Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.06.1993, Blaðsíða 51
I KNATTSPYRNA Atli Einarsson: Ermjög sáttur „JÁ, ég er mjög sáttur," sagði Átli Einarsson í samtali við Morgunblaðið þegar niður- staða gerðardómsins var borin undir hann. Aðspurður um hvers vegna hann hefði valið Fram sagði Atli að Fram væri áhugavert félag og þar væri áhugaverður þjálfari. Atli sagðist ekkert hafa heyrt frá Vík- ingi og vissi ekki hver viðbrögð félagsins yrðu. „Samningurinn var dæmdur ógildur og því hlýt ég að vera laus,“ sagði Atli. B RÓSBERG Óttarsson, mark- vörður Dalvíkinga, hefur skipt yfir í Leiftur á Ólafsfirði sem leikur í 2. deild. H GLENN Hoddle fyrrum leik- maður með enska landsliðinu í knattspymu, Tottenham og Món- akó, tók við í gær sem fram- kvæmdastjóri úrvalsdeildarliðsins Chelsea eins og búist var við. ■ HODDLE stýrði og lék með liði Swindon Town í vetur með ágæt- um árangri, kom liðinu í ensku úr- valsdeildina. Swindon tryggði sér sætið með því að vinna Leicester í úrslitaleik um úrvalsdeildarsætið á Wembley sl. mánudag. Swindon vann 4:3 og gerði Hoddle fýrsta mark Swindon. H JOHN Gorman þjálfari hjá Swindon tekur líklega við stöðu framkvæmdastjóra félagsins. H HODDLE gerði þriggja ára samning við Chelsea. Fastlega er búist við að hann muni einnig leika með liðinu. í samningnum er ákvæði um, að ef Hoddle verði ráðinn þjálfari enska landsliðsins, sé hann laus allra mála hjá Chelsea. ■ ÚR VALSDEILDA RLIÐW enska Ipswich Town keypti í gær Paul Mason frá Aberdeen í Skot- landi fýrir 39 milljónir ÍSK. Mason er 29 ára gamall og lék með hol- lenska liðinu Groningen áður en hann gekk til liðs við Aberdeen. ■ SOUTHAMPTON keypti í gær vamarmanninn Simon Charlton frá Huddersfield, þar sem Ian Ross, fyrrum þjálfari KR og Vals, ræður ríkjum. H VIV Anderson varnarmaður hjá Sheffield Wednesday hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Barnsley. Anderson, sem er 36 ára gamall, tók félaga sinn hjá Wednesday, Danny Wilson með sér til Barnsley og mun hann sjá þar um þjálfun auk þess að leika með félaginu. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR GIGAiUIHUóBOM LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 líli 51 Gerðardómur dæmdi samninginn við Víking ógildan: Atli Einarsson í Fram SAMNINGUR Atla Einarssonar knattspyrnumanns við knatt- spyrnufélagið Víking er samkvæmt niðurstöðu gerðardóms sem fjallaði um málið ógildur frá upphafi, og er Atli, sem leik- ið hefur með félaginu undanfarin ár, þvílaus allra mála hjá félaginu. Knattspyrnufélagið Fram skilaði inn félagaskiptum fyrir Atla úr Víkingi yfir í Fram á fimmtudagskvöldið en Víking- ur á eftir að skrifa undir skiptin. Geir Þorsteinsson starfsmað- ur KSÍ sagði í samtali við Morgunblaðið að samkvæmt reglum KSÍ þyrftu Víkingar að skrifa undir ef leikmaðurinn væri skuld- laus við félagið, en ef Atli hefði þegið greiðslur frá félaginu á grundvelli samningsins sem nú er dæmdur ógildur, muni félagið eflaust krefja hann um endurgreiðslu og því sé málinu alls ekki lokið. Forsvarsmenn Víkings vildu lít- ið tjá sig um málið í gær, en fulltrúi þeirra í gerðardómnum, Jóhapnes Sævarsson, var í öllum atriðum ósammála niðurstöðu meirihlutans. Fulltrúi Atla í gerð- ardómnum var Björgvin Þor- steinsson og oddamaður skipaður af dómstól KSÍ var Jón Gunnar Zoega. Samningurinn