanir og boðar blekkingar. Gagnstætt því sem tvíhöfði held- ur fram virðast þjóðhagslega hag- stæðustu útgerðirnar vera smábáta- útgerð, krókaveiðar og línu- og netaveiðar. Stóru og dýru togararn- ir virðast í kostnaði éta meira en aflafé sitt, ef allt er tekið með í reikninginn, m.a. fjármagnskostn- aður. Hér þarf því nýja hugsun til að tryggja þjóðhagslega arðbæra fisk- veiðistefnu og þjóðinni arð af eign sinni: fískimiðunum. Jafnframt þarf að byggja réttinn til útræðis og físk- veiða á búsetu í byggðarlagi, ekki eignarráðum yfir skuldsettum skip- um. Ný hugsun á gömlum grunni í þessum efnum er nokkurn veg- vísi að fínna í Grágás. Lög þjóðrík- isins skilgreindu ekki fiskveiðimörk eða landhelgi sem fjarlægð frá ströndum. Greinilegt er þó, að ekki var litið á sjóinn umhverfís ísland sem sameign alls mannkyns sam- kvæmt erfðavenju Rómarréttar. Þær meginreglur giltu, að sjávarút- vegsbóndinn átti fískveiðirétt, neta og reka, á landi sínu og út frá því að vissu dýpi. Þar fyrir utan var „almenningur er fjórðungsmenn eiga allir saman“. Énn utar var „almenningshaf", sem allir Islend- ingar áttu sameiginlega. Ef við beitum nýrri hugsun gegn kvótakerfínu, afnemum það og tök- um upp nýtt með hliðsjón af vís- bendingum Grágsásar, þá gæti hið nýja kerfi í frumdrögum litið þannig Út: 1. Smábátaútgerð, króka- og línuveiði á bátum allt að 30 tonnum, væri öllum fjórðungsmönnum fijáls út að 4 mílum undan fjórðungnum. 2. Neta- og línuveiði stærri báta Hannes Jónsson „Kerf ið er líka byggða- vinsamlegt af því að nýt- ing fiskimiðanna út að 50 mílum er bundin bú- setu í fjórðungnum, sem veiðisvæðið liggur að. Kvótakerfið og kvóti bundinn við skip er úr sögunni. Veiðisókn er bundin byggðarlaginu og hana getur enginn verslað með.“ væri öllum fjórðungsmönnum fijáls á milli 4 og 50 mílna út frá fjórð- ungnum. 3. Togveiðar ísfisktogara allt að 500 tonnum væru öllum landsmönn- um fijálsar á svæði 50-200 mílur umhverfís allt landið. 4. Stærri togurum, frystiskipum og verksmiðjuskipum væri bannað að veiða innan 200 mílna marka en fijálst að veiða utan þeirra. Kostir nýja kerfisins Þessi nýja hugsun byggist á því grundvallaratriði gildandi laga, að þjóðin eigi fiskimiðin og að auðlind- ir sjávar verði nýttar með það fyrir augum, að þær skili sem mestu í þjóðarbúið. Kerfið er líka byggðavinsamlegt af því að nýting fiskimiðanna út að 50 mílum er bundin búsetu í fjórð- ungnum, sem veiðisvæðið liggur að. Kvótakerfið og kvóti bundinn við skip er úr sögunni. Veiðisókn er bundin byggðarlaginu og hana get- ur enginn verslað með. Einnig tryggir þetta nýja kerfi rekstrarhagkvæmni. í því felst sjálf- virk hemlun á óarðbæra offjárfest- ingu í of stórum skipum. Takmörk- un athafnamöguleika stærri skipa innan landhelginnar mundi sjálf- krafa draga úr fjárfestingargleði útvegsmanna í óarðbærum stórskip- um sem gera yrði út á hið opna haf utan efnahagslögsögunnar. Til viðbótar kemur svo, að þetta nýja kerfí yrði umhverfisvænt. Hin- um stórtæku og oft skaðlegu veiðar- færum stærri skipa, sem hafa veitt upp að 3 mílum, yrði bægt frá hrygningar- og uppeldisstöðvum á grunnsævi og út fyrir 50 og 200 mílumar, en umhverfísvænar, arð- bærar og atvinnuskapandi króka-, línu- og netaveiðar báta og smærri skipa stundaðar af fjórðungsmönn- um einum undan ströndum byggð- arlaga þeirra. Lokaorð Við framkvæmd þessa nýja kerfis starfaði Hafrannsóknarstofnun eðli- lega með hefðbundnum hætti. Hún lokaði veiðisvæðum lengri eða skemmri tíma og setti á banndaga eftir ástandi fískistofna og hrygn- ingar- og uppeldisstöðva o.s.frv. Þetta kerfí gæti kallað á, að bæði Hafrannsóknarstofnun og Landhelgisgæslan þyrftu að dreifa bækistöðvum sínum í fjórðunga landsins. Það væri einnig byggða- vinsamlegt og gæti orðið þjóðarbú- inu hagkvæmt. Þetta eru aðeins frumdrög, grófar útlínur, nýrrar hugsunar um sjávar- útvegsstefnu, byggð á gömlum grunni Grágásar. Hugmyndina þyrftu útvegsmann báta- og togara, fískverkendur, fískifræðingar, full- trúar Sambands sveitarfélaga og Sjómannasambandsins að skoða nánar og móta. Opió hús i dag kl. 14.00 i Þribúóum, Hverfisgötu 42 Heitt kaffi á könnunni. Tökum lagið og lærum nýja kóra. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Opiwm nýja Kosentlml rnslun á Laugaiegi 52 á mrn lamúegl ^ Veriú veHtomiii! Laugavegi 52, sími 624244 lofflhjólp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.