barst sex dög- um of seint Niðurstaða meirihlutans bygg- ist á því að samningnum, sem Atli gerði við Víking, var ekki skilað inn á skrifstofu KSÍ innan þeirra tímamarka sem gefin eru upp í reglum sambandsins. í 7. grein reglugerðar KSÍ um stöðu félaga og leikmanna segir að félag sem gerir samning við leikmann skuli senda stjóm KSÍ afrit af undirrituðu staðalformi samnings til skráningar, innan mánaðar frá undirritun. Samningurinn var dagsettur 8. janúar 1992, en barst skrifstofu KSÍ 16. febrúar 1992, sex dögum of seint. Meirihlutinn lýsti samninginn ógildan frá upp- hafi á þessum grundvelli, og var því ekkert fjallað um efni hans. Trúi ekki að Víkingur haldi áfram að spyrna við fótum Björgvin Þorsteinsson lögmað- ur Atla og fulitrúi hans í gerðar- dómnum sagði að niðurstaðan væri skýr og aðilar yrðu að hlíta henni. Hann sagðist ekki trúa að Víkingur stæði í vegi fyrir félaga- skiptum Atla þegar niðurstaða í þessu máli lægi fyrir. „Ég trúi því ekki að þeir ætli að halda áfram við spyma við fótum," sagði Björgvin í samtali við Morg- unblaðið. Halldór Jónsson formaður knattspyrnudeildar Fram stað- festi í samtali við Morgunblaðið að Fram hefði skrifað undir félag- skiptin, en ekki hefði verið gengið frá samningi við Atla. Hann sagði að þeir myndu mjög fljótlega óska eftir staðfestingu knattspyrnu- deildar Víkings á félagaskiptun- um. Morgunblaðið/Einar Falur Magnús Gylfason skýtur hér að marki Grindvíkinga í leiknum í gærkvöldi án þess að vamarmaður Grindvíkinga komi við vömum. Dauft í Garðabæ Stjaman og Grindavík gerðu jafntefli, 1:1, í 2. deild á heimavelli þeirra fyrrnefndu í gær- kvöldi. Leikurinn Stefán var baráttuleikur og Eiríksson heldur leiðinlegur, skrifar 0g úrslitin eftir at- vikum sanngjörn, þó Stjaman hafi sótt meira í leiknum og fengið nokkur dauðafæri. Grindvíkingar skomðu fyrsta mark leiksins á 7. mínútu. Páll Bjömsson gerði það laglega eftir snarpa skyndisókn og laglega^ stungusendingu sem splundraði vörn Stjömunnar. Jón Þórðarson jafnaði síðan með glæsilegu skoti úr þröngu færi á 27. mínútu. Síð- ari hálfleikur var dapur. „Við vomm ekki að spila eins og við gerum best,“ sagði Bjarni Bene- diktsson fyrirliði og langbesti mað- ur Stjörnunnar í leiknum. Þorsteinn Bjarnason markvörður var bestur Grindvíkinga. Létt í Mjóddinni IR-ingar áttu ekki í miklum vandræðum með Þróttara frá Neskaupstað í Mjóddinni í gærkvöldi. ÍR sigraði 5:0 en fyrirstaðan var of lítil til að segja Breiðhyltinga á siglingu. Fjör hjá BlogKAá Isafirdi Bí og KA gerðu jafntefli, 1:1, í nokkuð fjömgum leik á ísafirði í gærkvöldi. Heimamenn sóttu meira í fyrri hálfleik án þess að skapa sér teljandi færi, en síðari hálfleikur var mun opnari. Mark ísfírðinga kom á 79. mínútu en þá tók Gunnar Björgvinsson auka- spymu sem hafnaði beint á kollinum á Emi Torfasyni sem afgreiddi knöttinn laglega í netið. Heima- menn bökkuðu eftir markið og pressuðu KA-menn stíft og upp- skám mark á síðustu mínútunni, og var þar Halldór Kristinsson að verki eftir sendingu Ormarrs Örl- ygssonar. Ormarr og Pétur Óskars- son vom bestir í liði KA en hjá BÍ þeir Trausti Hrafnsson og Gunnar Björgvinsson. RúnarJónatansson Heimamenn sóttu af krafti und- an vindi en mörkin létu á sér standa. Norðfirðingar áttu líka færi ■■■■■■ og þráuðust við, allt Stefán þar til á 25. mínútu Stefánsson þegar Bragi Björns- skrifar son skoraði fyrir ÍR úr vítaspymu eftir brot á Kjartani KjartansSyni. Kjart- an skoraði sjálfur sjö mínútum síðar og Þorri Ólafsson kom ÍR í 3:0 með skalla í lok fyrri hálfleiks. Eftir hlé áttu gestirnir nokkur góð skot að marki, en heimamenn» skomðu; fyrst Bragi úr þvögu inní markteig Norðfirðinga og síðan Heiðar Ómarsson af stuttu færi eftir skyndisókn upp hægri kantinn. Knattspyrnuúrslit 2. deild karla Stjarnan - Grindavik______________....1:1 Jón Þórðarson (27.) - Páll Bjömsson (7.). BÍ - KA ..........................„.1:1 Öm Torfason 79. - Halldór Kristinsson 90. Tindastóll - Leiftur________________1:1 Þórður Gíslason (50.) - Páll Guðmundsson (83.). IR - Þróttur N......................5.-0 Bragi Bjömsson (25„ 51.), Kjartan Kjart- ansson (32.), Þorri Ólafsson (44.), Heiðar Ómarsson (76.). 3. deild karla Víðir - Selfoss_____________________.2:0 Ólafur Róbertsson, Vilhjálmur Einarsson. Dalvík - Haukar.....................2.-0 Bjöm Rafnsson 2. HK - Völsungur......................3:1 Ejub Purisevic, Jóhann Ólafsson, Steindór Elíson — Jónas Hallgrímsson. Grótta - Skallagrímur..........„....1:3 Kristján Haraldsson - Finnur Thoriarius 2, Vaidimar Sigurðsson. 4. deild karla A-riðill: Afturelding - Fjölnir...............3:3 Sumarliði Amason, Björgvin Friðriksson, Börkur Ingvarsson (sjálfsmark) - Stefán Aðaisteinsson, Vignir Arason, Guðmundur Helgason B-riðill: Leiknir - Armann....____„.......„..„4:1 Njarðvík - Ægir................... 2:3 C-riðilI: SM - Þrymur________________________ 4:0 D-riðUl: Höttur - Valur Rf.................. 5:2 Grétar Eggertsson, Haraldur Klausen, Jón Kjöinir Albertsson, Kári Hrafnkelsson, Heimir Hallgrimsson - Agnar Arnþórsson, Daníel Borgþórsson Sindri - KSB................... „0:4 Huginn - Einherji...................1:6 Heppnin með Tindastóli Barátta og harka em þau orð sem fyrst koma upp í hugann eftir leik Tindastóls og Leifturs á Sauðárkróki í gær- kvöldi, og orðið heppni kemur senni- lega upp í huga margra heima- manna. Leiftursmenn hefðu hæg- lega getað gert út um leikinn fyrir hlé. Tvisvar sinnum áttu þeir skot í tréverkið og jafnoft björguðu KristinnJens Sigurþórsson skrífar frá Sauöárkróki Tindastólsmenn á línu. Hinummeg- in á veilinum átti Bjarki Pétursson eitt hættulegasta færi leiksins, en skot hans fór framhjá. Strax í upphafí síðari hálfleiks skoraði Þórður Gíslason fyrir Tinda- stól eftir að hafa sýnt mikið harð- fylgi. Leiftursmenn tóku þá til sinna ráða og það sem eftir lifði leiks sóttu þeir án afláts, en uppskám aðeins eitt mark. Tindastólsliðið var ekki svipur hjá sjón, og kann skýringin að vera sú að í liðið vantaði lykilmenn eins og til dæmis þjálfarann Pétur Pét- ursson, sem fékk ekki einu sinni að vera liði sínu til halds og trausts á bekknum. Leiftursmenn vantaði herslu— muninn til að innbyrða stigin þrjú, en greinilegt er að liðið mun eiga eftir að velgja andstæðingunum undir uggum í sumar. & Getraunadeildin Sunnudagur 6. júní - KR-völlur kl. 20.00: - VIKINGUR KR-ingarfjölmennum í nýju stúkuna og styðjum okkar menn. KR-klúbburinn hittist fyrir leik. Léttar veitingar. Skráning í knattspyrnuskóla KR alla virka daga í síma 27181. Illl FORMPRENT Hverfisgotu 78, simar 25960 - 25566 VISA ALEFLI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.